Morgunblaðið - 31.07.1997, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ1997 41
IDAG
BRIDS
BRIDS
llmsjón Guömundur Páll
Arnarson
CAVENDISH - keppnin,
sem fram fer árlega í
Bandaríkjunum, vekur
ætíð mikla athygli, enda
er umgjörð mótsins óvenju-
leg: Keppt er bæði í tví-
menningi og sveitakeppni,
en áður en leikar hefjast
eru sveitir og pör „boðin
upp“ og kaupverðið mynd-
ar síðan verðlaunapott.
Hluti upphæðarinnar renn-
ur til spilaranna, en bróður-
parturinn til „eigenda"
þeirra sem vel standa sig.
Keppnin 1997 fór að þessu
sinni fram í Las Vegas í
maí síðastliðnum. Banda-
ríkjamennirnir Harry Tud-
or og Michael Seamon
unnu tvímenningskeppn-
ina, en ítölsku Evrópu-
meistararnir, Buratti-
Lanzarotti, og Lauria-
Versace, urðu í öðru og
þriðja sæti. Sigurvegararn-
ir mættu Hamman og fé-
lögum í síðustu umferð:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ G106
V ÁG32
♦ D1093
♦ 76
Vestur
♦ ÁK42
V 10
♦ K85
+ K10532
Austur
♦ D875
V D965
♦ 642
+ 98
Suður
♦ 93
V K874
♦ ÁG7
♦ ÁDG4
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 grand
2 spaðar Dobl * 3 spaðar Pass
Pass Dobl Pass 4 hjörtu
Dobl Pass Pass Pass
Eftir opnun Hammans á
grandi, kemur Seamon inn
á tveimur spöðum, sem
sýnir spaða og láglit. Fyrra
dobl norðurs er neikvætt,
svo síðara doblið sýnir fyrst
og fremst meiri styrk og
eindreginn vilja til að gef-
ast ekki upp. Hamman
hefði betur passað niður
þijá spaða, því þar á hann
heimtingu á 500 í eigin
dálk, en hann þóttist vita
að makker ætti fjórlit í
hjarta og kaus að reyna
við geimið þar. Dobl Seam-
ons er hugmyndaríkt, en
hann á tvö leynivopn: Ein-
spil i hjarta og aðeins fjóra
spaða, svo hann þykist vita
að ÁK í spaða standi fyrir
sínu.
Hamman fékk ekki við
neitt ráðið og endaði þrjá
niður, mínus 800, sem gaf
Seamon og Tudor góða
skor og tryggði þeim fýrsta
sætið. Þeir hefðu endað í
fimmta sæti ef Hamman
hefði passað niður þrjá
spaða.
Árnað heilla
QAÁRA afmæli. Í dag
0\/ er áttræður Pétur
Eiríksson, Gnoðarvogi 54,
Reykjavík, fiskmatsmað-
ur og Drangeyjarsund-
kappi, synti Drangeyjar-
sund 1936. Pétur tekur á
móti vinum og kunningjum
í dag á heimili dóttur sinnar
Þórunnar og Guðbjörns Pét-
urssonar, Vallargerði 24,
Kópavogi, milli kl. 18-20.
Or\ÁRA afmæli. í dag
OU er áttræður Ólafur
Benediktsson, fyrrv. út-
sölustjóri ÁTVR, Furu-
lundi 15G, Akureyri.
Hann tekur á móti vinum
og ættingjum í Oddfellow-
húsinu við Sjafnarstíg á
afmælisdaginn frá kl.
17-19.
n p'ÁRA afmæli. Á
i O morgun, föstudag-
inn 1. ágúst, er sjötíu og
fimm ára Torfi Torfason,
Þverholti 24, Reykjavík,
fyrrum kaupmaður í
versluninni Þingholt. I til-
efni dagsins biður hann
ættingja og vini að gleðjast
með sér á afmælisdaginn
föstudaginn 1. ágúst á
Grand Hótel Reykjavík frá
kl. 17-20.
r/\ÁRA afmæli. Á
OU morgun, föstudag-
inn 1. ágúst, verður fimm-
tugur Ingi Heiðmar Jóns-
son, kennari og organisti,
Hofi, Hraungerðishreppi.
