Morgunblaðið - 17.02.1998, Síða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 B 9
KÖRFUKNATTLEIKUR KÖRFUKNATTLEIKUR
Benedikt Guðmundsson, þjálfari bikarmeistara Grindavíkur
Gekk upp eins
og í lygasögu
BENEDIKT Guðmundsson, þjálfari Grindvikinga, ákvað fyrir
leikinn að geyma nokkur tromp uppi í erminni, til að hrella ís-
firðinga þegar á hólminn væri komið - hann var búinn að
ákveða að láta lið sitt leika sérstaka vörn - og ætlaði ekki að
leyfa ísfirðingum að skora meira en sjötíu stig. „Við stefndum á
að leika geysilega sterka vörn og settum upp visst varnaraf-
brigði á móti þeim. Það gekk upp alveg eins og í lygasögu.
Menn héldu eflaust að við værum eitthvað að misstíga okkur í
vörninni í byrjun þegar Frikki og Bevis voru að skora undir
körfunni hjá okkur, en það var einmitt vörnin sem við settum
upp. Við ætluðum að taka bakverði þeirra út úr leiknum og
leyfa Frikka og Bevis að leika lausum hala. Ég vissi að þessir
tveir leikmenn myndu aldrei ná að skora áttatíu til níutíu stig.
Við ákváðum að halda hinum niðri og það gekk eins og í lyga-
sögu. Já, það var hreint ótrúlegt hvernig vörn okkar gekk upp,“
sagði Benedikt, sem var ánægður með sína menn. Hann má
það svo sannarlega, þeir fóru algjörlega eftir dagskipun hans,
sögðu: Lok, lok og læs...!
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
Þegar Benedikt var spurður um
hinn öfluga liðsstyrk sem hann
væri með - valinn mann í hverju
rúmi, brosti hann og
sagði: „Það kom fram
í fyrri hálfleik, hvað
liðsheildin er góð - þá
voru þeir Helgi
Jónas, Grikkinn og Darrel ekki að
skera sig neitt úr, heldur voru aðr-
ir leikmenn að leika vel. Við getum
alveg leikið körfuknattleik þó að
þessir þrír, þríeykið sem talað er
um, nái sér ekki á strik. Mér fínnst
að við höfum sýnt mikinn liðs-
styrk."
Benedikt var ekki fullkomlega
ánægður með sóknarleik sinna
manna. „Sóknarleikurinn hjá okk-
ur var á tímum nokkuð stirður. Það
sýnir styrk að skora 95 stig í leik
þar sem sóknarleikurinn nær ekki
að rúlla eins og maður vill hafa
hann.“
Er munurinn jafnmikill á liðun-
um og lokatölurnar segja til um -
95:71?
„Nei, ég get ekki skrifað undir
það. Við vorum betri í þessum leik.
Isfirðingar geta verið stoltir. Þeir
eru með frábært lið, sem hefur
staðið sig vel í vetur.“
Er það ekki annar bikar en
þessi, sem þið sækist eftir?
„Síðustu daga hefur keppnin um
þennan bikar skipt mestu máli hjá
okkur, næst verður það að tryggja
okkur deildarbikarinn og eftir það
hefst keppnin um þann stóra -
sjálfan Islandsbikarinn. Það má
segja að nýtt mót hefjist þegar úr-
slitakeppnin byrjar - baráttan á
eftir að harðna.
Þó að við séum í efsta sætinu og
það sé talið að við séum með besta
liðið, geta orðið breytingar á í mars
- eitthvað annað lið getur verið bú-
ið að ná okkur þá.“
Hvaða lið eru líkleg til afreka og
hafa verið á uppleið?
„Njarðvíkingar hafa verið með
góðan stíganda að undanfömu.
Margir hafa verið að bíða eftir að
þeir nái sér á strik. Þá er ég
smeykur við lið eins og KFI og
Tindastól. Margir gera sér ekki
grein fyrir styrkleika liðanna,
vegna þess að þau eru ekki af Suð-
urnesjunum og hafa ekki verið að
gera stóra hluti undanfarin ár.
Þetta eru mjög sterk lið.
