Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 B 7
KÖRFUKNATTLEBKUR
Góð pressuvörn dugði
„VIÐ spiluðum mjög vel og frábæra vöm í fyrri hálfleik, sem lagði
gmnninn að sigrinum, þær urðu ráðvilltar í sókninni gegn stífri
pressuvöm okkar,“ sagði Anna María Sveinsdóttir, þjálfari og
leikmaður Keflavíkur, eftir leikinn. „Það er að vísu alltaf stress í
byijun í svona leik og tekur nokkrar mfnútur að komast yfir það
en eftir það var ljóst hvemig leikar fæm. Hefðin er líka okkar
megin, við vitum út í hvað við emm að fara og síðastliðin sex ár
hefur pressan alltaf verið mikil á okkur þannig að það var ekki
möguleiki á að við mættum til leiks með vanmat í huga. Við kunn-
um þetta og emm alltaf tilbúnar. I liðinu em nokkrar ungar stúlk-
ur en þær léku vel í dag - hafa eflaust smitast af okkur hinum
eldri.“
Morgunblaðið/Ásdis
ERLA Reynisdóttir fyririiði lyftir sigurlaununum í Bikarkeppni KKÍ hátt á loft. A eftir henni koma Jennifer Boucek, Lóa Björg
Gestsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir og Bryndís Harpa Magnúsdóttir.
Bikarinn fór fimmta árið í röð til Keflavíkur
Létu ekki
hefðina nægja
KEFLAVÍKURSTÚLKUR höfðu vissulega hefðina með sér þegar
þær mættu ÍS í bikarúrslitum í Laugardalshöllinni á laugardaginn
- höfðu unnið bikarkeppnina fimm ár í röð. Þær vissu engu að
síður að slíkt fleytti liðinu ekki langt og slógu hvergi af svo að
eftir tíu mínútna baráttu höfðu þær náð undirtökunum í leiknum,
sem þær héldu til loka og sigruðu örugglega 70:54.
eflvíkingar byrjuðu strax með
■^pressuvöm, sem gekk ágætlega
en hittnin var afleit í
sóknarleiknum.
Stefán Jenny Boucek sájþó
Stefánsson um að skora. IS-
skrífar stúlkur voru
grimmari í frá-
köstunum og ekki á þeim buxunum
að láta vaða yfir sig. En þegar Erla
Reynisdóttir skoraði tvær þriggja
stiga körfur í röð fyrir Keflavík eftir
átta mínútur var ísinn brotinn og
nokkuð dró af stúdínum. Pétur
Ingvarsson, þjálfari IS, tók þá
leikhlé, sem dugði til að ná upp
baráttunni á ný en pressuvörn
Keflvíkinga var ekki lengi að brjóta
þá mótspymu á bak aftur og hafði
17 stiga forskot í leikhléi, 39:22.
Eftir hlé juku Keflvíkingar
forskotið hægt og sígandi án þess
að stúdínur fengju nokkuð að gert.
Fljótlega var öll spenna úr leiknum
og varalið Keflvíkinga fékk að
spreyta sig á meðan áhorfendur
fylgdust hljóðlega með, h'tið fór
fyrir hvatningu á pöllunum en
meira var um skvaldur.
Keflavíkurstúlkur sýndu mikinn
styrk með því að gefa hvergi eftir
þó þær hefðu náð ágætum tökum á
leiknum. Jenny Boucek, erlendi
leikmaðurinn í liðinu, var allt í öllu
enda skoraði hún sjálf fleiri stig í
fyrri hálfleik en allt ÍS-liðið. Kristín
Blöndal og Erla Reynisdóttir
börðust einnig ágætlega en stóm
stúlkurnar réðu litlu undir körfunni.
„Erfitt að ieika
undir pressu“
„Við komum vel undirbúnar til
leiks en þetta var erfitt og gekk
ekki upp í dag. Það var erfitt að
vera allan leikinn undir pressu en
við reyndum að berjast eins og við
gátum,“ sagði Alda Leif Jónsdóttir
hjá ÍS eftir leikinn en hún átti
ágætan leik ásamt Lovísu
Guðmundsdóttur og Maríu
Leifsdóttur. Stúlkurnar áttu við
ofjarl að etja, stóðu í honum í
upphafi en það tók sinn toll af þreki.
Eg er
stoltur af
mínum
stúlkum
„BETRA liðið vann,“ sagði
Pétur Ingvarsson, þjálfari
ÍS, eftir leikinn en var
stoltur af sínum stúlkum.
„Við komum tilbúin til
leiks eins og þær en þær
voru bara betri. Ég bjóst
ekki við að Keflvíkingarnir
gæfu allt í leikinn og
myndu vanmeta okkur en
það gerðu þær alls ekki og
börðust frá fyrstu mínútu.
Annars er ég stoltur af
mínum stúlkum, þær stóðu
sig eins og hefjur. Ég bjóst
við að þær gæfu allt í leik-
inn og það gerðu þær en
þegar við fáum á okkur
sterka vörn lendum við oft
í vandræðum. Við höfum
svo sem ekki verið að
velgja Keflvíkingum undir
uggum í vetur enda þær
með betra lið en ef við tök-
um útlendinginn hjá þeim
út, eru þetta svipuð lið,“
sagði Pétur Ingvarsson.