Morgunblaðið - 30.09.1997, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 B 3
GOLF
Evrópubúarsigruðu Bandaríkin með minnsta mögulega mun í Ryder-keppninni
Bjöm
braul
isinn
Edwin
Rögnvaldsson
skrifar
EVRÓPUBÚAR höfðu betur í
baráttu sinni við Bandaríkin
um Ryder-bikarinn með
minnsta mögulega mun, 14’A
vinning gegn 13 ’A, eftir að
hafa verið yfir, 10 'A:5 ’A, þegar
lokaspretturinn, tólf leikir
maður gegn manni, hófst á
sunnudag. Evrópa heldur því
bikarnum í tvö ár til viðbótar
við tvö síðastliðin ár, eftir
frækinn sigur i Bandaríkjunum
í hittifyrra.
Evrópska liðið, sem lék á heima-
velli í þetta sinn, Valderrama-
vellinum á Sotogrande á Spáni,
missti næstum af
sigrinum eftir að
Bandaríkjamenn
höfðu sýnt feikna-
lega grimmd í ein-
staklingsleikjunum á sunnudag.
Leikur nokkur vafi á því, hvort
hugarfar heimamanna hafi verið
sem skyldi á síðasta keppnisdegi,
því þeir þurftu aðeins þrjá og hálf-
an vinning til þess að knýja fram
jafntefli og halda þannig bikarn-
um. Gerðu þeir litlu meira en það,
en ekki er hægt að líta framhjá
frábærri frammistöðu evrópska
liðsins í fjórleik og ijórmenning á
laugardag. í fjórleiknum sigruðu
þeir í þremur leikjum og gerðu
jafntefli í þeim fjórða, lögðu þann-
ig grunninn að yfirburðastöðu sinni
þegar að lokasprettinum kom.
Fred Couples fór fyrir banda-
ríska liðinu í einstaklingsleikjunum
á sunnudag. Hann fór hamförum
í viðureign sinni við Walesbúann
Ian Woosnam og lauk henni strax
á 11. braut. Þeir tveir mættust nú
í þriðja sinn í röð í einmennings-
leik. Virðist frammistaða Couples
hafa hleypt mikilli baráttu í brjóst
félaga hans, sem á eftir komu.
Mark O’Meara, sem lék ljómandi
vel í keppninni, átti heldur ekki í
teljandi vandræðum með andstæð-
ing sinn, Svíann Jesper Parnevik.
Árangur leikmanna
Árangur einstakra leikmanna Evrópu og
Bandaríkjanna í Ryder-keppninni. Athygli
vekur að allir leikmenn svrópska liðsins
fengu stig, en Bandaríkjamaðurinn Davis
Love er sá eini sem ekki varð þess heiðurs
aðnjótandi í þetta sinn.
EVRÓPA
U T J stig
Colin Montgomerie, Skotl... ..8 1 1 3 'h
Costantino Rocca, Italíu ..3 1 0 3
Bernhard Langer, Þýskal... ...3 1 0 3
José Maria Olazábal, Spáni. ..2 2 1 2'h
Lee Westwood, Englandi.... ...2 3 0 2
Nick Faldo, Englandi ...2 3 0 2
Jesper Parnevik, Svíþj ...1 1 2 2
Per-Ulrik Johansson, Svíþj. ...2 0 0 2
Thomas Björn, Danmörku.. ...1 0 1 l'/2
Ignacio Garrido, Spáni ...0 1 3 l'/2
Darren Clarke, N-Irl ...1 1 0 1
Ian Woosnam, Wales ...1 1 0 1
BANDARÍKIN
U T J stig
Scott Hoch ...2 0 1 2'/2
Jeff Maggert ...2 1 0 2
LeeJanzen ...2 1 0 2
Fred Couples ...2 2 0 2
MarkO’Meara ...2 2 0 2
Tom Lehman ...1 1 2 2
Phil Mickelson ...1 1 2 2
Tiger Woods ...1 3 1 l'/2
Justin Leonard ...0 2 2 1
Brad Faxon ...1 2 0 1
Jim Furyk ...1 2 0 1
Davis Love n 4 0 0
Draumurinn rættist
Reuter
BALLESTEROS heldur Ryder-blkarnum á loft. Hann
seglst ekkl vilja vera llösstjórl evrópska llöslns í
næstu Ryder-keppni, en ætlar að tryggja sér sæti í
llöinu sem lelkmaður.
