Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 B 5
HANDKNATTLEIKUR
Upptökuvél
KA stolið
„MÉR finnst leiðinlegt að
geta ekki afhent Þorbirni
Jenssyni, landsliðsþjálfara,
spólu með leik okkar og
Granitas Kaunas hér í ijóna-
gryfjunni í Kaunas, eins og
ég var búinn að lofa honum,“
sagði Atli Hilmarsson, þjáif-
ari KA. „Upptökuvél okkar
var stolið í Kaupmannahöf n
á leið okkar hingað tO Lithá-
en. Ég mun setjast niður með
Þorbirni og gefa honum nót-
ur um leikinn, sem á að koma
honum að góðu fyrir lands-
ieikinn gegn Litháen sem
verður leikinn hér í Kaunas,“
sagði Atli eftir Evrópuleik
KA og Granitas Kaunas, en
með liðinu leika átta landsl-
iðsmenn Litháen og þjálfari
liðsins er einnig þjálfari
landsliðsins. „Forráðamenn
Granitas lofuðu að útvega
mér myndband, en eftir við-
brögð þeirra eftir leikinn á
ég ekki von á því að þeir
færi mér myndband áður við
höidum heirn," sagði Atli.
Atli Hilmarsson þjálfari KA eftir leikinn í Litháen
„Réðum ekki
við hraðann“
„VIÐ byrjum leikinn heima með fjögur mörk undir. Þaö verður
erfitt að vinna þann mun upp, en allt er hægt ef við fáum góðan
stuðning í KA-heimilinu,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA-liðs-
ins, sem tapaði fyrri leiknum í Evrópukeppni meistaraliða - 27:23
fyrir Granitas Kaunas í Litháen.
Litháamir, sem leika mjög hraðan
handknattleik, vom yfir 13:8 í
leikhléi. „Við skoruðum fyrsta mark-
ið í seinni hálfleik, en fengum síðan
á okkur fjögur mörk í röð, 17:9. Þá
tók ég leikhlé og skipulagði leik
okkur upp á ný. Það var þá ljóst að
við réðum ekki við hraða Litháa,
létum þá espa okkur upp í of hraðan
leik. Við ákváðum að dempa leikinn
niður og smátt og smátt söxuðum
við á forskotið, náðum því í þijú
mörk, en leikmenn Granitas áttu
síðasta orðið hér í Kaunas," sagði
Atli.
Sigtryggur Albertsson átti góðan
leik í marki KA, varði tuttugu skot.
Þá lék Alsírsmaðurinn Karim Yala
vel og skoraði sjö mörk. Halldór
Sigfússon skoraði 6/3 mörk, Björg-
vin Björgvinsson 3, Jóhann G. Jó-
hannsson 2, Sævar Árnason 2,
Heimir Ámason 2 og Þorvaldur
Þorvaldsson eitt.
Atli sagði að það hafi munað um
minna að Leó Om Þorleifsson var
útilokaður frá leiknum á sjöundu
mín. seinni hálfleiks, er hann fékk
sína þriðju brottvísun. „Við höfðum
góðar gætur á vinstrihandarskytt-
unni Robertas Pauzuolis sem er að
gerast leikmaður með ÍBV - hann
skoraði ekki nema tvo mörk, en
aftur á móti var Vaidas Klimciauk-
as, sem var homamaður á HM í
Kumamoto, okkur erfiður - lék sem
útispilari og skoraði þrettán mörk.
Þá varði markvörðurinn Arunas
Vaskevicius mjög vel.
Eins og ég sagði, þá þurfum við
mikinn stuðning áhorfenda í seinni
leiknum, sem verður á Akureyri um
næstu helgi,“ sagði Atli Hilmars-
son, þjálfari KA.
Haukar unnu með herkjum
HAUKASTÚLKUR þurftu að gefa allt sem þær áttu til að leggja
baráttuglaðar stöllur sínar úr FH að velli á Strandgötunni á laug-
ardaginn og það var ekki fyrr en á síðustu sekúndum leiksins
að Haukarnir náðu að síga fram úr og sigra 25:23. Fyrir leikinn
deildu Hafnarfjarðarliðin efstu sætum 1. deildar kvenna en nú
tróna Haukanir einar á toppnum.
