Morgunblaðið - 07.10.1997, Blaðsíða 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 B 7
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Endurtekið
efni
AÐEINS einu sinni áður hafa
úrslit fengist í vítaspyrnu-
keppni. Það var 1990 þegar
Valur vann KR 5:4. Þá byrj-
uðu KR-ingar að skora í víta-
spyrnukeppni, síðan vörðu
markverðir liðanna hvor sína
vítaspyrnuna, 4:4. í bráða-
bana varði Bjarni Sigurðs-
son, markvðrður Vals, fyrstu
spyrnu KR og Sigurjón
Kristjánsson tryggði Vals-
mönnum sigur, 5:4.
Bjarki fyrstur
til að verja
vítaspyrnu
BJARKI Guðmundsson,
markvörður Keflavíkurliðs-
ins, varð fyrstur til að verja
vítaspymu í bikarúrslitaleik,
er hann varði vítaspyrnu
Hlyns Stefánssonar. Bjarki
varði síðan tvær vítaspyrnur
í vítaspyrnukeppninni og lék
eftir afrek frænda sína,
Bjama Sigurðssonar, sem
varði tvær vítaspymur 1990
fyrir Val í vitaspymukeppni
gegn KR. Bjarki er systur-
sonur Bjaraa. Þriðji mark-
vörðurinn sem varði víta-
spymu I bikarúrslitaleik er
þriðji Keflvikingurinn —
Ólafur Gottskálksson. Hann
stóð í marki KR 1990 og
varði í vítaspymukeppni
gegn Val.
Tvær víta-
spyrnur
MARKVERÐIR Keflvíkinga
hafa varið tvær vítaspyrnur
í bikarkeppninni í ár. Olafur
Gottskálksson varði víta-
spyrnu þegar Keflavík vann
Fram í 16-liða úrslitum 1:0
og á sunnudaginn varði
Bjarki Guðmundsson. Kefl-
víkingar hafa leikið sex bi-
karleiki í ár og hafa fimm
þeirra lent í framlengingu,
tveir bikarúrslitaleikir, leik-
ur gegn ÍR í 32-liða úrslitum,
leikur gegn Val í 8-liða úr-
slitum og leikur gegn Leiftri
í undanúrslitum.
Markið góða
Morgunblaðið/Golli
JÓHANN B. Guðmundsson skorar hér hið glæsilega mark sitt, sem átti með réttu að tryggja
Keflvíkingum bikarinn. Hann stekkur hátt upp fyrir Zoran Miljkovic og hamrar knöttinn
framhjá Gunnari Sigurðssyni, markverði, sem átti ekki möguleika á að verja. Hjálti Jóhann-
esson fylgist með. Markið var dæmt af.
Hlynur Stefánsson:
„Var ekki
brot“
Hlynur Stefánsson, fyrirliði Eyja-
manna, var rekinn af leikvelli
á 79. mínútu leiksins. „Fyrir það
fyrsta þá var þetta ekki brot og al-
veg hlægilegt að þurfa að fara af
velli fyrir slíkt. Því-miður flautaði
Sæmundur [Víglundsson] og fyrst
hann gerði það var fátt annað fyrir
hann að gera en reka mig útaf.
Strákurinn sem lét sig detta kom til
mín og baðst afsökunar á þessu og
það segir best til um sakleysi mitt.
Ég talaði líka við Ara [Þórðarson
aðstoðardómara] og hann segir að
þetta hafi ekki verið neitt brot. Það
hefði ef til vill verið eðlilegast fyrir
Sæmund að ráðfæra sig við línuvörð-
inn áður en hann tók þessa stóru
ákvörðun, að reka mig útaf,“ sagði
Hlynur um það þegar honum var
vikið af velli.
„Ég hefði að sjálfsögðu viljað
sigra í dag. Ég tel það alveg ljóst
að við séum sterkari en Keflvíking-
ar. Við höfum reyndar oftast leikið
betur en í dag og ef til vill sat ein-
hver þreyta í okkur eftir leikinn í
Stuttgart, en ég er ekki sammála
því að við höfum verið orðnir saddir
því fæstir í liðinu hafa unnið bikar.
Það væri léleg afsökun að segja að
við værum saddir eftir árangurinn í
surnar."
Hvað með vítaspyrnuna íleiknum,
það var eins og Tryggvi Guðmunds-
son ætlaði að taka spyrnuna en svo
komstu þú hlaupandi frá miðju og
tókst hana. Hvers vegna?
