Morgunblaðið - 23.12.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997 B 3
ÍÞRÓTTIR
Samtök íþróttafréttamanna útnefna íþróttamann ársins í 42. sinn
Guðrún Halldór Jón Arnar Kristinn Ólafur Sigurbjörn
Sex af tíu einnig meðal
stigahæstu síðast
Birgir Leifur Geir
NÖFN þeirra tíu stigahæstu í
kjöri Samtaka íþróttafrétta-
manna á íþróttamanni ársins voni
tilkynnt í gær.
Kjörinu verður lýst í hófi á
Hótel Loftleiðum í Reykjavík
mánudaginn 29. desember næst-
komandi og verður það í 42. skipti
sem Samtök íþróttafréttamanna
standa að kjörinu, en þau voru
stofnuð 1956.
Eftirtaldir íþróttamenn urðu í
tíu efstu sætunum í kjörinu að
þessu sinni, og eru nöfn þeirra
birt í stafrófsröð:
•Birgir Leifur Hafþórsson,
kylfingur úr Leyni á Alo-anesi.
•Geir Sveinsson, handknattleiks-
maður úr Wuppertal í Þýska-
landi.
•Guðrún Amardóttir, frjálsí-
þróttamaður úr Armanni í
Reykjavík.
•Halldór Svavarsson, kara-
temaður úr Karatefélagi
Reykjavíkur.
•Jón Arnar Magnússon, frjálsí-
þróttamaður úr Tindastóli á
Sauðárkróki.
•Kristinn Björnsson, skíðamaður
úr Leiftri á Ólafsfirði.
•Ólafur Stefánsson, handknatt-
leiksmaður úr Wuppertal í
Þýskalandi.
•Sigurbjöm Bárðarson, hestaí-
þróttamaður úr Fáki í Reykja-
vík.
•Vala Flosadóttir, frjálsíþrótta-
maður úr ÍR í Reykjavík.
•Öm Amarson, sundmaður úr
Sundfélagi Hafnarfjarðar.
Sex þessara íþróttamanna voru
einnig á lista yfír tíu stigahæstu í
fyrra; Birgir Leifur Hafþórsson,
Geir Sveinsson, Guðrún Arnar-
dóttir, Jón Arnar Magnússon -
sem þá var kjörinn íþróttamaður
ársins fyrir 1996, og hefur reynd-
ar hlotið nafnbótina tvö síðustu ár
- Kristinn Björnsson og Vala
Flosadóttír.
„Tuttugu og einn félagi er nú í
Samtökum íþróttafréttamanna;
frá Morgunblaðinu, DV, Ríkisút-
varpinu [útvarpi og sjónvarpij, ís-
lenska útvarpsfélaginu (Stöð 2,
Bylgjunni og Sýn) og Degi. Hver
félagsmaður í samtökunum setur
saman lista með nöfnum 10
íþróttamanna og þeim em síðan
gefin stig skv. reglugerð um kjör-
ið,“ segir í frétt frá samtökunum.
Þar segir ennfremur: „í hófinu
29. desember verða tíu efstu
íþróttamenn í kjörinu heiðraðir
með veglegri bókagjöf frá Máli og
menningu eins og síðustu ár og
þrír efstu fá eignargripi. Helstu
styrktaraðilar SI vegna kjörsins
að þessu sinni eru Mál og menn-
Vala Öm
ing og hótel Loftleiðir. Iþrótta-
maður ársins fær svo vitaskuld til
varðveislu styttuna glæsilegu,
sem fylgt hefur nafnbótinni frá
upphafi.“
Þess má geta að meðal þeiiTa
sem boðið er að vera viðstaddir
útnefningu íþróttamanns ársins
eru allir þeir sem borið hafa þann
titil. Vilhjálmur Einarsson, frjáls-
íþróttamaður, var fyrstur út-
nefndur íþróttamaður ársins
1956, eftir að hann vann til silfur-
verðlauna í þrístökki á Ólympíu-
leikunum í Melboume, og hefur
hlotið titilinn oftast allra, fimm
sinnum. Einar, spjótkastari, son-
ur Vilhjálms og Hreinn Halldórs-
son, kúluvarpari, hafa báðir þrí-
vegis orðið fyrir valinu.
Hóf Samtaka íþróttafrétta-
manna á hótel Loftleiðum 29. des-
ember hefst kl. 21 og verður í
beinni útsendingu ríkissjónvarps-
ins.
AMERÍSKI FÓTBOLTINN
Sanders
nær O.J.
Simpson
DEILDARKEPPNINNI í NFL
fótboltanum lauk um helgina
og hefst úrslitakeppnin um
næstu helgi. Leikur helgar-
innar var í Detroit þar sem
Ijónin tóku á móti New York
Jets.
etta var eini leikurinn þar sem
bæði lið þurftu á sigri að halda
til að komast í úrslitakeppnina. Að
auki var Barry Sanders hjá Detroit
- sem af mörgum er talinn besti
ruðningsmaður (þ.e. að hlaupa með
knöttinn gegnum varnarmúrinn)
allra tíma - að berjast við að slá
met.
