Morgunblaðið - 24.09.1997, Síða 8

Morgunblaðið - 24.09.1997, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Framkvæmdastj óri VSÍ vill að leikskólar verði einkavæddir Sammngurinn hefur efnahagsleg áhrif „ÞAÐ er bamaskapur ef menn halda að það hafi ekki einhver efna- hagsleg áhrif eða áhrif á vinnu- markaði þegar mjög stórir hlutar opinbera geirans eru að semja um prósentuhækkanir sem samræmast betur verðbólgutölum síðasta ára- tugar heldur en því sem nú er að gerast,“ sagði Þórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands íslands, um nýgerð- an kjarasamning leikskólakennara. Þórarinn sagðist hafa áhyggjur af þenslu i opinberri þjónustu. Sveit- arfélögin kæmu ekki til með að bregðast við þessum samningi með því að skera niður þjónustu eða draga úr kostnaði. „Sveitarfélögin koma fyrst og fremst til með að hækka skatta. Þetta er ákvörðun um að auka vægi opinbera geirans. Það fínnst mér umhugsunarvert. Ég er þeirrar skoðunar að það hefði átt að vera liður í þessu máli að einka- væða þessa þjónustu og koma henni sem allra mest í útboðsform úr þessu reglugerðarsamfélagi sveitarfélaga og ráðuneytis,“ sagði Þórarinn. Hækkanir hjá opinberum starfsmönnum „Það kæmi mér ekki á óvart að þeim, sem voru fyrir sama samn- ingstímabil að semja um 16-18% hækkun, finnist dálítið merkilegt að þetta endurmat á launum leikskóla- kennara skuli skyndilega hafa farið fram með þessum hætti. Það kemur undarlega fyrir sjónir ef endurmat á launahiutföllum eigi aðallega að felast í að opinberir starfsmenn hækki umfram aðra. Það getur ver- ið tilefni til breytinga, en á almenn- um vinnumarkaði hafa þær breyt- ingar aðallega haldist í hendur við einhverjar breytingar á skipulags- málum sem hefur gefíð færi á að ná fram kostnaðarlækkun." Þórarinn sagðist vita að kostnað- ur við leikskólakerfið væri hár og mönnunin væri mjög mikil. „Það er auðvitað firra ef menn halda að kostnaðurinn muni ekki koma fram. Við höfum áhyggjur af því að kostn- aður opinberra aðila fari vaxandi. Almennar launahækkanir á íslandi eru langt umfram það sem gerist í samkeppnislöndum okkar. Þær hækkanir sem eru þarna á ferðinni og verið er að ræða um í þeim samn- ingum sem nú standa yfir fara langt fram úr því sem annars staðar er verið að gera,“ sagði Þórarinn. PAOLA SVART/HNOTA HNOTA Frábærir stólarpá Rossetto Áklæði eftir vali Stgr.verð 37.810 kr. rnrv húsgögn Ármúla 44 sími 553 2035 Mokveiði eftir Iþrótta- og tómstundaráð 1,9 milljónir í styrki BORGARRÁÐ hefur samþykkt til- lögu frá íþrótta- og tómstundaráði um að veita fimm styrki, samtals að upphæð 1.920 þús. Samþykkt var að styrkja íþrótta- félag heyrnarlausra um 500 þús., Skáksveit Hólabrekkuskóla 170 þús., Skásambandið v/skólaskák- móta 400 þús., Fræðslu- og þjón- ustudeild kirkjunnar vegna starfs með nýbúum 350 þús. og Taflfélag Hellis 500 þús. seladráp Það gengur á ýmsu á sjóbirtings- slóðum sunnanlands þessa dagana. Það var t.d. handagangur í öskj- unni er fréttist af selnum í vatna- mótum Tungufljóts, Eldvatns og Hólmsár á fimmtudag. Selurinn var skotinn og fjarlægður úr ánni samdægurs og á föstudag og laug- ardag var eins og við manninn mælt, sjóbirtingur gekk af krafti í Tungufljótið og hollið sem var að veiðum naut góðs af, mokveiddi á föstudag og laugardag, alls 30 birtinga frá 5 pundum og upp í 12 pund! Fram að því hafði veiði verið lítil. Sjóbirtingsveiði glæðist í Ytri-Rangá „Sjóbirtingurinn er farinn að ganga af nokkrum krafti hjá okkur