Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 B 3 Enn fer Dennis Bergkamp á kostum DENNIS Bergkamp hjá Arsenal og Tékkinn Patrik Berger voru menn helgarinnar íenSku knattspyrnunni um liðna helgi. Berg- kamp hélt upp á að vera fyrsti maðurinn til að vera valinn leikmað- ur mánaðarins tvo mánuði í röð með því að eiga stórleik og gera tvö mörk í 5:0 sigri Arsenal á nýliðum Barnsley á High- bury. Berger var ekki síðri er hann skoraði þrennu og lagði upp fjórða markið í 4:2 sigri Liverpool á nágrönnum Arsenal í Chelsea. Lærisveinar Ruud Gullits máttu svo sannarlega þakka fyrir að fá ekki verri útreið á Anfield Road að þessu sinni. Sigur Arsenal tryggði þeim áframhaldandi stöðu í efsta sæti úrvalsdeildarinnar, einu stigi á undan Manchester United, er lagði Crystal Palace, 2:0, á Old Trafford. Teddy Sheringham skoraði fyrra mark meistaranna á 17. mínútu en síðara markið var sjálfsmark Her- manns Hreiðarssonar þrettán mín- útum eftir að Sheringham kom United á bragðið. Bergkamp skoraði tvö mörk, Ray Parlour og David Platt gerðu eitt mark hvor og að sjálfsögðu gerði Ian Wright eitt mark. Þetta var sjötti ósigur Barnsley í röð og færði liðið niður í neðsta sæti deildarinnar þar Southampton vann West Ham og lyfti sér af botninum. Berger kann greinilega vel við sig gegn Chelsea því í fyrra gerði hann 2 mörk í 5:1 sigri Liverpool á Anfíeld og nú bætti hann um betur. Liðsmenn Chelsea urðu fyrir skakkafalli á 26. mínútu þegar varnarmaðurinn Bernard Lamb- ourde var rekinn af leikvelli er hann fékk annað gula spjald sitt. Þá var leikurinn í jafnvægi og staðan jöfn, 1:1. Berger hafði komið heima- mönnum yfír á 20. mínútu og Gianfranco Zola jafnað metin KR-stúlkur sigruðu meistarana í Grindavík KR-STÚLKUR sigruðu fs- Iandsmeistara Grindavíkur, 59:53, í 1. deild kvenna i körfuknattleik í Grindavík í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi en staðan i hálfleik var 34:33 fyrir KR. Penny Pepas gerði þriggja stiga körfu fyrir Grindavík þegar 50 sekúnd- ur voru eftir og minnkaði muninn í 55:53. Þegar 21 sekúnda var eftir gat Birna Valgarðsdóttir jafnað af vítalínunni, en hún hitti úr hvorugu skotinu. Grinda- víkurstúlkur brutu síðan á Hönnu Kjartansdóttur, sem skoraði úr báðum vítaskot- um sinum, og kom KR í 57:53. Á lokasekúndu leiks- ins fékk Kristín Jónsdóttir KR-ingur tvö vítaskot og setti þau bæði niður og tryggði KR sigur, 59:53. Anna Dís Sveinbjörns- dóttir, sem kom frá Svíþjóð í gær eftir þriggja vikna dvöl, lék best Grindavíkur- stúlkna og gerði 15 stig. Penny Pepas, sem lék í stöðu leikstjórnanda, átti einnig ágætan leik og var stiga- hæst með 18 stig. Hanna Kjartansdóttir var best í liði KR-inga. Hún lék í Bandaríkjunum í fyrravet- ur en þar áður með Breiða- bliki. Hún styrkir KR-liðið verulega. Kristín Jónsdóttir hitti vel og Guðbjörg Norð- fjörð var öflug í vörninni. tveimur mínútum síðar. Zola fór síðan út af eftir brottrekstur Frakk- ans og inn á kom knattspyrnustjór- inn Gullit í fyrsta sinn á leiktíð- inni. Hann ætlaði sér að vera kjöl- festa í vöminni, en fékk ekkert við Berger ráðið. Hann bætti öðm marki sínu við á 35. mínútu eftir sendingu frá Stig