Stakksértil sunds
ÞEGAR Bernhard Langer tryggði Evrópumönnum a.m.k. jafn-
tefli og þannig varðveislurétt á Ryder-bikarnum í tvö ár til viðbót-
ar varð Billy Foster, kylfusveinn Darrens Clarke og fyrrum kylfu-
beri Seves Ballesteros, svo himinlifandi að hann stakk sér út í
tjörnina fyrir framan 17. flöt, en leikmönnum Ryder-liðanna stóð
oft stuggur af henni. f
Jaime Ortiz-Patino, eigandi Valderrama golfvallarins þar sem
Ryderkeppnin fór fram um helgina, hefur keppt hér á landi í
annarri óskyldri íþrótt, þ.e.a.s. brids. Hann var lengi í bridslandsl-
iði Svisslendinga og spilaði hér tVo landsleiki við Islendinga árið
1975, þar sem íslendingar unnu annan leikinn og Svisslendingar
hinn. Ortiz-Patino var að auki forseti Alþjóðabridssambandsins
í 12 ár og er nú heiðursforseti sama sambands.
Evrópubúar fengu snemma tvö
stig, með sigrum Per-Ulriks Jo-
hansson á sigurvegaranum á opna
bandaríska mótinu í ár, Davis Love
hinum þriðja, og óvæntum úrsjitum
úr leik Costantinos Rocca frá Ítalíu
við stórstirnið Tiger Woods, sem
sigraði í bandarísku meistara-
keppninni [US Masters] í apríl.
Rocca getur því borið höfuðið hátt
vegna frammistöðu sinnar í Ryder-
keppninni í ár, en skuldinni var
skellt á hann fyrir tap evrópska
liðsins á Belfry-vellinum í Englandi
fyrir fjórum árum, þar sem hann
brenndi af stuttu pútti er hann
tapaði fyrir Love.
Bjöm braut ísinn
Þótt evrópska liðið hafi einungis
vantað einn sigur og jafntefli úr
þeim átta leikjum sem enn var ólok-
ið, var útlitið ekkert sérlega bjart.
José Maria Olazábal var eini Evrópu-
búinn sem hafði forystu í leik sínum,
en hún var ekki mikil - aðeins ein
hola gegn Lee Janzen.
Evrópu barst þó fljótlega hjálp frá
óvæntum liðsmanni, Thomas Björn,
fýrsta Dananum sem leikur í Ryder-
keppni. Hann hafði samt tapað fjór-
um af fyrstu fimm holunum í viður-
eign sinni við Justin Leonard, sigur-
vegara opna breska mótsins í sum-
ar. Daninn jafnaði á 16. braut, fékk
því næst fugl á þeirri sautjándu og
tók einnar holu forystu. Álagið fór
þó með hann á 18. braut og Leon-
ard jafnaði leikinn með góðu pútti
fyrir pari, en evrópska liðið fagnaði
hálfum vinningi úr óvæntri átt.
Á meðan Björn og Leonard börð-
ust á 18. braut, náði Spánveijinn
José Maria Olazábal tveggja holna
forystu í leik sínum við Lee Janzen
á þeirri fimmtándu og Bernhard
Langer var að ná undirtökunum
gegn Brad Faxon. Evrópumenn
töldu sig því skyndilega eiga sigur-
inn vísan - a.m.k. öruggir með jafn-
tefli og því komnir með aðra hönd-
Draumurinn varð að veruleika
DRAUMUR liðsstjóra Evrópu, Se-
verianos Ballesteros - að sigra í
Ryder-keppni í heimalandi sínu,
rættist. „Liðið lék með hjartanu,
þess vegna unnum við,“ sagði hann.
„Ég hef unnið bandarísku meistara-
keppnina [US Masters] og opna
breska mótið, en það jafnast ekkert
á við að vinna Ryder-bikarinn og í
þetta sinn er það þessum tólf frá-
bæru kylfingum að þakka,“ sagði
Spánveijinn og benti á lið sitt.
í sigurvímu tilkynnti Ballesteros
að hann myndi ekki stýra liðinu í
næstu keppni, sem fram fer í
Brookline nærri Boston í Bandaríkj-
unum eftir tvö ár. Sagðist hann
vilja leika með liðinu þegar það
reynir að halda bikarnum, en til
þess segist hann þurfa að æfa stíft.
Ballesteros tók nokkrar umdeild-
ar ákvarðanir, t.d. að nota Englend-
inginn unga Lee Westwood í stað
Ians Woosnams frá Wales á föstu-
dag, en eftir gott gengi nýliðans
Westwoods efast enginn um hæfni
Ballesteros til liðsstjórnar. „Hann
var eins og faðir okkar,“ sagði landi
Seves og nýliði í Ryder-liðinu,
Ignacio Garrido.
