Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 OQ9 NAGANO ’98 MORGUNBLAÐIÐ Funaki varð sig- urvegari í stökki af 120 metra palli Tárin runnu niður kinn- arnar Heimamenn stálu senunni í stökki af 120 metra palli á laug- ardag. Kazuyoshi Funald varð ólympíumeistari og landi hans, Masahiko Harada, náði langsta stökki keppninnar, 136 metrum, sem er met á pallinum í Hakuba. Lendingin hjá honum var hins veg- ar slæm og fékk hann því ekki nægilega háa einkunn til að slá Funaki og Finnann Jani Soininen út. Hann varð því að gera sér þriðja sætið að góðu. Funaki, sem hefur forystu í heimsbikarkeppninni, stökk 126 og 132,5 metra og hlaut 272,3 stig. Finninn Soininen, sem varð ólymp- íumeistari í stökki af 90 metra palli, stökk 129,5 og 126,5 metra og hlaut 260,8 stig og var rétt á undan Harada, sem fékk 258,3 stig. Hann stökk aðeins 120 metra í fyrra stökld sínu en risastökkið mældist 4,5 metrum lengra en gamla metið. „Stökkin voru fullkomin hjá mér og ég get ekld verið annað en stoltur. Eg gat ekki stöðvað táraflóðið sem rann niður kinnamar þegar ijóst var að ég væri sigurvegari. Þetta var ótrúleg upplifun," sagði Funaki sem vann þriðju gullverðlaun Japana á leikunum. Funaki, sem er 22 ára frá Sapporo, fékk hæstu einkunn allra dómara, 20 stig, fyrir stfl. „Þetta var alvörukeppni og spennan var gríðar- leg. Ég ætlaði mér fyrsta sætið og það tókst.“ Reuter HERMANN Maier gerði nánast það „ómögulega" að sigra í risasvigi eftir að hafa fall- íð illa í brunkeppninni nokkrum dögum áður. Hann hafði ástæðu til að gleðjast og var ánægður með gullpeninginn. „Bijálæðingur- inn“ tók gullið Reuters JAPANIR voru ánægðir með sina menn í stökki af 120 metra palli. Kazuyoshi Funaki (t.v.) varð ólympíumeistari og Masahiko Harada, náði langsta stökki keppninnar, 136 metrum, sem er met á pallinum í Hakuba. Kazuyoshi Funaki Fæddur: 27. apríl 1975 (22 ára), í Yoichi í Japan. Lögheimili: Sapporo, Japan. Hæð: 173 sm. Þyngd: 63 kg. Áhugamál: Veiðar, sund og kappakstur. Árangur: Ólympíumeistari í stökki af 120 metra palli og silfurverðlaunahafí í keppni á 90 metra palli. Er efstur í stigakeppni heimsbikarsins um þessar mundir. Yfirburðir Rússa í boðgöngu RÚSSAR höfðu töluverða yfirburði í 4x5 km boð- göngu kvenna sem fram fór í Nagano í gær. Það var aðeins norska sveitin sem veitti þeirri rússnesku einhverja keppni í byijun en eftir að Yelena Vyalbe tók við á þriðja spretti var ljóst hvert stefndi. Hún fór fram úr Elinu Nilsen og skilaði um 20 sekúndna forskoti til Larissu Lazut- inu sem tók síðasta sprett Rússa. Hún gekk vel og kom 24,5 sekúndum á und- an þeirri norsku og fagn- aði þriðju gullverðlaunum sínum á leikunum. Rúss- nesku stúlkurnar hafa unn- ið allar boðgöngur sfðan á leikunum í Calgary 1988. Italska sveitin kom mjög á óvart og náði þriðja sæti og geta ítalir þakkað Stef- aniu Belmondo það. Hún tók síðasta sprett og var sveitin þá í nfunda sæti, 47,6 sekúndum á eftir svissnesku sveitinni sem var í þriðja sæti. Belmondo náði besta brautartímanum og gekk á 26 sekúndum betri tfma en Lazutina. HERMANN Maier frá Austurríki er engum líkur. Eftir hið mikla fall hans í brunbrautinni fyrir aðeins fjórum dögum kom hann í risasvigið í gær og sigraði með yfirburðum. Hann hefur unnið öll heimsbikarmótin í risasvigi í vetur og nú bætti hann ólympíumeistaratitli í safnið. Frábær skíðamaður. essi 25 ára gamli múrari sýndi hversu öflugur hann er. Hann var rúmri hálfri sekúndu á undan landa sínum, Hans Knauss, sem varð annar. Didier Cuche frá Sviss náði óvænt þriðja sæti. „Ég er svo ánægður. Ég bjóst aldrei við að ná þessum árangri. Það var gott fyrir mig að keppninni var frestað tvo daga í röð og ég fékk því lengri tíma til að jafna mig eftir brunið," sagði Maier. „Það var erfitt að ná einbeitingu áður en ég fór niður því bnmið var enn í huga mér. En um leið og ég fór í gegnum fyrsta hlið- ið var það gleymt og ég fann rétta taktinn," sagði Mai- er. Knauss félagi hans sagðist hafa vitað að Maier myndi gefa allt í botn, enda væri hann þekktur fyrir það. „Arangur hans er hreint frábær. Ég talaði við hann eftir byltuna í brun- inu og þá leit hann til himins og þakk- að Guði að hann væri ekki þar uppi. Ég er mjög ánægð- ur með annað sætið enda er þetta í fyrsta sinn sem ég kemst á verð- launapall á ólympíuleikum. Ég var aðeins í 20. sæti á ÓL í Lille- hammer,“ sagði Knauss. „Ég mann ekki eftir nokkrum öðr- um skíðamanni sem hefur sigrað mót strax eftfr eins mikla byltu og Her- mann lenti í,“ sagði Wemer Mai-- greiter, landsliðsþjálfari Austurríkis. „Eftir slíkt fall er vanalrga ekki bú- ist við miklu. Hann hefur sýnt að hann er bestur - brjálæðingurinn sigraði í dag,“ sagði þjálfarinn. Maier sagði að hann hefði sofið vel fyrir keppnina. „Það var auðvitað draumurinn að sigra. En það var erfitt að trúa því. Þetta sýnir að hlut- irnir ganga ekki alltaf upp. Einn daginn er allt bújð en þann næsta fagnar þú sigri. Eg er nú mjög af- slappaður og er tilbúinn í stórsvig- ið,“ sagði ólympíumeistarinn. Hermann Maier Fæddur: 7. desember 1972 (25 ára) Fæðingarstaður: Flachau, Austurríki. Fjölskylduhagir: Ógiftur. Stórmót/árangur: Þetta eru fyrstu ólympíuleikar hans. Hann hefur ekki einu sinni keppt á heims- meistaramóti. Hefur unnið tíu heimsbikarmót í vetur á öðru ári sínu í keppninni. Hann er stiga- hæstur í heildarstigakeppninnin. Hann hefur unnið öll fjögur risasvigsmótin í vetur og nú ólympíumeistari. Annað: Hann er fyrrum múrai-i og skíðakennari. Hann missti sæti sitt í unglingalandsliði Austur- ríkismanna þegar hann var 15 ára, sagður með of veikbyggð hné. Hann komst aftur í landsliðið eftir að hafa verið með einn af tíu bestu brautartímun- um sem undanfari í heimsbikannóti í heimabæ sínum, Flachau. Hætti sem múrari í október 1996 og gerðist atvinnumaður í skíðaíþróttum. Vegna þess hve gríðarlega sterkur hann er gengur hann undfr gælunafninu „Tortímandinn“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.