Morgunblaðið - 20.01.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.01.1998, Qupperneq 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 20, JANÚAR 1998_________________________#_____________________________________________MORGUNBLAÐIÐ SAMBÝLISHUSIN skiptast í tvö hús tengd saman með sameiginlegum stigapalli og eru tvær íbúðir í hvoru. Gengið er inn í efri íbúðirnar. sem eru 96,3 ferm., af stigapallinum en meðfram stigapallinum inn í neðri íbúðirnar, sem eru 95,5 ferm. fbúðirnar verða afhentar fullbúnar en án gólfefna og er verð þeirra þannig 8,2 millj. kr. Hafnarfjörður Álftárós byggir 24 permaformíbúðir YGGINGAFYRIRTÆKIÐ Álftárós hefur hafið undirbún- ing að smíði 24 íbúða með permaformaðferðinni í Hafnarftrði og eiga þær að rísa í hrauninu fyr- ir sunnan Hvaleyrarholt. Gert er ráð fyrir, að þær verði tilbúnar til afhendingar í sumar. _ Þetta eru íyrstu íbúðimar, sem Alftárós byggir með permaform- aðferðinni i Hafnarfirði, en áður hefur fyrirtækið byggt nær 100 íbúðir með þessari aðferð og eru þær allar í Mosfellsbæ. „Sala á permaformíbúðum okk- ar í Mosfellsbæ hefur gengið afar vel,“ sagði Bergsveinn Ólafsson, fjármálastjóri Alftáróss. „í raun- inni má segja, að íbúðimar seljist allar fyrir fram, því að við eigum þær aldrei á lager. Ég er því bjartsýnn á, að markaðurinn taki vel við þessum íbúðum í Hafnar- firði. Heppilegur staður fyrir íbúðarbyggð íbúðimar eiga að standa á mjög fallegum stað niður við golfvölhnn á Hvaleyri með afar góðu útsýni út á sjóinn. Snæfellsjökull blasir við. Jafnframt er þetta mjög skjól- góður staður, þar sem hann liggur í hvilft undir hlíð. Staðurinn er því afar heppilegur fyrir íbúðar- byggð.“ Aðalmunurinn á permaformað- ferðinm og hefðbundnum bygg- ingaraðferðum felst í því, að mótin era ekki fjarlægð. Plastmótin era endanlegt yfirborð permaform- húsanna og með því að hafa vegg- inn klæddan að utan á að vera hægt að koma í veg fyrir alkalí- skemmdir og veðranar- og frost- skemmdir. Þetta eiga því að vera mjög viðhaldslítil hús. Ibúðirnar í Hafnarfirði verða allar 4ra herb. Þær eiga að rísa við götuna Holtabyggð í sex sam- býhshúsum. Hvert sambýlishús ÞAÐ telst til tíðinda þegar veitt era verðlaun fyrir að gera gömul hús upp þannig að til fyrirmyndar sé. Reykjavíkurborg hefur veitt slík verðlaun og eitt þessara verð- launahúsa heitir Melstaður og stendur á Bráðræðisholti. Þetta hús er nú til sölu hjá fasteignasöl- unni Ásbyrgi. „Hús þetta er mjög fahegt ein- býlishús á góðri eignarlóð á Grandavegi 38, en húsið er byggt árið 1882 úr timbri og er hæð og ris. Geymslukjallari er undir hús- inu,“ sagði Eiríkur Óli Ámason hjá Ásbyrgi. „Þetta er virkilega fallegt hús og afar vel endurbyggt," sagði Eirík- skiptast í raun í tvö hús, sem era tengd saman með sameiginlegum stigapalli. í hvora húsi era tvær íbúðir, efri og neðri íbúð og er gengið inn í efri íbúðina af stiga- palhnum en meðfram stigapallin- um inn í þá neðri. íbúðimar á efri hæð eru 96,3 ferm. en íbúðirnar á neðri hæð er 95,5 ferm. íbúðimar verða afhent- ar fullbúnar en án gólfefna og er verð þeirra þannig 8,2 mihj. kr. „Þetta era því ódýrar íbúðir miðað við íbúðir af þessari stærð,“ sagði Bergsveinn.“ Um 80% kaupverðs- ins lánuð „Greiðslukjör á íbúðum okkar era afar hagstæð fyrir kaupend- ur, en við bjóðum þeim mjög rúm lánaskjör," sagði Bergsveinn enn- fremur. „Þeir greiða 65% af kaup- verðinu með húsbréfum og síðan lánum við 1 millj. kr. til viðbótar til 15 ára með veði í íbúðinni. Þessi lán eru með 7,25% ársvöxt- um. Með þessu fá kaupendur um 80% af kaupverðinu lánuð. Greiðslubyrðin af þessum lán- um er ekki þyngri en svo, að það er stöðugur straumur af fólki úr félagslega kerfinu í íbúðir byggð- ar með permaformaðferðinni. Fólk sér, að það ræður við að kaupa þær, enda þekkjum við varla vanskil hjá kaupendum. Þessar íbúðir hafa hka reynzt mjög góðar í endursölu