Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Duranona með sín fyrstu mörk BAYER Dormagen, félagið sem Róbert Sighvatsson leik- ur með í þýska handknatt- leiknum vann sinn fyrsta leik um helgina þegar það lagði Julian Duranona og sam- verkamenn í Eisenach 23:22 á heimavelli. íslendingarnir í liðunum, Róbert og Duran- ona, skoruðu 2 mörk hvor. Eru þetta fyrstu mörkin sem Duranona skorar fyrir félag sitt í deildarkeppninni. Stað- an var jöfn í hálfleik 11:11. Hamein, liðið sem Alfreð Gíslason þjálfar, tapaði öðr- um leik sínum í röð þegar það tók á móti Wallau Massenheim, lokatölur 29:27 eftir að gestirnir höfðu verið þremur mörkum yfir í hálf- leik 12:9. Önnur lið sem ís- lenskir leikmenn leika með í Þýskalandi léku ekki um helgina. Sigur Dormagen á Eis- enach er fyrsti sigur liðsins á leiktíðinni og með honum lyfti liðið sér upp úr botnsæt- inu. Þar dvelur hins vegar Einsenach eftir að hafa tapað tveimur fyrstu viðureignum sínum. Hameln hefur unnið einn leik af fyrstu þremur líkt og Dormagen. ■ Úrslit B/10 ÍÞriMR FOLK ■ SIGURÐUR Sveinsson horna- maðurinn knái í Aftureldingu meiddist í hné snemma leiks gegn Stockerau og lék ekki meira með. Óttast er að liðþófi sé rifinn, í versta falli að krossbönd séu slitin. Sigurður hefur verið meiddur í mjöðm í haust og var að ná sér á strik af þeim meiðsium þegar þetta gerðist. ■ GUNNAR Andrésson var með félögum sínum í leik í fyrsta sinn á leiktíðinni eftir að hafa meiðst í nára í æfingaferð í Þýskalandi í sumar. Gunnar lék aðeins í vörn- inni og var fastur fyrir. Var hann í tvígang rekinn út af í kælingu. „Það er allt að koma hjá mér, ég var reyndar inni á í fimm mínút- ur, en rekinn út af í fjórar mínút- ur,“ sagði Gunnar með bros á vör í leikslok. ■ AFTURELDING hefur ekki tapað leik í Evrópukeppninni á heimavelli í Mosfellsbæ, en leikur sl. laugardag var fjórði heimaleikur liðsins. Síðast þegar Mosfellingar voru í Evrópukeppninni lögðu þeir félög frá Póllandi og Makedóníu auk hins sterka liðs Drammen frá Noregi sem þó sló Aftureldingu úr keppni með stórsigri á ytra. ■ STOCKERAU var með 55% sóknarnýtingu í leiknum, 60% í fyrri hálfleik og 50 í þeim síðari. ■ LEIKMENN iiðsins eru í efsta sæti austurrísku deildarinnar með 8 stig úr 4 leikjum. ■ ALDA Jóhannsdóttir mark- vörður FH varð að gera sér að góðu að fylgjast með liði sínu af varamannabekknum. Hún var er- lendis í fyrsta leik FH en slasaðist síðan og verður ekki meira með fyrir jól. ______________HAIMDKÍMATTLEIKUR________________________________ Afturelding hefur sjö marka forskot að loknum fyrri leiknum við UHG Stockerau Frábær sóknar- nýting að Varmá Morgunblaðið/Golli Fékk „skotleyfi" EIIMAR Gunnar SigurAsson fékk „skotleyfi" gegn Stockerau og nýttl það svo sannarlega, gerftl 11 mörk og átti fjölmargar línusendingar. Var engin furöa þó hann væri þreyttur að leikslokum. LEIKMENN Aftureldingar náðu því út úr fyrri viðureign- inni við austurríska liðið Stockerau sem þeir stefndu að. Ætlunin var að vinna með a.m.k. sex marka mun og það tókst og gott betur, lokatölur 35:28. Lykillinn að sigri Mos- fellinga var einstök sóknarnýt- ing þeirra í síðari hálfleik er þeir skoruðu 21 mark úr 25 upphlaupum, sem er 84% sóknarnýting - hreint ótrúlegt. Framan af leik gekk Mosfell- ingum ekki eins vel og í hálf- leik voru þeir einu marki und- ir, 15:14. Ekki blés byrlega fyrir heima- mönnum á upphafsmínútum leiksins þar sem gestirnir skoruðu þtjú fyrstu mörkin ! og færðu sér þar Benediktsson með 5 ^ sérlega skrifar óvandaðan sóknar- leik Aftureldingar. En Mosfellingum tókst að laga sóknar- og varnarleikinn og svara að bragði með sjö mörkum í röð án þess að leikmenn Stockerau fengju klórað í bakkann. Margt benti til þess að Austurríkismenn- irnir yrðu Aftureldingu auðveld bráð en svo varð ekki. Þeim tókst með skipulögðum hætti að komast inn í ieikinn á ný og veita verðuga mótspymu. Varnarleikur beggja liða var til- viljunarkenndur í fyrri hálfleik og ekki varð hann betri í þeim síðari, einkum hjá gestunum, eins og tölur um sóknarnýtingu Aftureldingar