Morgunblaðið - 09.11.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 B 13
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
Morgunblaðið/RAX
SVEINN Sigurjónsson með feiknavænan urriðahæng úr
Hraunsvötnum, tilbúinn í klakið.
Urriði í upp-
sveiflu á ný
UPPBYGGING urriðastofna í
Veiðivötnum, Þórisvatni og
Kvíslaveitum er komin á fleygi-
ferð á nýjan leik eftir að seiða-
sleppingum var hætt í nokkur
ár þar sem vart varð við nýrna-
veikismit í stofninum. Eftir ítar-
legar rannsóknir þykir nú ekki
lengur ástæða til að óttast að
smitið sé af því tagi að hætta
stafi af. Veiði hefur farið þverr-
andi á umræddum svæðum síð-
ustu árin og þótti sérstaklega
slök á nýliðnu sumri. Var ýmsu
kennt um aflabrestinn, ekki síst
netaveiðum á haustin, en það
mun mál kunnáttumanna að
lægðin stafi miklu fremur af því
að seiðasleppingar lágu niðri.
í september var veiddur urriði
í klak í Veiðivötnum, en Veiði-
vatnastofninn er notaður að
uppistöðu á öllum fyrrgreindu
svæðunum. Best gekk að næla
í klakfisk í Hraunsvötnum. Það
er eftirsóttur fiskur í klakið sök-
um vænleika. Fyrir skömmu var
fiskurinn kreistur og strokinn í
fiskeldisstöðinni í Fellsmúla í
Landssveit.
Sveinn Sigurjónsson, bóndi á
Galtalæk 2, umsjónarmaður
Fellsmúlastöðvarinnar sagði í
samtali við blaðið að Veiðifélag
Holtamanna- og Landmannaaf-
réttar væru að gera stórátak í
veiðiskap á þessum slóðum. „Við
erum að ala hérna fyrir þá
170.000 seiði sem sleppt verður
á þessi vatnasvæði. Urriðanum
gengur illa að hrygna í þessum
vötnum, en þessar sleppingar
skipta sköpum og gera svæðin
spennandi veiðivötn. Veiðifélagið
fær seiðin í ýmsum stærðum, frá
8 til 200 grömm. Veiðin ætti að
fara batnandi aftur þama efra,“
sagði Sveinn.
Rannsóknir á Elliðaánum
Hmn í veiði í Elliðaánum á
liðnu sumri er aðeins nýjasti
hlekkurinn í keðjuverkun sem
virðist hafa skotið úr kafi sumar-
ið 1995 er kýlaveikiplágan herj-
aði á laxastofn Elliðaánna.
Reykjavíkurborg samþykkti þá
um haustið að leggja fé í ýmis
konar vistfræðirannsóknir á án-
um sem gætu verið undanfari
aðgerða til að reisa við Elliðaárn-
ar og laxastofn þeirra.
Alls var samþykkt fjárveiting
upp á 4,5 milljónir króna og
hafa síðan fjórþættar rannsóknir
verið í gangi, Líffræðistofnun
HÍ hefur með höndum botndýra-
rannsókn, Veiðimálastofnun
rannsakar röskun búsvæða,
Orkustofnun rannsakar vatnafar
og Raunvísindastofnun HÍ hefur
með höndum efnarannsóknir.
Fyrir liggja tvær skýrslur
Rannsóknarstofnunar iðnaðar-
ins um efnamengun í ánum frá
árunum 1970 og 1971, skýrslur
unnar að tilstuðlan Rafmagn-
sveitu Reykjavíkur. Þær skýrsl-
ur þykja nú mikilvægar viðmið-
anir fyrir þær rannsóknir sem
nú fara fram, en niðurstöðurnar
voru þær að efnamengun var
engin á vatnasvæði Elliðaánna,
súrefniseyðingar varð ekki vart
og vatnið var nánast drykkjar-
hæft. Viðmiðunarskýrslur sem
einnig liggja fyrir eru frá vatns-
bólanefnd sem fjalla um vatna-
svið Elliðaánna, vatnstöku og
grunnvatnsrennsli.
Þessar upj)lýsingar komu
fram í máli Olafs Bjarnasonar
yfirverkfræðings hjá Borgar-
verkfræðingnum í Reykjavík á
ráðstefnu sem Norður-Atlants-
hafslaxasjóðurinn hélt fyrir
nokkru. Olafur sagði, að botn-
dýrarannsókninni myndi ljúka á
þessu ári og reiknað væri með
því að rannsóknir á ám og vötn-
um í borgarlandinu myndu halda
áfram á næstu árum með
svipuðum fjárveitingum og verið
hefur.
PALL PALSSON
Við eigum 20 ára afmæli um þessar mundir.
f tilefni af þvf bjöðum við ykkur að fagna þessum tfmamötum með
okkur og líta um leið á úrvalið okkar af leikföngum fyrir jólin.
VACTION
Lækjargata 30. Hafnartirði. Sfmi: 555 2200 Fax: 555 2207
r
DAGSKRÁ BORGARBÓKASAFNS REYKJAVÍKUR
*
I Ijósaskiptum - Orðið í norðri
Norræna bókasafnavikan hefst með sama liætti og samtímis f bókasöfnum Norðurlanda, kl. 18.00
mánudaginn 10. nóv. nk. Rafljósin verða slökkt, kveikt á kertum og lesinn sami kaflinn úr Egils sögu.
Þeir sem lesa í Borgarbókasafni:
Einar Ólafsson í aflalsafiii,
Jón Böðvarsson í Borgarhókasafninu í Cerðuhergi,
Kristín Marja Baldursdóttir í Foldasafni,
Pjetur Hafstein Lárusson í Bústaflasafni,
Thor Vilhjálmsson í Sólheimasafni.
Annað sem verður á döfrnni þessa viku er:
AÐALSAFN
Þriðjudagur 11. nóv. kl. 15.30
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir les fyrir böm og afhendir verðlaun fyrir bókmenntagetraun. f kjölfarið gefst bömum
tækifæri til að ræða hugmyndir sínar um bamadeild í nýju aðalsafni í Tryggvagötu. Kór Laufásborgar syngur.
Fimmtudagur 13. nóv. kl. 15.30
Furðuleikhúsið sýnir ævintýrið um Hlina kóngsson.
BÚSTAÐASAFN
Fimmtudagur 13. nóv . kl. 15.00
Möguleikhúsið sýnir Búkollu
FOLDASAFN
Þriðjudagur 11. nóv. kl. 14.30
Sögusvuntan sýnir Minnsta tröll í heimi
SÓLHEIMASAFN
Miðvikudagur 12. nóv. kl. 21.15
Ljóðakvöld. Nína Björk Arnadóttir, Óskar Árni Óskarsson
og Jónas Þorbjarnarson lesa fmmsamin og þýdd norræn ljóð.
»; r
■
BORGARBÓKASAFNIÐ í GERÐUBERGI
Fimmtudagur 13. nóv. kl. 17.00—19.00
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Anna Pálína Ámadóttir flytja norræna vísnatónlist.
SELJASAFN
Miðvikudagur 12. nóv. kl. 10.00
Tíu fingur sýnir Sólarsögu.
Fimmtudagur 13. nóv. kl. 14.00
Vilborg Dagbjartsdóttir les fyrir böm.
Lýsing hf.