og þær fáu íbúðir, sem hafa farið á mark- aðinn á ný, seljast á stundinni. Aðdragandinn að permaformí- búðum okkar í Hafnarfirði hefur staðið all langan tíma eða nær tvö ár. Á þeim tíma hafa margir, sem áhuga hafa á þessum íbúðum, ver- ið í stöðugu sambandi við okkur, til þessað fylgjast með framgangi mála. Ég er því ekki í nokkrum vafa um, að eftirspurn eftir þess- um íbúðum á eftir að verða mjög góð. En við höfum ekki heldur látið staðar numið við smíði á íbúðum með permaformaðferðinni í Mos- fellsbæ," sagði Bergsveinn Ólafs- son að lokum. „Framundan er smíði á áttatíu íbúðum við Huldu- hlíð.“ ur ennfremur. „Á aðalhæð era tvær stórar stofur, stórt fjöl- skylduherbergi með útgangi út á góða suðurverönd, baðherbergi og eitt svefnherbergi. I risi eru þrjú svefnherbergi og lítið hol og í kjall- ara er geymsla. Allar innréttingar í húsinu era snyrtilegar og sam- stæðar og þess hefur verið gætt að þær séu í sem uppranalegastri mynd. Húsið er allt endurnýjað m.a. all- ar lagnir, ofnar að hluta, nýlegir gluggar, klæðning og nýlegt þak. Möguleiki er á að byggja bílskúr á lóðinni, sem er stór eignarlóð og vel gróin. Ásett verð er 12,4 millj. kr.“ Hluti af stærra hverfi íbúðir Álftáróss í Hafnarfirði ) era hluti af stærra hverfi, þar sem j byggðar verða tæplega 80 íbúðir . alls, aðahega einbýlishús á einni 1 eða tveimur hæðum auk permaformíbúðanna. Búið er að leggja allar götur og þegar búið að úthluta talsverðum hluta af lóðun- um í hverfinu. Fyrstu húsin ættu því að rísa í vor. Aðkoma að hverfinu er frá Reykjanesbraut um Suðurbraut. Böm munu sækja skóla í Hvaleyr; arskóla, sem er skammt undan. í i framtíðinni er gert ráð fyrir gang- ( stíg undir Reykjanesbrautina, þannig að greiðfært verður úr hverfinu á íþróttasvæði Hauka fyr- ir ofan Reykanesbraut. Hraunið setur mikið svipmót á skipulag hverfisins, en höfundar skipulagsins eru þau Pálmar Kristmundsson arkitekt og Ragn- hhdur Skarphéðinsdóttir, lands- i lagsarkitekt. Hraunhellan þekur j mest allt svæðið og gefur því mjög sérstætt yfirbragð. Austanvert á svæðinu og um miðbik þess skdptast á hraun- hryggir og gjótur, en vestanvert er hraunið sléttara og rennur síð- an saman við gróðurlendi og mela næst golfvellinum. Auk útsýnis út á sjóinn er gott útsýni til Sveiflu- háls og th Bláfjalla. Af hálfu skipulagsyfirvalda í 1 Hafnarffrði var lögð á það rík I áherzla, að hraunið yrði látið halda | sér og byggðin féhi sem bezt að hrauninu, enda er hraunið aðals; merki skipulagsgerðarinnar. í skipulagsthlögunni er líka rík áhersla lögð á opin svæði og úti- vistaraðstöðu, svo og tengsl þeirra við íbúðarbyggðina. Fasteignasölur | í blaðinu í dag Agnar Gústafsson bls. 26 Almenna fasteignasalan bls. 30 Ás bls. 10 Ásbyrgi bls. 24 Berg bls. 32 Bifröst bls. 4 Borgir bls. 7 Brynjólfur Jónsson bls. 13 Eignamiölun bls.16-17 Eignamiðlun bls. 10 Eignasalan bls. 30 Eignaval bls. 14 Fasteignamarkaður bls. 27 Fasteignamiðstöðin bls. 22 Fasteignasala íslands bls. 32 Fjárfesting bls. 26 Fold bls. 25 Garður bls. 30 Gimli bls. 11 H-Gæði bls. 13 Hátún bls. 19 Höll bis.12-13 Hóll Hf. bls. 20 Hraunhamar bls. 3 Húsakaup bls. 8 Húsvangur bls. 15 Höfði bls. 5 Kjöreign bls. 21 Lundur bls. 6 Lögmenn Suðurlandi bls. 6 Miðborg bls. 23 Óöal bls. 28 Séreign bls. 31 Skeifan bls. 29 Stakfell bls. 31 Valhöll bls. 9 Þingholt bls. 28 HORFT yfír byggingarsvæðið. Ibúðimar eiga að standa á mjög fallegum stað niður við golfvöUinn á Hvaleyri með mjög góðu útsýni út á sjóinn. ÍBUÐARLAN TIL ALLT AÐ Þú átt góðu láni að fagna hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis SPARISJOÐUR REYKIAVÍKUR OC NACRENNIS HÚSIÐ Melstaður að Grandavegi 38 var byggt.1882. Húsið hefur feng- ið verðlaun fyrir vel heppnaða endurnýjun. Ásett verð er 12,4 miiy. kr., en húsið er til sölu hjá Ásbyrgi. Fallegt einbýlishús við Grandaveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.