Morgunblaðið - 31.07.1997, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 31.07.1997, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ1997 37 FRÉTTIR Tónleikar að Lónkoti í Skagafirði UM verslunarmannahelgina, nánar tijtekið laugardag og sunnudag, verður í boði skemmtun í Tjaldi galdramannsins í Lónkoti í Skaga- fírði. Fyrri daginn verður skemmti- kvöld með Herði G. Ólafssyni sem hefst kl. 23. Seinni daginn munu fimm afkomendur Jóhanns Konráðs- sonar og Fanneyjar Oddgeirsdóttur halda tónleika. Þeir eru: Jóhann Már Jóhannsson, sem jafnframt er kynn- ir, Svavar Hákon Jóhannsson, Jóna Fanney Svavarsdóttir, Örn Viðar Birgisson og Stefán Birgisson. Und- irleikari er Guðjón Pálsson. Sungin verða íslensk og erlend lög, einsöng- ur og tvísöngur. Konnara-konsert- inn hefst kl. 16. Tjald galdramannsins eða Hálf- dánar-Hringur er stærsta tjald landsins. Það er hálfgildings hring- leikhús, niðurgrafið að meginhluta, með hlöðnum innveggjum úr sjávar- grjóti en tyrfðum útveggjum. í Lónkoti er og Gallerí Sölva Helgasonar. Þar stendur nú yfir ljós- myndasýning Hafdísar Herberts- dóttur Bennett á myndum úr Sléttu- hlíð og nágrenni. Hellaskoðim í Kerlingarfj öllum í KERLINGARFJÖLLUM er að finna einn stærsta íshelli á íslandi. Hann er um 1.000 m og er undir skíðasvæðinu. Um verslunarmannahelgina verð- ur farið í skoðunarferðir í hellinn. Ferðin tekur um tvo tíma og verður farið í þrjár ferðir á dag. I hellis- munnanum verður kveiktur eldur og grillaðar pylsur. Frítt er í ferðina en þeir sem eiga vasaljós eru beðnir að koma með þau. Um verslunarmannahelgina legg- ur talsverður fjöldi fólks leið sína til Kerlingarfjalla. Fullt er í gistingu í húsinu en næg tjaldstæði eru við Ásgarð. Skógarganga í kvöld ELLEFTA skógarganga skógrækt- arfélaganna, Ferðafélags íslands og Búnaðarbankans um „Græna trefil- inn“ hefst í dag, fímmtudag, á vegum Skógræktarfélags Mosfellsbæjar. Mæting og rútuferð verður frá Mörk- inni 6, húsi Ferðafélagsins, kl. 20, f S I: ilw f fen & j S f HB !li i * AW Vv ’> V } Igrv , - • * vV V '1 Útilífsskóli í Grafarvogi SKÁTAFÉLAGIÐ Vogabúar í Grafarvogi starfrækja útilífs- skóla fyrir börn á aldrinum 7-12 ára í sumar. Dagskrá sumarsins hefur ver- ið fjölbreytt og saman stendur af útilífi, náttúruskoðun, heim- sókn í Fjölskyldugarðinn, hjóla- ferð, leikjum, söng og ekki síst tjaldútilegu við Hafravatn. Mörg börn eru á námskeiðum skátafé- lagsins að kynnast því í fyrsta skipti að fara í útilegu án for- eldra og er hvergi betra að gera það en undir leiðsögn reyndra skáta, segir í fréttatilkynningu. Eins og undanfarin ár hefur verið yfirfullt á öllum námskeið- um til þessa, en ennþá eru nokk- ur pláss laus á námskeið sem verður 4.-15. ágúst. Námskeiðið stendur yfir alla virka daga kl. 10-16 og boðið er upp á gæslu frákl. 8-18. eða við Reykjalund kl. 20.30. Gengið verður frá Reykjalundi um Skammadal að Mosfelli. Þaðan mun rúta aka göngumönnum aftur í bfl- ana. Staðkunnugir leiðsögumenn frá skógræktarfélögunum og Ferðafélag- inu verða með í för og segja frá því sem fyrir ber. Næsta ganga verður eftir tvær vikur, fímmtudaginn 16. ágúst, í umsjá Skógræktar ríkisins. Gengið með strönd Kópa- vogsbæjar HAFNAGÖNGUHÓPURINN heldur göngu sinni áfram með strönd Skeijafjarðar. Að þessu sinni verður gengið með strönd Kópavogsbæjar í kvöld. Farið verður frá Hafnarhúsinu kl. 20 og með Almenningsvögnum suður að Nesti í Fossvogi. Gangan sjálf hefst við Fossvogslækjarós kl. 20.30. Far- ið verður með ströndinni út á Kárs- nes og um hafnarsvæði Kópavogs- hafnar. Þaðan inn með Kópavogi að Kópavogslækjarósi og eftir göngu- stígum inn í Hlíðargarð og að Nátt- úrufræðistofu Kópavogs. Eftir að hafa litið þar inn verður gengið yfir Hálsinn niður að Foss- vogslækjarósi. Val er um að ganga niður í Hafnarhús eða fara með Al- menningsvögnum til baka. Fyld- armaður verður Björn Þorsteinsson sagnfræðingur. Allir eru velkomnir í ferð með Hafnagönguhópnum. Fjölbreytt dagskrá á Þingvöllum UM verslunarmannhelgina eins og aðrar helgar verður boðið upp á fjöl- breytta fræðsludagskrá í þjóðgarðin- um á Þingvöllum. Dagskráin hefst með kvöldvöku í Þingvallakirkju í kvöld og annað kvöld, föstudag, verður farið í