Steíán
Stefánsson
skrífar
Barátta FH-stúlkna kom Hauk-
um í opna slg'öldu og gestirnir
náðu strax forystu en um miðjan
fyrri hálfleik tóku
Haukar leikhlé til að
ráða ráðum sínum.
í kjölfarið hófu þær
að herja grimmar á
vöm FH sem skilaði strax þremur
mörkum í röð og forystunni. En
FH-stúlkur lögðu ekki árar í bát,
leyfðu Haukum aldrei að stinga sig
af en þurftu að leggja sig allar fram
til þess. Samt sem áður tókst Hauk-
um að síga fram úr í krafti reynsl-
unnar er leið að lokum og það var
aðeins of mikið fyrir gesti þeirra.
„Við höfðum reynsluna fram yfir
þær og þegar við komumst yfir
undir lokin var eins og þær færu
að gefa eftir,“ sagði Hulda Bjarna-
dóttir, sem gerði 10 mörk fyrir
Hauka. „Við vorum smeykar fyrir
leikinn þar sem FH-liðið er á mik-
illi uppleið. Stemmningin hefur ver-
ið rafmögnuð í Hafnarfirðinum síð-
ustu vikuna og það hefði verið sárt
að sjá á eftir stigum, sérstaklega
til FH.“ Haukastúlkur voru lengi í
gang en héldu sínu striki og biðu
eftir að mótherjar þeirra misstu
móð eða gerðu mistök - aðferð sem
reynslumikil lið geta beitt. Hulda,
Harpa Melsteð, Vigdís Sigurðar-
dóttir markvörður og Auður Her-
mannsdóttir voru allt í öllu.
Efnfilegt FH-llð
FH-stúlkur sýndu og sönnuðu að
það getur ekkert lið bókað sigur
gegn þeim, enda er þetta lið, sem
talið hefur verið ungt og efnilegt
um tíma, búið að sanna sig. „Þetta
var baráttu og góður ieikur en vöm-
in fór að leka hjá okkur eftir hlé.
Við unnum þær í æfingaleikjum í
haust og ætluðum að rúlla yfir þær
aftur en það gekk ekki eftir,“ sagði
Hrafnhildur Skúladóttir eftir leikinn
en hún ásamt Vaivu Drilingaite í
markinu, Guðrúnu Hólmgeirsdótt-
ur, Hildi Erlingsdóttur og Dagnýju
Skúladóttur voru atkvæðamestar.
Leikur Víkinga og Stjömunnar í
Víkinni var í járnum lengi vel en
Garðbæingar þó alltaf skrefi fram-
ar. Það var ekki fýrr en tæpar tíu
mínútur voru til leiksloka að gest-
imir náðu örugglega yfirhöndinni,
ekki síst er Víkingar hófu að gera
mistök og var refsað fyrir með
mörkum úr hraðaupphlaupum.
Sprwkar Valsstúlkur
Valur vann Fram 28:18 eftir að
staðan hafði verið 13:8 í leikhléi.
Miklu munaði fyrir hið unga lið
Fram að Svanhildur Þengilsdóttir
var útilokuð frá leiknum strax á
fimmtu mínútu, en hún gegnir
miklu hlutverki í vöminni auk þess
sem hún er sterk á línunni í sókn-
inni. Vörn Vals var sterk og á bak
við hana var Lubar Larissa sem
varði mjög vel.
Samvinnan
skilaði ÍR-
ingum sigri
Leikmenn ÍR unnu mikinn bar-
áttusigur á Stjömunni í Selja-
skólanum á laugardag. Breiðhylting-
mmm^^^ arn>r höfðu betur,
Edwin 23:18, í leik sem líkt-
Rögnvaldsson js^ e’nna helst odda-
skrífar leik 1 urslitakeppn-
inni - slíkur var sig-
urvilji beggja liða. Samvinnan gerði
gæfumuninn fyrir ÍR, en henni var
ábótavant hjá Stjömumönnum þó
þeir hafi reynt að beijast eins og
kostur var. _
Ragnar Óskarsson, 19 ára leik-
stjómandi ÍR-inga, var Garðbæing-
um óþægur ljár í þúfu eftir að hann
kom inná í síðari hálfleik. Gerði hann
fimm af síðustu sjö mörkum Breið-
hyltinga, en hann skoraði tvívegis
úr vítaköstum í fyrri hálfleik.
