Morgunblaðið - 23.12.1997, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.12.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997 B 5 IÞROTTIR KNATTSPYRNA / ENGLAND itórleik með Essen og skoraði ekki gegn Magdeburg. ■eks línumaður Dormagen. Róbert lék eingöngu í sókninni, gerði ekkert mark en fiskaði nokkur vítaköst. „Héðinn lék stórvei og jók mjög á bitið í sókninni hjá okkur og von- andi náum við að fylgja þessu eft- ir.“ Dormagen var 19:15 yfir í hálf- leik og að sögn Róberts náðu leik- menn Massenheim að saxa á for- skotið undir iokin og áttu möguleika á að jafna er 15 sekúndur voru eftir en Andreas Thiel fyrrverandi landsliðsmarkvörður varði skot Frakkans Frederic Volle 15 sekúnd- um fyrir leikslok. Ólafur Stefánsson skoraði 7 mörk, þar af 2 úr vítaköstum, er Wuppertal gerði 24:24 jafntefli við Rheinhausen á heimavelli. Geir Sveinsson skoraði ekki. Ólafur lék lengst af á miðjunni þar sem Rolf Prati leikstjórnandi var veikur og fór út af eftir 10 mínútna leik. Við það að Ólafur kom inn á miðjuna batnaði leikur Wuppertal sem var 14:10 undir í hálfleik. Róbert Julian Duranona gerði tvö mörk er Eisenach gerði Lemgo skráveifu með því að halda jöfnu 24:24. Þar með féll Lemgo úr efsta sæti deildarinnar niður í annað en Kiel trónar á toppnum með stigi meira, 22, eftir 14 leiki. Kiel lagði Nettelstedt 33:29 á útivelli. Konráð Olavson kom ekkert við sögu er lið hans Niederwúrzbach sigraði Alfreð Gíslason og læri- sveina hans í Hameln 34:29 á heimavelli Hameln. Cole og Schmeichel brostu í Newcastle „VIÐ vorum niðurlægðir á heima- velli, það var ekkert flóknara," sagði Bjarki Sigurðsson, ieikmaður Drammen, eftir að félagið féll úr leik í undanúrslitum norsku bikar- keppninnar um helgina eftir að hafa tapað í tvígang fyrir Sande- fjord, samtals með markatölunni 58:40. Leikurinn sem Bjarki vitnar til var síðari viðureignin sem fram fór á sunnudaginn og Drammen tapaði með 14 marka mun, 30:16. Fyrri leikurinn sem var háður í Sandefjord á laugardaginn var mun skemmtilegri fyrir Bjarka og fé- laga. Jafnt var lengi leiks og aðeins munaði einu marki í hálfleik, 14:13. Heimamenn voru sterkari er á leið og fögnuðu fjögurra marka sigri 28:24. „Eftir fyrri leikinn töldum við að ákveðnir möguieikar væru í stöð- unni, en þegar á hólminn var kom- ið vorum við afar slakir og fengum heldur betur að kenna á því,“ sagði Bjarki. „Á sama tíma og allt gekk upp hjá þeim fóru allt I handaskol- um þjá okkur og við vorum niður- lægðir á heimavelli fyrir framan fjölda stuðningsmanna," bætti Bjarki við en hann gerði sex mörk í hvorum leik. „Við erum i miklum öidudal um þessar mundir og \jóst að við verðum að rífa okkur upp á nýju ári.“ Bjarki sagði ennfremur að mikið hefði verið um alvarleg meiðsli hjá leikmönnum Drammen, en það væri engin afsökun fyrir þessari útreið. Nú væru þeir sem meiddir hefðu verið að koma inn í iiðið einn af öðrum fyrir utan tvo sem væru með slitin krossbönd í hné og væru ekki væntanlegir til leiks á næstunni. Bjarki kemur til fslands í dag en heldrnr út á ný á mánudaginn 29. Þá taka við æfingar og fyrsti leikur- inn á nýju ári verður 4. janúar gegn Stavanger á heimavelli. „Það er víst rétt að fara varlega i jólasteik- urnar heinia." í hinni viðureign undanúrslit- anna hafði Runar betur gegn Stav- anger, samtals 50:44. Runar hafði betur í fyrri leiknum á heimavelli, 50:44, en tapaði í Stavangri 27:25. Það verður því nágrannaslagur í úrslitum norsku bikarkeppninnar 7. febrúar er Sandefjord og Runar mætast en síðarnefnda liðið er einn- ig frá Sandefjord. ÁHANGENDUR Newcastle á St. James’ Park gerðu Andy Cole, fyrrverandi hetju liðsins, lífið leitt á sunnudag en hann lét það ekki á sig fá og svaraði fyrir sig með glæsilegu skallamarki um miðjan seinni hálfleik, sem reyndist eina mark leiksins. Peter Schmeichel var frábær í marki Manchester United og átti stóran þátt í að liðið er með fjögurra stiga forystu á toppi ensku úrvals- deildarinnar. Aliðnu tímabili vann Newcastle 5:0 í viðureigninni við United, en þótt liðið ætti sér þann draum að endurtaka leikinn var hann ekki raun- hæfur. Samt sem áður fengu heima- menn tvö mjög góð marktækifæri, sem undir venjulegum kringumstæð- um hefðu gefið mark, en Schmeichel var ótrúlegur á milli stanganna og varði frábærlega eftir skalla frá John Barnes í fyrri hálfleik og frá Stuart Pearce eftir hlé. United er þekkt fyrir að refsa mót- heijunum fyrir mistök og gerði það að þessu sinni. Pearce tók auka- spyrnu, sendi boltann inn í teiginn, en gestirnir sneru vörn í sókn. David Beckham fékk boltann