Morgunblaðið - 24.09.1997, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.09.1997, Blaðsíða 30
»S0 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfarðir, afi, langafi og langalangafi, BENEDIKT GUÐMUNDSSON frá Vatnsenda, Tjarnarlundi 14d, Akureyri, lést á öldrunardeild Kristnesspítala, 8. septem- ber síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Kristnesspítala fyrir yndislega umönnun og aðstoð. Fyrir hönd aðstandenda, Ebba Ákadóttir. Hjartkær sonur okkar, faðir og bróðir, GUÐNI RAGNAR ÓLAFSSON, Asparfelli 2, Reykjavík, er látinn. Jónasína Þórey Guðnadóttir, Ólafur Magnússon, Björn Húnbogi Njörður Sigurðsson og systkini. + Útför móður okkar, MÁLFRÍÐAR (DÖDDU) ÓSKARSDÓTTUR MÖLLER, sem lést í Wisconsin Rapids í Bandaríkjunum 24. desember sl., verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 24. septem- ber, kl. 15.00. Pálmi Möller, Óskar Möller, Jóhann Georg Möller og fjölskyldur. + Faðir okkar, BJARNI VETURLIÐASON, Hjallavegi 29, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 23. september. Útför hans fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 25. september kl. 15.00. Sólveig Bjarnadóttir, Haukur Þór Bjarnason og aðstandendur. + Faðir minn, tengdafaðir og afi, SIGURGEIR SIGURÐSSON Elliheimilinu Grund, áðurtil heimilis á Framnesvegi 54, Reykjavík, lést miðvikudaginn 10. september sl. Jarðarförin hefur farið fram. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Grund fyrir góða umönnun og einnig systkinabörnum hans. Þökkum auðsýnda samúð, Maja Sigurgeirsdóttir, Sigurður Ben Þorbjörnsson, Ásta Ben Sigurðardóttir, Erlingur Bjarnason, og barnabarnabörn. + Elskulegur sonur okkar, VALBERG GUNNARSSON, Básenda 10, Reykjavík, er lést af slysförum sunnudaginn 21. seþtem- ber sl., verður jarðsunginn í Bústaðakirkju mánudaginn 29. september kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hans, er bent á Sjúkrahús Reykjavíkur. Heiðbjörg lngva*-sdóttir, Hafsteinn Hafsteinsson, Gunnar Björnsson og systkini hins látna. ELÍSABET LILJA LINNET + Elísabet Lilja Linnet fæddist á Sauðárkróki 1. nóvember 1920. Hún lést í Reykja- vík 8. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 12. september. Ein mesta gæfa sér- hvers manns er að kynnast góðu fólki. Hin mannlegu gildi vega oftast þyngst í lífinu þegar upp er staðið. Sumum virðist eðlilegt að vera gefandi, uppörvandi, draga að sér fólk, skapa notalegt andrúm og miðla því til annarra. Lóló, eins og við nefndum hana alltaf, hlaut vissulega góðan arf úr föðurgarði, ólst upp á fjölmennu menningar- heimili háttsetts embættismanns, og hlaut góða menntun á þeirra tíma mælikvarða. Lífsgleði, hlátur- mildi, ást á góðri tónlist og fögrum listum átti hún heldur ekki átt langt að sækja. Það var samt af og frá að lífið hefði verið henni stöðugur dans á rósum. Hún hefði þá vart búið yfir þeim þroska og skilningi sem var henni svo eðlis- lægur. Lóló vann sig upp í stjóm- unarstöðu hjá stóru fyrirtæki og naut þar fádæma vinsælda eins og berlega kom í ljós er hún lét af störfum sjötug, slíkur var mann- fjöldinn, gjafa-, og blómaflóðið. Hér urðu mikil þáttaskil í lífi hennar, því að um þessar mundir varð hún heltekin af þeim skelfi- lega sjúkdómi sem átti eftiri að leggja hana að velli. Það voru vissulega þung spor fyrir eign- mann, ættingja og vini að koma á hjúkrunarheimilið Eir og sjá hvern- ig komið var fyrir þessari glæsilegu konu. Það var samt huggun harmi gegn, í öllu svartnættinu, hversu vel hún hélt reisn sinni og virðingu fram undir það síð- asta. Hin göfuga, þroskaða sál náði að skína í gegn. Hér á hið fræga erfiljóð þjóðskáldsins Bjarna Thorarensen um Rannveigu Filipp- usdóttur, einstaklega vel við, t.d. „sálar um fatið hið forna fögur skein innri kona, skýrt máttu skatnar og líta, að skrúðklæði var það.