Inge Bjorneby. Er 12 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik kom þriðja markið eftir að Berger og Fowler sluppu framhjá rangstöðugildru gestanna og Ber- ger átti ekki í vanda með að skora einn gegn markverði. Fjórða mark- ið átti Tékkinn allan heiður að er hann sótti upp vinstri kantinn, sendi hárfínt inn á miðjan vítateig Chelsea þar sem Fowler þurfti lítið að hafa fyrir því að skora af stuttu færi. Átta mínútum fyrir leikslok klór- aði Gustavo Poyet í bakkann er hann skoraði úr vítaspyrnu fyrir gestina eftir að Jason McAteer hafði hindrað Tor Andre Flo. „Þetta var það sem við þurftum," sagði Roy Evans knattspyrnustjóri. „Leikur okkar var góður og sigurinn mikilvægur.“ Hann bar ennfremur mikið lof á frammistöðu Bergers, sem ekki hefur haft fast sæti í lið- inu frá því hann gekk til liðs við Evans og félaga fyrir rúmu ári. Þrumuskot Warrens Barton und- ir lok leiks Newcastle og Tottenham á St. James’ færði heimamönnum mikilvægan 1:0 sigur. Þeir voru mun betri allan tímann en gekk illa að skora og leit út fyrir að niður- staðan yrði markalaust jafntefli. Newcastle hefur aðeins leikið sjö leiki og unnið fimm þeirra, hefur 15 stig og er í hópi efstu liða. Leicester tapaði fyrsta leik sínum í úrvalsdeildinni á heimavelli þegar Derby kom í heimsókn í gærkvöldi og vann 2:1. ítalski miðherjinn Francesco Baiano skoraði um miðj- an fyrri hálfleik eftir aukaspyrnu frá Paulo Wanchope og bætti öðru marki við á 62. mínútu þegar Kas- ey Keller, markvörður Leicester, náði ekki að halda boltanum. Varn- armaðurinn Matt Elliott skoraði fyrir heimamenn fimm mínútum síðar. ■ Úrslit / B10 ■ Staðan / B10 Arnar og samherjar í 3. sæti ARNAR Grétarsson og sam- herjar í AEK eru taplausir í þriðja sæti grísku deildarinn- ar með 13 stig eftir fímm umferðir en Ionikos og Pan- athinaikos eru með 15 stig. í gærkvöldi sótti AEK Ir- aklis Salonika heim og vann 4:1 en þetta var fyrsta tap heimamanna á tímabilinu. Staðan var 3:0 í hálfleik en Kostis gerði tvö mörk og Nik- olaidhs og Savevski sitt mark- ið hvor. Reuter TÉKKINN Patrlk Berger fagnaði þremur mörkum er Llverpool skelltl Chelsea é Anfield Road, 4:2. Guðni Bergsson, fyrirliði ís- lenska landsliðsins í knátt- spymu, sagði við Morgunblaðið í gær að hann hefði ekki verið vál- inn í landsliðshópinn sem mætir Lichtenstein í undankeppni HM á Laugardalsvelli á laugardag, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Guðjón Þórðarson landsliðs- þjálfari tilkynnir landsliðshópinn í dag. Hann sagði ekki tímabært að ræða valið fyrr en eftir að það yrði tilkynnt, en gera má ráð fyrir nokkrum breytingum á liðinu. Arn- ór Guðjohnsen mun leika kveðju- leik sinn fyrir ísland og verður fyrirliði liðsins. Sem kunnugt er gaf Guðni ekki kost á sér í síðasta landsleik, á móti Rúmenum í Búkarest 10. septeber, vegna þess að hann var óánægður með ferðatilhögun liðs- ins frá Rúmeníu. Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari sagði við Morgun- blaðið fyrir leikinn í Rúmeníu að Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson GUÐNI Bergsson. ákvörðun fyrirliðans, að gefa ekki kost á sér, væri ekki gott fordæmi leiðtoga liðsins. fotfm FOLX ■ GUÐNI Bergsson lék allan leikinn með Bolton sem tapaði 1:0 fyrir Aston Villa á heimavelli. ■ ARNAR Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður í sama leik á 79. mínútu fyrir John McGinlay en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn. ■ ÞORVALDUR Örlygsson fékk gult spjald á 28. mínútu leiks Old- ham og Fulham á heimavelli þess síðarnefnda en lék allan leikinn. Fulham undir stjóm Kevins Keeg- ans sigraði 3:1. ■ ROBERT Lee hefur verið sett- ur út úr landsliðshópi Englands fyrir leikinn gegn Italíu vegna meiðsla sem hann hlaut í Evrópu- leik með Newcastle við Dynamo Liev í síðustu viku. ■ TVEIMUR leikmönnum lenti saman á síðustu mínútu leiks Bolt- on og Aston Villa og voru báðir reknir út af. Þetta var heimamaður- inn Andy Todd og Stan Colly- more frá gestunum. ■ STEVE Ogrizovic markvörður Coventry setti félagsmet er hann lék sinn 488. leik fyrir félagið er það gerði markalaust jafntefli við Leeds á heimavelli. ■ JOHN Scale leikmaður Totten- ham meiddist í upphitun fyrir leik- inn gegn Newcastle, en hann átti að vera í byijunarliðinu. í stað hans kom Gary Mabbutt. ■ ÓLAFUR Gottskálksson markvörður Hibernian verður ekki sakaður um 4:3 tap félagsins á heimavelli gegn Rangers á laugar- daginn. Paul Gascoigne skoraði annað mark Rangers beint úr auk- spyrnu sem var algjörlega óveij- andi og Jorg Albertz jafnaði met- in með einu allra glæsilegasta marki sem sést hefur á Easter Road. Það kom á 52. mínútu, var þrumuskot af 25 m færi upp í sam- skeyti marksins vinstra megin. Var markið valið það fallegasta sem gert var í skosku deildinni um helg- ina í skoskum blöðum. ■ MARCO Negri skoraði hin tvö mörk Rangers, annað úr víti, sem Ólafur var nærri því búinn að veija. ■ BENITO Carbone og landi hans Paolo Di Canio gerðu þijú mörk fyrir Sheffield Wednesday í 3:1 sigri á Everton og tryggðu áframhaldandi veru knattspyrnu- stjóra félagsins, Davids Pleats, um einhvern tíma. ■ CHRIS Sutton heidur áfram að beija á dyr enska landsliðsins og um helgina gerði hann sigur- mark Blackburn á móti Wimble- don. „Hann hefur gullið yfír- bragð,“ sagði Joe Kinnear knatt- spymustjóri Wimbledon að leiks- lokum. ■ NICK Barmby gæti verið á förum frá Everton aðeins 12 mánuðum eftir að hann kom til liðs við félagið cg var dýrasti leikmaður sem Everton hefur. keypt. Derby hefur boðið 4,5 millj. punda í pilt- inn og standa samningaviðræður á milli félaganna þessa dagana. ■ FABRIZIO Ravanelli tókst ekki að leika sinn fyrsta leik með Mar- seille um helgina vegna veikinda. ■ EMERSON Brasilíumaðurinn sem var hið mesta vandræðabarn í herbúðum Middlesbrough í fyrra og vildi fara burtu hefur hafnað tveimur tilboðum um að fara frá félaginu nú á haustmánuðum. ■ ATTILIO Lombardo leikmað- ur Crystal Palace hefur verið val- inn í landsliðshóp ítala sem mætir Englendingum á Ólympíuleik- vanginum í Róm um næstu helgi. ■ JULIAN Dicks fyrirliði West Ham leikur ekki með félaginu á þessari leiktíð eftir að ljóst varð að hann verður að fara í aðra að- gerð vegna meiðsla á hné sem hafa haldið honum frá knattspyrnuiðkun síðan í mars sl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.