Morgunblaðið - 09.11.1997, Page 5

Morgunblaðið - 09.11.1997, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 B 5 starfandi heilsugæslulæknar í borg- inni. Katrín Fjeldsted heim- ilislæknir segir að einn af punktun- um 21 lúti að því að auka fjölbreytni í rekstri heilsugæslustöðvanna. „Mér finnst að heimilislæknarnir sjálfir geti tekið að sér rekstur heilsugæslustöðva í ríkara mæli eins og t.d. gert er í Lágmúlanum. Ég tel ekkert náttúrulögmál að ríkið reki slíka starfsemi.“ Sigurður Björnsson, formaðm- Sérfræðingafélags íslenskra lækna, telur að um óeðlilega þróun sé að ræða. „Ég tel vert að íhuga hvort rétt sé að ríkið reisi fleiri heilsugæslustöðvar á höfuðborgar- svæðinu, hvort sjálfstæður rekstur ýti ekki undir faglega samkeppni og sé hagkvæmari fyrir þjóðfélagið.“ Heimilislæknar hafa ætíð lagt ríka áherslu á skil á læknabréfum enda séu heildstæðar upplýsingar um heilsufar sjúklings grunnurinn að því að rétt sé brugðist við vand- anum hverju sinni. „Læknum er skylt samkvæmt siðareglum lækna að senda upplýsingar til heim- ilislæknis viðkomandi," segir Katrín Fjeldsted. „En því miður hafa skilin verið algjörlega óviðunandi eða að meðaltali 25%.“ Guðmundur Björnsson, formaður Læknafélags Islands, segir að læknasamtökin hafi verið að beita sér fyrir því að sérfræðingar skili læknabréfum til heimilislækna. „Tilmælum um að sérfræðingar skili læknabréfum þegar við á hefur verið beint til sérfræðinga." Stefnir í skipbrot? Af framansögðu er ljóst að allir ís- lenskir læknar eru með lausa samn- inga. í kjaraviðræðum er án efa tekið á ýmsum skipulagsmálum. Launaiiðinn ber hins vegar hæst enda eru, eins og áður segir, allir læknar sammála um að launin séu alltof lág og ekki síst með samanb- urði við launakjör lækna á hinum Norðurlöndunum í huga. Samanburðurinn verður æ nærtækari því að læknar eru í rfkari mæli farnir að líta svo á að Norðurlöndin séu eitt atvinnusvæði. íslenskir læknar eru raunar afar eft- irsóttir á hinum Norðurlöndunum. Fyrst og fremst er ástæðan að Islendingarnir eiga auðvelt með að tileinka sér tungumálið, koma úr svipuðu þjóðfélagi og þykja duglegir. I boði eru betri vinnuaðstæður og talsvert hærri laun, ;sumir segja um 100%, heldur en á íslandi. Ekki er því óeðlilegt að íslenskir læknar séu spenntir fyrir atvinnutilboðum í löndum á borð við Noreg þar sem læknaskortur er töluverður. Svíar og Bretar eru farnir að hafa áhyggj- ur af iæknaskorti og á Islandi er læknaskorti spáð í sífellt nálægari framtíð. Nú er jafnvel talið að bera fari á læknaskorti innan 4-6 ára. Ein ástæðan fyrir því er talin vera sú staðreynd að ungir Iæknar fari í sér- nám til annarra landa með öðru hugarfari en áður, þ.e. með hugsan- lega framtíðarbúsetu í huga. Heim- urinn er sífellt að minnka og algengt að ungir læknar hugsi sem svo að betri launakjör gefi tækifæri til að búa í útlöndum og njóta samt þess besta á íslandi, t.d. með löngum sumarfríum hér á iandi. Fjöldi viðmælenda í hópi lækna lýsti yfir áhyggjum sínum af af- leiðingum lági’a launa lækna á heil- brigðiskerfið allt. Helgi H. Helga- son, formaður Félags ungra lækna, er einn þeirra. „Afleiðingarnai' felast m.a. í því að ekki verður jafn eft- irsóknarvert fyrir gott náms- fólk að fara í læknanám og hærra hlutfall ungra lækna kýs eftir sémám að halda áfram að búa erlendis." Annar viðmælandi nefndi að nýútskrifaður sérfræðingur hefði sagt við sig að af 30 manna bekk úr Háskóla íslands dytti 10 bestu náms- mönnunum ekki í hug að halda heim að loknu sérnámi. Viðmælandinn sagði að ef hlutfallið væri lýsandi stefndi í skipbrot íslenska heilbrigðis- kerfisins innan fárra