Morgunblaðið - 24.09.1997, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Neyðarástand í Sarawak og hugsanlegur brottflutningur íbúanna
Skyggnið aðeins metri í
reyknum frá eldunum
Reykmengnnin er nú langt yfir hættu-
mörkum og malasískir slökkviliðs-
menn verða sendir til að berjast við
skógareldana í Indónesíu
Kuching. Reuter.
REYKJARKÓFIÐ og mengun af
hans völdum fóru langt yfir hættu-
mörk í Sarawak á Borneó í Malas-
íu í gær og var lýst yfir neyðar-
ástandi í héraðinu. Kváðust yfir-
völd vera við því búin að flytja
burt alla íbúa héraðsins, tvær
milljónir að tölu, þótt ekki væri
ljóst hvert fara ætti með þá. Um
2.000 malasískir slökkviliðsmenn
verða sendir til að beijast við skóg-
areldana í Indónesíu.
„Skyggnið er_ svo lítið, að ég
get ekki ekið. Ég sé ekki ljósin
fyrir framan mig,“ sagði maður í
Kuching, höfuðstað Sarawaks.
Mohamad Rahmat, upplýsinga-
málaráðherra Malasíu, sagði í
gær, að stjórnvöld yrðu að verða
undir það búin að flytja burt alla
íbúa héraðsins en það yrði þó ekki
gert fyrr en í síðustu lög. Mahat-
hir Mohamad, forsætisráðherra
Malasíu, kvaðst hins vegar ekki
vita hvert ætti að flytja fólkið.
Sagði hann, að ástandið væri litlu
skárra í næsta héraði eða fylki,
Sabah.
Mahathir sagði, að fólki yrði
ráðlagt að bera grímur en lausnin
væri auðvitað sú að slökkva eldana
í Indónesíu.
y
Brenna í kolalögum
undir yfirborðinu
Brunei, Singapore, Malasía,
Filippseyjar sunnanverðar og
Indónesía hafa fengið að kenna á
reyknum frá skógareldunum, sefn
nú brenna á Súmötru og Kalimant-
an í Indónesíu. Kveiktu jarðeig-
endur marga þeirra til að ryðja
nýtt land en vegna mikilla þurrka,
sem raktir eru til heita straumsins
við Suður-Ameríku, E1 Ninos, hafa
þeir geisað látlaust í margar vikur.
Eugen Amrhein, sem hefur
mikla reynslu af því að beijast við
skógarelda í Bandaríkjunum og
Suður-Evrópu, segir, að erfítt
verði að slökkva eldana vegna
þess, að á þessum slóðum séu kol
í yfírborðslögunum og eldurinn nái
því nokkra metra niður. Eina leið-
in sé að leggja froðuteppi yflr land-
ið og koma þannig í veg fyrir, að
súrefni berist til eldanna, sem
brenna niðri í jörðinni.
Langt yfir
hættumörk
Mengun, sem fer yfir 500 á loft-
mengunarkvarða, er talin stór-
hættuleg en í gær mældist hún
851 í Sarawak um tíma en lækk-
aði síðan í 722. Var lýst yfir
neyðarástandi og öllu fólki skipað
að halda sig innandyra. Margir
sinntu því þó ekki og fóru til vinnu
sinnar með grímu fyrir vitum en
umferðin var mjög lítil. Víða var
skyggnið svo lítið, að fólk sá ekki
nema um metra fram fyrir sig og
varð næstum að þreifa sig áfram
á götunum.
Reykur lá yfir Mindanao-eyju í
Filippseyjum í gær og varð hans
vart alla leið norður til Manila.
Astmi, lungnakvef og
jafnvel krabbamein
Talsmaður Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, WHO, sagði í Genf
í gær, að eldarnir í Indónesíu yllu
miklum áhyggjum en stofnunin
hefði hins vegar ekki verið beðin
um aðstoð. Hishashi Ogawa, full-
trúi WHO í Malasíu, Singapore og
Brunei, sagði, að ekki væri ná-
kvæmlega vitað hve mengunin
væri mikil í Sarawak en færi hún
í eða yfir 60 míkrógrömm í rúm-
metra, mætti búast við, að börn
veiktust, fengju astma, þrálátt
lungnakvef og jafnvel lungna-
krabbamein. Dagblöð í Malasíu
sögðu í gær, að vitað væri um
meira en 5.000 manns í Sarawak,
sem hefðu sýkst vegna mengunar-
innar.
í Singapore bægði vindur mesta
mengunarskýinu frá á mánudag
en í gær hafði hann snúist og lagð-
ist þá sortinn yfir aftur.
REYKURINN FRA SKOGARELDUNUM
Lýst var yfir neyðarástandi í Sarawak-héraði á Borneó í gær
en þá var mengunin komin langt yfir hættumörk
Mengunarskýið er aðallega reykur frá skógar-
eldunum í Indónesíu en auk þess iðnaðar-
útblástur og útblástur frá bifreiðum
I
ANDAMAN-
HAF
Malakkasund
MALASlA
SARAWAK
Pekanbam
V w ■
V Kdala Lumpur KucW$_j-borneó
\ Malakka y® ^ Kalimantan
Rengat
s \ ftSu- ý
Jambi
JAVAHAF
800 km
Mengunarmælikvarði
sem notaöur er í Malasíu
LÍTIL V,B'
Ll,lt UNANDI
) 50 100
Mengunin mældist mest 851 í gær ■
MIKIL MJÖG MIKIl HÆTTULEG
200 300 500
Við 500 skal lýsa yfir neyðarástandi
Þrælar
Hitlers
krefjast
launa
Bonn. Reuter.