„Tryggvi er auðvitað vítaskytta
liðsins, en hann treysti sér ekki til
að taka spyrnuna. Ég var að ræða
við Keflvíking úti á miðju þegar
kallað er í mig; ég var því ef til vill
ekki alveg að hugsa um vítaspyrnu,
en einhver varð að taka spyrnuna.
Hún var kannski ekki alveg nógu
góð, en Bjarki [Guðmundsson] er
stór og stæðilegur strákur sem nær
að verja langt út við stöng. Hann
valdi rétt horn, bæði í vítinu í leikn-
um og einnig tvívegis í vítaspymu-
keppninni," sagði Hlynur.
Hvað er næst á dagskrá hjá ykk-
ur?
„Nú förum við bara með Herjólfi
til Eyja og ég viðurkenni fúslega að
það hefði verið miklu skemmtilegra
ferðalag hefði bikarinn verið með í
för. Islandsbikarinn er kominn upp
í hillu heima í Eyjum. Ég vil nota
tækifærið og óska Keflvíkingum til
hamingju með sigurinn. Þeir eru
með ungt og skemmtilegt baráttulið
sem á framtíðina fyrir sér. Við verð-
um bara að taka bikarinn næst,“
sagði Hlynur.
Morgunblaðið/Golli
Fögnudur og flugferð
LEIKMENN Keflavíkurliðsins stukku á loft upp er þeir
fögnuðu Kristni Guðbrandssyni, eftir að hann hafði
skorað sigurmarkið úr vítaspyrnu. Þórarinn B. Krist-
jánsson, Jakob Már Jónharðsson, Gestur Gylfason,
Kristinn, Gunnar Oddsson og Adolf Sveinsson. A mynd-
inni tii hliðar fagna Keflvíkingar Kristni enn á ný, kasta
honum á loft upp.
Morgunblaðið/Kristinn
Kristinn stóð við loforðið
[ sjöundu tilraun
hjá Sigurði
SIGURÐUR Björgvinsson, annar þjálfari Keflavíkurliðsins, fagnaði
bikarmeistaratitli í sjöundu tilraun. Hann tapaði fjórum bikar-
úrslitaleikjum sem leikmaður Keflavíkur, 1982,1985,1988 og 1993
og tvisvar sem leikmaður KR, 1989 og 1990. Happatala Sigurðar
er sex og trúði hann því fyrir bikarúrslitaleikinn 1993 að það
væri komið að honum. Eftir leikinn, sem Keflavík tapaði fyrir í A,
sá hann að hann þyrfti fyrst að tapa sex úrslitaleikjum áður en
sá fyrsti ynnist.
Var búinn að lofa að feta í fótspor Einars Gunnarssonarfrá 1975 og skora sigurmark Keflvíkinga í bikarúrslitaleik
Kristinn Guðbrandsson, miðvörður Keflavíkurliðs-
ins, var búinn að lofa félögum sínum að feta í
fótspor Einars Gunnarssonar. Sigmundur Ó.
Steinarsson skrifaði um afrek Einars 1975, þeg-
ar hann skoraði sigurmark Keflvíkinga gegn í A
á Laugardalsvellinum það ár og var mættur á
sama stað þegar Kristinn stóð í sömu sporum og
Einar, tryggði Keflvíkingum langþráðan bikar-
meistaratitil. Báðir léku hetjurnar, sem voru mið-
verðir, með númer 4 á bakinu.
Það komst aðeins eitt að í huga
mínum er ég hljóp að knettin-
um - að ég ætlaði að standa við
það loforð sem ég gaf félögum mín-
um. Það var stórkostlegt að sjá á
eftir knettinum í netið. Ég stóð í
sömu sporum og Einar stóð 1975,
er ég var sex ára gutti. Það er heið-
ur fyrir mig,“ sagði Kristinn, sem
gekk yfirvegaður að knettinum að-
eins augnabliki eftir að Bjarki Guð-
mundsson hafði varið vítaspyrnu frá
Sigurvini Ólafssyni. Öflugur stuðn-
ingsmannahópur Keflvíkinga stóð á
öndinni, spennan var mikil á Laugar-
dalsvellinum. Það mátti heyra
saumnál falla - síðan braust út
geysilegur fögnuður hjá Kristni,
samheijum hans og stuðningsmönn-
um. Stríðsdans var stiginn á vellin-
um og á áhorfendapöllum. Keflvík-
ingar hafa mátt bíða í 22 ár eftir
þessari stundu - og það má segja
að sagan frá 1975 hafi endurtekið
sig, eins og má sjá á korti hér á
síðunni.
