Morgunblaðið - 31.07.1997, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
LAWRENCE Tierney leikur
föðurlegan vin í „Evicted".
MAGNIJS Jónsson fer með hlutverk evrópsks
eiturlyfja sala i myndinni.
„EVICTED“ er um ævintýri tveggja félaga þegar þeir
eru bornir út úr íbúð sinni.
Framleiðir kvik-
mynd í Los Angeles
Það eru ekki margir Islendingar
sem hafa fengið nöfn sín skrifuð
stórum stöfum á hvíta tjaldið í er-
lendum kvikmyndum. Bjöm Bald-
vinsson framleiðandi og Magnús
Jónsson leikari eru tveir ungir menn
sem geta státað af þessu. Anna
Sveinbjamardóttir náði tali af
Bimi nýverið.
kvikmyndarinnar „Evicted".
BJÖRN og Magnús unnu
að gerð óháðrar banda-
rískrar kvikmyndar,
„Evicted“, sem er leik-
stýrt af Michael Tiemey og hefur
m.a. leikarann gamalkunna Lawr-
ence Tierney innanborðs (eftir-
nafnið er ekki tilviljun, þeir eru
frændur). Myndin er nú fullgerð
og vinnur Björn þessa dagana að
markaðssetningu „Evicted“.
Fyrsta spuming var auðvitað
hvemig það hafi borið til að hann
tók að sér að framleiða myndina.
Hann svarar strax að það sé nú
saga að segja frá því. „Þegar við
Magnús Jónsson voram 14-15 ára
gamlir kom vinur okkar, Stefán
sonur Árna Egilssonar bassaleik-
ara, í heimsókn frá Bandaríkjunum
ásamt félaga sínum, Michael Ti-
erney, en við voram að gutla sam-
an í tónlist á þessum tíma. Micha-
el og Magnús stóðu í bréfaskriftum
í einhvem tíma eftir þessa heim-
sókn en síðan datt sambandið nið-
ur. Þegar ég hélt til Los Angeles
fyrir fjóram árum sagði Magnús:
,jÞú berð Michael kveðju mína.“
Eg benti honum á að 11 milljón
manns byggju í borginni svo lík-
urnar á óvæntum endurfundum
væru ekki miklar.
Ég er síðan úti að djamma með
tveimur öðram íslendingum kvöld
eitt og við skellum okkur óboðnir
inn í gamlan flottan bíl. Öku-
maðurinn snýr sér að okkur og
spyr hvaðan við komum. Við svör-
um því og hann spyr: „Þekkið þið
strák sem heitir Magnús?“ Þetta
var þá Michael.
Við endumýjuðum kynnin í kjöl-
farið. Michael vissi ekki í fyrstu
að ég væri á leiðinni í kvikmynda-
nám, hélt ég væri enn í tónlist-
inni, en þegar það kom upp úr
dúmum þá sagði hann mér að
hann væri með handrit í smíðum.
Við ákváðum að skella okkur út í
að kvikmynda það. Michael redd-
aði peningamönnurn og átti einnig
smá pening svo við gátum byijað.“
Björn segir að slagorð krotað á
klósettvegg í skólanum sem hann
sækir hafi ýtt við sér að drífa sig
í þetta verkefni en það hljóðar:
„Vertu ekki að láta skólann tefja
þig.“
Bornir út
„Evicted“ er um tvo unga menn
sem eiga í stríði við umsjónarmann
íbúðarhússins þar sem þeir leigja.
Umsjónarmaðurinn, fyrrverandi
Víetnamhermaður, tekur deilurnar
alvarlega og dregur þá fyrir rétt
og lýkur málinu með því að þeir
eru reknir út, m.a. vegna þess að
þeir mæta of seint fyrir dóm og
öll pappírsmál þeirra eru í klúðri.
Félagamir fara á þvæling, hitta
m.a. dóphaus og stripp-stelpur, og
ákveða í kjölfar þess að kveðja
umsjónarmanninn með því að
halda rokna partý í íbúðinni. Um-
sjónarmaðurinn hefur í millitíðinni
fengið bakþanka og býður þeim
að vera nokkram dögum lengur,
en félagarnir hundsa boðið og
partýið skellur á.
Leikstjórinn sjálfur, Michael,
leikur aðalhlutverkið ásamt systur-
syni sínum, Terence. í öðram stór-
um hlutverkum eru Terry Camil-
leri sem umsjónarmaðurinn og
Magnús Jónsson sem evrópskur
eiturlyijasali, en föðurbróðir leik-
stjórans, Lawrence Tierney, leikur
föðurlegan vin aðalsöguhetjunnar.
Eins og Bjöm bendir á er Lawr-
ence þekkt nafn í Hollywood með
litríkan feril að baki. Hann hóf að
leika í kvikmyndum á fimmta ára-
tugnum og er þekktur fyrir hlut-
verk sín í glæpamyndum eins og
„Dillinger" (1945) og „Bom to
Kill“ (1947). Lawrence var einnig
alræmdur slagsmálahundur og
gerði það hann óvinsælan í Holly-
wood. Síðustu tíu árin hefur ferill
hans aftur verið í uppsveiflu en
hann hefur leikið í myndum eins
og „Prizzi’s Honor“, „Tough Guys
Don’t Dance“ og „Reservoir
Dogs“.
Terry Camillieri hefur einnig
langan feril að baki. Hann lék í
einni af fyrstu myndum Peter
Weir, „The Cars That Ate Paris“,
árið 1974. Á síðari árum hefur
hann leikið í ýmsu t.d. Napóleon
í „Bill & Ted’s Excellent Advent-
ure“ árið 1989. Nýjasta hlutverk
Camillieri er í „The Truman
Show“ sem Peter Weir leikstýrir
en Jim Carrey fer með aðalhlut-
verkið.
