Morgunblaðið - 30.09.1997, Síða 8

Morgunblaðið - 30.09.1997, Síða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Söguleg ákvörðun íþróttahreyfingin hefur samþykkt að starfa saman . í einum samtökum, íþrótta- og Ólympíusambandi íslands, og verður stjórn þeirra kosin eftir liðlega mánuð. Steinþór Guðbjartsson fylgdist með framhaldsíþróttaþingi ÍSÍ og framhaldsaðalfundi Óí um helgina þar sem þessi ákvörðun var tekin. Framhaldsþing 63. |þróttaþings íþróttasambands íslands sam- þykkti samhljóða lög nýrra sam- taka, íþrótta- og Ólympíusam- bands Islands, á framhaldsþingi, sem haldið var á Hótel Loftleiðum á sunnudagsmorgun. Sama niður- staða var á framhaldsaðalfundi ' Ólympíunefndar íslands, sem hald- inn var á sama stað síðar um dag- inn. íþróttaþing verður haldið 1. og 2. nóvember og verður þá kosin stióm nýrra samtaka en ÍSÍ og ÓI starfa óbreytt þangað til. „Hér hefur söguleg ákvörðun verið tekin og ég óska ykkur til hamingju með hana því hún mun hafa mjög jákvæða þýðingu fyrir starfsemi íþrótta á íslandi í fram- tíðinni," sagði Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ og fonnaður Óí, þegar 'niðurstaðan á ÍSÍ þinginu lá fyrir, en áður hafði Óí samþykkt tillögu þess efnis að samþykkja lögin síð- ar um daginn ef ÍSI samþykkti þau. Hann þakkaði sérstaklega Lárusi L. Blöndal, formanni laga- nefndar, og laganefndinni fyrir vel unnin störf, vandaða vinnu við gerð frumvarpsins, kynningu þess og áætlun sem hefði staðist full- komlega. „Það er ekki síst laga- nefndinni, góðri kynningu og góð- um röksemdaflutningi að þakka að þetta mál hefur siglt svo farsæl- lega í höfn.“ Sigurður á röngum stað Umræða á íþróttaþinginu var málefnaleg, gagnorð og stuttorð. Sigfús Ægir Árnason, fram- kvæmdastjóri TBR, lagði til að smávægileg breyting yrði gerð á einni grein og var hún samþykkt. Einar Ole Pedersen, formaður UMSB, sem var við annan mann á móti því að breytingar yrðu leyfð- ar á kjörgengi fulltrúa frá þinginu á Akranesi í fyrra, sagðist ekki ætla að gefa yfirlýsingu um hvort hann styddi „þessa vitleysu eða ekki“ eins og hann orðaði það en hinir þrír sem tóku til máls sögð- ust styðja lögin. 136 fulltrúar höfðu rétt til setu á þinginu en 104 mættu. Hins vegar tók málið aðra stefnu á framhaldsaðalfundi Ólympíú- nefndar, fyrst og fremst vegna málþófs fyrrverandi formanns Skíðasambandsins, sem var gestur á fundinum. Torfi Tómasson, fyrr- verandi gjaldkeri Óí, gagnrýndi reikninga, sem þó voru aðeins lagð- ir fram til kynningar en ekki um- ræðu. Sigurður Einarsson, áður formaður SKÍ, hélt langa tölu um að hann væri að hætta opinberum afskiptum af íþróttum, stjómar- kosningar á liðnum vetri, hvernig ■ „rugludöllum" sem væru á móti sameiningunni hefðu verið úti- lokaðir, galla frumvarpsins til nýrra laga og komandi kosningar - umhugsunarefni væri fyrir hreyfinguna að breyta um stíl með nýrri forystu. „Ég verð fyrir mikl- um vonbrigðum ef Alþjóða ólymp- v íunefndin samþykkir þessar breyt- ingar,“ sagði hann en Ámi Þór Árnason, formaður