Strax í byijun leiksins, mátti sjá
að Keflvíkingar voru betur stemmd-
ir en Eyjamenn, bæði á leikvelli og
á áhorfendapöllunum - það voru
þeir sem ætluðu að fagna. Keflvík-
ingar mættu mjög yfírvegaðir til
leiks, léku mjög sterkan varnarleik
og voru ákveðnari í aðgerðum sínum.
Fyrirliðinn Jakob Már Jónharðsson
bauð markakónginn Tiyggva Guð-
mundsson velkominn, með því að
taka hann algjörlega úr umferð eins
og í fyrri bikarúrslitaleiknum. Eyja-
menn náðu aldrei að finna taktinn
og var greinilegt að leikur þeirra
gegn Stuttgart hafði tekið stóran
toll. Miðvallarleik-
mennirnir Sigurvin
Ólafsson, Sverrir
Sverrisson, Ingi Sig-
urðsson og Kristinn
Hafliðason komust
aldrei í takt við leik-
inn og munaði um
minna. Ingi hafði
ekki heppnina með
sér á 31. mín.,
komst einn inn fyrir
vörn Keflvíkinga -
skaut framhjá.
Tryggvi neitaði
að
taka vítaspyrnu
Á lokasekúndum
fyrri hálfleiksins braut Bjarki Guð-
mundsson, markvörður Keflvíkinga,
klaufalega á Inga Sigurðssyni, þegar
engin hætta var á ferð - vítaspyrna
var réttilega dæmd. Eyjamenn fóru
fram á að Tryggvi Guðmundsson
tæki spyrnuna, en hann neitaði. Það
varð því að kalla á fyrirliðann Hlyn
Stefánsson úr öftustu vörn, til að
koma fram og taka spyrnuna. Bjarki
sá við Hlyn, kastaði sér niður hægra
megin og varði. Tíminn var svo
naumur, að um leið og Bjarki varði,
flautaði dómarinn Sæmundur Víg-
lundsson til leikhlés.
Baráttan hélt áfram
Seinni hálfleikurinn var svipaður
þeim fyrri - baráttan hélt áfram.
Haukur Ingi Guðnason, sem var einn
í fremstu víglínu Keflavíkurliðsins,
hafði ekki heppnina með sér er Eyja-
Vítaspyrnu-
keppnin
Það voru Eyjamenn sem byrj-
uðu:
Sverrir Sverrisson ...1:0
Eysteinn Hauksson ...1:1
Tryggvi Guðmundsson varið
Jóhann Guðmundsson ...1:2
Zoran Miljkovic ...2:2
Jakob Már Jónharðsson.... varið
Guðni Rúnar Helgason ...3:2
...3:3
Bjarnólfur Lárusson ...4:3
Gunnar Oddsson ...4:4
Bráðabani:
Sigurvin Ólafsson varið
Kristinn Guðbrandsson.... ...5:4
menn náðu að bjarga
á elleftu stundu á 52
mín. Jóhann Guð-
mundsson átti síðan
Iúmskt skot, sem
hafnaði á stönginni á
marki Eyjamanna á
63. mín.
Rautt spjald
álofti
Á 79. mín. gerðist
nokkuð umdeilt at-
vik, þegar Adolf
Sveinsson, sem hafði
stuttu áður komið
inná sem varamaður,
komst inn fyrir vörn
Eyjamanna. Hlynur
Stefánsson hljóp á eftir honum, var
óheppinn er hann kom við Adolf, sem
féll. Sæmundur dómari, sem var
ekki í góðri aðstöðu til að sjá atvik-
ið - flautaði og lyfti upp rauða
spjaldinu. Hlynur mótmælti, en það
dugði ekki, hann varð að fara af
leikvelli. Tryggvi, sem tók við fyrir-
iiðabandinu, var nálægt því að skora
fyrir Eyjamenn rétt á eftir - skall-
aði fram hjá marki Keflvíkinga.
