Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 9
Morgunblaðið/Kristinn DANA Dingle hjá Keflvík, sem hér reynlr skot að körfu ÍR á sunnudaginn, hafði betur en ÍR-ingurinn Lawrence Culver og unnu Kelfvíkingar með góðum endaspretti. Wilson með 54 stig Torii Jóhannsson skrífar Isfirðingar tóku á móti Grindvík- ingum í sínum fyrsta heimaleik í vetur og það er skemmst frá því að segja að heima- menn réðu ekkert við Daryl Wilson hjá gestunum sem gerði 56 stig í 102:87 sigri Grindvíkinga. Eins og alltaf spiluðu áhorfendur á ísafirði mikið hlutverk og mættu til leiks undir merkjum nýstofnaðs stuðningsmannafélags sem ber það skemmtilega nafn „lsfólkið“. Leik- urinn hófst með miklum látum, leik- menn gáfu ekkert eftir og það voru Grindvíkingarnir sem áttu frum- kvæðið í leiknum með Daryl Wilson í fararbroddi. Hann var allt í öllu hjá Grindvíkingum og það var sama hvað ísfirðingarnir reyndu að stoppa hann, það gekk allt upp hjá þessum snjalla leikmanni. Um miðjan fyrri hálfleik voru Grindvíkingar komnir með 12 stiga forskot, og allt stefndi í stórsigur en þá var eins og þeir héldu að þetta væri unnið. ísfírðingarnir not- uðu tækifærið og náðu að jafna 52:52 undir dyggri stjóm Davids Bavis, sem var bestur ísfirðinga í þessum leik ásamt nokkuð yfírveg- uðum leikstjórnanda Marco Sala. Þá leist gestunum ekkert á blikuna, sögðu hingað og ekki lengra og höfu 58:53 yfir í leikhléi. ísfírðingar mættu ískaldir í síð- ari hálfleikinn og það nýttu Grind- víkingarnir sér, náðu öruggri for- ystu og varð hún mest 20 stig. Heimamenn volgnuðu aðeins undir lokin og náðu að klóra í bakkann, en sigur gestanna var aldrei hættu. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 B 9 KÖRFUKNATTLEIKUR KR fagnadi sigri í Ljónagryfjunni í Njarðvík VESTURBÆJARLIÐIÐ KR gerði sér lítið fyrir og sigraði Njarðvík- inga í Ljónagryfjunni i Njarðvík á sunnudagskvöldið og urðu það óvæntustu úrslit umferðarinnar í Ijósi sigurs Njarðvíkinga gegn meisturum Keflvíkinga í Keflavík á fimmtudaginn. Úrslitin réðust þó ekki fyrr en á síðustu mínútunum eftir mikla bar- áttu þar sem bæði liðin áttu möguleika á sigri. Að þessu sinni voru það KR-ingar sem fögnuðu sigri þegar síðasta skot heima- manna geigaði. Lokatölur urðu 74:73 eftir að staðan í hálfeik hafði verið 37:34 fyrir Njarðvík. Leikurinn var ekki sérlega vel leikinn né skemmtilegur framan af. Njarðvíkingar náðu fíjótlega undirtök- Björn unum og virtust Blöndal eiga sigurinn vísan. skrífar En í síðari hálfleik misstu þeir taktinn í leik sínum og KR-ingar voru fljót- ir að nýta sér það og komust yfír. Þessi umskipti virtust koma illa við Njrðvíkinga en gestirnir efld- ust að sama skapi. Ekki bætti það stöðu heimamanna að allir þeirra bestu leikmenn voru í miklum villuvandræðum þar sem 4 voru með 4 villur. Þeim tókst þó með góðri baráttu að komast inn í leik- inn aftur og á lokasekúndunum áttu þeir meira að segja möguleika á sigri. En síðasta tilraun þeirra misfórst og KR-ingar fögnuðu innilega sigri. „Þetta var slakur leikur hjá okkur, um það er varla hægt að ÞRÁTT fyrir góða tilburði ÍR- inga og 109 stig dugði það ekki tii þegar Keflvíkingar sóttu þá heim í Seljaskóla á sunnu- daginn, því á góðum enda- spretti náðu gestirnir 118 stig- um. „Þetta var dapurt hjá okk- ur, við lékum engan varnarleik í fyrri hálfleik og einbeitinguna vantaði," sagði Birgir Örn Birg- isson, sem átti mjög góðan leik fyrir Keflavík. „Við eigum eftir að stilla saman strengi okkar þvívið höfum misst marga leik- menn en erum samt með gott lið.