Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 6

Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 OQp NAGANO ’98 MORGUNBLAÐIÐ Grisjuk og Platov vörðu ólympíu- titilinn Rússneska parið Pasha Grisjuk og Evgeny Platov vörðu ólymp- íutitilinn í ísdansi í Nagano í gær og voru um leið fyrst til þess í sögu ieikanna. Þau sýndu frábær tilþrif og fengu m.a. hæstu einkunn, 6,0 stig, frá tveimur dómurum fyrir Jistfengi í frjálsa dansinum. Landar þeirra, Anjelika Krylova og Oleg Dvsiannikov, hlutu silfrið og franska parið, Marina Anissina og Gwendal Peizerat, bronsið. „Það var auðvitað draumurinn þegar við komum hingað að verja titilinn," sagði Grisjuk eftir sigur- ‘inn. Hún var svo ánægð að gleðitár runnu niður kinnar hennar þegar urslitin voru ljós. „Við höfðum mikið sjálfstraust, enda höfum við æft mjög vel og búið okkur vel undir þessa keppni. Við höfðum ánægju af því sem við vorum að gera og nut- Um þess,“ sagði Platov. „Það var töluvert álag á okkur því flestir bjuggust við sigri okkar, en við stóðumst álagið og ég er mjög ánægður.“ Þau hafa verið sigursæl og geta nú státað _af tveimur gullverðlaun- um frá Ólympíuleikum. Þau eru fjórfaldir heimsmeistarar og þre- faldir Evrópumeistarar. Þau búa í Boston í Bandaríkjunum og æfa undir handleiðslu rússneska þjálfar- ans Tatiönu Tarasovu, sem einnig er þjálfari Ilia Kulik, ólympíumeist- ara í listhlaupi karla. Grisjuk og Platov hafa ákveðið að gerast at- vinnumenn í greininni eftir leikana í Nagano. Reuters ILIA Kulik byrjaði fjögurra ára að leika sér á skautum á frosnum tjörnum í Moskvuborg. Fljótlega komu einstakir hæfileikar hans í Ijós og foreldrar hans sáu sig tilneydda að senda hann í skautaskóla. Uppskeran 16 árum síðar er ólympíumeistaratitill. Reuter PASHA Grisjuk og Evgeny Platov frá Rússlandi vörðu ólympíutit- ilinn í ísdansi í Nagano í gær og voru um leið fyrst til þess í sögu leikanna. Þau sýndu frábær tilþrif í frjálsa dansinum. Kulik er sá besti Byrjaði fjögurra ára að leika sér á skautum á frosnum tjörnum í Moskvuborg Rússinn Ilia Kulik varð á laugar- daginn ólympíumeistari í list- hlaupi karla á skautum. Æfíngar hans voru vel útfærðar og öll stökkin fullkomin. Hann tók m.a. átta sinnum þrefalda skrúfu í æf- ingum sínum. Þessi tvítugi Moskvubúi fékk hæstu einkunn hjá öllum níu dómurunum. Kanadíski heimsmeistarinn Elvis Stojko vai-ð annar og Frakkinn Philippe Cand- eloro þriðji. Kulik byrjaði fjögurra ára að leika sér á skautum á frosnum tjörnum í Moskvuborg. Hann hafði gaman að því að vera á skautum með bömunum í hverfinu sem hann bjó í. Fljótlega komu einstak- ir hæfileikar hans í Ijós og foreldr- ar hans sáu sig tilneydda að senda hann í skautaskóla. Fjölskylda hans fékk síðan að sjá það á laug- ardaginn, 16 árum síðar, að Kulik er sá besti. Þetta eru þriðju ólymp- íuleikamir í röð sem Rússar fagna sigri. Viktor Petrenko vann í Al- bertville 1992 og Alexei Urmanov í Lillehammer 1994. Kulik var heimsmeistari ungl- inga árið 1995 og síðan Evrópu- meistari mánuði síðar. Eftir það náði hann öðru sæti á HM 1996, en síðan bar ekki mikið á honum fyir en á þessu ári. Þjálfari hans til árs- ins 1996 var Victor Kudryavtsev. Þá skipti hann um þjálfara og fór til Boston í einkaþjálfun hjá Tati- aníu Tarasovu. „Við höfum unnið mjög stíft í frjálsu æfingunum sem hafa verið lakastar hjá mér hingað til,“ sagði Kulik. „Eg hef góða undirstöðu núna fyrir frjálsu æfingarnar og ef ég geri mistök er ég maður til að bæta þau upp.