Löglegt mark
dæmt af
Þar sem jafnt var eftir 90 mín.
varð að framlengja leikinn. I seinni
hluta framlengingarinnar skoraði
Jóhann B. Guðmundsson fallegt
mark með skalla, stökk hærra en
varnarmenn Eyjamanna og hamraði
knöttinn í netið. Sæmundur, sem var
ekki í sem bestri aðstöðu til að sjá
SAGA ENDURTEKNINGA
1975
Keppt um nýjan bikar
1997
Keppt um nýjan bikar
Forsætisráðherra heiðurs-
gestur, Geir Hallgrímsson
Forsætisráðherra heiðurs-
gestur, Davíð Oddsson
Mótherjar nýkrýndir Islands-
meistarar, ÍA, sem voru
taldir mun sigurstranglegri
Mótherjar nýkrýndir Islands-
meistarar, ÍBV, sem voru
taldir mun sigurstranglegri
IA tapaði úrslitaleik
um gamla bikarinn ári áður
ÍBV tapaði úrslitaleik
um gamla bikarinn ári áður
Tveir heimamenn þjálfarar:
Guðni Kjartansson
og Jón Jóhannsson
Tveir heimamenn þjálfarar:
Gunnar Oddsson og
Sigurður Björgvinsson
í undanúrslitum var nýliðinn
Guðjón Guðmundsson ný-f
kominn inn á sem varamaður
þegar hann skoraði sigurmark
Keflavíkur á elleftu stundu
undanúrslitum var nýliðinn
Þórarinn Kristjánsson ný-
kominn inn á sem varamaður
þegar hann skoraði sigurmark
Keflavíkur á elleftu stundu
;<s?
Hefðin var
með Keflavík
EYJAMENN náðu ekki að _
vinna tvöfalt - tryggja sér ís-
landsmeistaratitilinn og bikar-
inn. Hefðin var með Keflvík-
ingum, því að aðeins þrisvar
hafa meistarar náð að sækja
bikarinn eftir að þeir urðu
meistarar. KR-ingar 1961 og
1963, Valsmenn 1976 - öll
skiptin á kostnað Skagamanna.
Sjö sinnum hafa íslandsmeist-
arar mætt til leiks án þess að
ná að vinna tvöfalt, Fram 1962,
Valur 1966, Keflavík 1973, ÍA
1974 og 1975, Valur 1978 og
ÍBV 1997.
atvikið, dæmdi
markið ekki gilt,
taldi að Jóhann
hefði ýtt frá sér
er hann stökk
upp. Svo var
ekki. „Þetta var
löglegt mark hjá
mér. Ég hélt að
Sæmundur hefði
dæmt á eitthvað
annað," sagði Jó-
hann.
Bjarki hetja
Keflvíkinga
Ekki tókst lið-
unum að skora
og varð því víta-
spyrnukeppni að
fara fram til að
fá fram úrslit. Bjarki Guðmundsson,
hinn ungi markvörður Keflvíkinga,
var hetja þeirra - varði tvær víta-
spyrnur, báðar með því að kasta sér
niður hægra megin, eins og hann
gerði í leiknum er hann varði víta-
spyrnu Hlyns. Fyrst varði hann
spyrnu Tryggva, sem komst ekki
hjá því að taka vítaspyrnu og síðan
spyrnu Sigurvins. Það var ótrúlegt
að sjá hvað Eyjamenn voru skipu-
lagslausir, þegar ljóst var að jafnt
var eftir fimm vítaspyrnur, 4:4. Það
var eins og enginn vissi hver ætti
að taka sjöttu vítaspyrnuna - eftir
góða stund fór Sigurvin úr æflnga-
búningi sínum og gekk fram. Það
var eins og hann færi að vítapunktin-
um nauðugur viljugur. Það kunni
ekki góðri lukku að stýra - Bjarki
varði örugglega
vítaspyrnu hans.
Það var annað
að sjá til Kristins,
þegar hann gekk
ákveðinn fram í
sviðsljósið. Það
mátti aðeins lesa
eitt úr hreyfing-
um hans - hér er
ég, ég ætla að
eiga síðasta orðið,
sem hann og átti.
Föst spyrna hans
rataði rétta leið.
Sanngjarn sigur
Keflvíkinga var
innsiglaður á ör-
uggan hátt.
Fá feilspor
Eins og segir
^im voru Keflvíkingar
vel að sigrinum
komnir. Þeir voru betur skipulagðir
en Eyjamenn, stigu fá feilspor. Liðs-
heildin var hið sterka vopn Keflvík-
inga. Hetjan í vítaspyrnukeppninni
var Bjarki, Jakob Már lék óaðfinnan-
lega og hafði Tryggva í vasanum.
Þar er varnarmaður á ferð sem
Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari
hefur not fyrir. Gestur Gylfason átti
einnig góðan leik - var á fullri ferð
um allan völl, alltaf tilbúinn að
stoppa í göt ef þau mynduðust í
vörn Keflavíkurliðsins.
Eyjamenn náðu sér ekki á strik
enginn leikur betur en mótheijinn
leyfir.
Hef beðið ... / B12
Kristinn ... / B2