Fimleikasam- bandsins, gagnrýndi málflutning Sigurðar. „Er þetta fyrir sálfræð- ing eða okkur,“ spurði .hann utan úr sal. Júlíus Hafstein, formaður Júdósambandsins, þakkaði laga- nefndinni fyrir vel unnin störf, sagði niðurstöðuna ljósa og þó setja mætti út á ýmislegt gerði hann ekki athugasemdir og sagðist styðja málið. Jafet Ólafsson, for- maður Badmintonsambandsins, benti á að verkefni fundarins væri að afgreiða sjálfgefið mál og ekki væri tími til að horfa í baksýnis- spegilinn heldur ætti að bretta upp ermar og horfa fram á við. Ellert tók í sama streng og Ja- fet. Hann sagði eðlilegt að ábend- ingum Torfa yrði komið á fram- færi við endurskoðendur reikning- anna en áréttaði að fundurinn ætti að snúa sér að því sem lægi fyrir. í kjölfarið var frumvarpið samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum. Bjarni Frið- riksson, annar fulltrúi íþrótta- manna í Ólympíunefnd, sat hjá, en hann hafði áður gagnrýnt máls- meðferðina og spurt hvort IOC sætti sig við frumvarpið, og Einar Vilhjálmsson, hinn fulltrúi íþrótta- fólksins, var fjarstaddur. Baráttumál í fimm ár Sameiningin hefur verið k dag- skrá síðan á íþróttaþingi ÍSÍ 1992. Viðræðunefnd ÍSÍ og 01 undir for- ystu Eggerts Magnússonar, for- manns Knattspyrnusambands ís- lands, var skipuð eftir íþróttaþing 1994 og lagði hún fram drög að lögum nýrra samtaka á íþrótta- þingi á Akranesi fyrir tæplega ári. Þar var samþykkt samhljóða að stefna að sameiningu og sama var upp á teningnum á aðalfundi Óí fyrr á Iíðandi ári. Síðan hefur markvisst verið unnið að málinu með því að koma lögunum í endan- legt horf og kynningu í hreyfíng- unni auk þess sem Alþjóða ólymp- íunefndin og Evrópusamband ólympíunefnda fengu frumvarpið til umfjöllunar. „Þetta er ekki lokaskref heldur fyrsta skref í nýrri sókn,“ sagði Ellert við Morgunblaðið eftir at- kvæðagreiðsluna í fyrradag. „Þetta er nýtt skipulag sameinaðra samtaka með samræmda stefnu og ég er ánægður með að málið skuli loks vera komið í höfn. Satt að segja átti ég ekki von á að svona rík eining yrði því mikið hefur gengið á en með góðri kynningu, góðum málflutningi og með tíman- um hafa menn áttað sig á skyn- seminni í sameiningunni. Frá 1992, þegar tillaga um endurskoðun hreyfingarinnar var samþykkt á íþróttaþingi, hefur málið verið í umræðunni. Öldur hafa risið en víðtæk samstaða um stefnuna náð- ist á íþróttaþinginu í fyrra og með þessari afgreiðslu núna sýnir íþróttahreyfingin að hún stendur saman." Morgunblaðið/Þorkell HVÍT spjöld tll merkls um samþykkl frumvarps tll nýrra laga voru í hvers manns hendl á íþróttaþlngl ÍSÍ um helglna og handauppréttlngar á fundl Óí gegndu sama hlutverkl. HANDKNATTLEIKUR Fyrsti sigur Dana á Svíum í 13 ár Danir unnu á laugardag fyrsta sigur sinn á Svíum í handknattleik síðan 1984, ef frá eru taldir vináttuleikir. í seinni leik lið- anna í undan- keppni EM í Kaupmannahöfn höfðu Danir tögl og hagldir allan tímann og sigr- uðu, 26:21, eftir að hafa haft forystu, 14:10, í hléi. Sigur Dana Grétar Þór Eyþórsson