Morgunblaðið - 24.09.1997, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLADIÐ
Búnaðarbankinn að selja um 10% hlut í Tryggingamiðstöðinni
Sjóvá íhugarkaup
á hluta bréfanna
NBCfékk
flest Emmy
verðlaun
Pasadena, Kaliforníu. Reuter.
NBC sigraði keppinauta sína í sjón-
varpsgeiranum með því að hljóta
24 Emmy verðlaun nýlega.
NBC sigraði vegna þátta eins
og„Seinfeld“, „Frasier" „3rd Rock
From the Sun“ og „Mad About
You“. Kaplasjónvarpskerfið HBO
hlaut 19 verðlaun, CBS, 12 og ABC
10.
NBC tryggði sér verðlaun fyrir
beztu gamanþættina, „Frasier", og
þættirnir “Law & Order“ hlutu
verðlaun í sínum flokki. John Lit-
hgow var kjörinn bezti leikarfinn
fyrir “3rd Rock From The Sun“ frá
NBC og Helen Hunt var valin bezta
leikkonan fyrir leik sinn í „Mad
About You“, einnig frá NBC.
------♦ ♦ ♦----
Konur í
viðskiptum
funda
BPW-klúbburinn í Reykjavík („busi-
ness and professional woman) held-
ur fyrsta kvöldverðarfund vetrarins
í Skálanum á Hótel Sögu á morgun
kl. 19.30.
Á fundinum verður meðal annars
fjallað um Evrópuráðstefnu klúbbs-
ins sem haldin var dagana 21-23.
ágúst sl., en hana sóttu 300-350
erlendar konur ásamt 40 íslenskum
klúbbfélögum, að því er segir í frétt
frá klúbbnum.
Nánari upplýsingar eru veittar í
s. 552-6033 eða 552-2065.
BÚNAÐARBANKINN hefur boðið
Sjóvá-Almennum tryggingum hf.
til kaups hlutabréf í Trygginga-
miðstöðinni sem hann keypti í sum-
ar af tveimur aðilum. Bankinn
keypti þá 9,71% hlut af tveimur
stærstu hluthöfum Tryggingamið-
stöðvarinnar, Hraðfrystihúsinu hf.
í Hnífsdal og dánarbúi Ágústs Sig-
urðssonar í Stykkishólmi. Hrað-
frystihúsið átti 5,33% hlut og dán-
arbúið 4,38%, en alls var um ræða
liðlega 16,5 milljónir króna að
nafnvirði.
Búnaðarbankinn keypti þessi
bréf eingöngu með það fyrir aug-
um að selja þau aftur og hefur
þegar selt nokkurn hluta þeirra,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvár-Almennra, staðfesti í
samtali við Morgunblaðið að félag-
inu hefði verið boðið að kaupa
nokkurn hlut í Tryggingamiðstöð-
inni og það væri til skoðunar. Til
greina kæmi að kaupa nokkur pró-
sent í félaginu.
Söluverðið kringnm
350 milljónir
Kaupverð Búnaðarbankans á
umræddum bréfum fékkst ekki
uppgefið, en mun hafa verið nærri
núverandi markaðsgengi þeirra á
Opna tilboðsmarkaðnum. Síðustu
viðskipti með hlutabréf í Trygging-
amiðstöðinni á Opna tilboðsmark-
aðnum urðu miðað við gengið 21,5
og samkvæmt því er markaðsvirði
á þessum bréfum um 350 milljónir.
Gengi hlutabréfa í félaginu hef-
ur hækkað verulega í verði frá síð-
ustu áramótum, eins og sjá má á
meðfylgjandi línuriti. í fyrstu við-
skiptum ársins voru seld bréf mið-
að við gengið 11,5. Það fór hæst
í 26,50 í lok apríl en hefur nú
lækkað nokkuð á ný og viðskipti
átt sér stað miðað við gengið 20-22
að undanförnu. Miðað við síðasta
viðskiptagengi nemur hækkun
bréfanna um 87% frá áramótum.
Hólmadrangur með 26 milljóna tap fyrstu 6 mánuði ársins
Aætlað að rekstur
ársins verði íjámum
TAP Hólmadrangs hf. nam 26 millj-
ónum króna fyrstu sex mánuði árs-
ins en allt síðasta ár nam tap félags-
ins rúmum 50 milljónum króna. Tap
af reglulegri starfsemi nam tæpum
34 milljónum króna fýrstu sex mán-
uði ársins en að sögn Gunnlaugs
Sighvatssonar, framkvæmdastjóra
Hólmadrangs, er skýringanna á
slakri afkomu fyrirtækisins á tíma-
bilinu m.a. að fínna í rekstrarstöðv-
un vegna verkfalls landverkafólks
á tímabilinu apríl-júní og í lágu
afurðaverði á rækju.
