Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 12
4
ÍÞRÚWR
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSI
GunnarOddsson, þjálfari Keflavíkurliðsins, ísjöunda himni
Hef beðið lengi
eftir þessari stund
„ÞETTA er einstaklega Ijúft.
Þegar Keflavík vann síðast voru
70% af þessum strákum ekki
fæddir," sagði Gunnar Odds-
son, annar þjálfara Keflvíkinga
eftir sigurinn á sunnudaginn.
Það hefur verið mikil seigla í
okkur í bikarnum og við höfum
lent í framlengingu í öllum leikjunum
nema einum, þannig
Skúli að við höfum farið
Unnar eins langa leið að
Sveinsson þessum titli og hægt
skrifar er ag fara.“
Eftir að Hlynur var rekinn útaf
hefði mátt búast við að þið bættuð
í sóknina, en það varð ekki. “
„Nei. Við vorum orðnir dálítið
þreyttir og Eyjamenn eru með mikið
hörkulið þannig að við fórum var-
lega. Mér fannst samt markið hans
Jóhanns fullkomlega löglegt.
Það var virkilega sætt að fá bik-
arinn. Ég er búinn að bíða ansi lengi
eftir þessari stund og það var mjög
kærkomið að taka bikarinn. Ég er
samt ekkert að hætta, altént ekki á
meðan ég hef gaman af því að vera
í fótbolta. Vonandi fáum við Siggi
[Sigurður Björgvinssonj að halda
áfram með strákana, því það eru
frábærir strákar að koma upp, bæði
úr öðrum flokki og einnig þeim
þriðja. Þetta tekur að vísu allt sinn
tíma og ég vona bara að stuðnings-
menn okkar bíði aðeins þolinmóðir;
svona tvö þrjú ár. Eftir það hef ég
ekki trú á öðru en við verðum með
eitt af bestu liðunum hér á landi.“
Hvernig er að standa í miðju-
hringnum í vítaspyrnukeppninni?
„Þetta er í annað sinn sem ég
geri það. Ég fékk ekki að taka víti
þegar ég var hjá KR og við lékum
til úrslita við Val. Þá brugðust ágæt-
is vítaskyttur, en það kom ekkert
annað til greina en að ég tæki víta-
spyrnu núna. Það var svolítið erfitt
að ákveða hveijir tæku spyrnurar,
en samt ekki. Það voru allir tilbúnir
að taka spyrnu, nema Gestur Gylfa,
henn hefur verið meiddur og treysti
sér ekki í þetta."
Nú eruð þið allir Ijóshærðir. Hve-
nær fóruð þið á hársnyrtistofu?
„Þetta byijaði eftir fyrri leikinn.
Þá ákváðu fyrirliðinn og einhvetjir
fleiri að lita sig og síðustu fjórir
fóru í gærkvöldi í litun, náðum meira
að segja lækninum í litun.“
En ekki hinum þjálfaranum?
„Nei, hann segir að hárið spretti
svo hægt að það tæki allt of langan
tíma að ná eðlilegum lit á ný. Hann
lofaði mér því samt að setja bleikt
skol í hárið ef við yrðum bikarmeist-
arar og ég á eftir að herma það
uppá hann og ég bíð spenntur eftir
að sjá það,“ sagði þjálfarinn sæll og
ánægður.
Morgunblaðið/Golli
BJARKI Guðmundsson varði vítaspyrnu Hlyns Stefánssonar, fyrlrliða ÍBV.
tvær í vítaspyrnukeppninni. „Ég
bjargaði nú bara andlitinu með því
að veija vítaspyrnuna í leiknum
sjálfum því þetta var hræðilega
klaufalegt hjá mér að fá dæmda á
mig vítaspyrnu."
Varstu búinn að ákveða í hvaða
horn þú ætlaðir að fara?
„í leiknum sjálfum fann ég að
hann myndi skjóta í þetta horn, og
líka í fyrra vítinu í vítaspyrnukeppn-
inni. Ég var líka nokkuð viss um að
í síðasta vítinu yrði þrumað og því
enginn tími til að bíða þannig að ég
tók áhættuna á að skutla mér til
hægri og það tókst.“
Varstu ekkert spenntur fyrir víta-
spyrn ukeppnina?
„Nei, í rauninni ekki, enda engin
ástæða til. Spennan er öíl á þeim sem
tekur spyrnuna. Það eru 80% líkur á
að það sé skorað úr víti og því
ástæðulaust að setja óþarfa pressu á
sjálfan sig út af því,“ sagði Bjarki.
Baðst ekki
afsökunar
Það var Adolf Sveinsson sem var
í baráttu við Hlyn Stefánsson þegar
fyrirliði Eyjamanna var rekinn af
velli. „Ég vil ekki tjá mig um þetta,“
sagði hann við Morgunblaðið eftir
leikinn og þegar hann var spurður
hvort hann hefði farið til Hlyns og
beðið hann afsökunar sagði Adolf:
„Nei, það er ekki rétt.“
Bjargaði andlitinu
Bjarki Guðmundsson, markvörður
Keflvíkinga, varði þijár vítaspyrnur
á Laugardalsvellinum á sunnudag,
eina skömmu fyrir leikhlé og síðan
Vinnubrögð KSI til vansa
Við vorum grátlega nærri því
að vinna allt, en það tókst
ekki,“ sagði Bjarni Jóhannesson,
þjálfari Eyjamanna, eftir leikinn.