Þekktu ekkl völlinn
Tom Kite, liðsstjóri Bandaríkj-
anna, hrósaði leikmönnum sínum
og eftir á að hyggja sagðist hann
hafa viljað að fleiri þeirra hefðu
komið og virt Valderrama-völlinn
fyrir sér í sumar, en Kite fór þang-
að ásamt nokkrum leikmönnum sín-
um, t.d. Tiger Woods. „Ég var ekki
nógu harður við þá,“ sagði Kite.
„Ég iðrast einskis, nema að hafa
ekki gengið harðar að strákunum
að koma hingað í sumar til að læra
á völlinn. Evrópubúarnir vippuðu
og púttuðu betur því þeir þekkja
völlinn og flatirnar mun betur en
við,“ sagði liðsstjórinn.
„Fyrirári
gat ég ekki
gengið"
HINN 31 árs gamli Spánverji,
José Maria Olazábal, brast í
grát er hann reyndi að út-
skýra fyrir fréttamönnum
hvers hann mat sigur liðs sins
í Ryder-keppninni, en hann
varð að draga sig í hlé fyrir
síðustu keppni eftir að hafa
verið valinn í Ryder-liðið,
vegna alvarlegra veikinda
sem ollu því að um tíma var
talið að Olazábal þyrfti á
hjólastól að halda. „Fyrir ári
gat ég ekki gengið," sagði
Spánverjinn.
í Ryder-keppninni frá 1987
til 1993 vann Olazábal tólf
leiki, tapaði sex og gerði jafn-
tefli 1 tveimur. „Ég er svo
stoltur af þvi að tilheyra þessu
yndislega liði. Andrúmsloftið
innan þess hefur verið svo
stórkostlegt að ég mun aldrei
gleyma því,“ sagði hann.
ina á Ryder-bikarinn, enda þurfti
aðeins eitt stig til.
Þegar að fímmtándu holunni kom
í viðureign Langers og Faxons, hafði
Þjóðveijinn tveggja holna forskot. Á
16. flöt stóð Faxon frammi fyrir því
að ef honum tækist ekki að setja
niður af eins metra færi, myndi
Evrópa ná fram jafntefli og halda
bikarnum, en Bandaríkjamanninum
varð ekki skotaskuld úr því. Með
því náði hann aðeins að knýja fram
skammlífan gálgafrest, því Langer
tryggði Evrópu áframhaldandi varð-
veislu bikarsins á 17. braut eftir
glæsilegt þriðja högg úr karganum
sem staðnæmdist um þijá metra frá
holu. Honum nægði að tvípútta, sem
hann og gerði.
Svo virtist sem fögnuður evr-
ópskra væri ekki einlægur þrátt fyr-
ir veglegan áfanga, því þeir vildu
vitaskuld ekki gera jafntefli á heima-
velli - heldur sigra. Eftir að Jeff
Maggert, sem lék best Bandaríkja-
manna á sunnudag ásamt Fred Co-
uples og Mark O’Meara, hafði gert
út um viðureign sína við enska nýlið-
ann Lee Westwood, var einungis
tveimur leikjum ólokið. Westwood
vann hug og hjörtu áhorfenda með
frammistöðu sinni í keppninni, en
hún dugði ekki gegn frábærum
Maggert.
Montgomerie brást ekkl
Leikur Skotans Colins Montgo-
meries við Scott Hoch var jafn eftir
ijórtán holur, en Nick Faldo var
tveimur holum undir gegn Jim
Furyk. Sá síðastnefndi fyllti áhang-
endur Evrópu þó nokkurri vantrú
þegar hann stóð af sér harða hríð
Faldos með því að vippa í úr karga
á 15. braut og glompu á þeirri
næstu. Faldo varð því að játa sig
sigraðan og tapaði leiknum á 16.
braut. Staðan var því orðin 14:13,
Evrópu í hag.
Sigur Evrópu virtist í höfn þegar
Montgomerie og Hoch gengu á 17.
teig, en Montgomerie hafði náð einn-
ar holu forskoti. Hoch tókst aftur á
móti að jafna leikinn eftir stórkost-
legt innáhögg úr karganum, þar sem
Langer hafði einnig slegið glæsilegt
högg nokkru áður.
Montgomerie lék síðustu holuna
fullkomlega og sýndi styrk sinn er
mikið lá við. Upphafshögg Hochs
lenti rétt utan brautar vinstra meg-
in, en annað höggið sló hann nánast
eins og byijandi. Þar með gerði
hann út um sigurmöguleika sína.
Montgomerie tryggði sér parið með
góðu aðpútti og keppinautarnir féll-
ust á jafntefli. Viðeigandi var, að
efsti kylfíngurinn á mótaröð Evrópu
síðustu íjögur árin skyldi gera út
um Ryder-keppnina, en Montgo-
merie hafði sig mikið í frammi í fjöl-
miðlum síðustu vikurnar fyrir hana.
Urslit / B11