DÓMSTÓLL í Bonn í Þýska-
landi mun skera úr um í dag
hvort 21 öldruð gyðingakona
eigi að fá greidd laun fyrir að
hafa verið meðal þeirra sem
unnu sem þrælar þýskra
stjómvalda í síðari heimsstyij-
öld. Dómsúrskurðurinn gæti
haft fordæmisgildi fýrir fleiri
af þeim 12 milljónum þræla
sem stjórn nasista hélt víðs
vegar um Evrópu.
Stjórnvöld í Þýskalandi
segja að greiddir hafi verið um
100 milljarðar marka í skaða-
bætur til fórnarlamba helfar-
arinnar, og reyna nú að kom-
ast hjá þvi að greiða meira.
„Þetta mál gæti reynst eldfimt
og það er mikið í húfi,“ segir
Ulrich Herbert, sagnfræðipró-
fessor við Freiborgarháskóla.
„Ef krafa [kvennanna] verð-
ur samþykkt gætu allir fyrrum
vinnubúðafangar, er neyddir
voru til að vinna, og ef til vill
einnig þeir, sem eru mun fleiri,
sem voru neyddir til vinnu en
voru ekki í fangabúðum, kraf-
ist launa af þýskum yfirvöld-
um,“ segir Herbert.
Reuter
MENGUNIN var mikil í Banjarmasin, höfuðstað Suður-Kalimantanshéraðs á Bomeó, í gær og voru
mörg böm flutt á sjúkrahús vegna öndunarerfiðleika. Öldruðu fólki og börnum yngri en fimm ára
hefur verið bannað að fara út úr húsi.
Hermaðurinn, sem
gafst aldrei upp, látinn
Tókýó. Reuter.
JAPANSKI hermaðurinn Shoic-
hi Yokoi, sem neitaði að gefast
upp eftir að síðari heimsstyijöld-
inni lauk, lést úr hjartaáfalli í
Japan á mánudag.
Yokoi, sem var 82 ára er
hann lést, varð að þjóðhetju er
hann sneri heim frá Guam árið
1972. Hann hafði þá dvalið einn
í frumskógum eyjunnar frá ár-
inu 1944 er flestir félaga hans
úr 22.000 manna herliði Japana
voru felldir í innrás bandaríska
hersins.
Það voru tveir veiðimenn sem
fundu Shoichi Yokoi í frumskóg-
inum klæddan í druslur og tijá-
börk í janúar 1972. Hann hafði
lifað þar, í algerri einangrun, á
Dvaldi 1 frum-
skógum eftir
stríðið til 1972
hnetum, beijum, froskum, snigl-
um og rottum.
Eftir heimkomuna hóf Shoichi
Yokoi nýtt líf og þurfti að byija
á því að kynna sér menningu sem
var honum með öllu ókunnug.
Hann var í upphafl gersamlega
ringlaður og á fyrsta fundi sínum
með fréttamönnum var hann
ófær um að svara nokkrum
spurningum. Hann gekk í hag-
kvæmnishjónaband í nóvember
sama ár og lætur eftir sig eigin-
konu sem sagðist á mánudag
hafa misst gersemi hjarta síns.
Sneri aftur í „mikilli
niðurlægingu“
Shoichi Yokoi hefur á undan-
förnum árum verið vinsæll í um-
ræðuþáttum í japönsku sjónvarpi
auk þess sem hann skrifaði bók
um reynslu sína. Árið 1974 freist-
aði hann þess að komast á þing
en náði ekki kjöri þótt margirteldu
hann mikilsverðan minnisvarða
þeirra tíma er Japönum var inn-
rætt að gefast aldrei upp. Þetta
var viðhorf sem hann orðaði eftir-
minnilega við heimkomuna árið
1972 er hann sagði: „Ég sný til
baka í mikilli niðurlægingu."
Fylgistap jafnaðarmanna í Hamborg
Runde tilnefnd-
ur borgarstjóri
Hamborg. Reuter.
JAFNAÐARMANNAFLOKKUR-
INN í Hamborg kvaðst í gær ætla
að tilnefna Ortwin Runde, sem
hefur farið með fjármál borgarinn-
ar, í embætti borgarstjóra í stað
Hennings Voscherau, sem ákvað
að segja af sér vegna fylgistaps
flokksins í kosningum á sunnudag.
Jörg Kuhbier, leiðtogi flokksins
í Hamborg, sagði að tveir þriðju
flokksstjórnarinnar hefðu sam-
þykkt að tilnefna Runde í embætt-
ið á fundi á mánudagskvöld. Gert
er ráð fyrir að tilnefningin verði
staðfest á flokksþingi jafnaðar-
manna um næstu helgi.
Jafnaðarmenn hafa verið við
völd í Hamborg í fjóra áratugi og
héldu velli í kosningunum á sunnu-
dag. Voscherau tilkynnti hins veg-
ar að hann myndi segja af sér eft-
ir að hafa gegnt borgarstjóraemb-
ættinu í tæpan áratug vegna þess
að fylgi flokksins minnkaði úr
40,4% í 36,2%. Þetta er minnsta
fylgi sem flokkurinn hefur fengið
í Hamborg, sem er eitt af sam-
bandslöndum Þýskalands, frá ár-
inu 1946.
Þessi ákvörðun Voscherau kom
flokksbræðrum hans á óvart. í
fyrstu var talið mjög óljóst hver
tæki við borgarstjóraembættinu af
honum og margir jafnaðarmenn
óttuðust að það gæti tekið margar
vikur að velja eftirmann hans.