“ Einnig: „og þó hún kvala kenndi af kvillum í elli, brúna jafnheiðskír himinn hugar ró sýndi“. Lóló eignaðist fjögur mannvænleg börn, þekktust þeirra eru Hlíf ballettmeistari í Hollandi og Guðrún Svava lista- kona. Seinni maður Lólóar var Gunnar Dal, skáld og rithöfundur. Þeirra samband var fallegt og farsælt, tvær þroskaðar sálir sem bættu hvor aðra upp. Þau höfðu gaman af að ferðast saman og dveljast á suðlægum sólarströndum. Tryggð Gunnars og umhyggjusemi við hina sjúku eiginkonu var einstök. Tíðar heimsóknir um langa vegu, á öllum tímum árs, jafnvel allt austan úr Hveragerði, en þar áttu þau hjónin sér yndislegan sum- ardvalarstað. Þetta er þeim mun athyglisverðara þar eð Gunnar hefur aldrei eignast bifreið. Undir- ritaður átti því láni að fagna að kynnast Gunnari sem samkennara við FB haustið ’76, og var eftir það heimagangur hjá þeim hjónun- um, fyrst í Meðalholtinu, síðan OSKAR S VEINBJÖRNSSON + Óskar Sveinbjörnsson fæddist hinn 22. ágúst 1915 á Arnarfelli í Þingvallasveit. Hann andaðist i Landspitalan- um hinn 14. september síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju þriðjudag- inn 23. september. Við fráfall Óskars Sveinbjörns- sonar er það huggun harmi gegn að líta yfir ævihlaup hans en þar fór saman gæfa og gjörvileiki. Allt fram undir það síðasta naut hann lífsins og þess að vera til með eigin- konu sína Jónu Ágústsdóttur sér við hlið. Hennar missir er mikill enda var þeirra á milli bæði kær- leikur og vinátta. Þau hjón ferðuð- ust mikið saman, bæði innanlands og utan, og nú síðast í sumar fóru þau í hringferð um landið sitt sem + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR frá Geysi, Vestmannaeyjum, andaðist aðfararnótt mánudagsins 22. septem- ber á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Dóra Guðlaugsdóttir, Bjarni Sighvatsson, Jakobína Guðlaugsdóttir, Sigurgeir Jónasson, Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, Valgarður Stefánsson, Gísli Geir Guðlaugsson, Guðlaug Arnþrúður Gunnólfsdóttir, Anna Þ. Guðlaugsdóttir, Einar Sveinbjörnsson, Jón Haukur Guðlaugsson, Marfa Sigurðardóttir, barnabörn og langömmubörn. + Eiginkona mín, ÁSTA JÓNSDÓTTIR, Uppsalavegi 4, Húsavfk, lést á Sjúkrahúsi Þingeyinga, Húsavík mánudaginn 22. september sl. Fyrir mína hönd og barna okkar, Hermann Þór Aðalsteinsson. Vesturbænum. Ekki var síður til- hiökkunarefni að renna austur yfir heiði, á fallegum sumardögum, og hitta þau hjónin í Hveragerði. Lóló var mikil húsmóðir, eldaði frábær- an mat, örlætið og gestrisnin alltaf söm við sig. Ótaldar eru allar ánægju stundirnar sem gesturinn átti við matborð þeirra hjóna. Sam- ræðusnilli húsmóðurinnar og hús- bóndans var heldur ekki til að draga úr ánægjunni. Með dýpstu þökk fyrir ómetanlega vináttu um tuttuga ára skeið. Aðstandendum eru sendar samúðarkveðjur. Ásgeir Sigurðsson. Við hjónin kynntumst þessari mikilhæfu og stórmyndarlegu konu fyrir 18 árum, þegar hún bjó í Hveragerði ásamt manni sínum, Gunnari Dal, sem við kynntumst að sjálfsögðu líka. Varð okkur hjónunum og þeim, Elísabetu og Gunnari Dal, strax til vina. Elísabet Lilja var glaðvær og bráðskemmtileg. Þangað var nota- legt að koma í heimsókn. Nú, hún og maður hennar, Gunnar Dal, komu til okkar, eigum við að segja af og til. Stutt er á milli vina, stendur einhvers staðar. Margt gat hún sagt okkur og þau bæði hjónin, svo voru þau sér- staklega notaleg. Oft skrapp kona mín til þeirra meðan ég var í vinn- unni, og naut sín þar í návist ágætra hjóna, sem þau voru. Mun Elísabetar lengi vera minnst. Oft sátum við hjá Elísabetu og Gunnari Dal yfir ijúkandi kaffibolla og góðu meðlæti. Talað var um heima og geima, eins og þar stendur. Viðfeldin og hlýleg voru þau Gunnar Dal og Elísabet, voru þau í sérflokki. Þannig kynntumst við hjónin þeim. Við hjónin vottum Gunnari Dal og stjúpbörnum þeirra innilegustu samúð. Kristinn Gíslason og Fjóla Baldurs. þau höfðu mikla ánægju af. Þau eignuðust tvo syni, Svein- björn og Ásgeir, og eftir að þeir kvæntust var það Óskari mikil gleði og ánægja að fylgjast með uppvexti barnabarnanna sex sem öll eru hin mannvænlegustu. Þegar ég kynntist Oskari fyrst fyrir rúmum aldarfjórðungi var hann kenndur við Korkiðjuna sem hann átti og rak. Hann átti eftir að láta að sér kveða á fleiri sviðum atvinnurekstrar og gerði það allt með miklum sóma enda var hann afskaplega vandaður maður, stað- fastur og gætinn. Kynni okkar hófust við það að elsta systir mín Ingibjörg giftist Sveinbirni syni hans og voru þau tengsl sem þá mynduðust milli fjölskyldna okkar með miklum ágætum. Þar stendur upp úr sú mikla vinátta og hjálp- semi sem þau Óskar og Jóna veittu fjölskyldu minni þegar faðir minn féll frá. Það gleymist aldrei. Með þessum orðum vil ég fyrir hönd okkar Hrefnu og Margrétar þakka góðum manni samfylgdina og bið góðan Guð um að blessa Jónu, Sveinbjörn, Ásgeir og fjöl- skyldur. Gísli Þór Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.