Morgunblaðið - 09.11.1997, Page 11

Morgunblaðið - 09.11.1997, Page 11
10 B SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 B 11 BÓNORÐ OG SVÍN Á FÆTI ✓ Ævintýralöngunin dró nokkra unga Is- lendinga til Afríku fyrir skömmu, þar sem þeir óku í mánuð um Kenýa, Uganda og Tanzaníu. Asdís Asgeirsdóttir ljós- myndari var með augun opin í ferð- inni og í fyrri grein var gluggað í dagbók hennar og fræðst um dýralíf landanna. Að þessu sinni upplýsir dagbók- in ýmislegt um uppákomur eins og óvænt bónorð, innkaupaferðir og grísaveislu. UGANDISKUR drengur nieð vatnsbrúsa en leið þorpsbúa að vatnsbúlum er oft löng. LITLIR snáðar í Bukoba í Tanzaníu. Alls staðar eru grænir bananaklasar. MASAI piltur í Tanzaníu. Hávaxið fólkið í þessum þjóðflokki klæðist ávallt rauðu. VIÐ skóla í tiganda flykktust forvitin böruin að jeppanum og vildu skoða ferðalangana. VERSLUNARGATA í Tanzaníu: skúraþyrping þar sem vöruúrvalið var af ny'ög skornum skammti. EIN af dæmigerðum afrískum máltíðum ljósmyndarans: fuglsvængur, hrísgrjón og kók. FERÐAFÉLAGARNIR, sem voru auk Ásdís- ar þau Hrafnhildur Brynjólfsdóttir, Svanur Þorsteinsson og Reynir Harðarson, lögðu upp í fjögurra vikna ökuferðina frá Nairóbí í Kenýa. Eftir að hafa átt rólegar stundir við Naiwasha vatnið var farangrinum raðað í leigðan jeppa og ekið af stað. Eftirvæntingin var mikil og ævintýranna beðið með óþreyju. Kisumu var fyrsti áfangastaðurinn. Kisumu í Kenýa, 20. júlí 1997 Ég vaknaði fyrir klukkan sjö í morgun og skreið út úr tjaldinu. Fiskimennirnir voru við veiðar úti á Viktoríuvatni og kyrrðin var yndis- leg. En þegar ég opnaði bílinn til að ná í tann- burstann sá ég hvergi bakpokann minn. Krakkarnir voru fljótir að spretta út úr tjöld- unum þegar ég sagði þeim að pokinn minn væri alls ekki í bflnum. Þar voru bara tveir bakpokar en við fjögur... Okkur þótti þetta í meira lagi dularfullt, þar sem tjaldsvæðið var girt af, vörður á vappi alla nóttina og bíllinn al- veg við tjöldin okkar. En þá var að piga við kenýsku lögregluna og útbúa skýrslu. Á lögreglustöðinni í Kisumu var okkur vísað á „crime department". Fyrst geng- um við framhjá hrúgu af skóm, mörg hundruð pörum, síðan út í port og þaðan inn á glæpa- deildina. Þetta var dimmt og drungalegt her- bergi; einn verulega skítugur sófi mínus sess- ur, eitt borð, dýnum og drasli hafði verið stafl- að upp við vegg og hlandlyktina lagði inn um gluggann. Auk fimm fanga sem biðu eftir að verða yfírheyrðir var þar gaggandi hæna á vappi en haninn gól einhvers staðar i fjarska. Fyrir utan opnar dyr sátu hátt í fimmtíu fang- ar og hlustuðu á yfirvaldið garga Þarna sátum við Reynir í þrjá tíma við skýrslugerð og fylgdumst með því sem fram fór, en allur aðbúnaður á lögreglustöðinni var með ólíkindum og fangar slegnir utan undir beint fyrir framan nefið á okkur. Ég komst svo að því að fangar fá ekki að vera í skóm og var það skýringin á skóhrúgunni. Eftir vandræðaganginn íKisumu héldu ferðalangarnir rakleiðis að landamærunum og inn í Uganda. Tjölduðu nærri upptökum Nílar, þar sem náttúrufegurð er mikil, og hvít- fyssandi fljótið leggur æðandi af stað í langa ferð sína til hafs. Nálægt Jinja í tiganda, 23. jiilí. í gær fórum við Habba og Reynir á gúmmí- tuðrum niður Nfl. Þetta var alveg meiriháttar dagur; glampandi sól og yndislega fallegt og spennandi þegar báturinn hoppaði og skoppaði og maður hélt sér dauðahaldi í