Morgunblaðið - 24.09.1997, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 33
K.
FRETTIR
Morgunblaðið/Sig. Fannar
EIGENDUR Fagforms og eigendur TRS.
Fagform og TRS flytia
Selfossi. Morgunblaðið.
M ARGT var um manninn þegar
Fagform, auglýsinga- og skilta-
gerð, og TRS, Tölvu- og rafeinda-
þjónusta Suðurlands, héldu veislu
nýlega í tilefni af flutningi fyrir-
tækjanna í nýtt húsnæði.
Húsnæðið er 400 fm að stærð
og skipta fyrirtækin plássinu
bróðurlega á milli sín, 200 fm
hvort. Húsnæðið er í eigu Fag-
forms ehf., sem hefur verið starf-
andi á Selfossi í rúm tvö ár.
Ráðstefna um líf-
eyrismál aldraðra
OLDRUNARRÁÐ Islands og
Landssamband aldraðra efna til
ráðstefnu um lífeyris- og fjármál
aldraðra í Súlnasal Hótels Sögu
fimmtudaginn 25. september
kiukkan 9-17.
Á ráðstefnunni bera hagfræð-
ingar og fræðimenn á sviði öldr-
unarmála saman uppbyggingu líf-
eyriskerfa í ýmsum löndum og
þátttöku þeirra í umönnun aldr-
aðra. Fjallað verður bæði um op-
inberar tryggingar og einkarekn-
ar.
Fyrirlesarar eru eftirtaldir:
Michael Creedon, stjórnandi svo-
nefndrar Ódysseifsrannsóknar í
öldrunarmálum sem stjórnað er
frá John Hopkins-háskólanum í
Boston í Bandaríkjunum, fjallar
um áhrif aldurs á þjóðfélagið og
um einkareknar bandarískar
umönnunartryggingar og pró-
sentusamninga. Desmond McCart-
hy yfirhagfræðingur Alþjóðabank-
ans í Washington og einn af að-
stoðarbankastjórum hans ræðir
uppbyggingu lífeyriskerfa í alþjóð-
legu samhengi. Gerhard Naegele
prófessor í öldrunarfræðum við
háskólann í Dortmund í Þýska-
landi fjallar um þýskt lífeyrissjóða-
kerfi og þátttöku þess í umönnun
aldraðra. Már Guðmundsson aðal-
hagfræðingur Seðlabanka Islands
fjallar um uppbyggingu íslenska
lífeyrissjóðakerfisins og Dorthe
Höög, sem er fræðimaður á rann-
sóknarstofu í öldrunarfræðum í
Kaupmannahöfn, segir frá danska
almannatryggingakerfinu.
Jón Snædal formaður Öldrunar-
ráðs íslands setur ráðstefnuna en
Benedikt Davíðsson formaður
Landssambands eldri borgara slít-
ur henni. Fundarstjóri verður Páll
Gíslason formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík og Hrafn
Pálsson deildarstjóri í heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytinu stjórnar
pallborðsumræðum.
JÓN Bjarnason, skólastjóri Hólaskóla, og Sveinbjörn Björnsson
rektor við undirritun samninga.
Samstarf Há-
*
skóla Islands
og Hólaskóla
*
Arsþing
Samtaka
fámennra
skóla
ÁRSÞING Samtaka fámennra skóla
verður haldið á Hallormsstað dagana
26. og 27. september nk.
„Á undanfömum árum hafa sam-
tökin látið til sín taka þegar málefni
fámennra skóla ber á góma í ís-
lenskri skólamálaumræðu. Fámenn-
ir skólar eru flestir í strjábýlinu og
oft hefur viljað hjá líða að taka þá
með í reikninginn þegar teknar hafa
verið mikilvægar ákvarðanir um
skipulag skólakerfisins. Þessi stað-
reynd varð þess valdandi að árið
1988 voru Samtök fámennra skóla
stofnuð til að standa vörð um þessa
skólagerð og skólahald í dreifbýli.
Samtökin hafa staðið fyrir margvís-
legri fræðslu um fámenna skóla og
m.a. gefíð út bókina Vegprest sem
er fræðirit um eðli og starfsemi skóla
af þessari gerð,“ segir í fréttatil-
kynningu frá samtökunum.
Á hveiju ári halda samtökin árs-
þing sem verður eins og fyrr segir
haldið á Hallormsstað að þessu sinni.
Nú verður fjallað sérstaklega um
það hvort stefna beri að því að halda
uppi kennslu í öllum bekkjum grunn-
skólans í hveijum skóla eða hvort
skynsamlegra sé að reka svokallaða
safnskóla þar sem nemendum úr
nokkrum skólahverfum er safnað
saman til kennslu í efri bekkjunum.
