Morgunblaðið - 09.11.1997, Side 14
14 B SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
Gaman að
taka ahættu
Á SÍÐASTA ári sendi Rúnar Júlíusson frá sér merkilega
skífu, Með stuð í hjarta, þar sem ýmsir þjóðkunnir lista-
menn komu við sögu, ýmist sem laga- eða textasmiðii-
eða flytjendur með Rúnari. Enn leikur Rúnar sama leik,
með tilbrigðum þó, því væntanleg er á næstu dögum skíf-
an Rokk og rólegheit.
Rúnar segist vera með
sitthvað í bígerð í út-
gáfumálum ekki síður en
endranær og meðal annars
gefur hann út upptökur frá
tónleikum ýmissa sveita
sem haldnir voru suðurfrá
undir nafninu Rokkstokk,
breiðskífu JJ Soul
Band og loks áður-
nefnda sólóskífu.
„Rokk og rólegheit
er nokkurskonar
framhald Með stuð í
hjarta, sami plötu-
flokkurinn,
samyrkjuflokkur-
inn, en þó á ég nokkur lög
og texta einn. Að auki
samdi ég lag við texta
Megasar, texta við lag eftir
Jóhann Helgason og annan
texta við lag eftir Sverri
Stormsker, Kristján
Hreinsson gerir nokkra
texta og svo mætti telja.“
Rúnar segir að Með stuð
í hjarta hafi verið safn
mjög ólíkra laga, enda til-
gangurinn með samstarf-
inu, og sé reyndar enn.
„Þegar maður er afkasta-
mikill í að semja lög og
texta og syngja sjálfur er
hætt við að lögin verði
einsleit og ég fann að það
virkaði geysivel fyr-
ir mig að vinna
plötu á þennan hátt.
Ég er líka svo mikill
liðsmaður, allt frá
því ég var í fótbolt-
anum, og hef kunn-
að því mjög vel að
vinna með öðrum;
maður eflist við að vinna
með öðrum og lærir.“
Rúnar segist mjög
ánægður með plötuna, ekki
síst fyrir það hve hún
hljómi vel, enda sé hann
nýbúinn að endumýja tæk-
in í hljóðverinu heima sem
hafi lukkast framar vonum.
Tveir synir Rúnars koma
við sögu á plötunni, Júlíus,
eftir Árna
Motthiasson
i
Morgunblaðið/Ásdís
Rokkari Rúnar Júlíusson.
liðsmaður Deep Jimi, legg-
ur honum lið við upptök-
urnar, á að auki eitt lag og
syngur með og leikur á gít-
ar, og Baldur leikur á
hljómborð. „Mér finnst
gaman að taka áhættu og
þannig er lagið hans Júlíus-
ar verulega frábragðið öðr-
um lögum á plötunni og
jafnvel því sem ég hef gert
áður. Líka stingur lagið
sem ég samdi við texta
Megasar í stúf, enda er það
mjög langt, sjö mínútur.
Eins langt lag hef ég ekki
gert áður, ekki síðan ég var
í Trúbroti að minnsta kosti,
og það var skemmtilegt
verkefni, enda era textarn-
ir hjá Megasi ekkert venju-
legir og sérstakt að syngja
erindi eftir erindi í sjö mín-
útur.“
Rúnar segir að í sjálfu
sér sé einfalt að kynna plöt-
una á tónleikum, hann sé í
starfandi tríói og útsetning-
ar falli flestar vel að þeirri
hljóðfæraskipan, gítar,
bassi, trommur. „Ég á þó
eftir að átta mig á því
hvernig best er að gera
þetta. Mig langaði til að
setja eitthvað upp í fyrra,
en ekkert varð úr, það vora
svo margir flytjendur,
kannski ég finni einhverja
leið til að láta það ganga
upp núna.“
ÞAÐ ORÐ fer af hafn-
firsku hljómsveitinni Stolíu
að leitun sé að eins þéttri
sveit, sem kemur kannski
ekki á óvart eftir þriggja
ára æfingar. I vikunni
kemur út fyrsta breiðskífa
Stolíu, vonum seinna, og
skartar sveitin þá meðal
annars nýlegum hljóm-
borðsleikara.
Stolía flytur spuna-
kennda rokktónlist, en
kjarni sveitarinnar, gítar,
bassi, trommur, varð til
SPU
fyrir þremur árum eða svo.
Fyrir átta mánuðum
ákváðu síðan þremenning-
amir að bæta við sig hljóm-
borðsleikara til að breyta
hljómi sveitarinnar.
Þeir Stolíumenn segjast
skrifa það á eigin leti að
hafa ekki gefið út skífu fyr-
ir langa löngu; „við voram
bara að æfa. Við vorum að
pæla í því að láta hljóm-
sveitina bara heita Æfing,
því við gerðum ekkert ann-
að en að æfa,“ segja þeir og
kíma. „Þetta var orðið full-
mikið, það var komið of
mikið af lögum. Við vorum
farnir að gleyma lögunum
því það vora alltaf að bæt-
ast við og þannig hafa mörg
lög týnst, því við tókum
aldrei neitt upp, við voram
bara að æfa,“ segja þeir og
skella uppúr.