Heimamenn beittu framliggjandi
vöm allt frá fyrstu mínútu, en Stjam-
an studdist við flata, 6-0 vöm. Höfðu
gestimir úr Garðabæ frumkvæðið í
fyrri hálfleik, en ÍR-ingar jöfnuðu
og komust yfir skömmu fyrir hlé.
Staðan var þó jöfn, 9:9, er leikmenn
gengu til búningsherbergja.
Mark Guðmundar varð hugsan-
lega vendipunktur leiknum, því eftir
það náðu Stjömumenn aldrei að end-
urheimta forskotið. Heimamenn
höfðu Iengst af eins til tveggja marka
forystu í síðari hálfleik, þar til Ragn-
ar tók af skarið og jók forystuna enn
frekar. Jóhann Ásgeirsson greiddi
Stjömumönnum síðan rothöggið er
hann gerði 22. mark ÍR og tryggði
liðinu fjögurra marka forskot þegar
tæpar þijár mínútur lifðu leiks.
„Bæði lið voru með tvö stig fyrir
leikinn og því var sigurinn þeim lífs-
nauðsynlegur. Við ætluðum okkur
að beijast og gáfum ekkert eftir.
Liðið vann þennan sigur í samein-
ingu,“ sagði Matthías Matthíasson,
leikmaður og þjálfari ÍR.
„Við höfðum gaman af þessu,
studdum hver annan, börðumst í
vöminni og markvarslan var góð.
Við eigum samt mikið inni - erum
með ungt, vaxandi lið og eigum eft-
ir að bæta okkur enn frekar. Þótt
við höfum leikið ágætlega í þessum
leik, getum við orðið betri,“ sagði
Matthías.
Ragnar Óskarsson var fremstur
meðal jafningja í liði ÍR. Markverð-
irnir stóðu sig einnig mjög vel á bak
við þétta vöm, Hrafn Margeirsson í
fyrri hálfleik og Hallgrímur Jónasson
í þeim síðari. Unga skyttan, Ingi-
mundur Ingimundarson, var ógn-
andi, þótt honum hafí aðeins tekist
að gera eitt mark.
Stjörnumenn misstu tökin alger-
lega eftir leikhlé, en þá bar leikur
þeirra mjög svo keim af einstaklings-
framtaki Valdimars Grímssonar
þjálfara, sem kom inná í síðari hálf-
leik. Þeir leikmenn Stjömunnar, sem
léku ágætlega í í fyrri hálfleik, nutu
sín ekki í þeim síðari, t.d. leikstjóm-
andinn Amar Pétursson. Markvörð-
urinn Ingvar Ragnarsson var besti
maður liðsins.
Guðmundur kom
ÍR á bragðið
GUÐMUNDUR Þórðarson, ald-
ursforseti og fyrirliði ÍR, kom
félögum sínum á bragðið I leik
gegn Stjörnunni á laugardag.
Stjarnau hafði forystu lengst
af f fyrri hálfleik, en Guðmund-
ur, sem verður fertugur í febr-
úar, kom liði sínu yfír, 9:8,
skömmu fyrir leikhlé og eftír
það tókst Stjörnumönnum aldr-
ei að endurheimta forskotið.
Gerði hann markið af llnu eftir
skyndisókn við mikinn fögnuð
leikmanna ÍR og áhangenda.
Þetta var fyrsta mark Guð-
mundar á yfirstandandi tíma-
bili, en hann gerði tvö f fyrra.
Neyðarástand í
Seljaskóla
KLUKKAN í iþróttahúsi Selja-
skóla var biluð á laugardag og
því var ekki hægt að birta leik-
tímann og stöðuna í leiknum
fyrir leikmenn og áhorfendur.
Varð sökum þess oft mikill
handagangur f öskjunni við rit-
araborðið, bæði vildu þjálfarar,
Iiðsstjórar og leikmenn fá að
vita hversu mikið var eftir og
eins hver staðan var. Var því
tekið til bragðs seint f fyrri
hálfleik að sýna stöðuna með
flettispjöldum á ritaraborðinu,
en mikil óvissa rfkti jafnan um
leiktfmann.
PÁLL Þórólfsson hólt varnarmönnum Stockerau vel vlö efnlö og hér er hann að fara framhjá
elnum þelrra í sfAari hálflelk og gera eltt 8 marka slnna.