Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Reuter TORSTEN Fink fagnar félaga sfnum Alexandor Zlckler (t.v.) eftir að hann skoraAI þriAja mark Bsejara gegn Bochum. Basler bjarg- aði Bayem MEISTARAR Bayern Mttnchen unnu góðan sigur, 3:2, á Boc- hum um helgina og er því að- eins tveimur stigum á eftir efsta liðinu, Kaiserslautern. Það má segja að Mario Basler hafi bjargað Bayern því hann skoraði tvívegis, fyrst með góðu skoti af 20 metra færi og síðan beint úr aukaspyrnu. Ka- iserslautern vann 1860 Mttnchen 3:1 á föstudaginn og þar gerði Olaf Marschall tvö mörk. „Það var mikilvægt að sigra, sérstaklega eftir að okkur gekk svona vel í Evrópukeppninni,“ sagði Giovanni Trapattoni, þjálfari Bayern, eftir sigurinn, og vitnaði í 3:1 sigur liðsins á Gautaborg á miðvikudaginn. „Við fengum ágætis færi og sluppum raunar stundum fyrir horn, en ég er ánægður með stigin,“ bætti hann við. Dortmund ætlar ekki að ná sér á strik í deildinni. Liðið vann sannfærandi sigur í Evr- ópukeppninni í vikunni og menn voru að vonast eftir að það gæfi leikmönnum tóninn um helgina, en annað kom á daginn. Bielefeld sigraði 3:1 og Dortmund er í 16. sæti. „Við lékum vel í fyrri hálfleik en eftir að Möller var rekinn af velli [á 63. mínútu] hrundi leik- ur okkar á miðjunni," sagði Nevio Scala, þjálfari Dormund. „Við verðum að sætta okkur við þessi úrslit en ég er mjög vonsvikinn með hegðun sumra leikmanna minna,“ bætti hann við án frekari úrskýringa. Inter tap- aði stigi Inter Mílanó tapaði fyrsta stigi sínu í ítölsku deildinni um helg- ina er liðið gerði 1:1 jafntefli við Lazio, og leikmenn Milan þurftu virkilega að hafa fyrir því að fá eitt stig. Það kom ekkert á óvart þegar Tékkinn Pavel Nedved kom gestunum yfir með marki á 35. mínútu, hans fímmta mark á þessu tímabili. Annar mikill markaskorari kom við sögu sex mínútum síðar, en þá jafnaði Ronaldo úr víta- spyrnu. Annars bar helst til tíðinda á Ítalíu að AC Milan vann, lagði Empoli 1:0 með skallamarki vara- mannsins Andreas Anderssons, sem hafði verið inná í fimm mínút- ur. Það er ekki gaman hjá Roberto Baggio þessa dagana. Hann var settur út úr ítalska landsliðshópn- um á laugardaginn og á sunnudag- inn var hann rekinn af velli er Bologna heimsótti Piacenza. Argentínumaðurinn Abel Balbo gerði þrennu fyrir Roma, sem vann Napoli 6:2, og náði þar með að skora 100. mark sitt í ítölsku deild- inni. „Það var ekki nógu gott að fá á sig tvö mörk, en annars er ég fullkomlega ánægður með leik minna manna,“ sagði Zdenek Zem- en, hinn tékkneski þjálfari Roma. Eusebio Di Francesco hélt uppá að hann var valinn í ítalska landsliðið á laugardaginn og skor- aði eitt mark Roma. Argentínski kappinn Gabriel Batistuta skoraði ekki mark um helgina, en hann hafði skorað í öllum umferðunum til þessa. Fior- entina komst yfír gegn meisturum Juventus en þeir Filippo Inzaghi og Alessandro Del Piero náðu að tryggja meisturunum sigur. Þrátt fyrir sigurinn féll Juventus niður um eitt sæti í deildinni, úr því þriðja í fjórða með jafn mörg stig og Roma og Parma sem gerði aðeins markalaust jafntefli við bikarmeist- ara Vicenza. KÖRFUKNATTLEIKUR Sigur hjá Þórsurum Stefán Þór Sæmundsson skrifar Þórsarar sigruðu Valsmenn í spennandi leik á Akureyri, 75:73. Valsmenn gátu jafnað á lokasekúndunni en misnotuðu vítaskot. Þessi sigur gæti orð- ið mikilvægur fyrir Þór. Liðinu er spáð neðsta sæti og Valur lenti einu sæti ofar í spánni. Líklegt má telja að botnbaráttan verði hlutskipti beggja liða. Leikurinn var jafn allan tímann en Þórsarar voru þó alltaf með ei- litla forystu og höfðu yfír, 45:42, í leikhléi. Jo Jo Chambers og Haf- steinn Lúðvíksson léku vel og skor- uðu 35 af þessum 45 stigum. Seinni hálfleikur var á svipuðum nótum og mikil spenna síðustu mínútuna þegar staðan var 71:68. Sigurður Sigurðsson virtist ætla að gull- tryggja sigurinn þegar hann kom Þór í 75:71 en Ólafur Jóhannesson minnkaði muninn í 75:73 og Vals- menn fengu dæmda á sig tækni- villu þegar rúmar 4 sekúndur voru eftir. Sigurður hitti úr hvorugu víta- skotinu. Þórsarar fengu innkast, Hafsteinn hitti ekki úr upplögðu færi og dæmd var villa á Þór á síð- ustu sekúndunni en Guðni Haf- steinsson hitti ekki úr fyrra