Morgunblaðið - 23.12.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.12.1997, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Kaiserslautem og Bayem í sévflokki Reuters LOTHAR Matthaus, Dietmar Hamann og Thorsten Fink, leik- menn Bayern, fagna í Wolfsburg. Kaiserslautern og Bayern Miinch- en áttu í erfiðleikum með mót- herja sína í þýsku deildinni um helgina en höfðu sigur áður en yfir lauk og stefnir í einvígi þeirra um titilinn. Kais- erslautem fer í vetrarfríið með 45 stig eftir 20 leiki en Bayern er með 41 stig. Danski landsliðsmaðurinn Michael Schjönberg tryggði Kaiserslautern 3:2 sigur á Köln með marki átta mínútum fyrir leikslok en skömmu áður hafði Toni Polster jafnað fyrir gestina. Uppselt var í Kaiserslautern, 38.000 manns, og sáu áhorfendur mikinn spennuleik. „Þetta var frábær leikur og mikil skemmtun fyrir áhorfendur en ekki fyrir þjálfarana, við áttum að gera út um þetta í fyrri hálfleik," sagði Otto Rehhagel, þjálfari Kaiserslautern, sem sló á sögusagnir um að hann væri að fara frá félaginu - sagðist hafa gert nýjan samning til tveggja ára og því yrði hann áfram til ársins 2000. „Á sama tíma fyrir ári vorum við á toppnum en það var í 2. deild. Strákamir hafa barist allt árið fyrir því að eiga gleðileg jól og ég vona að við getum haldið þessu áfram eftir frí- ið,“ sagði Rehhagel, sem viðurkenndi að það hefði verið eiginkona hans sem réð mestu um að hann gerði nýjan samning við Kaiserslautern. „Hún sagði að ég hefði unnið gott starf hér og ætti að halda því áfram.“ Kaiserslautern átti leikinn en sem fyrr var helsti veikleiki liðsins í vörn- inni í tengslum við gagnsóknir mót- herjanna. Marian Christow skoraði fyrir heimamenn um miðjan fyrri hálfleik en Dorinel Munteanu jafnaði fyrir hlé. Thomas Riedl gerði annað mark heimamanna eftir klukkustund- arleik en Polster svaraði fyrir gestina áður en Schjönberg skallaði í netið. „Ekki vefst fyrir neinum að Kaisers- lautern átti skilið að sigra,“ sagði Lorenz-Gúnter Köstner, þjálfari Köln, „en okkur tókst að gera tvö mörk úr báðum góðu færum okkar.“ Vamarmaðurinn Marian Kuffour tryggði Bayern 3:2 sigur í Wolfsburg, skoraði 11 mínútum fyrir leikslok, en Bayem komst í 2:0 í fyrri hálfieik, „Þetta var mjög mikilvægur sigur fyr- ir okkur,“ sagði Giovanni Trapattoni, þjálfari Bayern. „Auðvitað er ég ánægður. Leikurinn var spennandi og mikilvægt var að bilið á milli okkar og Kaiserslautern breikkaði ekki.“ Claudio Reyna gerði fyrra mark Wolfs- burg rétt fyrir hlé og Detlef Dammeier jafnaði strax í byijun seinni hálfleiks. „Liðið sýndi frábæra baráttu og við voram nálægt því að ná foiystunni en Oliver Kahn varði oft meistaralega," Ekki dagur- inn okkar „ÞETT A er ekki dagurinn okkar - fyrst erum við rass- skelltir af leikmönnum Bayer Leverkusen og síðan drög- umst við gegn Bayem Miinc- hen í undanúrslitum bikar- keppninnár," sagði Búlgarínn Krassimir Balakov, miðvallar- spilari Stuttgart, sem mátti þola stóran skell í leik gegn Leverkusen, 6:1. Eftir það var dregið í bikarkeppninni og verður það hlutskipti leik- manna Stuttgart að leika gegn Bayern á Ólympíuleikvangin- um í MUnchen, en í hinum undanúrslitaleiknum leika Trier og Duisburg. sagði Willi Reimann, þjálfari heima- manna. Stuttgart er í þriðja sæti 10 stigum á eftir Kaiserslautem, en liðið mátti þola stóran skell í Leverkusen, tapaði 6:1. Christoph Daum, þjálfari Leverk- usen, sem skrifaði undir samning við Rangers ruddi Hearts úr efsta sæti skosku úrvalsdeildarinnar og kom sér þar fyrir í staðinn eftir 5:2 sigúr á Edinborgarliðinu. Celtic vann Hibernian 5:0 og er í öðru sæti með 38 stig, stigi á eftir Rang- ers. Hearts, sem er með 37 stig, hefur tapað öllum Ijóruin leikjunum á móti stórveldunum Celtic og Rangers. Meistarar Rangers sýndu að þeir ætla sér titilinn 10. árið í röð og léku á als oddi. Gordon Dure var frábær og var með þrennu en