Morgunblaðið - 30.09.1997, Side 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
KNATTSPYRINIA KNATTSPYRNA
Reykjavíkurrisarnir
skemmtu áhorfendum
Stefán Þórðarson
setfti tvö hjá Ravelli
Grétar
Eyþórsson
skrifar
frá Svíþjóð
Stefán Þórðarson var heldur
betur í essinu sínu á laugar-
daginn er lið hans, Oster, vann
óvæntan sigur á
sænsku meistur-
unum og topplið-
inu IFK Gauta-
borg, 2:1. Öster,
sem er í harðri fallbaráttu, kom
Gautaborg á óvart með góðum
leik og réð lögum og lofum. Það
var þó ekki fyrr en á 44. mínútu
að Stefán fékk knöttinn í góðu
færi og skoraði, eftir að Ravelli
hafði varið skot Hans Eklund, 1:0.
Síðari hálfleikur hafði aðeins
staðið í 7 mínútur er Stefán var
aftur á ferðinni og varð fyrstur
á stungusendingu frá vinstri
kanti, lék á Ravelli og renndi
knettinum í autt markið, 2:0. Per
Karlsson lagaði síðan stöðuna
fyrir meistarana á 69. mínútu
en nær komust Gautaborgarar
ekki og töpuðu því mikilvaegum
stigum í toppbaráttunni. Óster
lagaði stöðu sína á botninum og
ljóst að liðið getur enn bjargað
sér frá falli. Stefán fékk góða
dóma fyrir leik sinn og Express-
en gefur honum 3 í einkunn af
5 mögulegum.
Einar Brekkan gerði eitt mark
er lið hans, Vásterás vann óvænt-
an útisigur á AIK, 1:2. Mattias
Elison gerði fyrsta mark Vást-
erás á 58. mínútu og Einar
Brekkan bætti síðan um betur á
þeirri 71. og kom liði sínu í 0:2
áður en Johan Mjállby minnkaði
muninn fyrir AIK. Vásterás lag-
aði einnig stöðu sína á botninum
með sigrinum, en ljóst er að í
síðustu umferðunum munu 4 lið,
Vásterás, Öster, Degerfors og
Ljungskile bítast um að verða
ekki í tveimur neðstu sætunum
sem þýða beint fall. Þriðja og
fjórða neðsta sæti þýða aukaleiki
við næstefstu lið fyrstu deildar
norður og suður.
Hraður sóknarleikur, mörg
marktækifæri, fjöldi mark-
skota, góð markvarsla og glæsileg
mörk einkenndi við-
ureign KR og Fram
á KR-velli á laugar-
dag. KR-ingar
höfðu að litlu að
keppa og voru ef til vill afslapp-
aðri fyrir vikið en Framarar áttu
möguleika á að tryggja sér sæti í
Getraunakeppni Evrópu næsta ár.
Steinþór
Guðbjartsson
skrífar
Gestirnir létu það ekki á sig fá,
hugsuðu ekki um að veijast og
treysta á að skora úr gagnsóknum
eins og sjálfsagt margir hefðu gert
í stöðunni, heldur sóttu stíft til sig-
urs. Fyrir vikið var leikurinn opinn
og skemmtilegur en Framarar,
sem gerðu fyrsta markið og jöfn-
uðu 2:2 fyrir hlé, töpuðu 4:2 og
misstu Evrópusætið í hendur Leift-
urs.
Alltof oft hafa leikmenn ís-
lenskra liða- almennt verið ragir
við að skjóta á mark mótherjanna
þegar þeir nálgast vítateiginn og
sóknir því gjaman runnið út í
sandinn en þetta var ekki vanda-
mál í umræddum leik. Spilið var
lengst af hratt og markvisst og
menn létu vaða á markið. KR-ing-
ar áttu 12 markskot í fyrri hálf-
leik og Framarar 10 en heimamenn
skutu 20 sinnum undan vindinum
eftir hlé og gestirnir áttu níu skot.