„Mér fannst við sterkari aðilinn í
leiknum og það virtist ekki skipta
máli þótt við misstum Hlyn útaf.
Altént ekki til að byija með. Það
var dálítið skrýtið að sjá Keflvíking-
ana einum fleiri og reyna ekki einu
sinni að bæta við í sóknina. Þegar
komið er í vítaspyrnukeppni getur
sigurinn dottið hvorum megin sem
er, og ekkert við því að segja.
Ég er mjög ósáttur við dómgæsl-
una í leiknum og rauða spjaldið tók
óneitanlega nokkurn sóknarþunga
úr okkar liði. Ákvörðunin um að
reka Hlyn útaf er afdrifarík og línu-
vörðurinn segir við Hlyn að þetta
hafi ekki verið brot. Sæmundur
[Víglundssonj stendur úti á miðju
og Gunnar [Sigurðsson] markvörð-
ur er nánast kominn með boltann
í hendurnar þegar hinn fellur.
Annað sem ég velti líka fyrir
mér. Sæmundur fékk bikarleik
fyrir rúmum mánuði til að ljúka
sínum ferli. Prammistaða hans í
þeim leik var í sjálfu sér ekkert
til að hrópa húrra fyrir og það
hefði verið gaman að sjá frammi-
stöðumat hans þá. Mér finnst ansi
lélegt að hafa bikarúrslitaleiki sem
einhveijar afmælisgjafir fyrir
menn sem eru að gefast upp sem
dómarar. Hvað þá tvívegis. Svona
vinnubrögð dómaranefndar og
Knattspyrnusambandsins eru til
vansa og ég er tilbúinn að ræða
það nánar hvar og hvenær sem
er,“ sagði Bjarni.
í fótspor
feðranna
GUÐMUNDUR Steinarsson og
Haukur Ingi Guðnason fetuðu í
fótspor feðra sinna á Laugar-
dalsvellinum. Steinar Jóhanns-
son, pabbi Guðmunds, lék með
Keflvíkurliðinu sem varð bikar-
meistari 1975 og Guðni Kjartans-
son, sem var þá þjálfari iiðsins
ásamt Jóni Jóhannssyni, bróður
Steinars, er pabbi Hauks Inga.
Strákarnir voru ekki fæddir þeg-
ar pabbarnir tóku á móti bikarn-
um.
»7
Glókollar"
ÁHORFENDUR ráku upp stór
augu þegar leikmenn
Keflavíkurliðsins mættu til leiks
gegn Eyjamönnum — inná hlupu
ellefu glókollar, en leikmenn liðs-
ins voru búnir að láta lita hár
sitt ljóst í tilefni dagsins, sem var
tákn þess að bjart væri framund-
an, sem og varð.
Bið Gunnars
áenda
„ÞAÐ hafðist loksins,“ sagði
Gunnar Oddsson, þjálfari Kefla-
víkurliðsins. Gunnar hafði áður
leikið fjóra bikarúrslitaleiki, en
þurft að sætta sig alltaf við tap
— 1985 og 1993 með Keflavík og
1989 og 1990 með KR. Gunnar,
sem er aldursforseti Keflavíkur-
liðsins, var níu ára þegar Kefla-
vík vann bikarinn síðast, 1975.
Rautt harður
dómur
ÞAÐ var nokkuð harður dómur
þegar Hlynur Stefánsson var
rekinn af leikvelli. Adolf Sveins-
son féll, þegar þeir voru að kljást
um knöttinn — Hlynur hlljóp aft-
an á Adolf. Hlynur er þriðji leik-
maðurinn sem er rekinn af lei-
kvelli í bikarúrslitaleik og það
hafa alltaf verið fyrirliðar sem
hafa fengið að sjá rauða spjaldið.
Sigurður Lárusson, fyrirliði IA,
var rekinn af leikvelli 1983, þeg-
ar Skagamenn unnu Eyjamenn
2:1. Ólafur H. Krisljánsson, fyrir-
liði FH, var rekinn af leikvelli
1991, þegar Valur vann FH 1:0.
Fyrsta mark
Miljkovic
ZORAN Miljkovic, varnarleik-
maður Eyjamanna, skoraði sitt
fyrsta mark á íslandi, er hann
skoraði glæsilega úr vítaspyrnu
gegn Keflavík í vítaspyrnu-
keppninni — sendi knöttinn efst
upp í markhornið. Zoran náði
ekki að skora þau tvö keppnis-
tímabil sem hann lék með Skaga-
mönnum.
Einar skor-
aði í öllum
leikjum
EINAR Gunnarsson sem skoraði
sigurmark Keflvíkinga síðast
þegar þeir urðu bikarmeistarar,
1975, skoraði mark í öllum um-
ferðum bikarkeppninnar. Hann
skoraði gegn ísafirði í 16-liða
úrslitum, 3:0, hann skoraði gegn
Víkingum í 8-liða úrslitum, 2:0,
hann skoraði sjálfsmark gegn
KR i undanúrslitum, 2:1 og síðan
sigurmarkið gegn IA í úrslita-
leiknum, 1:0.
ENGL.AND: 12 1 1 1 X 2 11 11
'ITALIA: X 1 2 22X 1 X X 1 1 1 X