Hann hefur opið hús í Þing-
borg frá kl. 15—18.
Barna & Qölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman þann 14. júní í Há-
teigskirkju af sr. Tómasi
Sveinssyni Rut Skúladóttir
og Halldór Jóhann Harð-
arson. Heimili þeirra er að
Bergstaðastræti 19, Reykja-
vík.
Bama & fjölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman þann 19. júlí í Lága-
fellskirkju af sr. Jóni Þor-
steinssyni Berglind Krist-
iusdóttir og Axel Valur
Birgisson. Heimili þeirra
er í Danmörku.
Með morgunkaffinu
Ást er.
. að skilja vinnuna eftir
heima meðan þú ferð
ísumarfrí.
TM R«q. U 8. Pat. Otl — aN rtghu raaacvad
(c) 1996 Loa Angalas Tlmes Syndicate
Jd [
STJÖRNUSPA
cftir frances Drake
LJON
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gæddur forystu-
hæfileikum og átt mjög
gott með að vinna með
öðrum.
... og gef oss í dag vort daglegt brauð, það er að
segja brauðmylsnuna sem skattayfirvöld leyfa okk-
ur að halda eftir ...
Hrútur j21. mars - 19. apríl) Það er ekkert eðlilegra en að neita vini sínum um pen- inga og eyða þeim í ástvin sinn. Kvöldið er til að lyfta sér upp.
Naut (20. apríl - 20. maí) if^ Þér ættir um of til að fresta hlutunum. Til þess að sam- starf gangi þarf fólk að ræða málin. Kvöldinu skal varið heima við.
Tvíburar (21. maí - 20.júní) 'fffc Þér hættir til að ganga fram af sjálfum þér. Slakaðu á. Allar fjárfestingar skyldu vandlega skoðaðar.
Krabbi (21. júní - 22. júlí) HSS Forðastu fjárhagslegt samkrull með öðrum. Það er allt í lagi að láta starf og leik fara saman stöku sinnum.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þér hættir til fljótfæmi. Gættu þess að hugsa hvert viðvik vandlega, þá mun viðskiptavit þitt njóta sín og bera ávöxt.
Meyja (23. ágúst - 22. september) Sumar fjárfestingar geta reynst of dýrkeyptar. Afl- aðu þér stuðnings annarra og þá mun hugmyndaflug þitt fá að njóta sín.
V°g ^ (23. sept. - 22. október) ggfc Það væri ráðlegt að bera viðskiptaáætlanir sínar undir ráðhoilan vin svo komist verði hjá mistökum.
Sþoródreki (23. okt. - 21. nóvember) Þér hættir til að vanmeta sjálfan þig. Treystu á mátt þinn og megin og þá mun þér vel farnast.
Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) jffÖ Gættu þess að ganga ekki á bak orða þinna. Þú getur verið sniðugur í innkaupum þegar þú ferð að eigin áliti.
Steingeit (22. des. - 19.janúar) Þér hættir til þess að spara eyrinn og henda krónunni. Hugsaðu þig vel um þannig að þér verði sem mest úr peningunum.
Vatnsberi (20.janúar-18. febrúar) Þú getur verið lengi að koma þér í gang á morgn- ana. Mundu að bestu vinirn- ir eru þínir nánustu. Ferða- lög eru ágætis upplyfting.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) !n£ Nú er rétti tíminn til þess að kaupa eitthvað fallegt til heimilisins. Láttu allar áhyggjur lönd og leið.
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridshátíð á
Sauðárkróki 1997
DAGANA 22.-24. ágúst verður
haldið stórmót á Sauðárkróki í til-
efni 100 ára afmælis Sauðárkróks.
