Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 16
KNATTSPYRNA Steinar til liðs við ÍBV Eyjamenn fara í æfingaferð til Kýpur og hafa einnig sett stefnuna á Portúgal Steinar Guðgeirsson, fyrirliði Fram, hefur ákveðið að ganga til liðs við Islandsmeistai-a ÍBV og leika með félaginu næstu tvö árin. Ekki hefur hann enn skrifað undir samning, en það er aðeins formsat- riði. Bjami Jóhannsson þjálfari IBV staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær. „Steinar er fjölhæfur leikmaður ‘sem fengur er að. Eg hugsa mér hann fyrst og fremst á miðjuna til þess að fylla skarð Sverris Sverris- sonar sem allt bendir til að sé á förum frá okkur,“ sagði Bjami ennfremur. „Islenskir knattspymumenn eru orðnir svo vinsælir hjá félögum í Evrópu eins og menn hafa orðið varir við upp á síðkastið, en ég von- ast til þess að ég missi ekki fleiri leikmenn úr hópnum en raun er á. Það er svo erfitt að byggja upp lið þegar engin örugg vissa er fyrir hendi hvað hóp maður hefur í höndunum.“ Steinar bætist í hóp fleiri leik- mann ÍBV sem dveljast á Reykja- víkursvæðinu. „Við rekum meist- araflokkinn í tveimur hópum, í Reykjavík og í Eyjum og í raun og veru er hópurinn aðeins saman í þrjá mánuði í yfir árið.“ Að sögn Bjarna fer Eyjaliðið í átta daga keppnis- og æfingaferð til Kýpur undir lok næstu viku og stefnt er að annarri ferð í síðari hluta apríl, þá til Portúgal. STEINAR Guðgeirsson, fyrirliði Fram, leikur með ÍBV næstu tvö keppnistímabil. Jakob samdi við Helsingborg JAKOB Jónharðsson, vam- armaður og fyrirliði bikar- meistai-a Keflavíkur í knatt- spyrnu, skrifaði í gær undir þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Helsingborg. Hann heldur utan til Svíþjóðar í lok vik- unnar og fer með liðinu síð- an í æfínga- og keppnisferð til Kýpur í næstu viku. Fyrir hjá sænska liðinu er annar íslendingur, Hilmar Bjömsson úr KR, sem gekk til liðs við félagið fyrir skömmu. Sverrir er hjá Sheff. Utd. SVERRIR Sverrisson, leikmaður íslandsmeistara ÍBV, fór í gær til enska 1. deildar liðsins Sheffield United til þess að líta á aðstæður með hugsanlegan samning í huga. Þá stendur til að Sverrir leiki með varaliði félagsins í kvöld. í framhaldi af honum kemur í ijós hvort af samningum verði. Sverrir hefúr ekki útlokað að ganga til samninga við Malmö FF í Sviþjóð þar sem hann var á dögunum, en ákvað að setja það mál í salt á meðan hann kannaði til hh'tar hvað héngi á spýtunni hjá Sheffieid. BADMINTON Sigur á Frökkum Frakkar fyrstu mótherjarnir í EM w EM-DAGAR FYRSTU leikimir í 4-riðli Evrópu- keppninnar verða laugardaginn 5. september og þá koma Frakkar í „heimsókn. Aðrir leikir þann dag eru Armem'a - Andorra og Ukraína - Rússland. Síðan verður leikið sem hér segir: Laugardagur 10. október: Andorra - Úkraína Rússland - Frakkland ARMENÍA - ÍSLAND Miðvikudaginn 14. október: Úkraína - Armenía Frakkland - Andorra ! ÍSLAND - R ÚSSLAND Laugardaginn 27. mars: I ANDORRA - ÍSLAND i Frakkland - Úkraína ■ Armenía - Rússland . Miðvikudaginn 31. mars: ' ÚKRAÍNA - ÍSLAND *kússland - Andorra ( Frakkland - Armenía Laugardaginn 5. júní: Úkraína - Andorra Frakkland - Rússland ÍSLAND - ARMENÍA Miðvikudaginn 9. júní: Andorra - Frakkland R ÚSSLAND - ÍSLAND Laugardaginn 4. september: Úkraína - Frakkland ÍSLAND - ANDORRA Rússland - Armenía Miðvikudaginn 8. september: I Andorra - rússland i ÍSLAND - ÚKRAÍNA Armenía - frakkland Laugardaginn 9. október: FRAKKLAND - ÍSLAND Rússland - Úkraína Andorra - Armenía Islendingar taka á móti Frökkum í fyrsta leik Evrópukeppninnar í knattspymu og verður leikurinn á Laugardalsvellinum laugardaginn 5. september. Fundur forráðamanna liðanna í 4-riðli hittust í París í gær og eftir sjö klukkustunda fund náðist samkomulag. „Ég er þokkalega sátt- ur