skotinu og þá voru vonir Vals um framleng- ingu brostnar. Bæði liðin tefla fram mjög ung- um leikmönnum. Bandaríkjamaður- inn hjá Þór, Jo Jo, er snjall leikmað- ur og gerði 36 stig í leiknum en Todd Triplett lék lítið með Val, enda hefur hann verið meiddur. Brynjar Karl Sigurðsson hélt Vals- mönnum á floti og Guðmundur Björnsson var einnig dtjúgur. Heimamenn á hælunum „ÞAÐ er alltaf erfitt að spila í Borgarnesi en sem betur fer áttum við góða byrjun," sagði Einar Einarsson þjálfari Hauka. „Við náðum góðri for- ystu strax f fyrri hálfleik og því var alltaf á brattann að sækja hjá Borgnesingum og erfitt fyrir þá að vinna upp muninn. Borgnesingarnir voru alls ekki að spila vel og miðað við það hefði sigur okkar átt að vera töluvert meiri. En eitt mega þeir Skallagrímsmenn eiga, þeir gefast aldrei upp og það sýndu þeir í þessum leik." Baráttan var í lagi en kappið kannski full mikið á tímabili," Var eins og liðið væri alls ekki til- búið í úrvalsdeildarslaginn að und- anskildum örfáum liðsmönnum. Liðið sýndi svo sitt rétta andlit eftir leikhlé en það var of seint til að hafa við baráttuglöðu liði Hauka. Hjá Haukum átti Bjarni Magnússon mjög góðan fyrri hálf- leik og Sigfús Gizurarson átti stór- leik í þeim seinni. Annars var lið Hauka mjög jafnt og er góð breidd í liðinu sem eflaust á eftir að gera það gott í vetur. ■ ÚrslR / B10 ■ Staðan / BIO Seigla Sauð- krækinga á Akranesi sagði Tómas Holton, þjálfari og ■■■■■■ leikmaður Skalla- Theódór ?ríms- ..Við vorum Þórðarson of ákafír í byijun skrifarfrá og ætluðum okkur Borgamesi um 0f 0g gerðum því mörg mistök. Það er greinilegt að við þurfum að laga ýmislegt hjá okkur en þrátt fyrir allt er ég bjartsýnn á framhaldið.“ Leikurinn var aðeins jafn rétt fyrstu mínútumar en svo náðu Haukar yfírhöndinni. Lið Skalla- gríms var afspymulélegt framan af, ef frá era skildir þeir Bragi Magnússon og Bernard Gemer, sem héldu liðinu á floti fram að leikhléi. Máttu heimamenn þakka fyrir að fá ekki á sig fleiri stig en raun varð á, en 12 stig skildu liðin að í hálfleik, 31:43. Trúlega hefur Tómas Holton lesið vel yfír sínum mönnum í leik- hléi því það var allt annað að sjá til liðsmanna Skallagríms strax frá byijun síðari leikhluta og börðust þeir eins og ljón allt til leiksloka. Sérstaklega ber að geta frammi- stöðu Braga Magnússonar sem átti stórgóðan leik og skoraði alls 33 stig í leiknum. Um miðbik síð- ari hálfleiks náðu heimamenn að minnka muninn niður í 5 stig, 50:55. En lengra komust þeir ekki gegn sterku liði Hauka sem jók forskot sitt aftur í 10 stig og sigr- aði verðskuldað 71:81. Langt er síðan að sést hefur jafn lélegur leikur hjá Skallagrími og þeir sýndu í fyrri hálfleik þessa leiks. Tndastólsmenn höfðu sigur gegn Skagamönnum með góðum endaspretti eftir að þeir síðame'ndu höfðu haft yfírhönd- ina nær allan leik- inn. Sauðkrækingar sýndu mikla seiglu og sigu fram úr í lokin og sigraðu 60:65. Skagamenn komu mun ákveðn- ari til leiks og náðu þrettán stiga forystu, 19:6. En gestimir komust meira inn í leikinn þegar á leið og minnkuðu muninn jafnt og þétt fram að leikhiéi. Fjölmargar feil- sendingar og fádæma klaufaskapur leikmanna beggja liða settu sterkan svip á fyrri hálfleikinn. Síðari hálfleikur var mun betur leikinn. Skagamenn byijuðu betur og fátt virtist ætla að koma í veg fyrir sigur heimamanna þegar þeir höfðu náð tólf stiga forystu, 45:33. En Sauðkrækingar brettu hendur fram úr ermum og jöfnuðu, 45:45, og þegar þijár minútur vora tií leiksloka náðu gestimir fímm stiga forystu, 58:63, sem þeir héldu til leiksloka. Tindastólsmenn sýndu mikinn styrk vinna upp forystu Skaga- manna.Var Torrey Johnson bestur í liði Tindastóls, tók 11 fráköst og gerði 20 stig. Tindastólsmenn byija vel og era enn með fullt hús stiga. Skagamenn geta sjálfum sér um kennt að hafa tapað þessum leik. Þeir virtust missa einbeitinguna þegar gestimir jöfnuðu í lokin. Sig- urður Elvar Þórólfsson var einna bestur hjá Skagamönnum og Dam- on Johnson var dijúgur framan af. Breiddin er hins vegar ekki mikil hjá liðinu og mun það vafalítið há því í hinni hörðu keppni sem fram- undan er í vetur. Pétur Ottesen skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.