Að sögn Björns tók undirbún-
ingur fyrir tökur um hálft ár, en
þær fóru fram í mars 1995 og
stóðu í fimm vikur. „Við Michael
ákváðum tökudag og auglýstum
eftir leikurum. 2.000 manns svör-
uðu. Los Angeles er staður þar sem
hægt er að fara af stað með svona
kvikmynd og hlutirnir rúlla. Það
er hægt að nálgast þekkt nöfn af
því að maður þekkir mann sem
þekkir mann... og menn eru til-
búnir að slá af launakröfum ef
þeim líst vel á handrit.
Áhersla á útlit
Ég útvegaði mikið af tökuliðinu.
Við lögðum áherslu á að við vildum
gott útlit á myndina. Það er ljótt
að horfa á ódýrar, óháðar myndir
eins og „Clerks“ og „Brother
McMullen". Við fengum reyndan
kvikmyndatökumann með sína að-
stoðarmenn sem var dýrt. Einnig
fengum við góðan hljóðmann sem
vann t.d. við tökur á „Jurassic
Park“. Þetta var sterkur kjarni og
útkoman er sú að myndin lítur
rosalega vel út. Sagan sjálf gengur
líka vel upp. Hún gengur lengra
en hefðbundin Hollywood-fram-
leiðsla leyfir sér.“
Um síðustu vikur fyrir tökur og
upptökutímann sjálfan segir Björn:
„Það var allt bijálað í 2-3 mán-
uði. Maður svaf í 3 tíma á nóttu.
Við gerðum allt sjálfir. Michael sá
t.d. sjálfur um tónlistina fyrir
myndina. Þetta var eins og stríð,
mjög óraunverulegt tímabil en ein-
hvern veginn gekk allt upp. Einn
daginn vantaði okkur t.d. nauðsyn-
lega leikmuni fyrir ákveðin atriði
og þeir komu bara upp í hendum-
ar á okkur.“
Áhugi Sundance
Eins og fyrr sagði vinnur Bjöm
nú að því að koma „Evicted" á
markaðinn. „Við erum að stúdera
kvikmyndahátíðimar, og einnig að
ræða við menn í Hollywood. Stjóm-
andi Sundance-kvikmyndahátíðar-
innar, Geoffrey Gillmore, hefur
sýnt áhuga á því að sjá myndina
en hann vill færa hátíðina nær
upprana sínum, það er að gefa
nýjum kvikmyndagerðarmönnum
tækifæri til þess að koma myndum
sínum á framfæri.
í Hollywood eru allir tilbúnir að
sjá fullgerða kvikmynd. Stúdíóin
era að verða undir og vantar efni
eins og þeir sem vinna á óháða
markaðinum gera, en þeir era frek-
ar tilbúnir til þess að taka áhættu.
Maður verður samt að gæta þess
að láta myndina ekki í rangar
hendur. Röng markaðssetning get-
ur eyðilagt mynd. Við eru þess
vegna að leita að kynningarfull-
trúa.
Við getum prufukeyrt myndina
í einu landi og eram að hugsa um
Island eða Ástralíu, þar sem við
höfum sambönd. Við höfum tæki-
færi til þess að framsýna hana í
haust eða vetur. Okkur liggur svo
sem ekkert á. Framleiðslan var
ódýr, myndin kostaði um hálfa
milljón dollara, svo við erum ekki
að tapa peningum þó við gefum
okkur tíma. Hver veit nema íslensk-
ur bíóstjóri sýni áhuga á „Evicted"
þá eram við tilbúnir að slá til! Ef
dómar hér um myndina væra síðan
jákvæðir þá yrði það gott nesti fyr-
ir markaðssetninguna. “
Björn hefur fleiri járn í eldinum
en „Evicted". Hann er enn í námi
við Columbia College og er kominn
af stað með nýtt verkefni, þó að
hann viðurkenni að það sé erfitt
að sinna náminu og standa í kvik-
myndaframleiðslu á sama tíma.
Björn segir ekki mikið um nýja
verkefnið annað en það sé komið
af stað og velþekktir leikarar eins
og Ed Harris og Drew Barrymore
hafi fengist til þess að lesa yfir
handritið.
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Matthildur
(MatUd'd)'k k ★
Sonur forsetans
(First Kid)-k ★ ★ 'h
Leitin að lífshamingjunni
(Unhook the Stars)ir ★ ★ 'h
í deiglunni
(The Crucible)k ★ ★ 'h
Tvö andlit spegils
(The MirrorHas Two Faces)
★ ★ ★
Ógnarhraði
(Runaway Car)-k k
Lífið eftir Jimmy
(After Jimmy)k ★ ★
Bundnar
(Bound)k k k
Ókyrrð
(Turbulence)'h
Hatrinu að bráð
(Divided by Hate)k 'h
Gullbrá og birnirnir þrír
(Goldilocks and the Three Bears)
k'h
Þruma
(Blow Out)k k k 'h
Tortímandinn
(Terminator)k k
FARÐU AÐ
H3IMAN
París
Isic og Go25 korthafar greiða 22.100
Hamborg
Dusseldorf
Munchen
251 afsláttur fyrir 12 - 21 árs
24.900
19.900
23.000
25.000
Kaupmannahöfn frá 13/9 21.030
Innifalið: Flugfar báðar leiðir
og flugvallarskattar
Uh
x
o
x
X
2
ED
O
S
X
X
x
(JlD Farðu að heiman - en komdu við
á Ferðaskrifstofu stúdenta.
EmI pað dugar ekki AÐ SmA HEIMA OG LESA!
slni: 561 5656 fax: 551 9113 heimasIða: http://www.centrum.is/studtravel