ára. Sameining í brennidepli / Sigurður Björnsson hefur lýst andstöðu við hugmyndir um sameiningu sex sjúkrahúsa á suðvesturhorninu og hann og fleiri telja að um aukna miðstýringu sé að ræða. Nær væri að efla heilbrigða samkeppni sem nú ríkir þótt viss verkaskipting sé mflli sjúkrahúsanna á svæðinu. Skoðanir eru þó nokkuð skiptar í málinu meðal lækna á sjúkrahúsunum. Kristján Erlendsson í heilbrigðis- ráðuneytinu sagðist ekki sammála því að um miðstýringaráráttu væri að ræða. Ætlunin væri að láta ákveðin svið verða sameiginleg, öflugra háskólasjúkrahús myndi teygja anga sína inn á öll sjúkrahúsin sex. Ekki mætti gleyma að með þjónustusamningum um hjúkrunardeildir og á fleiri sviðum væri jafnframt stefnt að því að einkavæða rekstur og koma í veg fyrir að nýtt bákn yi’ði tfl. Spara mætti með sameiningunni kostnað af yfirbyggingu auk þess Meistarar í gosþambi og sæl- gætisáti VAXANDI áhersla á ábyrgð hvers og eins á eigin heilsu í tengslum við holla lifnaðarhætti á ekki hvað síst við á sviði tannlækninga. íslendingar hafa því miður ekki tekið sérstaklega ábyrga afstöðu gagnvart sætind- um og innbyrða fáar þjóðir jafn- mikið af sykri á mann. Hver Islendingur neytir t.a.m. að jafnaði 22 kg af sælgæti og drekkur um 147 lítra af gos- drykkjum á ári. Ein afleiðingin er að erfiðlega hefur gengið að fækka tann- skemmdum hér á iandi. Ljós í myrkrinu felst í því að meðaltal tanna sem skemmst hafa í 12 ára börnum hefur minnkað úr 8 tönn- um árið 1982 í 1,5 tennur í fyrra. Tíðnin í þessum aldursflokki er því orðin svipuð og á hinum Norðurlöndunum. Islenska ríkið greiðir hins veg- ar ekki jafnhátt hlutfall af kostnaði við tannlækningar barna og unglinga og hinar þjóðirnar. Hér er greitt 75% af kostnaði við tannlækningar 15 ára og yngri og 50% fyrir tannlækningar 16 ára unglinga. Nú hefur verið viðrað að leggja af skólatannlækningakerfið og gefa skólatannlæknum tækifæri til að reka sjálfir stofurnar í skólunum. Til samanburðar er allur kostnaður við tannlækningar barna og unglinga til 18 ára ald- urs greiddur í Danmörku, til 19 ára aldurs í Finnlandi, 19 ára ald- urs í Noregi og 20 í Svíþjóð. Mikil áhersla er lögð á að tann- hirðu sé sinnt og eru dæmi um að í Noregi sé félagsráðgjafi sendur á heimili þar sem vitað er til að börn og unglingar hafi ekki farið til tannlæknis. Ein ástæðan felst í því hversu kostnaður vegna viðgerða margfaldast ef ekki er fyigst reglulega með tannheils- unni. sem þjónusta yrði skilvirkari. Eftir sem áður yrði tryggt mikið sjálfstæði á hverri stofnun á sumum sviðum t.d. í heilsugæslunni. Tfl greina kæmi að láta nægja að sam- eina aðeins spítalana á höfuðborgar- svæðinu í fyrsta áfanga. Bent hefur verið á að verði af sameiningunni geti orðið flókið að ræða um að sveitarfélög annist sjálf rekstur heilbrigðiskerfisins á sínu svæði. Hvemig ætti þá að skipta þessari stóru köku aftur milli viðkomandi sveitarfélaga? Góð þjónusta í faglegu tilliti Staðan hefur lengst af verið held- ur ójöfn í áróðursstríðinu sem öðru hverju blossar upp þegar ríkisvaldið boðar samdrátt. Heilbrigðisstéttirnar hafa sér- þekkinguna á starfinu og standa yf- irleitt saman um meginkröfuna, næg fjárframlög til að tryggja að hvergi þurfi að draga verulega úr þjónustu. Ríkið þybbast við en gefst oft upp við að rökræða málin og beitir þá flötum niðurskurði sem ekki getur talist fagleg lausn á flóknum vanda. Erlendis hafa verið gerðar tilraunir til að nota svonefnda DRG-reikn- inga, meta nákvæmlega hvað geti talist eðlilegt verð íyrir hvert verk á sjúkrahúsum. Eru ráðamenn að fikra sig inn á svipaðar brautir í samningum við lækna hér á