stutt kvöldrölt niður að vatnsbakka Þing- vallavatns. Á laugardag, sunnudag og mánudag verður fjölbreytt dag- skrá bæði í Þingvallakirkju og víðs- vegar um þjóðgarðinn. Þátttaka í fræðsludagskrá þjóð- garðsins er ókeypis. Nánari upplýs- ingar veita landverðir í þjónustumið- stöð þjóðgarðsins. Verslunar- mannahelgi í Mývatnssveit FRÆÐAGARÐURINN Kvika og landverðir í Mývatnssveit standa fyrir fræðslu- og náttúrutúlkunar- dagskrá fyrir alla fjölskylduna um verslunarmannahelgina. Gestum í Mývatnssveit gefst kost- ur á að taka þátt í fjölbreyttri dag- skrá sér að kostnaðarlausu, m.a. gönguferðum, fyrirlestrum og barnastundum. Nánari upplýsingar fást í Upp- lýsingamiðstöð ferðamanna í Reykj ahlíðarskóla. LEIÐRÉTT Missagnir um Landakotsskóla og Landakotskirkju í FRÉTT föstudaginn 25. júlí af nýútkominni bók um Landakots- skóla í tilefni af 100 ára afmæli hans, var rangt farið með nafn höfundar ágrips af sögu skólans. Rétt er nafn hans Gunnar F. Frið- mundsson. í Víkveija sunnudaginn 27. júlí er rangt farið með vígsluár Landa- kotskirkju. Rétt er að hún var vígð 22. júlí 1929. Beðist er velvirðingar á þessum missögnum. Rangur smíðastaður og smíðaár í SJÁVARÚTVEGSBLAÐI Morg- unblaðsins, Úr verinu, var í gær sagt frá breytingum sem gerðar hafa verið á Sæbjörgu ST frá Hólmavík. Skipið var sagt smíðað í Danmörku árið 1959 en það mun ekki alls kostar rétt. Hið rétta er að skipið er smíðað á Akranesi árið 1967 og hét þá Drífa RE og leiðrétt- ist það hér með. Rangur myndatexti RANGUR texti birtist með mynd í gær af hátíðahöldum á Grundar- firði. Þar sagði að gengið væri upp á Stöð og niður í Sandvík, en mynd- in sýndi í raun göngu í svonefndan Vigdísarlund, sem kenndur er við Vigdísi Finnbogadóttur fyn-verandi forseta íslands. Hár vatnshiti dregur úr veiði NORÐURÁ er komin með á fjór- tánda hundrað laxa í sumar og Þverá ásamt Kjarrá hefur gefið um 1.000 laxa. Mikil hlýindi hafa dregið úr tökum og veiði hefur verið fremur dauf að und- anförnu. Þá kom lítið af nýrunn- um laxi í stórstreyminu í síðustu viku, en dálítil hreyfing hefur verið síðustu daga. Mikill !ax er í báðum ánum og búast menn við góðum endaspretti ef skilyrði verða hagstæðari. Veitt er út ágúst í Norðurá og Þverá. „Þetta er vatnið í ánni og ekk- ert annað. Það er þokkalegt að magni til, en það hefur verið svo heitt í Borgarfirðinum í júlí að veiðin líður fyrir. Stærsti straum- ur sumarsins er eftir, hann kem- ur viku af ágúst og stendur í fjóra daga. Við erum að vonast eftir góðum endaspretti í kjölfar- ið,“ sagði Jón Ólafsson, einn af leigutökum Þverár og Kjarrár, í samtali við blaðið. Að sögn Jóns hefur verið dálít- il smálaxaganga síðustu daga. Bergur Steingrímsson hjá SVFR tók í sama streng og sagði eitt hollið i Norðurá hafa fengið að- eins 28 laxa. Fín veiði í Leirvogsá Rúmlega 220 laxar voru komnir úr Leirvogsá á þriðjudag og er fiskur um alla á. Síðustu daga hefur veiðin verið best of- anvert í ánni, en nýir laxar eru þó að skríða inn á hverju flóði. Mest af laxinum er 4-6 pund, en nokkrir 12-14 punda hafa komið á land. Meiri fluguveiði hefur verið í ánni í sumar en oft áður, en samt er maðkur aðal agnið. Gengur vel í Hellisá Hörkuveiði hefur verið í Hell- isá á Síðu, einni af „hafbeitarán- um“, að undanfömu. Þar hefur rúmlega 500 löxum frá Lárósi verið sleppt samkvæmt undan- þágu og er fimm laxa kvóti á stöng. Veitt er á þijár stangir og hafa all nokkur holl fengið kvótann á allan stangirnar og haldið heim með 30 laxa eftir tveggja daga úthald. Margt af laxinum er stórlax. Sjóbleikjan gengur af krafti Sjóbleikjuveiði í Dölum og á Skógarströnd hefur farið vax- andi að undanfömu. Til marks um það er holl í Hörðudalsá sem fékk 70 bleikjur og annað í Miðá sem fékk 50 stykki. í Miðá voru fískarnir allt að 5 pund, en í báðum ánum mest 1-2,5 pund. Á Barðaströnd er að færast fjör í leikinn. Þar gengur bleikjan síðar en í Dölum, en veiði hefur farið vaxandi í ám á borð við Djúpadalsá, Gufudalsá og Skálmardalsá. Bleikjan er svipuð SIGURBRANDUR Dagbjartsson með 13 punda urriða sem að stærð og í Dölum, mest 1-3 hann veiddi í Mjósundi í Laxá í Mývatnssveit fyrir nokkru. pund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.