Morgunblaðið - 23.12.1997, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997 B 7J>
Körfuknattleikssnillingurinn Michael
Fannst
ég allt
í einu
gamall
KOBE Bryant hjá Los Angeles Lakers, sem margir hafa kall-
að næsta Jordan, hefur verið í sviðsljósinu í NBA-deildinni í
vetur. Kóngurinn Michael Jordan var hrifinn af leik Bryants í
sl. viku og sagði hann hafa mikla hæfileika. „Ég var hrifinn
af því þegar hann kom til mín inni á veliinum og spurði mig
hvernig ég léki með boltann valdaður undir körfunni. Mér
fannst ég allt í einu gamall þegar hann spurði mig um
þetta,“ sagði Jordan.
Uppselt 500.
leikinn í röð
UPPSELT var á heimaleik
Chicago í 500. skipti í röð í
sl. viku. Aðeins tvö lið hafa
leikið fleiri leiki í röð fyrii'
fullu hiísi. Portlanð lék 814
ieiki í röð og Boston 662.
þess má geta að United
Center í Chicago tekur yfu'
21.700 manns í sæti.
Sabonis besti
Evrópubúinn
ARVIDAS Sabonis frá
Portland var kosinn „Herra
Evröpa“ af ítalska tímarit-
inu Gianti del Basket. Orð-
una fær besti evrdpski ieik-
maðurinn livert ár, að mati
blaðsins. þetta er í annað
sinn sem Sabonis vinnur
þennan titil. Toni Kukoe lijá
Chicago varð annar í vali
blaðsins að þessu sinni, en
hami er eiui leikmaðurinn
sem hefur unnið þennan titil
þrisvar.
Bannað
að blóta
FORRÁÐAMENN NBA
deildai'innar sendu liðunum
nýlega oi'ðsendingu um að
ieikmenn og þjálfarar sem
blótuðu of inikið í leikjum
yrðu ná sektaðir um 2500
daii, tæpar 180 þúsund lirón-
ur, og ættu yfir höfði sér
bann. „Við skiljum að i hita
leiksins segja menn ýmisiegt,
en þegar amiaðlivert orð út
lír mönnuin er lilótsyrði er
kominn tími að taka í
taumana," sagði Rod Thorn,
en hann sér um slík mál fyrir
deildina. Leikmemi liafa
aldrei áður verið sektaðir
fyrir blótsyrði. Þetta keinur í
kjölfar reglna um sídd buxna
leikmanna. Mai-gir yngri
leikmenn hafa vertð sektaðir
fyrir að vera í of síðuin stutt-
buxuin, en reglan í ár er ein
tonima yfir hné!
N
ú þegar um þriðjungi af deild-
arkeppninni er lokið í NBA
deildinni er
Gunnar
Valgeirsson
skrífar frá
Bandaríkjunum
vert að athuga
frammistöðu liða
og bera saman við
spár sem gerðar
voru fyrir keppnis-
tímabilið. í Austur-
deildinni hefur
frammistaða Chicago Bulls valdið
mörgum vonbrigðum, en liðið hef-
ur tekið við sér undanfarnar tvær
vikur og Scottie Pippen mun
sennilega hefja keppni fljótlega
eftir áramót. Hann hefur reyndar
sýnt sitt rétta andlit á undanförn-
um vikum með yfírlýsingum um að
forráðamönnum liðsins sé ekki
treystandi og að hann vilji frekar
keppa annars staðar. Þetta kom
Miehael Jordan og þjálfaranum
Phil Jackson á óvart, en þeir
ákváðu báðir að koma vera með í
ár eftir samkomulag við Pippen
um að hann myndi einnig spila sitt
síðasta keppnistímabil á núverandi
samningi sínum við liðið. Jordan
sagði nýlega að Pippen ætti að
hætta árásum á forráðamenn liðs-
ins og standa við loforð sín. Eftir
þessi ummæli Jordans virtist sem
Pippen skildi betur stöðuna og svo
virðist sem hann muni spila með
liðinu þegar hann verður orðinn
góður af meiðslum sínum.
Atlanta og Cleveland hafa bæði
komið á óvart með góðum leik það
sem af er. Varamannabekkur Atl-
anta var talinn veikur, en sú hefur
ekki orðið raunin. Miðherjinn Di-
kembe Mutombo hefur aldrei leik-
ið betur í sókn en nú (hann skorar
um 16 stig í leik). „Lenny Wilkens
[þjálfari Atlanta] sagði við mig eft-
ir síðasta keppnistímabil að hann
þyrfti að treysta meira á mig í
sókninni og í sumar einbeitti ég
mér að sóknarleiknum," sagði Mu-
tombo nýlega.
Cleveland umturnaði liði sínu og
leikur mun skemmtilegar en á síð-
asta keppnistímabili. Shawn Kemp
(frá Seattle) og Wesley Person (frá
Phoenix) hafa báðir komið vel út,
en mest á óvart hefur þó komið
leikstjórn nýliðans Brevins
Knights. Hann er einn besti nýlið-
inn í ár.
