Morgunblaðið - 24.09.1997, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 9
FRÉTTIR
Lögmannafélag
Islands með ólög
mæta gjaldskrá
Starfsmenn SR og
Landspítala
Sameigin-
leg ályktun
um sam-
einingu
STJÓRNIR læknaráða og starfs-
mannaráðs Sjúkrahúss Reykajvíkur
og Landspítala hafa samþykkt eftir-
farandi yfirlýsingu vegna skýrslu
um „skipulagsathugun sjúkrahús-
anna í Reykjavík og nágrenni".
Forsendur þær fyrir sparnaði sem
fram koma í skýrslu VSÓ um
„skipulagsathugun sjúkrahúsanna í
Reykjavík og nágrenni" eru reistar
á veikum grunni. Iðulega eru bornir
saman ólíkir hlutir og síðan dregnar
ályktanir sem ekki standast. Engin
tilraun er gerð til að meta þá miklu
vinnu sem fer í vísindastörf og
kennslu. Við teljum að forsendur
breytinga eigi fyrst og fremst að
vera faglegar en þeim þætti er ekki
gert nægilega hátt undir höfði í
skýrslunni. Auður sjúkrahúsanna
felst að mestu leyti í þjálfuðu starfs-
fólki og því þarf að skapa viðunandi
aðstöðu. Gífurleg þrengsli og skort-
ur á vinnuaðstöðu standa báðum
sjúkrahúsunum mjög fyrir þrifum.
Hvort sem af sameiningu verður eða
ekki þarf að leggja verulega fjár-
muni í að bæta starfsaðstöðu á báð-
um sjúkrahúsunum. Sameining
kann að leiða til sparnaðar í framtíð-
inni en hún mun ekki skila ávinn-
ingi nema fjármunum sé í upphafi
varið til nauðsynlegra breytinga.
Umræða um sameiningu stóru
sjúkrahúsanna í Reykjavík hefur
staðið lengi. Við eru sammála um
að nú sé rétt að kanna þessa mögu-
leika ofan í kjölinn. Læknaráð og
starfsmannaráð sjúkrahúsanna eru
tilbúin að taka þátt í þeirri umræðu
af fullum heilindum.
ÞRÁTT fyrir að samkeppnisráð
hafi á árinu 1994 hafnað beiðni
Lögmannafélags íslands um
undanþágu til að gefa út leiðbein-
andi gjaldskrá hefur stjórn félags-
ins framreiknað gjaldskrá frá 1992
og haft hana til viðmiðunar í störf-
um sínum. Samkeppnisráð telur
þetta fara í bága við bannákvæði
samkeppnislaga um verðsamráð
og vera brot gegn fyrri ákvörðun-
um ráðsins og áfrýjunarnefndar
samkeppnismála, en áfrýjunar-
nefndin staðfesti á sínum tíma
úrskurð samkeppnisráðs.
Samkeppnisstofnun barst í sum-
ar erindi frá lögmanni þar sem
fram kom að stjórn Lögmannafé-
lags íslands beitir samanburði á
gjaldtöku einstakra lögmanna við
gjaldskrárliði í gjaldskrá félagsins
frá 1. júlí 1992. Samkeppnisráð
telur að þetta leiði til þess að hinni
ólögmætu gjaldskrá sé í raun hald-
ið við og umrædd háttsemi lög-
mannafélagsins því til þess fallin
að draga úr samkeppni milli lög-
manna. Beiting stjórnar Lög-
mannafélagsins á gjaldskrá félags-
ins frá 1. júlí 1992 við meðferð
úrskurðarvalds síns samkvæmt
lögum um málflytjendur brjóti því
gegn 10. og 12. grein samkeppni-
slaga.
Borgarstjóri geri tillögu
FRAMKVÆMDANEFND Samráðs
um Reykjavíkurlista hefur falið
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra, að leggja fram tillögu
um hvernig valið verður á framboðs-
lista Reykjavíkurlistans við næstu
borgarstjórnarkosningar; hvort
prófkjör verði látið fara fram eða
hvort uppstillinganefnd raði á list-
ann.
Ingibjörg sagðist reikna með að
fljótlega í næstu viku mypdi hún
leggja fram sína tillögu. „Ég er til
í hvað sem er,“ sagði hún, þegar
spurt var hvort hún yrði í fyrsta
sæti listans eða í baráttusætinu.
Hún sagði að ekki væri tímabært
að greina frá með hvaða hætti yrði
valið á listann en að hún hefði
ákveðna skoðun á því. „Ég veit ekki
til þess að einhver þeirra, sem skipa
listann nú vilji draga sig til baka
en auðvitað gæti það komið fram,“
sagði hún. „Sennilega mun það ekki
koma fram fyrr en aðferðarfræðin
liggur fyrir. Menn gefa sjálfsagt
ekki út slíka yfirlýsingu fyrr. Ekki
frekar en hjá Sjálfstæðisflokknum."
Rólegur
minkur
MINKURINN á myndinni sat nán-
ast fyrir hjá Braga Halldórssyni
sem var á ferð á Þingvöllum á
góðviðrisdegi nýlega. Ekki voru
nema um 10 metrar á milli þeirra
og sagði Bragi að kyrrt hefði
verið og því hefði minkurinn ver-
ið rólegur í fyrstunni. Gat hann
þá tekið myndina og reyndar
fleiri en síðan stakk minkurinn
sér niður í sprungu.
Vilt þú leigja íbúðina þína í vetur?
Eldri hjón utan af landi óska eftir að taka á leigu ibúð
meó húsgögnum miðsvæðis í Reykjavík.
Leigutími okt./nóv.—apríl/maí.
Góð umgengni og öruggar greiðslur.
Tilboð sendist afgreióslu Mbl., merkt: „íbúð — 2291".
Erum flutt
úr Austurstræti 5 í Austurver,
Háaleitisbraut 68.
Verið velkomin - nœg bilastœði
'he,simer)}<xn
O^SÍMI 5
553 3305
"\
DomusMedica 551 8519
Kringlunni 568 9212
Mikið úrval
af herraskóm
Verð: 7.495,-
Tegund: 1516
Svort leður í stærðum 40-46
STEINAR WAAGE
THE LEILA COLLECTION
Full búð af nýjum vörum
Púðar — dúkar — teppi — mottur
Einnig haustsending af skarti frá 1928
Allt ný nu|,istu
BOUTIQUI
Laugavegur 20b sími 552 2515
Náttföt og
sloppar
á góðu verði
SKIPTIKJÖR I BDÐI FYRIR SP 19B7 II6A
/ r
I UTBDÐI 24. SEPTEMBER
Spariskírteini ríkissjóðs í 2. fi. A 1987 - 6 ár, koma til innlausnar 10. október
næstkomandi. Þeir sem eiga þessi skírteini geta tryggt sér skiptikjör á nýjum
spariskírteinum í markflokkum í útboði 24. september.
Hafðu samband strax við starfsfólk
Lánasýslu ríkisins og fáðu nánari
upplýsingar. Þar getur þú einnig fengið
alla aðstoð við þátttöku í útboðinu.
Nýttu þér skiptikjörin og vertu áfram
í örygginu.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA • SALA • INNLAUSN • ASKRIFT
JIQJ iiO 9