skrifar á aldurhnignu liði Svía var aldr- ei í hættu og var hann ekki síst að þakka markverðinum, Sören Haagen Andersen, sem varði 19 skot. Atkvæðamestir Dana voru Nikolay Jakobsen með 7 mörk, Ian Fog með 5 og Morten Bjerre og Christian Hjermind með 4. Hjá Svíum gerði Stefan Lövgren 8, Johan Pettersson 4 og Erik Hajas 3. í síðustu viku kom fram í sænskum fjölmiðlum gagnrýni sænskra handknattleiksþjálfara á val Bengt Johanssons á landsliðinu og hann ekki talinn þora að endurnýja nægilega mikið og keyra alltaf á sömu gömlu refunum. í leikjunum við Dani var stofninn í sænska liðinu sá sami og á HM í Kumamoto, nema hvað Erik Hajas er nú kominn inn að nýju. Ekki mikið nýjabrum þar! KNATTSPYRNAEP / ÍTALÍA Lakasta byrjun AC Milan í 59 ár Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, var afar óhress með tap félagsins fyrir Vicenza, 1:0, í ítölsku 1. deildinni á sunnudaginn. Liðið hefur ekki enn unnið leik á tímabilinu og hefur ekki byijað jafn illa í 59 ár. Nú er talað um „svartan september" hjá Milan. „Hvað vilt þú? Viltu að ég sýni tárin í beinni útsendingu í sjónvarpinu," sagði forseti félagsins, er fréttamaður bað um álit hans á frammistöðu liðs- ins eftir leikinn. Fyrir leikinn var Berlusconi mjög bjartsýnn og sagði að liðið ætlaði nú loks að sýna hvað í því býr. Fabio Capello, þjálfari AC Milan, hefur notað 15 leikmenn til þessa í deildinni og aðeins fimm þeirra eru ítalir. Aðrir koma frá átta mismunandi þjóðum; Brasilíu, Hollandi, Frakklandi, Þýskalandi, Júgó- slavíu, Króatíu, Líberíu og Svíþjóð. Leikmenn eiga því erfitt með að tala saman og því er ekki hægt að búast við árangri. ítölsku blöðin fóru ekki fögrum orðum um AC Milan. „Inter 12 - Milan 2“ var fyrir- sögnin í La Gazzetta dello Sport í gær og er gert mikið úr slæmu gengi liðsins. Fyrirsagnir eins og „Milan er martröð" og „Milan í frjálsu falli“ voru einnig áberandi. „Égtek alla ábyrgðina á mig,“ sagði Capello, þjálf- ari í gær. „Það er mitt hlutverk að finna leið út úr vandamálunum sem við eigum við að glíma. Við lék- um alls ekki illa í fyrri hálfleik, en síðari hálfleikur var afleitur.“ AC Milan er nú þegar orðið 10 stigum á eftir Int- er eftir Qórar fyrstu umferðimar. Inter burstaði Lecce 5:1 og gerðu Brasilíumaðurinn Ronaldo og Frakkinn Youri Djorkaeff tvö mörk hvor. Inter hefur nú tveggja stiga forskot á Parma sem vann Udinese 4:0. Roma gerði jafntefli við Bologna og er í þriðja sæti ásamt Juventus sem gerði jafntefli við Sampdoria, 1:1. Inter er með fullt hús stiga þannig að byijun þjálf- arans Luigi Simoni, sem tók við af Hodgson eftir síð- asta tímabil, er góð. Liðið hefur unnið sjö fyrstu leiki sína á tímabilinu, íjóra í deildinni, tvo I bikarkeppn- inni og einn í UEFA-keppninni. Ronaldo, sem kom til Inter í sumar, er búinn að gera fimm mörk í þess- um sjö leikjum. Reuter ANGELO Dl Llvlo, miövallarspllarl Juventus, stekkur hœrra en Marco Franceschetti, varn- arlelkmaður Sampdorla, í lelk llðanna í Genúa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.