Marco Negri gerði 31. mark sitt á tímabilinu úr vítaspymu og Jorg Aibertz fann líka réttu leiðina. Rangers var óstöðvandi þrátt fyrir að lykilmenn vantaði. liðið til ársins 2001, sagðist ætla að gera Leverkusen að eins sterku liði og Bayern Múnchen og Dortmund. Daum, sem er fyrrum þjálfari Stuttgart, lét taka Búlgarann Balakov úr umferð og við það varð leikur Stuttgart-liðsins máttlaus. Markvörðurinn Andy Goram var ekki með frekar en fyrirliðinn Richard Gough, Paul Gascoigne eða Jonas Thern. íslendingamir ekki með Ólafur Gottskálksson og Bjarnólf- ur Lárusson voru ekki í liði Hibernian, sem sá ekki til sólar í Glasgow. Craig Burley braut ísinn um miðjan fyrri hálfleik og hann átti líka síðasta orðið en þess á milli skoruðu Morton Wieghorst, Jackie McNamara og Henrik Larsson. Hibs hefur ekki sigrað í liðnum 13 leikjum og er í næstneðsta sæti. „Ég lagði mikið á mig til að fá þetta starf og ég ætla að halda því,“ sagði Lehmann með tíma- mótamark JENS Lehmann, markvörður Schalke, sem skoraði jöfnun- armark liðsins gegn Dort- mund með skalla á elleftu stundu, 2:2, skoraði þar með tímamótamark i Þýskalandi. Hann er fyrsti markvörður- inn til að skora mark í leik í 1. deildarkeppninni, áður hafa nokkrir markverðir skorað úr vítaspyrnu. Uppselt á fimm leiki ÞRÁTT fyrir kulda í Þýska- landi um helgina, var uppselt á fímm leiki - í Leverkusen, Wolfsburg, Bielefeld, Dort- mund og Kaiserslautern. Þetta sýnir hvað áhuginn er mikill í Þýskalandi. Bæjarar óhressir FORRÁÐAMENN Bayern Milnchen eru afar óhressir með að þýski landsliðsmaður- inn Christian Nerlinger hef- ur ákveðið að fara til Dort- mund eftir þetta keppnis- tímabii - hefur skrifað undir þriggja ára samning. Nerl- inger segir að hann te\ji sig eiga meiri möguleika á að tryggja sér fast sæti í lands- liðinu með þvi að leika með Dortmund. Þess má geta að hann er fyrsti leikmaðurinn, sem Bæjarar vilja halda, sem fer frá Bayern. stjórinn Jim Duffy, en bætti við að það væri stjórnarinnar að ákveða hvort hann yrði áfram. Wim Jansen, þjálfari Celtic, var ánægðari. „Við gerðum mörkin sem ég beið eftir en það fyrsta skipti öllu máli því mótheijarnir byijuðu vel. Við verðum að einbeita okkur að næsta leik, á móti St. Johnstone, og hann er mikilvægari en heimaleikur- inn við Rangers 2. janúar.“ Sigurður Jónsson er meiddur og lék ekki með Dundee United sem vann St. Johnstone 2:1. ■ Úrslit / B6 ■ Staðan / B6 Rangers endur- heimti efsta sætið HANDKNATTLEIKL PATREKUR Jóhannesson átti s tólf mörk, en það dugói Pati Héðinn Gilsson byijaði mjög vel í fyrsta leik sínum með Bay- er Dormagen, gerði 7 mörk er liðið sigraði Waliau Massenheim, 31:30 á heimavelli. Þar með er Dormagen komið upp í úr fallsætinu. Þar sit- ur aftur á móti Essen eftir eins marks tap, 27:26 fyrir Magdeburg. Patrekur Jóhannesson átti stórleik með Essen, gerði 12 mörk úr 14 skotum. „Mér gekk mjög vel og sannaði fyrir þjálfaranum að ég á að vera með í sókninni,“ sagði Patrekur. Patrekur sagði að íjarvera Aleks- anders Tutschkins hefði komið illa niður á leik Essen. Essen var þremur mörkum yfir í hálfleik, 12:9 og hafði yfirhöndina allt þar til nokkrar mínútur voru eftir. „Þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum tóku leikmenn Magdeborgar mig og miðjumanninn Piotr Przybecki úr umferð og það var meira en við þoldum." Héðinn Gilsson svaraði kalli forráðamanna Bayer Dormagen með því að ieika við hvurn sinn fingur gegn Wallau Massenheim á heimavelli. Hann skoraði fyrsta mark leiksins og fylgdi eftir með fimm til viðbótar áður en fyrri hálfleikur var úti. í síðari hálfleik var hann tekinn úr umferð lengst af og náði aðeins að gera eitt mark. „Koma Héðins hafði góð áhrif á hornamanninn okkar, Nik- olai Jakobsen, sem ekki hefur leik- ið betur í vetur og gerði fjórtán mörk,“ sagði Róbert Sighvatsson,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.