Þeir félagar segjast hafa
æft þrisvar í viku og oftar
Morgunblaðið/ Kristinn
Framúrstefna Hafnfírska rokksveitin Stolía.
ef færi gafst, í þrjú ár.
„Við voram þó ekkert
orðnir leiðir á því að spila
hver fyrir annan, en það
þurfti að skrásetja lög-
in.“
Eins og getið er bætt-
ist Stolíu liðsauki fyrir
átta mánuðum eða svo að
hljómborðsleikari slóst í
hópinn. „Við vildum
breikka hljóminn í sveit-
inni, vorum reyndar bún-
ir að prófa að vera með
þverflautuleikara sem
fór síðan að syngja, en
fannst sem við væram að
fara afturábak í tíma í
stað þess að leita framá-
við. Við vildum meiri
framúrstefnu og um leið
meira jafnvægi í tónlist-
ina. Hljómborðsleikarinn
var líka fljótur að komast
inn í lögin, við endurút-
settum þau eftir því sem
hann stakk upp á hljóm-
borðsköflum og síðan
höfum við samið ný lög á
fullu allir saman.“
Á plötunni nýju er eitt
allgamalt lag, en hin að
mestu ný. Þeir segjast
reyndar semja lög nán-
ast jafnharðan og þeir
æfa, lögin byggist á
spuna hvers fyrir sig og
síðan eru þau fléttuð
saman og köflum raðað
upp. „Við höfum líka ver-
ið að velta fyrir okkur
tölvum, eins og má
reyndar heyra í einu lagi,
sem kom mjög vel út, og
eigum eflaust etir að
pæla meira í þvi, við era
ekkert að loka okkur af í
músíkinni,“ segja þeir og
bæta við eftir smá þögn:
„Platan okkar veldur
straumhvörfum á ís-
lenskum tónhstarmark-
aði.“
Stolía heldur útgafu-
tónleika sína í
Leikhússkjallaranum 20.
nóvember næstkomandi.
LEIKRITIÐ Veðmálið hef-
ur gengið bráðvel í Loft-
kastalanum undanfama
mánuði, en í verkinu er tón-
list áberandi. Á næstu dög-
um kemur út breiðskífa
með lögum úr
verkinu, samnefnd
því, en Emilíana
Torrini sá um laga-
valið.
Emilíana er tón-
listarstjóri
Veðmálsins, valdi
tónlistina í verkið
og á plötuna. Hún
segist hafa valið lög í verkið
eftir framvindunni, en Veð-
málið er sett upp líkt og bíó-
mynd. „Lögin eru aðallega
áhrifshljóð, en líka hluti af
framvindunni í verkinu. Það
var gaman að prófa þetta,
þarf mildð skipulag og aga
og ég þurfti að læra að
skipulegga vinnu mína, en
sem betur fer er ég búin að
gleyma því aftur.“
Émilíana segist harla
ánægð með plötuna, laga-
valið sé skemmtilega fjöl-
breytt, og fráleitt nauðsyn-
legt að hafa séð sýninguna
til að njóta plötunnar. „Það
er samt skemmtilegra, því
þá rifjast svo margt upp fyr-
ir manni þegar mað-
ur hlustar á hana.“
Auk erlendra laga
era íslensk lög á
plötunni, þar á með-
al fjögur sem Emilí-
ana syngur. Tvö
þeirra eru reyndar á
ensku í samræmi við
leikritið, en hún seg-
ir að einn íslenski
textinn hafi verið svo góður
að ekki hafi verið hægt að
snara honum á ensku. Emil-
íana syngur eitt lag með
Bimi Jörundi Friðbjörns-
syni, eitt lag með hljóm-
sveitinni Kanada og síðan er
aukalag á plötunni, lag sem
hún syngur í Perlum og
svínum. „Það var beðið svo
mikið um það lag að okkur
þótti rétt að láta það fjóta
með, og gaman að eiga það í
safninu."
Safngripur
QUARASHI-flokkurinn sendi fyrir skemmstu frá sér
breiðskífu samnefnda sveitinni, en þegar platan var tekin
upp var eitt lag hljóðritað til viðbótar sem ekki var á
disknum.
Það lag var svo gefið út
fyrir skemmstu á 12“ í
mjög takmörkuðu upplagi,
því aðeins vora framleidd af
þeirri plötu 100 eintök. Þau
eru víst öll uppseld og að
sögn uppseld áður en þau
bárust til landsins. Á a-hlið
plötunnar er lagið Force,
sem ekki verður gefið aftur
út, og á b-hlið lögin Super-
woman og S.I.T.E., en þau
eru bæði á disknum.