Þá verður fjallað um starfshætti og
kennsluhætti í fámennum skólum,
samkennslu, sem er eitt veigamesta
einkenni fámennra skóla, skipulag
valgreina o.fl.
Þingið er opið öllum þeim sem
hafa áhuga á málefnum fámennra
skóla, kennurum, skólastjórnendum,
sveitarstjómarmönnum, skólanefnd-
armönnum, foreldrum og fleirum. Á
Hallormsstað er boðið upp á gistingu
og fæði fyrir þinggesti.
Framtíðarsýn í
málefnum
fatlaðra
FORELDRASAMTÖK fatlaðra
halda opinn fræðslu- og umræðu-
fund að Suðurlandsbraut 22, mánu-
daginn 29. september kl. 20.30.
Fjallað verður um framtíðarskipun
málefna fatlaðra hjá sveitarfélög-
unum, einkum Reykjavíkurborg, en
sveitarfélögin taka við málaflokkn-
um samkvæmt áætlun 1. janúar
1999.
Frummælendur verða Lára
Björnsdóttir félagsmálastjóri
Reykjavíkurborgar og Bjarni Krist-
jánsson framkvæmdastjóri Svæðis-
skrifstofu Reykjavíkur. Þau munu
greina frá stöðu mála og horfa til
framtíðar. Þau hafa yfirgripsmikla
þekkingu á þessu sviði, bæði í starfi
með fötluðum og að skipulagsmál-
um, segir í fréttatilkynningu.
Skoða bygg-
ingar og skipu-
lag við Reykja-
víkurhöfn
í KVÖLDGÖNGU Hafnargöngu-
hópsins miðvikudaginn 24. septem-
ber verður farið frá Hafnarhúsinu
kl. 20.
Pétur H. Ármannsson, arkitekt,
fylgir hópnum í gönguferð um
miðbæinn og segir frá byggingum
og skipulagi í nágrenni Reykjavík-
urhafnar. Að því loknu verður geng-
ið um Skuggahverfið inn að Sólfari
og með strönd og hafnarbökkum
út í Örfirisey og um Vesturgötuna
til baka að Hafnarhúsinu.
Allir eru velkomnir.
HALLI Reynis trúbador.
Kynningartón-
leikar Halla
Reynis
VÆNTANLEGUR er á markað nýr
hljómdiskur frá Halla Reynis (Har-
aldi Reynissyni) trúbador. Af því
tilefni verða haldnir tónleikar í
kvöld, miðvikudagskvöld, á Fóget-
anum kl. 22 þar sem Halli Reynis
kynnir efni nýja disksins.
Áður hefur Halli gefið út tvo
diska. 1993 kom fyrsti diskur hans
út og nefndist Undir hömrunum
háu. Þar fékk hann til liðs við sig
nokkra ágætishljóðfæraleikara og
eins á diskinum Hring eftir hring
sem kom út árið 1995. Á nýja disk-
inum, Trúbador, er Halli einn með
gítarinn en í nokkrum laganna leik-
ur Jakob Smári Magnússon á
bandalausan bassa.
Fræðslufundur
SÁÁ
SÁÁ efnir til fræðslu- og umræðu-
fundar fyrir foreldra ungs fólks í
vímuefnavanda föstudaginn 26.
september. Fundurinn verður haldin
í göngudeild SÁÁ, Síðumúla 3-5
og hefst kl. 20. Aðgangur er ókeyp-
is.
Á fundinum verður rætt um þá
meðferð sem ungu fólki í vímuefna-
vanda er veitt, hvaða hugsun býr
að baki henni og hvernig unga fólk-
ið bregst við. Foreldrum er einnig
boðið að tjá hug sinn og fá nánari
skýringar. Frummælendur verða
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
sjúkrahúsinu Vogi og Hjalti Björns-
son, dagskrárstjóri göngudeildar
SÁÁ.
Nýr formaður
Skólastjórafé-
lags Islands
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Skólastjórafélags íslands var hald-
inn í Reykjavík 19. september sl.
Kosin var ný stjórn og er formaður
hennar Þorsteinn Sæberg Sigurðs-
son, skólastjóri í Árbæjarskóla í
Reykjavík.
Áðrir í stjórn voru kjörnir Sigfús
Grétarsson, skólastjóri Valhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi, Halldóra
Magnúsdóttir, skólastjóri í Hamars-
skóla í Vestmannaeyjum, Marsibil
Ólafsdóttir, aðstoðarskólastjóri í
Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði, og
Karl Erlendsson, skólastjóri í Þela-
merkurskóla í Eyjafirði. Jón Ingi
Einarsson, fráfarandi formaður, gaf
ekki kost á sér til endurkjörs og
ekki heldur Páll Leó Jónsson sem
var gjaldkeri félagsins.