KR-ingar eru á uppleið. Kefla-
víkurliðið byrjaði ekki vel, en hefur
verið að leika vel í vetur. Nú er að-
eins spuming hvernig nýi útlend-
ingurinn falli inn í leikskipulag liðs-
ins. Haukar hafa sýnt mikinn styrk
með því að halda sínu striki þó að
þeir hafí misst Jón Amar Ingvars-
son til Belgíu á miðju keppnistíma-
bili. Við getum tapað fyrir öllum
þessum liðum ef við hittum á slæm-
an dag. Það er hörð keppni
framundan. Já, hörð og spennandi
keppni,“ sagði Benedikt Guð-
mundsson.
„Áttum í erfiðleikum
með að stilla upp“
Guðni Ó. Guðnason, þjálfari ís-
firðinga, sem var að leika sinn
fimmta bikarúrslitaleik, var ekki
ánægður eftir leikinn - sagði að
leikurinn hafi ekki verið nægilega
góður. „Við náðum ekki að nýta
okkar styrkleika, það er að leika
sem næst körfunni, inni í teig.
Grindvíkingar náðu að ýta okkur
út, þannig að við náðum ekki þeim
skotum sem við vorum að leita eft-
ir. Þá náðum við illa að opna fyrir
þriggja stiga skytturnar, en það
er þó þannig að við vinnum yfir-
leitt ekki leiki á þriggja stiga skot-
um.
Grindvíkingar léku mjög sterka
vörn, við áttum í erfiðleikum með
að stilla upp. Þá hittu þeir mjög
vel úr sínum skotum og það er
erfitt að ráða við Grindvíkinga
þegar þeir hitta svona."
Benedikt, þjálfari Grindvíkinga,
sagði fyrir leikinn, að það væri
stefnan að láta ykkur ekki skora
meira en sjötíu stig. Það heppnað-
ist.
„Hverjar urðu lokatölur?“
spurði Guðni og hann fékk að vita
það - 95:71. „Of mikill munur, við
erum vonsviknir. Já, þeim tókst
ætlunarverk sitt. Þeir unnu mjög
verðskuldaðan sigur. Ég vil óska
þeim til hamingju með bikarmeist-
aratitilinn," sagði Guðni.
Góð breidd
hjá Grindavík
Jón Kr. Gíslason, landsliðsþjálf-
ari í körfuknattleik, var meðal
áhorfenda og sagði hann að það
hefði verið einkum tvennt sem réð
úrslitum. „í fyrsta lagi eru Grind-
víkingar með miklu meiri breidd en
ísfirðingar, það sýndu til dæmis
Bergarnir tveir. í annan stað voru
þriggja stiga skotin að fara niður
hjá Grindvíkingum."
Jón Kr. sagði að það hafi verið
aðeins rétt í byrjun sem Isfirðingar
hefðu veitt Grindvíkingum smá
keppni. „Eina ógnun þeirra var
Bevis. Ólafur Ormsson og Salas
fengu fá tækifæri til að taka
þriggja stiga skot.
Það er stórkostlegur sigur fyrir
Grindvíkinga að vinna leikinn með
rúmlega tuttugu stiga mun. Sá
mismunur segir allt - hvað Grinda-
víkurliðið er betra en KFI. Wilson
lék vel og mér fannst Helgi Jónas
leika stórkostlega í sóknarleiknum,
gegnumbrot hans vora glæsileg.
Það er erfitt að eiga við Grindvík-
inga, sem hafa verið að leika mjög
góðan körfuknattleik. Vörn þeirra
er góð, þeir era að pressa þriggja
stiga skyttur andstæðinganna vel,
vitandi að Grikkinn er þeim til
hjálpar ef þeir missa leikmennina
framhjá sér,“ sagði Jón Kr. Gísla-
son.
Frábær
barátta
Helgi Jónas Guðfinnsson náði
sér ekki nægilega á strik í byrjun
leiks, skoraði aðeins þrjú stig í
fyrri hálfleik. Hann var ánægður í
leikslok og sagði ekki annað hægt,
því að það er ekki á hverjum degi
sem maður hampar bikar. „Bar-
áttan var frábær hjá okkur, við
vorum ákveðnir allir sem einn að
fagna sigri. Ég náði mér vel á
strik í seinni hálfleik, en annars
skiptir það ekki máli hvort ég
skori þrjú stig eða tuttugu - aðal-
málið er að fagna sigri. Þá er ég
sáttur," sagði Helgi Jónas og
bætti við. „Það gekk eftir sem var
sett upp fyrir leikinn, að loka á
skytturnar hjá þeim og láta
Frikka og Bevis skora. Það tókst
vel, skyttur ísfirðinga komust
ekki inn í leikinn - og þar með náð-
um við yfirhöndinni, sem við
slepptum aldrei.“
„Við erum
besta lið
á íslandi"
Morgunblaðið/Asdis
TRYLLTUR fögnuður Grindvíkinga. Pétur R. Guðmundsson, fyrirliði þeirra, hampar bikarnum og við hlið hans stendur Helgi Jónas Guðfinnsson,
sem átti mjög góðan leik, skoraði 19 stig og átti átta stoðsendingar.