Eins og gefur að skilja var ekki
mikið hugsað um varnarleik en
þeim mun meira kapp lagt í sókn-
irnar og sóknarmennirnir því í
sviðsljósinu. Andri Sigþórsson var
öflugur sem fyrr í fremstu víglínu
KR, gerði tvö glæsileg mörk og
hlýtur að koma til greina í landsl-
iðshópinn, svo framarlega sem
meiðslin koma ekki í veg fyrir
það. Guðmundur Benediktsson
náði sér vel á strik við hliðina á
honum og lagði upp tvö mörk.
Fyrir aftan þá lék Ríkharður Daða-
son einn besta leik sinn í sumar
og skallamörkin tvö voru í betri
kantinum. Þorsteinn Jónsson stóð
sig vel á vinstri kantinum og Einar
Þór Daníelsson átti góðar rispur á
miðjunni.
Framarar stóðu sig vonum
framar í deildinni og geta borið
höfuðið hátt þrátt fyrir tap í síð-
asta leik. Þorbjörn Atli Sveinsson
var skemmtilegur í sókn Fram,
réttur maður á réttum stað og
öryggið uppmálað í mörkunum
tveimur. Arni Pjetursson hefur
stöðugt sótt í sig veðrið, var alltaf
að og geysilega duglegur á miðj-
unni. Þorvaldur Ásgeirsson vann
vel og Kristófer Sigurgeirsson ógn-
aði vinstra megin en Olafur Péturs-
son var góður í markinu.
Kvöddu deildina
með sigri
vaur B.
Jonatansson
skrifar
Skallagrímur kvaddi efstu deild
íslandsmótsins með því að
sigra Grindavík 3:2 í Borgarnesi á
laugardaginn. Leik-
urinn var leiðinleg-
ur. Skallagríms-
menn Iéku undan
sterkum vindi í fyrri
hálfleik. Leikmenn áttu erfitt með
að hemja boltann, sem var meira
út af vellinum en inn á honum.
Heimamenn gerðu eina mark fyrri
hálfleiks, úr víti þegar tíu mínútur
voru til leikhlés. Skömmu síðar var
Zoran Ljubicic í dauðafæri en Frið-
rik í marki Skallagríms varði laust
skot hans frá markteig. Björn Ax-
elsson var nálægt því að bæta við
marki fyrir Skaliagrím á Iokamín-
útu hálfleiksins er hörkuskot hans
úr aukaspyrnu small í þverslá.
Grindvíkingar voru meira með
boltann í síðari hálfleik, en voru
mislagðir fætur þegar þeir nálg-
uðust vítateig heimamanna. Þeir
áttu fimmtán skot á markið í hálf-
leiknum en uppskáru aðeins tvö
mörk og klúðruðu m.a. vítaspyrnu
sem Friðrik varði auðveldlega frá
Sinisa. Þeir áttu einnig skot í slá.
Skallagrímsmenn nýttu sér vel þau
fáu færi sem þeir fengu á móti vind-
inum og náðu að komast í 3:1 áður
en gestirnir minnkuðu muninn í eitt
mark, 3:2, á lokamínútu leiksins.
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
TRYGGVI Guðmundsson er slopplnn framhjá Gunnari Má Mássyni og er að spyrna knettinum, sem hafnaði í netinu hjá Leiftrf. Þar með
var Tryggvi búinn að jafna markametið, skoraði 19 mörk.
ÞRIÐJA sætið í Sjóvár-
Almennra deildinni varð Leift-
urs eftir að liðið hafði lagt ís-
landsmeistarana í ÍBV að velli
í Ólafsfirði um helgina, loka-
tölur leiksins urðu 3:1. Þriðja
sætið tryggir Leiftri þátttöku
í Inter-Toto keppninni á næsta
ári en liðið tók einmitt þátt í
þeirri keppni í sumar.