“ Keflvíkingar byijuðu betur en þegar hittni þeirra brást um tíma nýttu heimamenn sér það til að halda í við gesti Stefán sína- Eftir hlé hrökk Stefánsson Dana Dingle, nýi skrífar útlendingurinn hjá Keflavík, í gang með 18 af fyrstu 23 stigunum. En það eitt og sér dugði ekki því ÍR- ingar, sem voru að missa af lest- inni, tóku sig á í vörninni og þegar Atli Sigurþórsson gerði tvær þriggja stiga körfur og Eiríkur Ónundarson eina, tóku áhorfendur einnig við sér á áhorfendapöllun- um. Keflvíkingar reyndu að brjóta segja meira. Mér fannst um tíma að þetta yrði okkar sigur, en síð- an hreinlega töpuðum við áttum og náðum ekki upp fyrri leik,“ sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari KR. „Það hlaut að koma að því að við næðum að sýna okkar rétta andlit. Við höfum verið að leika undir getu að undanförnu og því var kominn tími til að þar yrði breyting á. Njarðvíkingar eru allt- af erfiðir heim að sækja og hér lenda öll lið í vandræðum. Skyttur okkar hittu vel í síðari hálfleik auk þess sem liðið náði vel saman - það réð úrslitum að þessu sinni,“ sagði Hrannar Hólm, þjálf- ari KR. Teitur Örlygsson og Dalon Byn- um voru bestu menn hjá Njarðvík ásamt þeim Friðriki Ragnarssyni og Páli Kristinssyni. Bestu menn KR voru Kevin Tuckson, Marel Guðlaugsson, Hermann Hauksson og Nökkvi Már Jónsson. baráttu þeirra á bak aftur með pressuvörn en ÍR-ingar söxuðu á forskotið, sem var fjögur stig þeg- ar þtjár mínútur voru til leiksloka. ÍR gat minnkað muninn en mis- tókst og Keflvíkingar, með mikla reynslu, héldu haus og með níu síðustu stigunum frá Dingle var björninn unninn. „Vörn okkar var slök en þetta var dæmigerður leikur með mikið af skotum, sem þeir skoruðu úr betur en við,“ sagði Antonio Vallejo þjálfari ÍR eftir leikinn. „Annars er ég ánægður með mína menn, sóknarleikurinn var góður en það þarf að vinna betur með vörnina. En þetta verður í lagi.“ ÍR-ingar sýndu góða kafla en þess á milli komu daprir. Lawr- ence Culver fór oft mikinn, Eirík- ur Önundarson var góður og Daði Sigurþórsson, Márus Arnarson og Atli Sigurþórsson áttu fína spretti. Keflvíkingum gekk illa að hrista IR-inga af sér og lengi vel virtust leikmenn áhugalitlir en tóku sig á þegar til þurfti. Dingle gerði oft góða hluti, Birgir Órn var mjög sterkur í vörninni og Kristján Guðlaugsson, Guðjón Skúlason og Halldór Karlsson voru ágætir. Reynt á reglugerðir ENN er með öllu óljóst hvort Grikkinn Konstantín Tzartsaris leiki með Grind- víkingum í vetur. KKI fékk í gær skeyti frá Verias, félaginu sem hann lék með í Grikklandi, þarsern það fer framá að KKI sendi hann til sín heima þar sem hann sé „neyddur“ tU að leika með Grindvíkingum. UMFG óskaði eftir leik- heimild til KKÍ en sam- bandið segist ekki geta það nema fá leyfi frá FIBA. FIBA segist ekki geta það þar sem reglugerð hjá þeim segi að Ieikmaður verði að vera 19 ára til að skipta um félag milli landa, nema félögin komist að samkomulagi, og Verias vill fá hátt i fimm miHjónir fyrir drenginn. Grindavík- ingar hafa kært ákvörðun KKÍ til dómstóls samband- ins og vísa til Bosnam- málsins máli sínu til stuðn- ings. ÍÞRÚm FOLK ■ GUÐMUNDUR Bragason og félagar hjá BCJ Hamburg í þýsku 1. deildinni léku tvo leiki um helg- ina. Á föstudaginn unnu þeir lið Bochum 97:79 og var Guðmundur stigahæstur með 28 stig auk þess sem hann tók um tíu fráköst. ■ SALZKOTTEN var heimsótt á sunnudaginn og enn vannst sigur, nú með tuttugu stigum. Guðmund- ur lék vel og gerði 18 stig. BCJ Hamburg er nú eitt í efsta sæti deildarinnar. ■ HERBERT Arnarson og félag- ar hans hjá belgíska félaginu Ant- werpen töpuðu öðrum leik sínum í röð um helgina er þeir heimsóttu Brilcenter og töpuðu með tveimur stigum. Herbert lék í 25 mínútur, gerði fimm stig í fjórum skotum og tók 6 fráköst. ■ BK ODENSE, lið Vals Ingi- mundarsonar í dönsku úrvalsdeild- inni, heldur áfram sigurgöngu sinni, lagði Værlose á laugardaginn 80:77 á útivelli. Kristinn Friðriks- son gerði 21 stig, Valur var með 18, Henning Henningsson tvö og Pétur V. Sigurðsson komst ekki á blað, en bæði hann og Henning léku vel í vörninni að sögn Vals. ■ VALUR fer með lið sitt til Kaupmannahafnar á morgun og mætir Skovbakken sem eru núver- andi meistarar og bjóst Valur við erfiðum leik. ■ ÞAÐ gengur illa hjá Jónatan Bow og félögum hans í þýska liðinu Bayreuth. Um helgina tapaði liðið enn einum leiknum, nú fyrir Bonn 79:84 á heimavelli. Jafnt var eftir 40 mínútna leik og því var fram- lengt og þar höfðu gestirnir betur. Keflavík vann á enda- sprettinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.