ÞETTA var harður leikur. Bæði
lið börðust af krafti og ekkert
var gefið eftir; ef við bættum við
okkur gerðu þeir það líka,“ sagði
Darryl Wilson, bandaríski leikmað-
urinn í liði Grindvíkinga, kampakát-
ur að leikslokum.
„Þetta var mjög góður leikur að
mínu mati. Liðsheildin hjá okkur var
góð, ekki bara byrjunarliðið heldur
líka þeir tveir sem komu mest inná
af bekknum.“
Wilson hafði tiltölulega hægt um
sig í fyrri hálfleik en fór á kostum
eftir hlé. Blaðamaður fullyrti að Wil-
son hefði verið tiltölulega „heitur“
eins og körfuboltamenn kalla það,
þegar þeir hitta vel. „Nei, ég var
ekki heitur i kvöld; þetta var eitt af
þessum köldu, stórhríðarkvöldum...“
sagði hann, glotti og bætti við: „...í
fyrri hálfleik. En í seinni hálfleik var
allt annað að sjá til mín. Þá hitnaði
ég, náði að „stela“ boltanum
Þrír léku
allan tímann
HELGI Jónas Guðfínnsson lék
allau tímann á laugardag; var
á vellinum í 40 mínútur. Sömu
sögu er að segja af fsfirðing-
unum Friðrik E. Stefánssyni
og David Bevis. Darryl Wilson
ly'á Grindavík lék hins vegar í
39 mínútur; fór skamma stund
af velli seint í leiknum eftir að
hann fékk sinadrátt.
nokkrum sinnum og liðið í heild náði
sér mjög vel á strik. Við náðum að
stilla strengi okkar vel saman.“
Besta lið á íslandi
„Við erum með betra lið en þeir.
Ég tel engan vafa á því. Þess vegna
var mjög sárt að tapa fyrir KFÍ
heima í Grindavík í vetur en við vor-
um ákveðnir í að láta það ekki koma
fyrir aftur. Þá komum við ekki nægi-
lega vel undirbúnir til leiks en nú var
allt annað uppi á teningnum. Við er-
um, að mínu mati, besta lið á íslandi,“
sagði Grikkinn Konstantin Tsartsaris
við Morgunblaðið að leikslokum.
„Mér fannst þeir vera slæmir á
taugum í leiknum; ég hef ekki séð þá
svona áður. Það er örugglega vegna
þess að um úrslitaleik var að ræða, en
það skipti okkur ekki máli. Við erum
með reyndara lið þannig að þetta var
eins og hver annar leikur fjrir okkur.“
Ekki nógu ákveðnir
„Við komum alls ekki nægilega
ákveðnir til leiks í dag; fengum ekki á
okkur nema fjórar villur í fyrri hálfleik
en þeh' miklu fleiri. Það segir mér að
við höfúm alls ekki tekið nægilega á í
vöminni,“ sagði David Bevis, Banda-
ríkjamaðurinn í liði KFI og langbesti
maður liðsins, við Morgunblaðið.
„Þetta hefur verið vandamál hjá
okkiu' í síðustu leikjum, en ég kann
enga skýringu á því hvers vegna svo
er. Við höfum gjaman náð að koma af
miklum krafti til leiks eftir leikhlé í
vetur en það gerðist ekki núna. Þeir
vom reyndir mjög „heitir“ fyrir utan -
hittu þá frábærlega, og það gerði okk-
ur geysilega erfitt fyrir í vöminni."
Lífið er saltfiskur - og körfubolti
LÍFIÐ er saltfiskur, var letrað á eitt auglýsingaskiltanna í Laug-
ardalshöll þegar Grindvíkingar og ísfirðingar leiddu saman
hesta sína í bikarúrslitaleik karla í körfuknattleik á laugardag.