og að undanfömu hafa komið þó nokkrir mjög góðir dagar. Hafa Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson MAGNÚS Jónasson og Þórður Pétursson renna stórlaxi af Hólmavaðsstíflu í Laxá í Aðaidal sprelllifandi ofan í klakkistu. menn oft verið að fá 10-20 físka á dag, mest fyrir neðan Ægissíðu- foss, frá báðum bökkum. Birt- ingurinn er af ýmsum stærðum. Það er mikið af pundsfíski, en góður slatti af 2-7 punda fiski með. Bleikjuveiði hefur einnig glæðst, en þær eru algengastar um 2 pund. Þá eru menn enn að reyta upp lax, enda er nóg af hon- um, sérstaklega á Rangárflúðum og í Ármótahyl á urriðasvæðinu. Þar er mikið af laxi. Nokkrir stór- laxar hafa verið veiddir að undan- förnu, 12-14 punda, þeir gefa sig oft einmitt á haustin," sagði Þröst- ur Elliðason leigutaki árinnar í gærdag. Hann sagði að laxveiði í Ytri-Rangá og Hólsá væri komin í 1.050 laxa og í Eystri-Rangá hefðu veiðst um 1.650 laxar, eða alls um 2.700 laxar. Vantar nýjan fisk í Grenlæk Agnar Davíðsson, formaður Veiðifélags Grenlækjar og Jóns- kvíslar, sagði í samtali við blaðið í gær að talsvert mikill fískur væri í Grenlæk fyrir ofan Flóð, en það væri mest leginn fískur og lítið hefði gengið af nýjum físki upp á síðkastið. „Það hefur fyrir vikið verið fremur róleg veiði, en þó hefur hún glæðst allra síðustu daga þar sem hlýnað hefur veru- lega í veðri. Það fékk t.d. eitt þriggja daga hollið 60 birtinga á Seglbúðasvæðinu, allt á flugu og mjög mikið af því 4-8 punda físk. Það er reyndar eitt albesta hollið í sumar og haust. Svæðin fyrir ofan hafa einnig verið að gefa og ekki er óalgengt að menn fái 2-6 fiska á dag. Stærstu fiskamir í haust hafa verið 10-12 punda. í Jónskvísl er talsvert af físki, en hann hefur tekið illa. Sumir fá ekkert, en aðrir 2-4 yfír daginn. Það vantar líka nýjan físk í Jóns- kvísl,“ sagði Agnar. Málþing um mannréttindi Varnir gegn ómann- úðlegri meðferð fanga í Evrópu Evrópunefnd um varn- ir gegn pyndingum og ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu" er nafnið á nefnd sem sett var á stofn sam- kvæmt Evrópusamningi með sama nafni, sem ísland hefur verið fullgildur aðili að frá árinu 1991. Þessi samningur varð til fyrir til- stilli ráðherranefndar Evr- ópuráðsins árið 1987 og fagnar því tíu ára afmæli sínu í ár. Af því tilefni stendur Mannréttindaskrifstofa ís- lands og íslandsdeild Am- nesty International í kvöld fyrir málstofu um samning- inn og áhrif hans í þeim löndum sem hafa fullgilt hann. Málstofan fer fram í Litlu Brekku, bakhúsi veit- ingastaðarins Lækjarbrekku í Reykjavík, og hefst kl. 20:30. Frummælendur verða séra Jón Bjarman, fulltrúi í Evrópunefnd- inni, og Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, sem ný- kominn er af alþjóðlegri ráðstefnu um samninginn í Lundúnum. Morgunblaðið fékk sr. Jón til að segja frá hlutverki þessarar óvenjulegu nefndar, sem hann hefur starfað með síðan 1992. „Hlutverk nefndarinnar var fyrst og fremst það að koma í veg fyrir að ófijálsir menn sem eru sviptir frelsi sínu af stjórnvöldum séu beittir harðræði eða jafnvel pyntaðir," segir Jón. „Aðalhlut- verk nefndarinnar er þannig fyrir- byggjandi eðlis. Það sem er merki- legt við hana er að aðildarþjóðir samningsins gera með sér sam- komulag um að „skoða hver í annars garði“.