Eg er mjög sáttur við leikinn og
okkur tókst ætlunarverkið; að
sigra, og ná þar með þriðja sætinu
í deildinni," sagði
ReynirB. Kristinn Björnsson,
Eirtksson þjálfari Leifturs,
skrífar eftir leikinn. „Skil-
yrðin til að leika
voru ekki góð en mér fannst bæði
liðin sýna nokkuð góðan leik og var
spilið ágætt. Ég bjóst við því að
þeir pressuðu nokkuð stíft í seinni
hálfleik og því lögðum við upp með
það að beita skyndisóknum sem
gafst ágætlega. Ég er sáttur við
að ná þriðja sætinu i deildinni úr
því sem komið var. Við vorum á
uppleið í seinni umferðinni eftir að
hafa lent í hremmingum í þeirri
fyrri.“
Leikmenn beggja liða komu
ákveðnir til leiks og var leikurinn
mjög fjörugur allt frá fyrstu mín-
útu. Tryggvi Guðmundsson fékk
tvö ágæt færi strax í upphafi og
greinilegt að hann ætlaði að jafna
fyrra markamet og helst setja nýtt.
Það var svo á 8. minútu sem fyrsta
markið kom er Daði Dervic skor-
aði sannkallað glæsimark af 25
metra færi. Bæði liðin léku vel í
fyrri hálfleik en það var Leiftur
sem sótti meira og gerði vindurinn
sem var talsvert sterkur þeim lífið
léttara en gestunum. Leiftur átti
þijú góð færi í hálfleiknun, en skot
þeirra fóru öll rétt framhjá. ÍBV
átti hins-vegar tvö ágæt færi sem
þeim tókst ekki að nýta.
Gestirnir hófu seinni hálfleik af
krafti og sóttu stíft undan vindin-
um. Leiftur beitti hins vegar
skyndisóknum sem gáfu mjög góða
raun og voru sóknir jieirra mun
hættulegri en sóknir IBV. Helsta
ástæða þess var sennilega sú að
vörn ÍBV var oft fáliðuð eftir stíf-
ar sóknir. Tryggvi Guðmundsson
gerði mark ÍBV í leiknum sem kom
á 66. mínútu með skoti rétt utan
við vítateig. Með þessu marki jafn-
aði hann markametið í efstu deild
og því biðu margir spenntir það
sem eftir lifði leiksins hvort honum
tækist að hnekkja metinu. Litlu
síðar átti Lasorik gott skot af
stuttu færi sem Gunnar í marki
IBV sá við. I næstu sókn Leifturs
var svo brotið á Þorvaldi Makan
inní teig og dæmt var víti sem
mínútunni og innsiglaði þar með
sanngjarnan sigur heimamanna.
Leiftur lék vel í leiknum og var
vel að sigrinum komið. Liðið lék
mjög skynsamlega, undan vindin-
um sótti það nokkuð stíft en í síð-
ari hálfleik bakkaði það og beitti
skyndisóknum sem voru hættuleg-
ar. ÍBV lék oft vel í leiknum en
þar vantaði þó þann brodd í sókn-
ir liðsins sem hefur verið aðal þess
í sumar.
KRISTINIM Björnsson og Leiftursmenn
fagna Inter-Toto sætinu.
Þorvaldur tók sjálfur. Honum brást bogalistin
að þessu sinni og fór skot hans hárfínt fram-
hjá. Áfram héldu árangursríkar skyndisóknir
Leifturs og á 78. mínútu komust þeir svo
yfir með marki frá Baldri Bragasyni. Hvort
lið um sig fékk svo eitt umtalsvert færi áður
en Rastislav Lasorik rak smiðshöggið á leikinn
af hálfu Leifturs með marki sem kom á loka-
0B 4| Sævar Guðjónsson
■ | fékk boltann vinstra
megin á vallarhelmingi KR og
sendi fyrir markið á fjærstöng
á 3. mínútu. Þar var Þorbjörn
Atli Sveinsson á auðum sjó og
sendi boltann með hægri í fjær-
homið uppi. Vel að verki staðið
og glæsilegt mark.