Eigið fé Hólmadrangs var nei-
kvætt um rúmar 58 milljónir króna
í lok júní 1997 en var neikvætt um
rúmar 32 milljónir í lok síðasta árs.
Rekstrartekjurnar námu rúmum
399 milljónum króna og rekstrar-
gjöldin tæpum 399 milljónum króna
á fyrstu sex mánuðum ársins.
Áð sögn Gunnlaugs hafði sjö
vikna verkfall mikil áhrif á rekstur-
inn fyrstu sex mánuðina auk þess
sem miklar breytingar hafa orðið á
rækjuvinnslunni á Hólmavík þannig
að töluverðan hluta af tímabilinu
var vinnslan ekki í fullum gangi.
„Afurðaverð hefur farið lækkandi,
en framundan er mesta salan á
rækju. Ég veit ekki hvort ég sé
rétti maðurinn til þess að spá fyrir
um verð á rækju en vonandi á verð-
ið eftir að hækka á nýjan leik. Við
væntum þess að síðari hluti ársins
verði okkur ekki eins erfiður og sá
fyrri en rekstur ársins í heild verð-
ur líklega í járnum.“
Hólmadrangur gerir út sam-
nefndan togara, togbátinn Víkurnes
ST 10, rekur netaverkstæði og
rækjuvinnslu á Hólmavík og fisk-
vinnsluhús á Drangsnesi, þar sem
unnin hefur verið rækja og fiskur
og grásleppuhrogn söltuð.
Síðustu viðskipti með hlutabréf
í Hólmadrangi á Opna tilboðsmark-
aðnum voru 6. ágúst sl. á genginu
3,25 sem er 29% lækkun frá ára-
mótum.
Hólmadrangur hf. Úr milliuppgjöri 1997 1. janúar til 30. júní
Rekstrarreikningur 1997
Rekstrartekjur Milljónir kr. Rekstrarqjöld 399,1 398,8
Atskrittir Hagnaður án fjármagnsliöa Fjármaqnsqjöld 30,0 362,5 (34,0)
Tap af reglulegri starfssemi Söluhaqnaður hlutabréfa (33,7) 7,5
Tap til jöfnunar (26,1)
Efnahagsreikningur 30/6 '97
I Eianir: I Milliónir kr. Veltufjármunir Fastafiármunir 108,1 673,3
Eignir samtals 781,4
I Skuldir oo eÍQiö fé: | 252,7 587,0 (58,3)
Skammtímaskuldir Langtímaskuldir Eiqið fé
Skuldir og eigið fé samtals 781,4
Fjármálaráðuneytið lækkar lágmarksálagningu á tóbak í smásölu úr 14% í 10%
Almennt verð
mun hærra en
lágmarksverðið
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur
lækkað lágmarksálagningu á tóbak
í smásölu úr 14% í 10% og tók sú
breyting gildi þann 1. september
þegar tóbaksverð í heildsölu hækk-
aði um 11,8%. Smásölum er frjálst
að selja tóbak á hærra verði og
hefur álagning almennt verið á bil-
inu 16-20%.
Lágmarksverð á Winston sígar-
ettupakka hækkaði um mánaða-
mótin úr 276 krónum í 299 krón-
ur, en miðað við 20% álagningu er
verðið 325 krónur.
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtakanna,
segir kaupmenn óánægða með að
lágmarksálagning hafi verið lækk-
uð í smásölu því það skapi gremju
hjá viðskiptavinum að raunverulegt
verð sé mun hærra en lágmarks-
verðið. Áður hafi einungis verið
2-6% munur á lágmarksálagning-
unni og almennri álagningu kaup-
manna, en hann sé nú orðinn allt að
10%.
Ákvörðun um álagningu í
höndum viðskiptaaðila
Indriði Þorláksson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði
í samtali við Morgunblaðið að sam-
kvæmt lögum ætti fjármálaráðherra
að ákveða útsöluverð á tóbaki og
lögin hefðu verið túlkuð á þann veg
að þar væri átt við lágmarksverð.
Tóbak hefði verið selt á hærra verði
á veitingahúsum o.s.frv.