Skólastjórafélagið er nú sjálf-
stæð deild innan Kennarasambands
íslands og hefur með að gera sér-
mál skólastjóra innan sambandsins
þar með talin samnings- og kjara-
mál og voru af því tilefni samþykkt
ný lög fyrir félagið. Fundurinn lýsti
þungum áhyggjum yfir stöðunni í
samningamálum.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn
NAFN stúlku, sem aðstoðaði sam-
gönguráðherra við opnun umferðar-
mannvirkja á Vesturlandsvegi, mis-
ritaðist í Morgunblaðinu í gær.
Stúlkan heitir Dagný Lóa Sigurðar-
dóttir en ekki Dagný Lilja eins og
sagt var. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
27 ára, ekki 19 ára
MAÐUR, sem dæmdur var í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur fyrir nauðgun
á föstudag, var sagður 19 ára í
frétt Morgunblaðsins. Þær upplýs-
ingar komu fram í dómskjölum
Héraðsdóms. Af þjóðskrá er hins
vegar ljóst að maðurinn er tæplega
27 ára, svo upplýsingar þessar voru
rangar.
Var ekki að flytja vopn
BYSSUSMIÐUR, sem sagt er frá
á baksíðu Morgunblaðsins á þriðju-
dag, hafði samband við blaðið og
sagðist ekki hafa verið að flytja
vopn milli staða, eins og segir í
fréttinni, heldur hefði hann verið
við vinnu sína inni á verkstæði.
Vegfarandi hefði séð til hans þar
inni og kallað á lögreglu.
Hinn 4. september sl. undirrituðu
Sveinbjörn Björnsson háskólarektor
og Jón Bjarnason, skólastjóri Hóla-
skóla, rammasamning um samstarf
skólanna. Samkvæmt honum veitir
Háskóli Íslands háskólamenntun og
sinnir rannsóknum á þeim sviðum
sem sérfræði hans nær til og Hóla-
skóli sinnir menntun á grundvelli
sérstakra búfræðslulaga, með sér-
hæfingu á sviði fiskeldis, vatnanýt-
ingar, hrossaræktar og ferðaþjón-
ustu í sveitum.
Hólaskóli sinnir ýmsum rann-
sóknum á ofangreindum sviðum og
tekur að sér leiðbeiningu innlendra
og erlendra háskólanema. „Talið er
að skólarnir hafi sameiginlega
hagsmuni af því að samnýta að-
stöðu og færni hvor annars og efla
Grænland o g
Kanada
FYRIRLESTUR verður á vegum
Grænlensk-íslenska félagsins Kalak
og Vináttufélags íslands og Kanada
í Norræna húsinu á fimmtudags-
kvöld.
Þar mun Níels Einarsson, mann-
fræðingur og lektor við Háskólann
á Akureyri, flytja erindi um sjávar-
spendýraveiðar, sjálfbæra þróun og
siðvæðingu náttúruverndarumræð-
unnar. Fýrirlesturinn hefst kl.
20.30 og er öllum opinn.
rannsóknir og menntun á háskóla-
stigi, efla starfsmenntun og tengsl
háskólastarfs og atvinnulífsins, og
auka þekkingu í greinum tengdum
fiskeldi, lagareldi, líffræði fiska,
hrossarækt, hestamennsku og
ferðaþjónustu.
Til að ná ofangreindum mark-
miðum munu Háskóli íslands og
Hólaskóli leitast við að koma á sam-
tengdu rannsóknanámi á sameigin-
legum fræðasviðum. Stúdentum
sem fást við verkefnavinnu í BS-
eða MS-námi innan Háskóla íslands
verði gefinn kostur á því að vinna
verkefni undir leiðsögn starfs-
manna Hólaskóla. Einnig stuðla að
því að komið verði á hiutastöðum
þar sem kennslu og rannsókna-
starfi er skipt á milli samningsað-
ila. Skólarnir munu gera sérstaka
samninga um kennslu og þjálfun
nemenda í grunn- og framhalds-
námi, eftir því sem tilefni gefst til,
m.a. um samnýtingu námskeiða og
gagnkvæma viðurkenningu náms,
hafa samráð um tækjakaup, þar
sem það á við, þannig að fjármunir
nýtist sem best og gera samning
um samnýtingu á aðstöðu (t.d. til
tilrauna), tækjabúnaði og upplýs-
ingum.
Á grundvelli þessa rammasam-
komulags verður unnt að gera ein-
staka samninga um markmið,
skuldbindingar, kostnað og fagleg-
ar kröfur í einstöku verkefnum,“
segir í fréttatilkynningu.