Morgunblaðið - 24.09.1997, Síða 10

Morgunblaðið - 24.09.1997, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/GS ÞORFINNUR Þórarinsson bóndi á Spóastöðum og formaður Landgræðslufélags Biskupstungna með herfið sem dregið var yfir melana eftir að dreift hafði verið fræi og áburði. Morgunblaðið/GS Á JÖKULÖLDUNNI Pokakerlingu í landi Hóla sem keypt var og lagt undir afréttinn 1958. Síðla sumars var víða komin græn slikja. Jarlhettur og Langjökull eru í baksýn. Uppgræðsla á afrétti Biskupstungna Nú er unnið að uppgræðslu á hluta af Bisk- upstungnaafrétti. Gísli Sigurðsson skoðaði svæðið en sáð var í 250 ha í sumar. SYÐSTI hluti afréttar Biskups- tungna er að stórum hluta örfoka. Þar er annars vegar land jarðar- innar Hóla, sem hreppurinn keypti og lagði undir afréttinn, en hins vegar Tunguheiði sem telst sér- eign Bræðratungukirkju. Síðast- liðið vor var sú ákvörðun tekin að vinna að uppgræðsiu þessa svæðis sem nær inn að Sandá. Landgræðslufélag Biskups- tungna, sem stofnað var 1994, stendur að því með Landgræðslu ríkisins og er markmiðið að hefta jarðvegsrof, sem enn er þar til stað- ar þó í litlum mæli sé, og klæða landið öflugum gróðri til frambúðar og þá með það fyrir augum að sá gróður geti nýst afréttarfé. Þetta er stórt verkefni en það sem skipt- ir sköpum er að uppgræðsluna er hægt að kosta með fé sem ríkið hefur skuldbundið sig til að leggja fram til bindingar á koltvísýringi samkvæmt Ríó-sáttmálanum. Samningur var gerður við land- eigendur sem eru eins og áður segir Biskupstungahreppur og Bræðratungukirkja. Landgræðsl- an tók að sér að koma upp fimm strengja rafgirðingu, sem er alls 14 km löng og er skiiin eftir spilda vestast í Hólalandi þar sem fé getur komizt óhindrað innan af afrétti til byggðar. Vinnu við girð- ingarnar lýkur nú í september. Svæðið sem á að græða upp er Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson SNEMMA í sumar komu bændur úr Biskupstungum á uppgræðslusvæðið með dráttarvélar og unnu að sán- ingunni. Hér er blandað saman áburði og fræi. alls um 2.500 ha. Verkið hófst í sumar með því að hópur manna úr Biskupstungum kom með drátt- arvélar. Sáð var fræi og áburður borinn á um 170 ha og slóðadreg- ið á eftir með þar til gerðu herfi, en það hefur sýnt sig að þá vegn- ar fræinu betur. Landgræðslan bar á ógreiðfært land úr flugvél. Auk þess var plantað lúpínu í svæði sem ekki eru véltæk og verður mel og lúpínu sáð í hluta svæðis- ins í haust. Alls tókst að sá í 250 ha svæði á sumrinu. arinsson á Spóastöðum, Gísli Ein- í stjórn Landgræðslufélags arsson í Kjarnholtum og Arnheiður Biskupstungna eru Þorfinnur Þór- Þórðardóttir í Gýgjarhólskoti. Sandvatn Opið svæði milli girðinga Landsþing Náttúrulækningafélags íslands Ríkið standi við skrifleg loforð Eðlilegt að ríkið rækti viðskipti við þá sem bjóða ódýra þjónustu NÁTTÚRULÆKNINGAFELAG íslands telur ámælisvert að ríkið standi ekki við skrifleg loforð um viðskipti við fyrirhugaða heilsu- stofnun í Kjarnaiundi á Akureyri og valdi sífelldum erfiðleikum í rekstri Heilsustofnunar í Hvera- gerði. Þetta kemur fram í ályktun Landsþings Náttúrulækningafé- lags Islands sem haldið var í Hveragerði 20. september sl. Bæj- arstjórn Hveragerðis lýsir yfír þungum áhyggjum sínum af þeirri stöðu sem nú er komin upp milli NLFÍ og heilbrigðisráðuneytis um rekstur heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði. í ályktuninni segir að Heilsu- stofnunin í Hveragerði sé ódýrasti vistunarkostur heilbrigðiskerfisins í landinu og njóti eigi að síður al- mennrar viðurkenningar fyrir gæði. Félagið telji eðlilegt í ijár- hagsvanda heilbrigðiskerfisins að ríkið rækti góð viðskipti við samtök sem bjóða góða og ódýra þjónustu og taki þau viðskipti fram yfír dýrari kosti í heilbrigðiskerfínu. í ályktuninni kemur fram að dagurinn á Heilsustofnun í Hvera- gerði kosti 5.500 krónur. Til samanburðar kosti