Athyglisverð tenging við Nóbelsskáldið á útfarardegi þess,
kynni einhver að hugsa, því eins og íslendingar vita mæta vel
er mikill sannleikur fólginn í orðum Sölku Völku: „þegar öllu er
á botninn hvolft þá er lífið þó umfram alt saltfiskur en ekki
draumaríngl". Og hverjir ættu svo sem frekar að gera sér grein
fyrir því en fólkið sem troðfyllti Höllina á laugardag; íbúar sjáv-
arplássa eins og Grindavíkur og ísafjarðar, þó Vestfirðingarnir
séu ef til vill frekar á þeirri skoðun að lífið sé skata ellegar
harðfiskur. Darryl Wilson og Konstantinos Tsartsaris hafa lík-
lega aldrei unnið í fiski en ekki er ofsagt að þeir, og aðrir leik-
menn Grindavíkurliðsins, hafi boðið upp á veislu á laugardag
og upp frá því borði stóðu þeir sigurvegarar; gerðu 95 stig í
leiknum en ísfirðingar 71.
Grindvíkingar
körfuboltalið
eiga betra
en Isfirðingar.
Það var vitað, en í leik sem þess-
■■■HH um getur auðvitað
Skapti allt gerst. Það eru
Hallgrímsson gömul sannindi og
ný. Öllu skiptir að
koma rétt stemmdur
til leiks, að sjálfstraustið sé nægj-
anlegt; að lakara liðið trúi því að
það geti sigrað og sterkara liðið
telji sér trú um að það þurfi að
Wilson og Helgi fóm á kostum
DARREL J. Wilson og Helgi Jónas Guðfinnsson fóru á kostum í
seinni hálfleik og skoniðu þeir 39 af 46 stigum Grindvíkinga í
hálfleiknum, eða 84,78% af stigum þeirra. Wilson var þá með 23
stig og HeJgi Jónas 16. Þeir skoruðu 35 af fyrstu 37 stigum Grind-
víkinga _ í stöðunni 49:37 í 86:66, aðeins Bergur Eðvarðsson
komst að með eina körfu, 66:54. Þríeykið hjá Grindavík, Wilson,
Helgi Jónas og Tsartsaris, skoruðu saintals 68 stig í leiknum, eða
71,5% af stigum liðsins.
hafa fyrir hlutunum. Ekki bar á
öðru framan af en að öll væru
þessi atriði í lagi. Leikurinn var í
járnum, ísfirðingar tóku síðan
forystu og héldu henni um stund.
Þeir börðust eins og ljón og bæði
lið léku hratt; nokkuð sem ekki
var reiknað með að hentaði ísfirð-
ingum. Enda fór svo að botninn
datt úr leik þeirra síðari hluta
fyrri hálfleiks. Engu var líkara en
þeir misstu móðinn; þeim gekk
illa að hitta körfuna, sóknarleik-
urinn varð ómarkviss og vörnin -
sem verið hafði góð - átti erfitt
uppdráttar. Staðan var 30:30 upp
úr miðjum hálfleik en þegar þar
var komið sögu minntu skyttur
Grindvíkinga á sig; munurinn
varð sex stig eftir tvær þriggja
stiga körfur og þegar Darrell Wil-
son gerði síðustu körfu fyrri hálf-
leiks - með þriggja stiga skoti
langt utan af velli - breytti hann
stöðunni í 49:37.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
Grindvíkinga, sagði í Morgunblaðinu á
laugardag að hann ætlaði sér að stilla
upp vörn sem hentaði vel gegn ísfirð-
ingum. Nema hvað. Og áætlunin gekk
eftir; Grindvíkingar höfðu góðar gætur
á langskyttum andstæðinganna, sem
geta orðið erfiðar viðfangs nái þær að
hitna, einsog sagt er, en vildu heldur
láta stóru mennina skjóta innan teigs.
David Bevis færði sér það í nyt, lék
geysilega vel og gerði alls 32 stig í leikn-
um og tók 16 fráköst, en getur augljós-
lega ekki fært liðinu sigur nánast upp á
eigin spýtur. Friðrik Stefánsson er stór
og sterkur drengur, sem tók nú til að
mynda 10 fráköst, en léleg skot eru
veikleiki hans eins og berlega kom í ljós
að þessu sinni. Hann gerði aðeins 11
stig og í raun skapaðist ekki mikil
hætta þó hann fengi knöttinn inni í teig.
Marcos Salas gerði 10 stig og Ólafur
Ormsson aðeins 8, þannig að fullyrða
má að varnaraðferð Grindvíkinga hafí
gengið upp.