Loks er að geta frammistöðu
Indiana Pacers undir stjórn
Larrys Birds. Liðið byrjaði keppn-
istímabilið afleitlega, en það hefur
Jordan eftir að hafa svarað spurningu Kobe Bryants
Reuters
MICHAEL Jordan er hér að leggja knöttinn í körfuna hjá leikmönnum New Jersey Nets, sem lutu
f lægra haldi fyrir Jordon og samherjum hjá Chicago Bulls um helgina, 100:92.
nú unnið hvern leikinn á fætur
öðrum (þ. á m. fímm í röð á dögun-
um).
í Atlantshafsriðli Austurdeildar
hefur Orlando komið á óvart.
Chuck Daly er að gera það gott,
sérstaklega þegar tekið er tillit til
þess að Penny Hardaway hefur nú
misst úr nokkra leiki. Hann fór í
hnéuppskurð í vikunni og verður
frá í nokkrar vikur. Miami Heat
hefur einnig gengið vel án mið-
herjans Alonzos Mournings, sem
reyndar spilaði sinn fyrsta leik í
vikunni. Liðið hefur reyndar tapað
meirihluta leikja sinna við betri
liðin, en það ætti að breytast við
endurkomu Mournings.
New York Knicks hefur gengið
nákvæmlega eins og undirritaður
hélt í upphafi keppnistímabilsins. í
liðinu leika margir reyndir leik-
menn, en það smellur mjög sjaldan
saman og má mikið breytast ef lið-
ið ætlar sér stóra hluti í úrslita-
keppninni. Boston Celtics hefur
komið skemmtilega á óvart, en
Rick Pitino er augljóslega frábær
þjálfari. Hann hefur safnað saman
ungum leikmönnum og liðið vinnur
flesta leiki sína við lélegri liðin á
baráttunni einni saman. Larry
Brown, þjálfari Philadelphia 76ers,
sagði í sl. viku eftir tap fyrir
Boston: „Eg ber mikla virðingu
fyrir hvernig liðið leikur. Leik-
menn berjast um hvern bolta og
gefast aldrei upp. Pitino hefur
staðið sig frábærlega og ég held að
enginn annar þjálfari hefði getað
fengið svo mikið út úr þessum
mannskap annar en hann.“
VESTURDEILD
Los Angeles Lakers hefur ekki
valdið vonbrigðum. Liðið byrjaði
keppnistímabilið með miklum lát-
um, en hefur gengið erfiðlega að
aðlagast fjaiweru Shaquilles
O’Neals. Hann mun hefja leik að
nýju um helgina eða í næstu viku. í
fjarveru hans hafa þeir Kobe
Bryant, Eddie Jones og Rick Fox
allh’ skorað meira. Bryant setti
þrjú persónuleg stigamet á einni
viku. Hann skoraði 27 stig gegn
Houston síðasta föstudag, 30 stig
gegn Dallas á sunnudag, og 33 stig
gegn Chicago á miðvikudag. Mich-
ael Jordan var hrifinn af leik
Bryants. „Hann hefur greinilega
mikia hæfileika og ég var hrifinn af
því þegar hann kom til mín inni á
vellinum og spurði mig hvernig ég
léki með boltann valdaður undir
körfunni. Mér fannst ég allt í einu
gamall þegar hann spurði mig um
þetta,“ sagði Jordan. Ef Lakers
kemst aftur í gang þegar O’Neal
byrjar að nýju er eins gott að hin
liðin í deildinni verði tilbúin.
Seattle hefur reyndar forystu í
Kyrrahafsriðlinum og haf skipti á
Shawn Kemp fyrir Vin Baker kom-
ið vel út fyrir liðið. Baker hefur
verið frábær það sem af er og virð-
ist liðið mun heilsteyptara en á síð-
asta keppnistímabili. Phoenix Suns
hefur leikið vel, en Danny Ainge
þjálfari hefur sagt að liðið hafi ekki
enn fundið réttan leikstíl til lengd-
ar. ~
í Miðvesturi’iðlinum hefur Utah
saknað Johns Stocktons, en hann
hóf loks leik með liðinu í síðustu
viku. Án hans var sókn liðsins ekki
eins góð og venjulega. Svo slæmt
var ástandið orðið að Karl Malone
kvartaði opinberlega við blaða-
menn um daginn yfir því að hann
fengi enga hjálp frá stóru mönnun-
um í sókninni.
Houston hefur átt erfítt upp-
dráttar eftir að Hakeem Olajuwon
meiddist, en Kevin Willis hefur þó
leikið frábærlega í fjarveru hans^-
En hann er því miður ekki Ola-
juwon. San Antonio Spurs hefur
ekki staðið sig eins vel og margir
bjuggust við. Nýliðinn Tim Duncan
hefur þó leikið vel, svo og David
Robinson, en bakverðir liðsins hafa
valdið vonbrigðum og halda margir
að liðið muni reyna að ná í nýjan
bakvörð áður en langt um líður.