1B Æ Þorsteinn Jónsson
■ | fékk boltann út á
miðjan vinstri væng og sendi
fyrir á fjærstöng þar sem Rík-
harður Daðason skallaði í netið
úr markteignum á 30. mínútu.
2b 4| Guðmundur Bene-
■ I diktsson fékk bolt-
ann út á hægri kant nálægt
endimörkum og sendi fyrir
markið. Rétt utan markteigs
vinstra megin stökk Rikharður
Daðason hæst allra í loft upp
og skallaði af öryggi í netið á
36. mínútu.
2b ^ÍBrotið var á Þorbimi
■ diAtla Sveinssyni á 38.
mínútu og dæmd vítaspyrna.
Þorbjörn Atli skoraði af öryggi
úr vítinu.
3n*%k 63. mínútu fékk
* fCiGuðmundur Bene-
diktsson boltann hægra megin
í vítateig Fram, lék á mótheija
og sendi fyrir markið. Þar var
Andri Sigþórsson rétt utan
markteigs og skoraði með frá-
bærri hægri fótar bakfalls-
spymu. Góður undirbúningur og
glæsilegt mark.
4b OÁ 71. mínútu var tii-
■ áfiakynnt að Tryggvi
Guðmundsson hefði skorað fyrir
IBV og þar með jafnað marka-
metið í deildinni, en þá sendi
Einar Þór Danfelsson fýrir mark
Fram frá vinstri, Andri Sig-
þórsson stakk sér í boitann rétt
utan markteigs og skallaði
skemmtilega í markið.
1B^\Dæmd var vitaspyrna á Grindavík er Hilmar Hákonarson
■ Wvar felldur innan vítateigs á 35. mínútu. Hjörtur Hjartar-
son tók spymuna og skoraði af öryggi með hægri fæti í vinstra hornið.
1m 4 Ólafur Örn Bjarnason var með boltann rétt fyrir framan
■ | miðjan vítateig Skallagríms og renndi honum til vinstri á
Ólaf Ingólfsson sem lék inn í teiginn og þrumaði í vinstra hornið.
Glæsilegt mark.
2b 4j Valdimar Sigurðsson tók homspyrnu frá hægri, sendi fyrir
a I markið en fékk boltann aftur og sendi þá á nærstöng og
þar var Hjörtur Hjartarson réttur maður á réttum stað og potaði
boltanum yfir marklínuna á 69. mín.
3b Góð skyndisókn Skallagrímsmanna upp vinstri kantinn end-
■ | aði með því að Hilmar Hákonarson gaf fyrir markið og þar
var Valdimar Sigurðsson og skoraði af stuttu færi á 88. mín.
3b ^%Grétar Einarsson tók hornspyrnu frá vinstri á 90. mínútu.
■ ^LÓlafur Ingólfsson fékk boltann við fjærstöng og renndi fyr-
ir markið á Arna Stefán Björnsson sem skoraði af stuttu færi.
1B J^Eftir sókn Leifturs á
■ %#8. mínútu komu
vamarmenn ÍBV boltanum frá
markinu og barst hann til Daða
Dervic sem var staddur um 25
metra frá markinu. Hann var
ekkert að tvínóna við hlutina
heidur þrumaði knettinum ofar-
lega í hornið fjær. Sannkallað
glæsimark.
1:1
A 66. mínútu fékk
Tryggvi Guð-
mundsson boltann rétt fyrir
utan vítateig Leifturs. Hann lék
á varnarmenn Leifturs og skaut
svo góðu skoti sem hafnaði í
markhorninu fjær.
2b «8 Davíð Garðarsson
■ I sendi innfyrir vörn
Leifturs á Baldur Bragason
sem var einn á auðum sjó og
skoraði af öryggi. Þetta var á
78. mínútu.