út á hægri væng, gaf fyrir á fjærstöng og Cole skallaði af öryggi í netið út við stöng, vinstra megin við Shaka Hislop, sem átti ekki möguleika á að veija. Hins vegar var hann vel á verði þegar Ryan Giggs komst í ákjósanlegt færi skömmu síðar. Faustino Asprilla fékk tækifæri til að jafna í nánast síðustu spyrnu ieiks- ins en lyfti ekki aðeins yfir Schmeich- el heldur lfka markið. Newcastle hefur ekki fagnað sigri í síðustu fimm leikj- um og er 18 stigum á eftir United en Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri liðsins, var ánægður með frammistöðu manna sinna. „Við gerðum meira en að standa í þeim og með smá heppni hefðum við að minnsta kosti getað náð jafntefli.“ Alex Ferguson, stjóri United, sagði að lið sitt hefði fengið þijú óverðskuld- uð stig. „Án Peters Schmeichels og Garys Pallisters hefðum við tapað. Við getum gert mun betur en þetta.“ Góður sigur Blackburn Damien Duff, _ 18 ára unglinga- landsliðsmaður írlands, gerði tvö mörk í seinni hálfleik þegar Blackburn vann West Ham 3:0. Stuart Ripley gerði fyrsta markið með skalla um miðjan fyrri hálfleik, fyrsta mark hans síðan í apríl 1994. Blackburn, sem er í öðru sæti, lék vel og hafði völdin allan tímann. West Ham átti einfaldlega við ofurefli að etja og ekki bætti úr skák þegar fyrir- liðinn Steve Lomas varð að fara af velli með rautt spjald fyrir mótmæli skömmu fyrir miðjan seinni hálfleik. Lundúnaliðið sigraði Barnsley á úti- velli í fyrstu umferð en hefur ekki náð að endurtaka leikinn síðan. Chelsea á fullri ferð Chelsea er í þriðja sæti, stigi á eft- ir Blackburn, en liðið sótti Sheffield Wednesday heim og vann 4:1. Vialli var í byrjunarliði Chelsea í annað sinn síðan 21. september sl., lagði upp tvö mörk og gerði eitt. Dan Petrescu skor- aði í fyrri hálfleik og gestirnir náðu öruggri stöðu áður en seinni hálfleikur var hálfnaður. Chelsea hefur gert 45 mörk í 19 leikjum og stjórinn Ruud Gullit var kátur. „Við eigum möguleika á að skora hvar sem við leikum og ekki eru alltaf sömu leikmennirnir að verki. Svo getum við líka varist." Ron Atkin- son, starfsbróðir hans hjá Sheffield, mátti þola fyrsta tapið á heimavelli og sagði að þetta hefði verið rassskell- ing. „Við lékum á heimavelli en strák- arnir í Chelsea gætu haldið að þetta hafi verið æfingaleikur. Ég vil sjá meiri sigurvilja en þetta.“ Tottenham sigraði Fyrir viðureign Tottenham og Barnsley höfðu heimamenn tapað sex af síðustu sjö leikjum en eftir 17 mín- útur var staðan 3:0 þeim í vil og þau urðu úrslitin. Daninn Allan Nielsen gerði umdeilt mark snemma leiks - gestirnir biðu eftir að veifað yrði á rangstöðu - en það var David Ginola sem gerði gæfu- muninn með tveimur mörkum. Þungu fargi var af áhangendum Spurs létt en Barnsley bíður vart annað en fall. Fögnuður í Liverpool Everton hafði ekki skorað í fjórun leikjum í röð og ekki fagnað sigri í útivelli síðan 16. desember í fyrra, et- gerði góða ferð til Leicester og vam 1:0 - Speed skoraði úr vítaspyrni undir lokin. „Þetta hefur verið lön/ bið,“ sagði Howard Kendall, sem fe næst með sína menn á Old Trafforc Michael Owen skoraði hjá Coventr, á Anfield eftir stundarfjórðung og þa> reyndist sigurmarkið. Vel var ac markinu staðið og undirbúningui Steves McManamans góður, en Li verpool tókst ekki að fylgja þessu eftir Miller bjargaði Palace Hermann Hreiðarsson og samheija í Crystal Palace náðu markalausi jafntefli í Derby. Þeir geta fyrst oj fremst þakkað markverðinum Kevii., Miller fyrir stigið, en hann varði ve hvað eftir annað. Palace var án lykil manna; Neil Shipperley er meiddu. eins og Attilio Lombardo og Michek Padovano en Marc Edworthy var Ieikbanni. Southampton krækti í stig í Birm- ingham, gerði 1:1 jafntefli við Astoi Villa, og er í fjórða neðsta sæti. Iai Taylor skoraði fyrir heimamenn un miðjan seinni hálfleik en Egil Östen stad, sem hefur aðeins fimm sinnun verið í byijunarliðinu og kom inná 1( mínútum fyrir hlé, jafnaði skömmi* síðar. Mörkin glöddu í Leeds Guðni Bergsson og samheijar Bolton máttu sætta sig við 2:0 tap Leeds. Leikurinn þótti ekki augna yndi en mörk Brunos Ribeiros oj Jimmys Hasselbainks í seinni hlutí síðari hálfleiks glöddu áhorfendur Arnar Gunnlaugsson kom ekki inní hjá gestunum. Spjöldin voru á lofti eins og svc oft áður þegar þessi lið hafa átt hlut en leikmenn Leeds hafa fengic flest gul spjöld í deildinni, 46 sam tals, og Bolton er næst með 37 áminn ingar. ■ Úrslit / B6 ■ Staðan / B6 IVGUUÍIb GRAEME Le Saux, leikmaður Chelsea, í baráttu við lan Nolan, Sheff. Wed.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.