“ Tarasvoa þjálfari sagði eftir sigurinn á laugardaginn: „Þegar hann varð heimsmeistari 1995 var hann drengur, nú er hann orðinn fullorðinn." Heimsmeistarinn Elvis Stojko náði ekki að sýna þær æfingar sem hann ætlaði, því meiðsli í nára hafa hrjáð hann undanfarið. Hann gat ekki mikið æft fyrir keppnina í Nagano og má teljast góður að hafa náð í silfrið. Eftir keppnina var hann mjög þjáður og gat varla gengið. Ítalía og Kanada deila gullinu ÍTALIR og Kandamenn deildu með sér gullverðlaununum í tveggja manna sleðakeppni leikanna. Þetta er aðeins í annað sinn sem tveir sleðar hafa deilt efsta sæt á ÓL, í fyrra skiptið voru það Italir og Þjóðverjar á leikunum í Grenoble 1968. Þá var ákveðið að Italir hlytu gullið því þeir náðu besta brautartímanum í einstakri umferð, en keppend- ur fara fjórar ferðir, samtals 5,46 km. Þess má geta að tún- inn er mældur upp á 1/1000 hluta úr sekúndu. Koukleva hitti best GALINA Koukleva, hermaður úr rússneska hernum, varð ólympíumeistari í 7,5 km skíðaskot.fimi kvenna á sunnu- dag. Þýska stúlkan Ursula Dils varð önnur og landa hennar, Kartin Apel, þriðja. Það gekk ekki vel hjá Kouklevu í byijun því hún hitti ekki vel og Dils hafði for- ystu þar til kom að siðasta skotbakkanum. Þá urðu henni á mistök, hún hitti ekki og varð að taka aukahring og það íijTtti Koukleva sér og sigraði. Olympíumeistarinn frá því í Lillehammer, Myriam Bedard frá Kanada, varð aðeins í 32. sæti. Postma setti met HOLLENSKI skautakappinn Ids Postma (24 ára) var sterkastur á svellinu í 1.000 metra skautahlaupi á sunnu- dag. Hann skautaði vega- Iengdina á 1.10,64 nun. og bætti dlympíumet Bandaríkja- mannsins Dan Jansen frá því í Lillehammer fyrir fjórum ár- um. Landi hans, Jan Bos, sem er núverandi heimsmeistari í greininni, varð annar á 1.10,71 mín. og Hiroyasu Shimzu frá Japan, þriðji á 1.11,00. Heimsmethafinn, Jer- emy Wotherspoon frá Kanada, varð að sætta sig við sjötta sæti. Stojko frá í tvær vikur KANADÍSKI heimsmeistarinn í listhlaupi á skautum, Elvis Stojko, verður frá keppni vegna meiðsla næstu tvær vik- urnar. Stojko varð annar í list- lilaupinu á eftir Rússanum Ilia Kuli á laugardag og er fullyrt að meiðsli hans í nára hafi kostað hann gullið. Hann var sárþjáður í keppninni á laug- ardag og gat því ekki beitt sér eins og hami á vanda til. Læknir lians segir að nú verði hann að hvflast í minnst tvær vikur ef hann ætlar að verða orðinn góður fyrir lieims- meistaramótið sem verður í lok mars. Frestað sex sinnum EKKI hefur gengið áfallalaust að keppa í alpagreinum á Ólympíuleikunum. Veður hef- ur sett strik í reikninginn og hafa fimm keppnisdagar fallið úr vegna veðurs. Á laugardag- inn átti að keppa í risasvigi karla og var keppninni frestað sex sinnum, alltaf um hálftíma í senn, en eins og svo oft áður var ekki hægt að keppa vegna þoku og snjókomu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.