3b Æ Á lokamínútu leiks-
■ I ins lék Þorvaldur
Makan inn í vörn ÍBV og sendi
svo á Ratislav Lasorik sem var
einn á auðum sjó og skoraði af
öryggi í bláhornið með skoti af
vítapunkti.
annað árið í röð
Leiftur í I nter-Toto
Skiptur
hlutur
Þess varð greinilega vart á viður-
eign Keflavíkur og Skaga-
manna í Keflavík að hvorugt liðið
hafði að sérstöku
ívar marki að keppa með
Benediktsson leik sínum. Skaga-
skrifar menn voru öruggir
með annað sæti
deildarinnar, hveijar sem lyktir
yrðu, og Keflavíkingar og væntan-
lega með hugann við síðari úrslita-
leik bikarkeppninnar á sunnudag-
inn kemur. Énda fór svo að niður-
staðan varð 1:1.
Heimamenn léku undan vindin-
um í fyrri hálfleik og voru mun
meira með knöttinn til að byija
með. Þórarinn Kristjánsson kom
þeim á bragðið á 7. mínútu og var
það nánast hið eina markverða er
gerðist fyrstu 20 til 25 mínúturnar.
Jóhann Guðmundsson komst í
ákjósanlegt færi á teignum hægra
megin en Þórður varði, en orsökin
fyrir færinu var að Alexander Linta
missti boltann á miðjum vallarhelm-
ingnum og Jóhann og félagar nýttu
sér það til sóknar. Linta brást
nokkrum sinnum bogalistin eftir
það án þess þó að Keflvíkingar
gætu nýtt sér það til markaskorun-
ar. Besta færi ÍA kom á 26. mín-
útu eftir að Ólafur Þórðarson hafði
leikið Keflavíkurvörnina grátt á
vinstri kanti og sent fyrir markið á
Ragnar Hauksson sem var í dauða-
færi við vítapunkt en hitti ekki
knöttinn svo færið rann út í
sandinn.
Rétt fyrir hlé varði Þórður Þórð-
arson, markvörður ÍA, þrumuskot
Gests Gylfasonar af 25 m færi mjög
vel í horn og skömmu síðar þrumu-
skot Jóhanns Guðmundssonar eftir
að hann hafði leikið Linta grátt á
hægri kantinum. Bjarki Guðmunds-
son varði. vel fast skot Jóhannesar
Harðarsonar hinum megin vallarins
og skömmu fyrir hlé kom Þórður á
ný í veg fyrir mark er hann varði
með úthlaupi eftir að Jóhann slapp
í gegnum vörn ÍA.
Skagamenn byijuðu af miklum
krafti í síðari hálfleik en gekk illa
að skapa sér færi. Eftir jöfnunar-
markið á 63. mínútu færðu Skaga-
menn sig enn framar á völlinn og
freistuðu þess að komast yfir en
ekkert gekk og heimamenn náðu
einu og einu upphlaupi. En hvorki
gekk né rak við markaskorun og
félögin sættust á skiptan hlut.
Einn
sigurleikur
LEIKMENN Stjöraunnar
fögnuðu aðeins einum sigri á
íslandsmótinu í knattspyrau,
gerðu þijú jafntefli og töpuðu
þrettán leikjum. Þess má geta
að þegar Eyjamenn urðu síð-
ast íslandsmeistarar 1979
féllu Haukar, sem unnu að-
eins einn leik, gerðu þijú jafn-
tefli ogtöpuðu fjórtán leikj-
um. Stjaraar var ekki langt
frá meti Hauka.
Gunnar Oddsson
fékk boitann á 7.
mín., þar sem hann var staddur
rétt við utanvert vftateigshornið
hægra megin og sendi rakleitt
inn á markteigshornið innan-
vert. Þar var Þórarinn Krist-
jánsson staddur og skallaði í
markið óáreittur. Varnarmenn
ÍA og Þórður markvörður sofn-
uðu illa á verðinum.
