Morgunblaðið - 09.11.1997, Síða 1
KLAPPAÐ I STEIN
BOB DYLAN ENN
í FULLU FJÖRI Á
NÝÚTKOMINNI
PLÖTU
SUNNUDAGUR
SUNNUDAGUR
9. NÓVEMBER 1997
BLAÐ
Morgunblaðið/Andrés
Stjórnvöld vilja stöðva útþenslu í heilbrigðisútgjöldum, sameina sjúkrahús
og auka kostnaðarvitund almennings og starfsfólks í heilbrigðisstéttum.
Talsmenn sjúkra-
húsa og heilbrigð-
isstétta segja að
nóg sé komið, þjón-
Í| ustan muni hrynja
mMP HÉB ■ mm ■ H ef lengra verði
■BL 8BS H II ■ ll ■■ haldið á þessari
braut. Læknar
segja upp og hóta að fara úr landi, birtar eru myndir af grotnandi húsa-
kynnum sjúkrahúsa, almenningur kvartar undan hækkandi lyfjaverði. Er
kerfíð komið að fótum fram? Anna G. Ólafsdóttir og Kristján Jónsson
kynntu sér ástandið í þessum málum og leituðu svara hjá Ingibjörgu Pálma-
dóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og öðrum hagsmunaaðilum.
Það hriktir
HUGMYNDAVINNU
HALDIÐ ÁFRAM
Heilbrigðisráðherra segir að ríkisstjórn-
in hafi á þriðjudag ákveðið að láta halda
áfram vinnu við samein-
ingu sjúkrahúsa. „Sl.
þriðjudag, 3. nóvember,
var samþykkt í ríkis-
stjórn að láta vinna
næsta áfanga skipulags-
athugunar sjúkrahús-
anna í Reykjavík með
það fyrir augum að framtíðarsýn um öfl-
ugt háskólasjúkrahús, er byggi á sam-
þættu sjúkrahúskerfi í Reykjavík verði
að veruleika, í samræmi við tillögur
VSÓ-ráðgjafar. I þessum áfanga verður
lögð aðaláhersla á þá þætti, sem snúa að
Landspítala og Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur,“ segir í svari ráðherra við spurning-
um blaðamanna Morgunblaðsins.