“ - Hvert er vinnufyrirkomulag nefndarinnar? „Nefndin heldur fundi og skipu- Ieggur heimsóknir til landa sem hafa fullgilt samninginn; í slíkum heimsóknum fer hún og skoðar stofnanir þar sem menn eru í haldi vegna frelsissviptingar af einu eða öðru tagi. í samningnum er tekið fram að allar upplýsingar skulu liggja frammi og nefndarmönnum tryggður frjáls aðgangur að þeim á meðan á heimsókninni stendur. Þær heimsóknir sem nefndin fer í á hveiju ári, sem eru um það bil 6 að jafnaði, eru skipulagðar í upphafí árs. Það er ekki gefið upp hvert farið verður fyrr en rétt áður, til þess að menn geti ekki farið að „hreinsa til í garðinum sínum“ gagngert vegna þess að nefndin sé á leiðinni. Þessar heimsóknir eru af þrennu tagi. Fyrst ber að nefna almennu heimsóknirn- ____________ ar, sem farnar eru þriðja hvert ár. Síðan eru svokallaðar „ad hoc“-heimsóknir, sem eru skemmri og beinast gegn ákveðnum stofn- _____ unum vegna ákveðinna tilvika. Loks er það eftirlitsheim- sóknir, sem farnar eru til að líta eftir því hvort farið hafí verið að ráðum eða tilmælum nefndarinnar og komið til móts við ábendingar hennar." - Hvað hefur þér af fenginni reynslu þótt erfíðast í starfi nefnd- arinnar? „Erfíðast í starfinu hefur oft reynzt vera heimsóknir á lögreglu- stöðvar. Engin viðvörun er gefín áður en við komum. Við birtumst yfirleitt seint að kvöldi eða snemma nætur. Nú vil ég ekki kasta rýrð á lögregluna, en reynsl- Sr. Jón Bjarman ► Séra Jón Bjarman fæddist árið 1933 á Akureyri. Hann tók stúdentspróf frá MA 1954 og lauk guðfræðinámi frá Háskóla Islands 1958. Hann var prestur í Vestur-íslendingabyggðum í Manitoba 1958-1961, þá í Lauf- ási í Skagafirði til 1966 og gengdi stöðu æskulýðsfulltrúa þjóðkirjunnar 1966-1970. Næstu 16 árin var sr. Jón fanga- prestur og hefur þjónað sem sjúkrahúsprestur þjóðkirkjunn- ar frá 1986. Hann tók sæti í Evrópunefnd um varnirgegn pyndingum og ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refs- ingu árið 1992. Sr. Jón Bjarman er kvæntur Jóhönnu K. Pálsdóttur prófasti og eiga þau tvö börn. Búast má við 2. heimsókn nefndarinnar síðan 1993 an hefur sýnt að hættan á illri meðferð handtekins manns er mest á fyrsta sólarhringnum eftir handtöku. Ef við verðum varir við eitthvað mjög slæmt þá beitum við því sem venjulega er kallað tafarlaus at- hugasemd (immediate observati- ori), sem felst í því að við gerum vart við það sem við sáum hjá viðkomandi stjórnvöldum og för- um fram á úrbætur þegar í stað. Venjulega gefum við þriggja mán- aða frest til svars og úrbóta." - Nefndin kom til Islands síðast 1993. Hvernig kom ísland út úr úttektinni þá og er ekki orðið lík- legt að hún komi brátt aftur? „ísland kom út mjög svipað og hin Norðurlöndin, þar eru sams kona kerfi og sams konar vanda- mál við að etja. Það er mjög lík- legt að hún fari að koma aftur, en ég get ekkert ákveðið sagt um það. Það er líka ljóst að ég sem _________ íslendingur verð ekki í þeim hópi nefndar- manna sem gerir út- tekt á fangelsismálum á Islandi." - Skilaði heimsókn _________ nefndarinnar hingað árangri? „Það gerði hún tvímælalaust. Hún gerði ákveðnar tillögur og það er verið að breyta starfsemi fangelsismálastofnunar og í fang- elsum landsins með tilliti til þeirra tillagna. 1 þeim var líka fjallað um venjulegan réttargang, sem hefur meðal annars leitt til nýrra laga um meðferð handtekinna, þannig að árangur af starfi nefnd- arinnar hérlendis er greinilegur. Réttarstaða handtekinna er mál sem við látum okkur miklu varða, því hættan á að handteknir menn verði fyrir harðræði er mest fyrstu sólarhringana eftir handtöku."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.