1B «8 Á 63. mínútu sendi
■ I Óiafur Þórðarson
háa sendingu inn á vítateig
Keflavíkur á móts við miðjan
markteiginn. Þar stakk Kári
Steinn Reynisson sér upp á
milli varnarmanna Keflavíkur
og skaliaði í netið.
Lauflétt hjá Val
Valsmenn sigruðu Stjörnuna
sannfærandi, 3:0, að Hlíðar-
enda á laugardaginn. Þrátt fyrir
sigurinn er árangur
Valsmanna í sumar
einn sá lakasti í
sögu félagsins.
Stjörnumenn
kvöddu efstu deild með tilþrifalitl-
um leik. Fyrri hálfleikur var væg-
ast sagt leiðinlegur á að horfa. Jón
Grétar Jónsson færði Valsmönnum
forystu með marki úr vítaspyrnu
rétt fyrir leikhlé.
Síðari hálfleikur var mun fjör-
ugri og tóku Valsmenn þá öll völd
á vellinum. Kristni Lárussyni var
vísað af leikvelli á 54. mínútu fyrir
munnsöfnuð og höfðu tíu Stjörnu-
menn lítið í spræka Valsara að
gera. Valsmenn bættu við tveimur
mörkum fyrir leikslok og var sigur
þeirra í raun aldrei í hættu. Stjörnu-
menn fengu þó upplögð tækifæri
til að skora en þeim voru afskap-
lega mislagðir fætur.
Valsmenn léku ágætlega á köfl-
um í síðari hálfleik. Jón Grétar
Jónsson, sem lék kveðjuleik sinn í
efstu deild og gerði tvö mörk, og
Arnar Hrafn Jóhannsson voru
þeirra bestu menn. Kveðjuleikur
Garðbæinga í efstu deild var ekki
eftirminnilegur. Líkt og í flestum
öðrum leikjum Stjörnunnar í sumar
var Árni Gautur Árason, markvörð-
ur, besti maður liðsins. Hann hefur
í sumar skipað sér á bekk með
okkar allra bestu markvörðum og
forðað liði sínu frá enn verra gengi.
1BJ%Á 44. mínútu var
B ^FArnari Hrafni Jó-
hannssyni hrint innan vítateigs
Stjörnunnar og Kristinn Jakobs-
son dæmdi vítaspyrnu. Jón
Grétar Jónsson tók vítaspyrn-
una og skoraði örugglega með
föstu hægri fótar skoti í hægra
hornið.
B^\Arnar Hrafn Jó-
■ %#hannsson gaf góða
stungusendingu inn fyrir flata
vörn Stjörnunnar á 57. mínútu.
Jón Grétar Jónsson stakk
vamarmennina af og skoraði
fagmannlega framhjá Árna í
markinu með hnitmiðuðu hægri
fótar skoti af vítateigslínu.
3*nÁ 75. rnínútu sóttu
■ UValsmenn stíft að
marki Stjörnunnar. Guðmundur
Brynjólfsson gaf fyrir frá hægri
og barst boltinn yfir á vítateigs-
hornið vinstra megin. Þar var
Sigurbjörn Hreiðarsson einn
og óvaldaður og skaut viðstöðu-
lausu skoti með hægi'i fæti neðst
í fjærhomið, glæsilegt mark.
Borgar Þór
Einarsson
skrifar
ÍÞtiMR
FOLK
■ LEIKMENN ÍBV léku með
sorgarbönd í leiknum gegn Leiftri.
Með þessu voru þeir að minnast
Guðmundar H. Þórarinssonar,
„Týssa“, sem lést sl. föstudag.
Guðmundur gerði fyrsta mark IBV
í 1. deild, en félagið vann sér fyrst
rétt til að leika þar fyrir 30 árum.
■ GUÐMUNDUR skoraði markið
beint úr aukaspyrnu í leik gegn
Val 1968 á Hásteinsvelli - jafnaði,
1:1 við mikinn fögnuð 657 áhorf-
enda í leik sem Eyjamenn unnu,
3:1. Sigmar „Bói“ Pálmason skor-
aði hin tvö mörkin.