landi og bæta þannig samningsstöðu sína. Yfirleitt er það keppikeflið á Vesturlöndum að í heilbrigðis- þjónustu sé tryggður jafn aðgangur, stig þjónustunnar sé þjóðhagslega hagkvæmt, kostnaðurinn sé ekki meiri en ávinningurinn, stuðlað sé að rekstrarhagkvæmni, tryggt sé sem mest valfrelsi hjá sjúklingum og liðsmenn heilbrigðisþjónustunn- ar hafi sem mest faglegt sjálfstæði. Líklega geta flestir verið sam- mála um að heilbrigðisþjónusta sé hér yfirleitt með besta móti í fag- legu tilliti. Deilurnar standa fremur um kostnaðinn og framtíðina, hvort þjónustan muni versna eða verða áfram viðunandi. Nær allir viðmælendur blaðamanna virtust hlynntir þvi að áfram verði haldið í þá stefnu að þjónustan sé að mestu greidd af almannafé. Olíkar skoðan- ir eru hins vegar á fjölmörgum skipulagsatriðum og ekld síst því hve langt eigi að ganga í að einkavæða reksturinn. Útgjöld til heilbrlgðismála 1970-1996 % af vlf sem hlutfall af vergri landsframleiðslu ar verða fýrir skerðingum á greiðslum þegar heildarþjónusta þeirra fer yfir mörk sem ákveðin eru í samningnum. Ég er ekki tilbúin að gefa verðskrá lækna frjálsa þannig að þefl- geti krafist gi-eiðslu af sjúklingum sem þeir einir ákveða. Mín skoðun er að sjúklingar séu í fæstum tilvikum í stakk búnir til að beita ein- hverskonar verð- eða gæðasam- anburði á þjónustu lækna og ekkí eigi að ætlast til slíks af sjúklingum. Ég tel að sú braut að lej'fa frjálsa gjaldtöku sé útilokuð og leiði heilbrigðisþjónustuna á íslandi á villigötur sem endi þá með svipuðum hætti og i Banda- ríkjunum og Sviss þar sem jafn- rétti til heilbrigðisþjónustu er fyrir borð borið og kostnaður er mestur í heiminum. Ég tel einnig að sjúkratrygg- ingarnar sem eru að greiða meginhluta af lækniskostnaði og eiga í framtíðinni að gera það, verði að hafa möguleika á að sjá fyrir um útgjöld sin. Með einhverjum tækjum verða stjórnvöld að eiga möguleika á að halda útgjöldum sjúkratrygginga innan þeirra marka sem ákveðin eru á hverjum tíma. Við getum ekki sætt okkur við að ákveðnar stéttir hafi algjört frelsi í hve mikið magn þjónustu er veitt og ríkinu síðan sendur reikningur. Á þessu er almennt skilningur meðal lækna og unnið að því að finna leið sem báðir aðilar geta sætt sig við. Viðræður við læknasamtökin eru í fullum gangi og fullur vilji hjá samninganefnd TR að ná samningum við lækna. Ég styð þá í þeirri vinnu og vonast til að árangur hennai’ líti dagsins ljós sem fyrst.“ Brotið á almenningi i kjaradeilum Er ekki verið að brjótx rétt á almenningi sem het'ur greitt sín gjald til heil- brigðisþjónustnnnar en þarf nú nð borga fullt verd hjá mörgum sérfræðingum? „Kjaradeilur vaida alltaf mikhun vanda og ]iað er staðreynd að meðan þær standa er alltaf brotið á almenningi, það liggur í eðli kjaradeilna. Almenningur líður með einhverj- um hætti fyrir allar kjaradeilur. t>essi deila er engin undantekning frá því. Það ber sem betur fer að benda á þjónustu heilsugæslunnar og sjúkrahúsanna þannig að öll bráðatilvik em leyst og ílestri þjónustu er sinnt. Þannig er sjúklingum veitt úrlausn sinna mála eftir því sem kostur er.