Það kemur fram hjá Indriða að
sú breyting hafi orðið á verðlagn-
ingu tóbaks í vetur að felldur var
niður svokallaður staðgreiðsluaf-
sláttur um. leið og álagningin var
gefín frjáls. Ákveðið var að lág-
marksálagning yrði 14%, en að
öðru leyti gætu smásalarnir ráðið
verðinu. Þessi álagning tók ekki
sérstakt mið af rekstri smásölufyr-
irtækjanna heldur var við það mið-
að að lágmarksverð lækkaði ekki
í smásölu frá því sem verið hafði.
Verslanir gátu hins vegar notast
við hærri álagningu að vild.
„Þegar ákveðið var að hækka
heildsöluverð nú í september þá
þótti rétt að lækka þessa lágmarks-
álagningu og setja það í hendur á
viðskiptaaðilum hvort þeir vildu
nota hana eða hafa hærri álagn-
ingu. Einnig var eitthvað um það
að tóbak væri selt miðað við lægri
álagningu en 14% sem benti til
þess að hún væri óþarflega há,“
sagði hann.
Seagram
kaupír USA
Network
New York. Reuter.
SEAGRAM Co. Ltd. hefur sam-
þykkt að greiða 1,7 milljarða
dollara fyrir 50% hiut Viacom
Inc. í sameignarfyrirtæki
þeirra, USA Networks, og er
þar með iokið togstreitu um
eitthvert verðmætasta kapal-
netkerfi Bandaríkjanna.
Með samningnum lýkur öll-
um málaferlum fyrirtækjanna
og er búizt við að gengið verði
frá honum fyrir áramót.
„Sala USA Networks er ann-
að mikilvægt skref í áframhald-
andi viðleitni okkar til að
grynnka á skuldum Viacoms,"
sagði Sumner Redstone, stjórn-
arformaður og aðalfram-
kvæmdastjóri Viacoms.
„USA Networks bætir nú-
verandi umsvif okkar í
skemmtanaiðnaðinum og
myndar traustan grunn að
vexti í framtíðinni, bæði innan-
lands og á alþjóðavettvangi,"
sagði Edgar Bronfman, for-
stjóri Seagrams.
USA Network býður upp á
almennt skemmtiefni og hefur
73 milljónir áskrifenda.
Viacom, sem á Paramount Pict-
ures, MTV og Nickelodeon, og
Seagram, sem á Universal, sök-
uðu hvort annað um brot á
samningi um sameignarfélag
þeirra.
Yfirmenn
Deutsche bera
vitni í máli
Schneiders
Frankfurt. Reuter.
FULLTRÚAR í stjórn Deutsc-
he Bank AG bera vitni í máli
Júrgens Schneiders fyrrum
fasteignajöfurs vegna ásakana
um að bankinn hafi ekki kann-
að lánstraust hans nóguvel.
Stjórnarfulltrúarnir Ulrich
Weiss, Júrgen Krumnow og
Georg Krupp hafa verið kallað-
ir fyrir rétt til að skýra stað-
hæfíngar um að Schneider hafi
ginnt banka til að lána sér
milljarða marka með fölsuðum
leigusamningum og öðrum
skjölum.
Þeir eru voldugustu banka-
stjórar, sem hafa mætt fyrir
rétti í þessu mesta fjársvika-
máli sem um getur í Þýzka-
landi eftir stríð.
Hilmar Kopper, formaður
eftirlisstjórmar bankans, sem
var formaður framkvæmda-
stjórnar bankans þar til í maí
sl., hefur verið kallaður fyrir
rétt 30. september.
Árið 1994 kynti Kopper und-
ir gagnrýni á hlutverk Deutsc-
he þegar hann kallaði milljónir
marka, sem Schneider skuldaði
lánardrottnum,„smámuni“.
Deutsche var helzti lánard-
ottinn Schneiders, sem hrundi
til grunna vegna skulda upp á
rúmlega fímm milljarða marka
1994.
Sala bréfa
hafin í France
Telecom
París. Reuter.
FRAKKAR hafa byijað sölu á
20-25% hlutabréfa í fjarskipt-
arisanum France Telecom SA.
Þetta er fyrsta takmarkaða
einkavæðingin, sem stjórn sós-
íalista stendur fyrir.
Fjármálaráðuneytið sagði í
yfírlýsingu að viðmiðunarverð
hlutabréfanna væri á bilinu
170-190 frankar. Heildarverð-
mætið ætti því að nema
170-190 milljörðum franka.