og vatnið gusað- ist yfír okkur og bátum hvolfdi og fólk hentist út í vatnið. I fyrstu flúðunum hurfu fararstjór- inn og Reynir en þeim skaut aftur upp. I hádeginu var áð á lítilli eyju þar sem við fengum dýrindis hádegismat og ég var æst í að halda áfram en Habba vildi helst fara heim í tjald, hún var hálftitrandi og skemmti sér ekki vel. En við Reynir, spennufíklamir tveir, vor- um mest spæld þegar sökum vatnavaxta var hætt við að fara niður nokkuð sem flestir myndu kalla foss. Bátamir þrír vom svo dregnir á land 22 km frá upphafspunkti og þar beið okkar rúta, ískaldir bjórar og skari af börnum. Rútan keyrði okkur til Kampala, þar sem flestir bátsmenn fóru út við Sheraton og önnur fín hótel og við horfðum löngunaraugum á eftir fólkinu þar sem það gekk inn í glansandi and- dyrin á leið í almennilegt bað. En við ævintýra- fólkið hertum upp hugann og hoppuðum út hjá tjaldstæðinu þar sem Svanur og Borgar bróðir hans biðu okkar. í gærkvöldi fengum við svo far hjá Breta einum á pallbfl og sátum við aftan á að hætti innfæddra og brunuðum í bæinn á skemmti- stað. Þessi staður var undir berum himni og úgandísk hljómsveit spilaði alveg frábæra tón- list og við dönsuðum villt og galið við heima- menn, en þrátt fyrir margar og heiðarlegar til- raunir náði ég engri færni í mjaðmahreyfing- um þein-a Úgandabúa. Á dansgólfinu fékk ég bónorð númer tvö í ferðinni. Ungur maður vildi endilega giftast mér og þegar ég reyndi að segja honum að ég gæti ómögulega gifst hon- um því við þekktumst ekkert, þá sagði hann að það væri ekkert mál, við gætum bara hist í dag og kynnst! Ekkert varð úr stefnumóti því ferðalang- arnir yfirgáfu Kampala og óku inn á fáfarnari slóðir - inn í frumskóga Úganda. Farið var um skógivaxin fjallahéruð þar sem íbúarnir stunda bananarækt og búa í litlum þorpum. Bwindi í tíganda, 25. júlí í nótt byrjaði að rigna og þvílík rigning! Vatnið flæddi út um allt og þetta stóð í marga klukkutíma, ekki hægt að sofa fyrir látunum. En það var ævintýralegt að liggja í tjaldi í frumskógi og hlusta á þrumur og sjá fjöllin lýs- ast upp af eldingum. Svo fengu fötin á snúrun- um auka skol... Við fórum í morgun að kaupa svín - það verður nefnilega veisla í kvöld! Við þurftum að keyra svolítinn spotta og ganga svo gegn- um þéttan skóg af bananatrjám til að hitta svínaeigandann. Á meðan strákarnir „díluðu“ um verðið, fylgdist ég með konunni og krökk- unum sem horfðu stórum augum á okkur. Þarna voru smákrakkar með enn minni börn á bakinu og hor í nös. Þegar strákarnir og bóndinn voru orðnir sáttir, var svínið teymt í bandi sömu leið og við komum gegnum ban- anaskóginn að jeppanum. Aumingja svínið hefur haldið að það væri bara í göngutúr í góða veðrinu ... Þegar við komum að bílnum vildu strákarnir binda svínið á toppnum, en ég tók það sko ekki í mál! Þeir fengju ekki að keyra 10 kílómetra eftir holóttum veginum með svínið hrínandi á toppnum, nei, síðasta ferð svínsins og ef til vill fyrsta bílferð þess, skyldi verða aðeins skárri en það og endaði svínið því afturí... Nú er svínið dautt og er að giállast í heilu lagi á stórum teini. Svanur stendur sveittur og snýi’ því á meðan við hin liggjum í sólbaði. Ég gat ekki horft á þegar strákarnir slátruðu svín- inu, það hrein nóg þegar þeir tróðu því inn í bílinn - og auðvitað gerði það stykkin sín á gólfið... Bwindi, 26. júlí Svínið bragðaðist alveg stórvel í gærkvöldi og við sátum lengi frameftir við varðeld: fjórir Islendlíígar, Bretar, Ástralíubúar og Kana- dagæi og skiptumst á sögum og mikið hlegið. En í morgun keyrðum við hér um fjöllin, stoppuðum á markaði til að kaupa egg og grænmeti en úrvalið er lítið. Við stoppuðum hjá skóla og börnin þyrptust í kringum okkur. Börnin hér eru yndisleg og hrópa öll „há arr jú!