■ SIGURVIN Ólafsson og Zoran
Miljkovic léku ekki með ÍBV gegn
Leiftri. Þeir eru á hættusvæði, Sig-
urvin er kominn með með þijú gul
spjöld og Zoran með fimm og óþarfi
að taka áhættu, með bikarúrslitin
við Keflavík 5. október í huga.
■ ZORAN Miljkovic var á meðal
áhorfenda í Keflavík þar sem fyrr-
um félagar hans í IA tóku á móti
silfurverðlaunum.
■ KRISTINN Björnsson, þjálfari
Leifturs , sagði eftir leikinn að
hann hefði rætt málin við forráða-’
menn Leifturs varðandi áfram-
haldandi þjálfun liðsins. „Ég er
opinn fyrir því að halda áfram með
liðið en botn ætti að fást í málið á
næstu dögum. Það setur þó strik í
reikninginn að ég er í vinnu í
Reykjavík og verð að leysa ákveð-
in mál varðandi hana ef ég verð
hér áfram,“ sagði Kristinn.
■ SÆMUNDUR Víglundsson,
knattspyrnudómari, dæmdi síðasta
leik sinn í efstu deild í Borgarnesi
á laugardaginn. Hann hefur ákveð*-
ið að leggja dómaraflautuna á hill-
una. Skallagrimsmenn færðu Sæ-
mundi tvær tijáplöntur fyrir leikinn
í tilefni tímamótanna hjá honum.
■ HILMAR Björnsson lék ekki
með KR vegna veikinda en Heimir
Guðjónsson og Þormóður Egils-
son voru á bekknum.
■ JÓN Grétar Jónsson, leikmað-
ur með Val, lék kveðjuleik sinn í
efstu deild á laugardag. Hann á að
baki farsælan feril; íslandsmeistari
með Val 1985 og 1987 og með KA
1989, og þrefaldur bikarmeistari
með Val 1990-1992. Jón sagðist
sáttur við að hætta nú og ekki sjá
eftir einni einustu mínútu í boltaru
um.
■ HAUKUR Ingi Guðnason
framheijinn lipri í Keflavíkurlið-
inu lék ekki með félögum sínum í
síðustu umferðinni gegn IA. Ástæð-
an var sú að piltur var lasinn heima.
■ JAKOB Jónharðsson, fyrirliði
Keflavíkur, var í leikbanni gegn
ÍA. í hans stað tók Gestur Gylfa-
son við fyrirliðabandinu.
■ BALDUR Bragason varamark-
vörður IA kom inn á sem varamað-
ur fyrir Þórð Þórðarson á 63.
mín. leiksins gegn Keflavík. Er
þetta fyrsti leikur Baldurs í efstu
deild.
■ ÞÓRÐUR meiddist á síðustu
sekúndum fyrri hálfleiks er hann
lenti í samstuði við Jóhann Guð-
mundsson. Hann byijaði þó í síðari
hálfleik en ákvað að fá skiptingu
eftir rúmlega stundarfjórðungs leik.
■ ANTON Hartmannsson, vara-
markvörður Keflavíkur, fékk einnig
að spreyta sig í leiknum en hann
stóð á milli stanganna í Keflavíkur-
markinu síðustu mínútur leiksins.
Þetta er einnig hans fyrsti leikur í
efstu deild.
■ LEIKMENN ÍA fengu silfur-
verðlaunin fyrir 2. sætið í Sjóvár-
Almennra deildinni afhent að leiks-
lokum í Keflavík. Var þetta önnur
helgin í röð sem leikmenn Keflavík-
ur eru áhorfendur að verðlaunaaf-
hendingu því helgina áður fengu
Eyjamenn íslandsbikarinn afhent-
an eftir viðureign við Keflavík í
Eyjum.