New York byrjaði vel, komst í
10:0 í fyrri hálfleik, en Detroit náði
loks að koma sóknarleiknum í gang
um miðjan seinni hálfleik þegar
Sanders náði að brjóta vamarmúr
Jets í tvígang. Hann skoraði
snertimark og kom liði sínu yfir,
13:10. New York fékk tækifæri tií
að ná forystu á lokamínútunum, en
dómarar leiksins fóru illa að ráði
sínu þegar þeir dæmdu Detroit
boltann þegar New York átti hann
með réttu. Þar með var sigur Lions
í höfn og liðið komið í úrslitakeppn-
ina.
Sanders hljóp 184 jarda með
tuðruna í leiknum og náði alls 2.053
jördum á keppnistímabilinu. Þetta
er næstbesti árangur í sögu deild-
arinnar á einu keppnistímabili.
Þess má geta að Sanders fór fram
úr O.J. nokkrum Simpson í annað
sætið (O.J. lék tveimur leikjum
minna)! Það skyggði nokkuð á af-
rek Sanders - og sigur Lions - að
Reggie Brown, sem leikur í sóknar-
línunni, rakst harkalega á mótherja
og fékk þungt högg á höfuðið.
Brown missti andann og þurftu
læknar að lífga hann við inni á vell-
inum áður en hann var fluttur á
sjúkrahús. Hann var farinn að anda
af eigin rammleik og hafði tilfinn-
ingu í útlimum á sunnudagskvöld.
„Það er erfitt að hugsa um met og
úrslitakeppni þegar Reggie er að
berjast fyrir lífi sínu úti á vellinum.
Hugur minn er nú hjá honum og
fjölskyldu hans,“ sagði Sanders eft-
ir leikinn og tóku þjálfarar og leik-
menn beggja liðanna í sama streng
eftir leikinn. Þess má geta að fyrr-
verandi leikmaður Jets, Mike
Utley, lamaðist eftir svipað atvik
íýrir um þremur árum.
Víkingarnir frá Minnesota unnu
góðan sigur á Indianapolis, 39:28,
og komust þar með í úrslit. Sigrar
Detroit og Minnesota kostuðu
Washington Redskins hins vegar
sæti í úrslitakeppninni, þrátt fyrir
sigur liðsins á Philadelphia Eagles,
35:32. Annað hvort þeirra varð að
tapa til að Minnesota kæmist í úr-
slitakeppnina.
Tap New York gerði það að
verkum að New England Patriots
og Miami Dolphins komast bæði í
úrslitakeppnina. Þau leika mánu-
dagsleikinn.
Tampa Bay ti-yggði sér heima-
leik í úrslitakeppninni eftir 31:15
sigur á Chicago Bears. Þetta var tí-
Reuters
BARRY Sanders hjá Detroit á fullri ferð með knöttinn í leiknum gegn New York Jets.
undi sigur Tampa Bay í ár, sem er
liðsmet. Liðið er nú í úrslitakeppn-
inni í fyrsta sinn í átján ár.
Aðrir leikir höfðu ekkert að
segja um sæti í úrslitakeppninni og
tóku sum liðin leiki sína ansi létt.
Þannig töpuðu San Francisco og
Pittsburgh leikjum sem liðin hefðu
sennilega unnið annars.
Loks er þess að geta að Dallas
Cowboys var rassskellt heima af
New York Giants, 20:7, eftir að
gestirnir höfðu náð 20:0 forystu í
hálfleik. Dallas tapaði síðustu
fimm leikjum sínum. „Hér þurfa
að verða miklar breytingar ef við
ætlum að snúa dæminu við á
næsta ári,“ sagði Troy Aikman,
leikstjórnandi Dallas, eftir leikinn.
Urslitakeppnin hefst um næstu
helgi. Sex lið úr hvon-i deild keppa.
Tvö bestu liðin úr hvorri deild sitja
hjá í fyrstu umferð.
I Landsdeild sitja Green Bay
Packers og San Francisco 49ers
hjá, en New York Giants fær
Minnesota Vikings í heimsókn á
laugardag og Detroit Lions sækir
Tampa Bay Buccaneers heim á
sunnudag. I Ameríkudeild sitja
Kansas City Chiefs og Pittsburgh
Steelers hjá. Denver Broncos tek-
ur á móti Jacksonville Jaguars á
laugardag og New England Patr-
iots og Miami keppa á sunnudag-
inn. Það lið sem vinnur mánudags-
leik þessara sömu liða fær heima-
leik. Liðin sem sitja hjá í fyrstu
umferð fara nær undantekningar-
laust í úrslitaleikinn sjálfan.
Grindavík
gegn Haukum
GRINDVÍKINGAR mæta
Iiaukum í 8-liða úrslitum i bik-
arkeppni karla í körfuknatt-
leik, en liðin skipa nú efstu
sætin í úrvalsdeildinni. Leikið
verður í Grindavík 10. janúar.
Njarðvíkingar fá Skagamenn í
heimsókn, Valur leikur gegn
Stjörnunni og ÍR-ingar fara til
ísafjarðar, mæta þar KFÍ.
Bikarmeistarar kvenua,
Keflavík, fær KFÍ í heimsókn
11. janúr, ÍR og ÍS mætast og
KR tekur á móti Grindavík.
Skallagrímur situr yfir.