“ og veifa þegar við keyrum framhjá. Við fíl- um okkur eins og kóngafólk, veifandi svona sí- fellt út um gluggana! Krakkarnir hjá skólanum fengu að kíkja í gegnum myndavélina mína og fannst mikið til um. En ég var í vandræðum þvi auðvitað vildu þau öll kíkja, en þau voru líklega um hundrað talsins! Svo laumuðust þau hugrökkustu til að snerta hörund eða hár okkar hvítingjanna ... sum eru reyndar skíthrædd við okkur og hlaupa í felur, ekki víst að mörg þeirra hafi komið oft í návígi við hvíta menn, eða masungu eins og við köllumst hér í Afríku ... Ferðalangarnir yfírgáfu Úganda með sökn- uði, þetta fallega land og vinalega íbúana. En ný ævintýri biðu handan við landamærin. Bukoba í Tanzaníu, 28. júlí Ætlunin var að eyða hér einum sólarhring og sigla svo yfir Viktoríuvatn. Mættum tíman- lega í skipið en þá var búið að fresta sigling- unni um sólarhring, okkur ekki til mikillar gleði því Bukoba er frekar mikið „skitapleis" og ekkert um að vera. Hér sem annars staðar á leið okkar er allt fullt af litlum búllum eða skúrum þar sem matvörur eru seldar. Skúr- unum er klambrað saman úr spýtum og báru- járni og mjög takmarkað hvað fæst í þeim. í einum er kannski hægt að fá brauð, í næsta kjöt og klósettpappír í þeim þriðja. Það tók okkur óratíma að versla, gengum úr skúr í skúr til að fá það sem vantaði... hér er sko ekkert Hagkaup! Og úrvalið er lítið, enginn dósamatur, enginn djús, enginn ostur eða álegg. Það tók mig tuttugu skúra að finna pasta! Þó er alls staðar hægt að fá kók. Á veitingahúsum hefur verið algengast að panta grænmeti og geitakjöt, en geit og franskar eru vinsælar hjá Höbbu og Reyni. Við höfum oft furðað okkur á því hvað við séum að borða, og ekki er það alltaf gómsætt... En svona er Tanzanía í dag! Fyi-ii- síðasta áfanga ferðarinnar, aksturinn til Naíróbí, slógu íslendingarnir upp lokaveislu á ströndinni við Mombasa. Boðið var upp á strúta- og nautakjöt með tilheyrandi meðlæti, og við varðeldinn voru undangengin ævintýri rifjuð upp. Nairóbí í Kenýa, 10. ágúst Nú er ferðin á enda eftir mánaðarævintýiá í þremur löndum. Við keyrðum síðasta spottann frá Mombasa til Naíróbí á einum degi og framundan er átta tíma flug til Amsterdam. Við vorum hálfþreytt og svöng þegar við kom- um á tjaldstæðið þar sem ferðin hófst fyrir mánuði, og ekki laust við að maður sé farinn að hlakka til að sofa í rúmi aftur; vera alltaf hrein og geta borðað hvað sem hugurinn girnist. Akváðum að borða síðustu Al'ríkumáltíðina á veitingastað. Pöntuðum fjóra ostborgara og franskar. Þegar maturinn kom loksins, fannst mér borgarinn heldur þunnur og þegar ég kíkti inn í hann var þar aðeins sneið af sveitt- um osti! Ég missti þolinmæðina eitt augnablik, kallaði á þjóninn og spurði hvar kjötið úr ham- borgaranum mínum væri eiginlega. Hann horfði á mig hissa og sagði: „Það er ekkert kjöt til í eldhúsinu." Þar með var það útrætt, ég andvarpaði bara og borðaði minn ostborgara; í Afríku er ekkert verið að gera óþarfa mál úr hlutunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.