“ Launamál lækna Hefur rOdsstjómin mótuð ákveðna stefnu í kmnnmálum heilbrigðisstéttanna og hvernig verður brugðist við læknaskorti sem gæti orðið staðreynd eftir nokkur ár vegna betrí kjara sem bjóðast erlendis? „Kjarasamningar hafa náðst við flestar heil- brigðisstéttir. Staðan núna er sú að kjaramál allra lækna eru í vinnslu, á mismunandi stigi. í samningi ríkisins við heilsugæslulækna fyrir ári vai’ samið um að kjaranefnd úrskurðaði um laun þeirra frá síðustu áramótum. Sá úrskurður er enn ekki fallinn og brýnt að niðurstaða liggi fyrir sem týrst. Samningamál sérfræðinga a-u í fullum gangi bæði innan og utan sjúkrahúsa. Hið sama má segja um unglækna en þar snýst málið ekki síður um skipulag vinnu sem sjúkrahúsin eru að breyta tfl : nútímalegra horfs. Þannig má segja að launamál heilbrigðis- stétta séu almennt í sama farvegi og launamál annaiæa starfstétta í þjóðfélaginu. Munurinn er sá að heilbrigðisstéttir gegna einum veigamestu og mikilvægustu störf- unum í þjóðfélaginu. Því eru áhrif kjaradeilna þessara stétta alvar- legri og áþreifanlegri en almennt gerist. Varðandi heilsugæslulækna hafa ákveðnar staðaruppbætur verið viðurkenndar í þeim héruðum þar sem erfiðast er að sinna þessari þjónustu, fjarlægðir miklar, samgöngur erílðai- og fámenni. Samkvæmt hinu nýja fyrirkomulagi verður það hlutverk kjaranefndar að finna lausn á þeim vanda en áfram er unnið að því að auka faglegt sam- starf og stækka þjónustusvæði þar sem það á við. Lyfjaneysla hefur aukist Hver er reynslan af frelsi í lyfsölu? „Reynslan af frelsi í lyfsölu er bæði vond og góð. Hún er góð að því leyti að aukin sam- keppni hefur leitt til þess að sjúklingar hafa átt kost á tilboðum sem í mörgum tilvikum lækka lyfjakostnað þeirra verulega. Þá hafa sjtiklingar í einhverjum tilvikum fengið aukna þjónustu sem er af hinu góða. Hins vegar sjást þess merki að lyfjaneysla hafi aukist nokkuð við Jiessa breytingu en fylgst er með ])ví hvort um sé að ræða varanlega breytingu og gi-eina ástæður þess. Þá er það vissulega galli að þetta frelsi hef- ur ekki orðið virkt um allt land eins og ég óttaðist fyrirfram. Þannig gilda ekki sömu lögmál á Reykjavíkursvæðinu og úti á lands- byggðinni. Það er vissulega siæmt því aðall góðrar heilbrigðisþjónustu er að hún á að sjá jafnt um sína skjólstæðinga hvar sem þeir búa á landinu og ekki er eðlilegt að verulegur verðmunur sé á þjónustunni eftir því hvar hún er veitt.“ Unnið að heildar- forgangsröðun Deilt er um margt í skipulagi ogrekstri heil- brigðisþjónustunnar, stefnumótun skortir í sambandi við forgangsröðun sem margir benda á að sé nú staðreynd en ákvarðanir ávallt teknar af einstaklingum vegna þess að ráðamenn þora ekki að taka afskarið um vinnureglur. Hver er brýnasti vandinn sem takast þarfá við núna íheilbrigðiskerfinu? „Forgangsröðun hefur alltaf átt sér stað í heilbrigðiskerfinu. Það er hins vegar nýmæli að nú er verið að vinna að heildarfor- gangsröðun i kerfinu til viðbótar þeirri faglegu forgangsröðun sem fagmenn hala alltaf orðið og munu alltaf verða að taka ákvörðun um. Sem betur fer er ekki hægt að mæla allt eftir hlutlægum mælikvörðum og okkar vel menntaða og færa heilbrigðisstarfsfólk veit að forgangsröðun er og verður alltaf hluti af dag- legum störfum þess. Brýnasta verkefnið í dag er að betri sam- staða náist um stefnuna í heilbrigðismálum. Að því hef ég unnið frá því ég tók við embætti og tel að nokkuð liafi áunnist. Ég hef beitt mér fyrir markvissum vinnubrögðum, svo sem í mótun forgangsröðunar, endurskoðun heil- brigðisáætlunar, uppbyggingu heilsugæslunn- ar í samráði við heilsugæslulækna, endur- skipulagningu sjúkrahúsþjónustu á höfuðborg- arsvæðinu, eflingu stofnana á landsbyggðinni, stefnu í gæðamálum, upplýsingamálum og fjarlækningum, svo eitthvað sé nefnt. Ég tel |)essa vinnu vera grundvöll þess að sátt náist meðal almennings, fagfólks og stjórnmála- manna um þær áherslur sein lagðar hafa verið í þessum mikilvæga málaflokki. Stefnan hefur verið mótuð og er skýr en er eðli málsins samkvæmt sífellt í þróun og end- urskoðun í takt við breytta tima.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.