gefa til kynna. Aftureldingu tókst að ná forsytu snemma í síðari hálf- leik og var að jafnaði 2 til 3 mörk- um yfir, en gekk illa að hrista leik- menn Stockerau af sér. Er 10 mín- útur voru eftir var staðan 29:25 Aftureldingu í vii. Þá urðu vatna- skil og UMFA tókst að lagfæra vörnina lítillega og Sebastían Alex- andersson kom í markið og varði vel. Sóknarleikurinn var áfram jafn blómlegur og áður. Leikmenn Stokcerau gáfu loks eftir og að leikslokum skildu sjö mörk. Sem fyrr segir var það árangurs- ríkur sóknarleikur sem öðru fremur fleytti Aftureldingu langt. Sóknar- nýtingin var 54 af hundraði í fyrri hálfleik og á fyrsta stundarfjórð- ungi þess síðari nýttu leikmenn Aftureldingar 14 af 15 upphlaupum sínum. Alls var sóknarnýtingin 84% í hálfleiknum og 69% heildina. Lið sem fá slík tækifæri hjá andstæð- ingum sínum geta sennilega ekki annað en unnið. Varnarleikur heimamanna var hins vegar ekki til að hrópa húrra fyrir í heildina þó svo að einstaka þokkalegir kafl- ar kæmu. Miðað við það var mark- varslan góð, alls 17 skot. Einar Gunnar Sigurðsson og þjálfarinn Skúli Gunnsteinsson fóru á kostum. Einar fékk að skjóta þegar honum sýndist án þess að varnarmennirnir reyndu að veijast svo nokkru næmi. Þá átti hann einnig ófáar línusendingar á Skúla sem gáfu mörk. Skúli nýtti vel sín færi, hvatti lærisveina sína óspart áfram og fór fyrir þeim í einu og öllu. Þá var Þorkell Guðbrandsson einnig fastur fyrir í vörninni og gerði vel í sókninni. Aðrir leikmenn Aftureldingar eiga að geta gert betur að markvörðunum undan- skildum, en ekki er hægt að ætlast til þess að þeir veiji miklu betur þegar varnarmennirnir ná ekki bet- ur saman en raun varð á. Páll Þó- rólfsson skoraði reyndar átta mörk, en fór einnig illa að ráði sínu í upplögðum færum. Lið Stockerau er greinilega vel þjálfað og skipulagt en leggur ekki mikla áherslu á varnarleik. Lykilmenn liðsins eru hávaxnir og óragir við að skjóta. Hornamenn- irnir eru snöggir og fara vel með færi sín auk þess sem þeir hreyfa sig mikið boltalausir, þegar tæki- færi gefst svo sem gegn framliggj- andi vörn. Landsliðsmarkvörður- inn Robert Paulensteiner náði sér hins vegar ekki á strik. Leikmenn leika hratt og reyndu óspart að nýta sér nýjar reglur um hvenær má hefja leik eftir mark en náðu ekki að færa sér það í nyt svo nokkru næmi þar sem Afturelding hafði vara á sér. Það er því ljóst að þrátt fyrir vænlega stöðu þá verða leikmenn Aftureldingar að fara af mikilli alvöru í síðari leik- inn ytra nk. laugardag ætli þeir sér að fara áfram í næstu umferð. Þeir verða að halda hraðanum niðri og hafa í huga að Stockerau skor- aði 28 mörk að þessu sinni sem gæti eftir allt reynst þungt á met- um komi til að liðin verði jöfn að markatölu. Æ Ottast dómarana ytra „Ég met stöðuna svo að við eig- um helmingsmöguleika,“ sagði Skúli Gunnsteinsson, þjálfarí Aftureldingar, eftir fyrri leikinn við Stockerau. „Ytra verðum við að leika lengri sóknir og af meiri yfirvegun, bæta varnarleikinn um leið til þess að eiga mögu- leika. Við byijuðum nokkuð vel og vörnin var góð og um leið fylgdi markvarslan með. Það var ætlun okkar að leika ákveðna vörn og vera framarlega til þess að eiga þess kost að ná hraðaupphlaup- um og það tókst.“ Skúli sagði ennfremur bera ákveðinn kvíðboga fyrir síðari leiknum þar eð ljóst væri að dóm- arar þess leiks yrðu frá Slóvakíu og því miður væri möguleiki á að þeir drægju taum heima- manna. „Dómarnir í þessum leik dæmdu vel og voru sanr.gjarnir á báða bóga, en parið sem dæm- ir úti gæti orðið okkur óhagstæð- ara þótt ekkert sé hægt að full- yrða um það, þá er það mín til- finning að það gæti orðið.“ Hann sagði ennfremur að markmiðið hefði náðst og því væri hann feginn. Öðru fremur hefði það verið að þakka góðum leik í síðari hálfleik þar sem loks hefði tekist að ná frumkvæði á ný eftir að hafa misst það að loknum góðum upphafskafla. „Ég er sáttur við sjö marka sig- ur, en síðari leikurinn verður erf- iður og það er langt því frá að eitthvað sé gefið.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.