Og þegar Grindavíkurliðið nær að
hemja andstæðing sinn með góðum
varnarleik getur niðurstaðan aðeins
orðið ein. Sóknarleikur Grindvíkinga er
frábær, þegar þeir ná sér virkilega á
strik, og það gerðu þeir sannarlega í
þessum mikilvæga leik. Helgi Jónas og
Wilson era frábærar skyttur auk þess
að hafa næmt auga fyrir samleik; Helgi
gerði 19 stig og átti 8 stoðsendingar,
Wilson gerði 37 stig og átti 5 stoðsend-
ingar. Þeir höfðu reyndar tiltölulega
hægt um sig í fyrri hálfleik en blómstr-
uðu eftir hlé; skotin rötuðu rétta leið og
gegnumbrot Helga Jónasar voru stór-
kostleg. Þegar svo við bætist Grikkinn
Tsartaris, sem skoraði reyndar aðeins
+
12 stig, en tók 15 fráköst og varði 7
skot, eiga andstæðingarnir ekki von á
góðu. En Grindavíkurliðið er vitaskuld
ekki einvörðungu skipað þremur mönn-
um; Bergur Hinriksson var t.d. dýr-
mætur að þessu sinni, gerði 13 stig og
lék mjög góða vörn gegn Bevis í seinni
hálfleik.
Þegar öllu er á botninn hvolft var sig-
ur Grindvíkinga mjög sanngjam. Um
tíma í seinni hálfleik leit út fyrir að Is-
firðingar myndu ógna þeim en allt kom
fyrir ekki. Tsartaris fékk 4. villu sína eft-
ir aðeins sjö mín. og fór af velli, munur-
inn var þá 14 stig, en þegar hann kom
inná aftur seinni hluta hálfleiksins mun-
aði 17 stigum. Þó hans nyti ekki við
sýndu félagar hans hvers þeir era megn-
ugir. Breiddin er mun meiri í hópi
Grindvíkinga en Isfirðinga.
Þrátt fyiúr að ísfirðingar hafi tapað
úrslitaleiknum er ekki annað hægt að
dást að þeim. Leikmönnunum, sem
gerðu hvað þeir _gátu, og stuðnings-
mönnum liðsins, Isfólkinu einsog það
nefnir sig, sem fjölmenntu og hvöttu
menn sína til dáða. Grindjánarnir
svokölluðu úr Grindavík fóra einnig á
kostum á áhorfendapöllunum og það
voru þeir sem fógnuðu að leikslokum að
þessu sinni. Sigurinn var þeirra, en
segja má að íþróttin hafi í raun sigrað.
Allt fór svo prúðmannlega fram, utan
sem innan vallar. Boðið var upp á leik-
sýningu sem unun var á að horfa.
Grindvíkingar og ísfirðingar eiga
þakkir skildar fyrir eftirminnilegan dag.
Lið beggja hafa leikið vel í vetur og
stuðningsmennirnir einmitt verið áber:
andi fyrir skemmtilega framkomu. í
þessum tveimur byggðarlögum er lífið
fiskur. Fiskur og körfubolti.
Lék við
hvern
sinn fing-
Morgunblaðið/Ásdís
DARRYL J. Wilson sækir að körfu ísfirðinga, Friðrik Stefánsson
er til varnar. Wilson skoraði 37 stig í leiknum.
ur i nyj-
um skóm
ÞEGAR leikhlé var tekið undir
lok fyrri hálfleiksins notaði
Grindvíkingurinn Darryl J. Wil-
son tækifærið og bað liðstjórann
Dagbjart Willardsson um nýja
skó, en Wilson átti erfitt með að
fóta sig á vellinum, þar sem búið
var að festa sextán auglýsinga-
dúka víðs vegar á völlinn - hann
rann til hvað eftir annað. Dag-
bjartur, sem söng baráttusöng
Grindvíkinga; „Þeir skora og
skora...“ inn á hljómplötu, fór inn
í búningsklefa og náði í nýja skó
fyrir Wilson, sem hann fór í í
næsta leikhléi. Wilson byijaði á
því að skora þriggja stiga körfu
langt utan af velli nokkrum sek.
fyrir leikhlé, 49:37. Hann setti
síðan niður þriggja stiga skot í
upphafí seinni hálfleiksins og
skoraði sjö fyrstu stig Grindvík-
inga í hálfleiknum. Já, Wilson lék
við hvern sinn fingur í nýju skón-
■ KONSTANTINOS Tsartsaris,
hinn hávaxni leikmaður Grindavík-
ur, vann uppkastið í byrjun leiks-
ins, er hann stökk upp með Friðriki
Stefánssyni - sló knöttinn til
Darryl J. Wilson.