við þessa niðurröðun," sagði Guð- jón Þórðarson landsliðsþjálfari í samtali við Morgunblaðið i gær- kvöldi, en hann sótti fundinn ásamt þeim Eggerti Magnússyni, formanni KSÍ, og Geir Þorsteinssyni, fram- kvæmdastjóra KSÍ. „Það er oft talað um að betra sé að byrja á léttari mótherjum, en ég held það sé gott að byrja á því að fá Frakka í heimsókn. Þeir eru með skemmtilegt lið og búist er við miklu af því í heimsmeistarakeppninni og því verður skemmtilegt að fá Frakka í heimsókn í september," sagði Guð- jón. Guðjón sagði að auðvitað fylgdi því viss áhætta að leika á íslandi um miðjan október en 14. þess mánaðar koma Rússar í heimsókn. „Við hefð- um getað leikið í desember á vellin- um á síðasta ári, en þetta er eins og rússnesk rúlletta, enda koma Rússar í heimsókn," sagði Guðjón. Hann sagði hins vegar að veðrið í Armeníu í október ætti að vera í lagi en þar leikur Island 10. október. í lok mars verða tveir leikir, fyrst í Andorra og þaðan verður farið beint til Úkraínu. „Þeir sem leika í Skandinavíu eru að hefja keppnis- tímabilið og aðrir eru á fullu, nema þeir sem eru heima. Við verðum að sætta okkur við að leika á þessum tíma, enda er ljóst að keppnistíma- bilið er ekki aðeins S þrjá mánuði,“ sagði Guðjón. ÍSLENSKA karlalandsliðið í bad- minton tryggði sér sæti í milliriðli á heimsmeistaramóti landsliða, sem nú fer fram í Sandefjord i Noregi, með því að sigra Frakka, 3:2, í síðasta leik undanriðlanna. íslenska kvenna- liðið er hins vegar úr leik eftir 3:2 tap fyrir Pólverjum. í leik íslands og Frakkland reið Tryggvi Nielsen á vaðið, lagði and- stæðing sinn í einliðaleik, 15:11 og 15:12. Landsliðsþjálfarinn Broddi Kristjánsson varð að játa sig sigrað- an í þremur lotum. Það varð hlut- skipti Sveins Sölvasonar að tapa sín- um leik í tveimur lotum. íslendingar gáfu á hinn bóginn ekkert eftir í tví- liðaleiknum en báðar viðureignirnar stóðu yfir í þijár lotur. Broddi og Ámi Þór Hallgrímsson unnu 15:7, 9:15,15:9 og Tryggvi og Njörður Lu- dvigsson unnu fyrstu lotuna í sínum leik, 15:13,10:15 og 15:3. Andstæðingar Islands í milliriðli verða Úrkaína, Holland og Portúgal. Fyrsti leikurinn fer fram í dag gegn Úrkaínumönnum. HANDKNATTLEIKUR Duranona með 10 gegn Hameln ROBERT Julian Duranona gerði tíu mörk fyrir Eisenach í 31:28 sigri á Alfreð Gíslasyni og félögum í Hameln í þýsku 1. deild- inni í handbolta um helgina. Ha- meln vermir neðsta sæti deildar- innar. Duranona gerði ekkert mark úr vítum, en staðan var 13:10 í hálfleik fyrir Eisenach, sem er í 10. sæti deildarinnar. Islendingaliðin Dormagen og Essen áttust við og vann Essen Búið að reka þjálfara Dormagen 19:22 á útivelli. Patrekur Jóhann- esson var markahæstur í liði Es- sen með 6 mörk en Róbert Sig- hvatsson, sem átti mjög góðan leik, var markahæstur í lið Dor- magen einnig með 6 mörk. Héð- inn Gilsson gerði tvö mörk fyrir Doramagen, sem komst yfir 4:0 - og var með forustu allt þar til að Essen jafnaði 16:16. Patrekur, sem lék vel, og samherjar hans, voru sterkari á endasprettinum. Eftir leikinn var Hans-Joachim Gossov, þjálfari Dormagen, látinn taka poka sinn. Foiráðamenn liðsins eru að leita að nýjum þjálf- ara og þá á Norðurlöndum. Wuppertal tapaði fyrir Grosswallstadt á útivelli, 25:19. Filippov var markahæstur í liði Wuppertal með 6/1 mörk, Ólafur Stefánsson gerði þrjú og Geir Sveinsson eitt. Dagur Sigurðsson lék ekki með vegna meiðsla, en hann á enn eftir tvær vikur í að verða leikfær. Kiel sigraði Magdeburg auð- veldlega, 30:20, og er langefst í deildinni, með 37 stig eftir 22 leiki. Lemgo kemur næst með 32 stig og síðan Nettelstedt með 24 stig eftir 20 leiki. ENGLAND: X 2 1 1 X X 2 X X 1X11 ITALIA: X 1 2 21X X X 1 X212

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.