Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 5
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 B 5
OQ9 NAGANO ’98
Fyrstu
verðlaun
Danaá
vetrar-
leikum
DANIR komu mjög á óvart er
þeir utuiu silfurverðlaun í cur-
ling kvenna í Nagano á sunnu-
dag. Danir léku við Kanada í
úrslitum og töpuðu 5:7 og
unnu þar með fyrstu verðlaun
Dana á Vetrarólympíuleikum
frá upphafi. Flestir bjuggust
við að Kanada myndi rúlla yfir
Dani því Kandametm eru þre-
faldir heimsmeistarar í grein-
inni. En heimsmeistararnir
þurftu að hafa ntikið fyrir
sigrinum. „Þetta er frábært.
Nú er Damnörk komin á blað
og það er mikill heiður fyrir
okkur að hafa tekið þátt í því,“
sagði Helena Blach Lavrsen,
fyrirliði danska liðsins. Um 1,3
milljónir manna stunda curling
í Kanada, en aðeins nokkrir
tugir í Danmörku. Danska
ólympíuliðið hafði ekki einu
sinni aðstöðu til æfinga í Dan-
mörku og varð því að leita út
fyrir landsteinana með æfing-
ar sínar fyrir leikana.
Svisslendingar
komu á óvart
Svisslendingar komu mjög á
óvart í curlingkeppni karla og
urðu ólympíumeistarar í fyrsta
sinn. Þeir unnu Kandamenn,
sem fyrirfram voru taldir sig-
urstranglegastir, auðveldlega í
úrslitaleik 9:3. Patrick Hu-
erlimann, fyrirliði Svisslend-
inga, var mjög ánægður og
sagði að þessi úrslit væru lík-
lega þau óvæntustu á leikun-
um. Sigur Sviss kom aðeins
daginn eftir að einn liðsmanna
Kanada hafði lýst því yfir að
Kanadamenn hefðu það mikla
yfirburði, að 50. besta liðið hjá
þeim myndi auðveldlega vinna
hvaða lið sem væri frá Evrópu.
Hann hefði betur látið þessi
orð ósögð!
Reuters
Seizinger aftur best
Brynja með 23.
besta tímann
BRYNJA Hrönn Þorsteinsdóttir frá
Akureyri var fyrst íslendinganna til
að keppa á Ólympíuleikunum í
Nagano í gær er hún tók þátt í fyrri
hluta alpatvfkeppninnar, bruni. Hún
var með rásnúmer 18, eins og sést á
myndinni, og náði 23. besta tíman-
um og var 5,97 sekúndum á eftir
ólympíumeistaranum í bruni, Katju
Seizinger frá Þýskalandi, sem náði
besta tímanum. 32 keppendur tóku
þátt í tvíkeppninni, en fimm þeirra
náðu ekki að komast í mark.
Kristinn Svanbergsson, fram-
kvæmdastjóri SKÍ, sagðist ánægður
með árangur Brynju. „Við erum
ánægð með hana. Hún var að keppa
í fyrsta sinn í bnmi og því ekki hægt
að búast við að hún standist þeim
bestu snúning. Hún náði mun betri
tíma en í þremur æfingaferðum sem
hún fór í brautina og það er já-
kvætt,“ sagði hann.
Brynja var með rásnúmer 16 í síð-
ari hluta tvíkeppninnar, sviginu,
sem fram fór rétt eftir miðnætti í
nótt. Hún er fyrsti íslendingurinn
sem keppir í tvíkeppni á Ólympíu-
leikum.
Reuters
ÞÝSKA skíðadrottningin Katja Seizinger (t.h) varð ólympíumeistari í bruni kvenna í Nagano eins og í
Lillehammer 1994. Með henni er Pernilla Wiberg frá Svíþjóð, sem varð önnur.
Brunið í tvíkeppninni fór fram í
sömu braut og aðalbrunið síðar í
gær. Katja Seizinger var rétt búin
að fagna ólympíumeistaratitlinum
þegar hún þurfti að fara aftur nið-
ur í tvíkeppninni. Hún keyrði þá
enn hraðar og náði besta tímanum
og Perailla Wiberg kom næst, 0,34
sek á eftir. Wiberg verður að telj-
ast sigurstranglegust í tvíkeppn-
inni því hún er mjög góð svigkona,
mun betri en Seizinger.
ÞÝSKA skíðadrottningin Katja Seizinger varð ólympíumeistari í
bruni kvenna í Nagano í gær og skráði nafn sitt á spjöld sög-
unnar með því að verða fyrsta konan til að verja ólympíutitil í
bruni. Hún hefur haft mikla yfirburði í hraðagreinunum í vetur
og því koma sigur hennar ekki á óvart. Pernilla Wiberg frá Sví-
þjóð varð önnur og vann fyrstu verðlaun Svía í bruni á ólympíu-
leikum. Florence Masnada varð þriðja og er fyrst franskra
kvenna til að vinna til verðlauna í bruni ólympíuleika frá því
1968.
Picabo Street frá Bandaríkjun- og hafnaði í fimmta sæti. „Brautin
um, sem varð ólympíumeistari var mjög erfið og ekki sú sama og
í risasviginu, náði sér ekki á strik þegar við æfðum í henni,“ sagði
Street. Brautin var færð niður um
275 metra frá því á æfingunum á
fostudag og var Street óánægð
með það.
„Það er mikið afrek að verja titil-
inn í bruni og ég er í sjöunda
himni,“ sagði Seizinger em hafði
fyrir keppnina gagnrýnt fram-
kvæmdanefndina fyrir að vera með
of létta og lítt krefjandi braut.
„Það var mikil upplifun að sigra í
bruninu í Lillehammer og hún er
jafnvel enn meiri við að verja titil-
inn, fjórum árum síðar. Aðstæður
voru eins og best verður á kosið, en
brautin var ekki eins krefjandi og
ég hefði óskað,“ sagði ólympíu-
meistarinn.
„Silfuraerðlaunin eru mér afar
mikilvæg, sérstaklega vegna
meiðslanna sem hafa hrjáð mig í
vetur,“ sagði Perailla, sem rif-
beinsbrotnaði í desember. Hún
bjóst þvi ekki við miklu í Nagano.
„Eg var búin að fara svo oft niður
brautina í huganum að það var
ekkert sem kom mér á óvart. Að-
stæður vora líka hagstæðar fyrir
mig,“ sagði hún. Þetta vora fyrstu
verðlaun Svía í Nagano.
Seizinger fýrsl
til að verja
ÓL-titil í bruni