Spilað verður um silfurstig og veg-
leg peningaverðlaun. Þátttöku-
gjaldi er stillt í hóf, 1.500 kr. á
spilara á dag.
Dagskrá mótsins:
Föstudagur 22. ágúst.
Spiluð eru undanúrslit, tvær 28
spila Mitchell-lotur og komast 24
estu pörin í úrslit á laugardeginum,
en hin pörin komast í hliðartví-
menning. Mögulegt er að skrá sig
úr undanúrslitum eftir fyrri um-
ferðina og nýta kvöldið í annað og
spila síðan hliðartvímenninginn á
laugardeginum.
Mótsetning og staðfesting þátt-
töku. 12.30
1. umferð undanúrslit. 13.00-
17.00
2. umferð undanúrslit. 18.00-
22.00
Verðlaun fyrir undanúrslit:
1. verðlaun 30.000
2. verðlaun 20.000
3. verðlaun 10.000
Vatnsheld og vindþolin
Allar stærðir og gerðir
Margir litir - gott verð
Laugardagur 23. ágúst
Úrslit, barómeter, 3 spil á milli,
12.00-17.00
Öll pör byrja með sama skor.
18.00-22.30
1. verðlaun 60.000
2. verðlaun 40.000
3. verðlaun 20.000
Sárabótar-Mitchell, tvær 28
spila lotur
1. umferð 13.00-17.00
2. umferð 18.00-22.00
1. verðlaun 30.000
2. verðlaun 20.000
3. verðlaun 10.000
Sunnudagur 24. ágúst
Sveitakeppni, Monrad, 7 um-
ferðir, 6 spila leikir.
1.-7. umf. 11.00-17.00
Verðlaunaafhending og mótslok
kl. 17.20
Verðlaun í sveitakeppni:
1. sæti 60.000
2. sæti 40.000
3. sæti 20.000
Góð gistiaðstaða - tjaldstæði -
golfvöllur. - Skráning og nánari
upplýsingar gefur Kristján Blönd-
al, hs. 453-6146, vs. 453-5630,
Ásgrímur Sigurbjörnsson, hs.
453-5030, vs. 453-5353 og skrif-
stof BSÍ, s. 587-9360.
INNRA
ÖRYGGI
BMW 3 línan með 2 loftpúðum
VERÐ FRA 2.288.000
dQbpOinasmit]an Q ©
\/orclun HMpincveni 7 • ^ími ^11 1100
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiöja Ratahrauni 13 • Sími 555 6100
B&L Suðurlandsbraut 14, sími 553 8636
lóga gegn kvfða
með Ásmundi Gunnlaugssyni.
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í
gegnum miklar breytingar í lífinu.
Kenndar verða leiðir tii þess að slaka á og
öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla
eða þekking á jóga nauðsynleg.
Þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 12. ágúst.
YOGAf
STUDIO
Hátúni 6a
Sími 51 1 31 OO
mmmmmmmmmr
Stjörnuspána á að iesa sem
dægradvöi. Spár af þessu
tagi byggjast ekki á traust-
um grunni vísindalegra
staðrcynda.
f£mhj
Qlp
Dagskrá Samhjálpar um verslunarmannahelgina
fyrir þá sem ekki fara í ferð
Laugardagur 2. ágúst:
Opið hús kl. 14-17. Lítið inn og rabbið um daginn og veginn.
Dorkaskonur sjá um heitan kaffisopann og meðlætið.
Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng. Kl. 15.30 tökum við lagið.
Takið með ykkur gesti.
Allir velkomnir.
Sunnudagur 3. ágúst:
Almenn samkoma kl. 16.00. Fjölbreyttur söngur. Samhjálparkórinn.
Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng. Vitnisburðir. Barnagæsla.
Ræðumaður Óli Ágústsson.
Allir velkomnir i Þríbúðir, Hverfisgötu 42, um verslunarmannahelgina.