■ ÞAÐ var við hæfí að Pétur R.
Guðmundsson setti knöttinn fyrst-
ur manna í körfuna og skoraði einu
stig sín í leiknum, 2:0. Pétur er einn
af fjóram Grindvíkingum, sem enn
leika með, sem urðu bikarmeistarar
1995. Hinir era Helgi Jónas Guð-
finnsson, Bergur Hinriksson og
Unndór Sigurðsson.
■ HELGI Jónas Guðfhmsson
reyndi fyrstur þriggja stiga skot,
eða eftir eina mín. - skot hans geig-
aði. Það var aftur á móti Guðlaugur
Eyjólfsson sem skoraði með
þriggja stiga skoti fyrir Grindavík
skömmu síðar, 5:2. Næsta þriggja
stiga karfa kom eftir 12,30 mín. er
Grindvíkingurinn Bergur Hinriks-
son skoraði 33:30 og í kjölfarið kom
önnur þriggja stiga karfa frá
Darryl J. Wilson 36:30.
■ ÞAÐ var ekki fyrr en í seinni
hálfleik, er 22,30 mín. vora búnar af
leiknum sem ísfirðingar settu nið-
ur þriggja stiga skot. Það gerði Da-
vid Bevis og undir lok leiksins
skoraði Baldur Jónsson eina
þriggja stiga körfu og Magnús
Gislason tvær.
■ BALDUR og Magnús skoraðu
aðeins með þessum þriggja stiga
skotum. Einn Grindvíkingur skor-
aði sín sex stig í leiknum með
tveimur þriggja stiga körfúm, Guð-
laugur Eyjólfsson.
■ GRINDVÍKINGAR settu niður
ellefu þriggja stiga skot af 29 skot-
um, eða 33 stig. Það vora 34,7% af
stigum þeirra í leiknum. Helgi
Jónas og Wilson settu niður fjórar
hvor, Guðlaugur tvær og Bergur
Hinriksson eina.
■ ÍSFIRÐINGAR nýttu aðeins
fjögur þriggja stiga skot af 16,
skoraðu 12 stig, eða 16,9% af stig-
um sínum, með þriggja stiga skot-
um. Magnús Gíslason setti niður
tvö skot og þeir Bevis og Baldur
eitt hvor.
■ NÝTING KFÍ í þriggja stiga
skotum var 25%, en Grindvíkinga
37,9%._
■ GRÍSKI leikmaðurinn Tsartsaris
fékk sína fjórðu villu þegar 12 mín.
vora til leiksloka og staðan 64:50
fyrir Grindavík. Hann var þá tek-
inn af leikvelli, en kom inná undir
lokin.
■ ÞEGAR 1,57 mín. vora eftir af
leiknum og öraggur sigur Grind-
víkinga í höfn, opnuðu þeir kassa
sem hafði að geyma gular húfur,
sem á stóð: Grindavík - bikarmeist-
ari 1998. Leikmennimir á vara-
mannabekknum settu húfurnar
sti-ax upp.
■ ÍSFIRÐINGAR mættu með kór-
ónur, en það verður að bíða betri
tíma að leikmenn KFÍ setji þær
upp.
■ DAVID Bevis skoraði 32 stig fyr-
h- Isfirðinga, eða 45% af stigum
þein-a. Friðrik Stefánsson skoraði
ellefu stig, samtals skoraðu þeir
60,6% af stigum KFÍ.
■ DAVID Bevis tók flest fráköst í
leiknum, eða 16. Hann tók tólf vam-
arfráköst og fógur í sókn. Friðrik
Stefánsson tók tíu fráköst, þannig
að þeir félagar tóku samtals 26 frá-
köst af 37 sem ísfirðingar tóku.
■ KONSTANTINOS Tsartsaris,
tók 15 fráköst af 29 sem Grindvík-
ingar tóku, ellefu í vöm og fjögur í
sókn.
■ HELGI Jónas átti flestar
stoðsendingar í leiknum, eða átta af
21 sendingum Grindvíkinga. Wil-
son kom næstur á blaði með fimm
sendingar, en David Bevis átti fjór-
ar stoðsendingar af ellefu sending-
um KFÍ.