dagurinn um 10 þúsund krónur á Reykjalundi, um 13 þúsund krónur á Grensás- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur og um 24 þúsund krónur á endur- hæfingardeild bæklunardeildar Landspítalans. Stjórn falið að grípa til ráðstafana Landsþingið heimilaði stjórn Náttúrulækningafélagsins að ganga til samninga við heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið um gerð þjónustusamnings vegna Heilsu- stofnunar NLFÍ í Hveragerði. Hafi samkomulag ekki náðst við ráðuneytið um nýjan samning fyr- ir 1. október nk. er stjórn félags- ins jafnframt heimilað að fram- lengja um þijá mánuði núgildandi samning um rekstur Heilsustofn- unar NLFÍ. Hafí samningur ekki verið framlengdur eða nýtt samkomulag komist á fyrir 1. október nk. er stjórnum NLFÍ og Heilsustofnunar NLFÍ falið að grípa til nauðsyn- legra ráðstafana við rekstur heilsustofnunarinnar til að tryggja að félagið eða heilsustofnunin verði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni vegna rekstrarins. Verðlagseftirlit laun- þegahreyfingarinnar og Neytenda- samtakanna Lítið borist af kvört- unum LÍTIÐ hefur borist af kvörtunum um verðhækkanir til samstarfs- nefndar Alþýðusambands íslands, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Neytendasamtakanna um verðlagseftirlit. Hins vegar hefur nokkuð borið á kvörtunum vegna verðmerkinga í verslunum og mis- ræmis milli þess verðs sem uppi er í búðinni og þess verðs sem innheimt er við kassa. Starfsemin hefur því í auknum mæli beinst að því að gera verðkannanir af ýmsu tagi. Guðmundur Gylfi Guðmundsson, hagfræðingur hjá Alþýðusambandi íslands, sagði að verðhækkanir hefðu verið minni en óttast var í kjölfar kjarasamninga í vor. Um það réði sennilega gengisþróunina mestu, en einnig hefði hagnaður og afkoma hjá fyrirtækjum verið býsna góð. Það hefði því lítið borið á kvöt- unum vegna verðhækkana til nefnd- arinnar og hefði því starfið meira beinst í farveg verðkannana. Búið væri að gera tvær verðkannanir í sumar, annars vegar á verði þjón- ustu við bifreiðar og hins vegar á verði á tómstundastarfi fyrir börn. Áfram fylgst með Guðmundur sagði að áfram yrði fylgst með verðþróuninni og einnig væri ákveðið að halda áfram með verðkannanir af ýmsu tagi. I fyrstu könnuninni hefði verið kannað verð á smurningu og hjólbörðum. Síðan hefði verið kannað verð á tóm- stundastarfi fyrir börn. Byijað hefði verið á fimleikum og dansi og síðan tekið fyrir íþróttastarf hjá íþróttafé- lögunum, en niðurstaðan í þeim efn- um hefði birst í fjölmiðlum um helg- ina. Guðmundur sagði að segja mætti að tilgangurinn með könnuninni á íþróttastarfinu væri tvenns konar. Ánnars vegar að leiða fram verðmis- muninn á þessu starfi og hins vegar að sýna fram á hvað tómstundastarf væri dijúgur útgjaldaliður. Hægtað hringja í 112 úr öllum GSM-símum HÆGT er að hringja úr GSM-síma beint í Neyðarlínuna án þess að slá fyrst inn lykilnúmer. Eiríkur Þor- bjömsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir að nokkur dæmi séu um að þetta hafí ráðið úrslitum um hvort fólki í neyð hafi tekist að kalla á hjálp í tæka tíð. Þegar þyrluslysið varð inn af Hamarsfirði fyrr í þessum mánuði tókst bóndanum á Bragðavöllum að láta vita af slysinu með því að hringja á hjálp úr GSM-síma sem var í þyrlunni. Hann gat ekki hringt úr símanum í venjuleg númer því að fyrst þurfti hann að slá inn lykil- númer sem hann þekkti ekki. Hann j náði hins vegar að hringja í neyðar- númer Neyðarlínunnar, 112, því að enginn lás er á því númeri í GSM- símum. Eríkur sagði að í nokkrum öðrum tilvikum hefði fólk náð að kalla á hjálp Neyðarlínunnar án þess að vita um lykilnúmer GSM-síma. Þetta væri því mikilvægt öryggisat- riði. Neyðarlínan sæi hins vegar 1 ekki úr hvaða síma væri hringt j þegar haft væri samband við hana 1 með þessum hætti og það væri viss ókostur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.