Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 12
12 B PRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
KNATTSPYRNA
MORGUNB LAÐIÐ
Þrenna
hjá
Ronaldo
Juventus hefur enn fjögurra stiga
forystu í ítölsku deildinni og það
var ekki síst fyrir góðan leik sókn-
ardúetsins Alessandro Del Piero og
Filippo Inzaghi. Hvor um sig gerði
eitt mark þegar liðið vann Samp-
doria 3:0 og hafa þeir félagar nú
gert 37 mörk fyrir Juventus í vetur
og slíkum árangri hefur enginn
sóknardúett náð síðan þeir Michel
Platini og Paulo Rossi voru hjá Ju-
ve. Þriðja markið gerði Daniel Fon-
seca, sem kom inná fyrir Izaghi, eft-
ir sendingu frá Del Piero.
Ronaldo var einnig í essinu sínu
um helgina og gerði þrennu er Inter
Milan vann Lecce 5:0. Hann hefur
verið gagnrýndur talsvert að und-
anförnu fyrir að leika ekki nógu vei
en forráðamenn Inter Milan hljóta
að vera í sjöunda himni með pilt
þessa dagana. Það gerist varla
betra í einum leik en að gera þrjú
mörk og leggja eitt upp, en hann
lagði upp mark Mauros Milanese,
hans fyrsta mark fyrir félagið en
hann var nýlega keyptur frá Parma.
Oliver Bierhoff tryggði Udinese
eitt stig er liðið var í heimsókn hjá
Parma. Bierhoff, sem er marka-
hæsti maður deildarinnar með 17
mörk, jafnaði metin skömmu fyrir
leikslok en lið Parma var manni
færra allt frá því skömmu fyrir leik-
hlé.
Hollendingurinn Patrick Kiuivert
gerði tvö mörk þegar AC Milan
vann bikarmeistara Vicenza 4:1 og
þóttu leikmenn Milan sýna gamal-
kunna takta.
Leikmenn
PSG teknir
á beinið
MICHEL Denisot, forseti
Parísar St. Germain, sakaði
suma leikmenn félagsins um
að virða hvorki þaö né stuðn-
ingmenn þess eftir að liðið
tapaði 1:0 heima á móti
Nantes í frönsku deildinni um
helgina, en þetta var fjórða
tap liðsins í röð.
I frönskum fjölmiðlum kom
fram að PSG hefði haft sam-
band við Arrigo Sacchi, fyrr-
verandi þjálfara AC Milan og
ítalska landsliðsins, en Marco
Simone, fyrrverandi miðheiji
AC Milan, varði brasih'ska
þjálfarann Ricardo hjá PSG.
„Við eigum í erfiðleikum en
það kemur fyrir öll lið. í fyrra
skiptum við um þjálfara hjá
Milan en það breytti engu.“
Paris St. Germain er í
fímmta sæti, sex stigum á eftir
Marseille og Metz í efsta sæti.
Owen
er
bestur
Reuters
MICHAEL Owen fagnar þriðja marki sínu gegn Sheffield Wednesday og um leið nýju meti. Hann er
yngsti leikmaðurinn sem gert hefur þrennu í úrvalsdeildinni.
Michael Owen
óstöðvandi
Mi
daga gamall - varð á laugar-
dag yngsti leikmaðurinn til að gera
þrennu í ensku úrvalsdeildinni, þeg-
ar hann skoraði öll mörk Liverpool í
3-3 jafntefli við Sheffield Wednes-
day á Hillsborough. Er hann þriðji
yngsti þrennugerðarmaðurinn í
efstu deild ensku knattspyrnunnar
frá upphafi, aðeins Alan Shearer og
Jimmy Greaves voru yngri þegar
þeir gerðu fyrst þrjú mörk í deildar-
leik. Shearer 17 ára og 240 daga
þegar hann skoraði fyrir Sout-
hampton gegn Arsenal í apríl 1988
og Greaves 17 ára og tíu mánaða
þegar hann gerði þrennu fyrir Chel-
sea gegn Portsmouth í desember
1957.
Sheffield Wednesday komst í 3-1
í leiknum með mörkum frá Benito
Carbone, Paolo Di Canio og Andy
Hinchliffe en Owen bjargaði andliti
gestanna. Engu að síður gefur jafn-
teflið ekki rétta mynd af gangi mála
því sóknarmenn Liverpool, einkum
Owen, fóru á kostum og hefði vörn-
in staðið sína plikt hefði liðið unnið
auðveldan sigur. Það gerði hún hins
vegar ekki, frekar en gegn Sout-
hampton um síðustu helgi, og ætli
Liverpool að velta féndunum fornu,
Eyjólfur góður á móti Bayern
Eyjólfur Sverrisson og samherjar
í Hertha unnu Bayem Munchen
2:1 í þýsku deildinni um helgina.
Eyjólfur var öflugur í vörn Hertha
og þó Bayern sótti stíft undir lokin
stóðust nýliðamir áhlaupið að við-
stöddum 76.000 áhorfendum á
ólympíuleikvanginum í Berlín. Mich-
ael Preetz skoraði á 18. mínútu og
Ant Covic bætti öðm marki við 20
mínútum fyrir leikslok, en aðeins
Oliver Kahn í marki Bayern kom í
veg fyrir að nýliðarnir gerðu fleiri
mörk. Preetz skallaði í eigin mark á
83. mínútu og þar við sat.
Lothar Mattháus, vamarmaður
hjá Bayern, sagði að andi Valent-
ínusardagsins hafi verið ofarlega í
huga samherja sinna. ,Á þessum
degi gefa menn gjafir til þeirra sem
þeir elska. í dag fékk Hertha gjöf-
ina“ sagði hann, en við sigurinn
færðust nýliðamir upp um tvö sæti
og em í áttunda sæti með 50% ár-
angur.
Kaiserslautern vann Stuttgart 1:0
og er með fimm stiga forystu. Mari-
an Hristov frá Búlgaríu nýtti sér
varnarmistök undir lokin og skoraði
af öryggi en þetta var fyrsta tap
Stuttgart á heimavelli í vetur. Upp-
selt var á völlinn, um 53.000 manns.
Otto Rehhagel, þjálfari nýliðanna,
hefur verið jarðbundinn allt tímabil-
ið en gat ekki leynt bjartsýni sinni
eftir sigurinn í Stuttgart. „Við mætt-
um til leiks með því hugarfari að
nýta færin og gerðum það. Ég er
ánægður með sigurinn og útlitið er
bjart hjá okkur.“
1860 Munchen komst í 3:1 á móti
Leverkusen en tapaði 4:3. Ulf Kirst-
en, Marku Happe og Paolo Rink frá
Brasilíu, sem gerði tvö mörk, skor-
uðu fyrir Leverkusen í seinni hálf-
leik. Werner Lorant, þjálfari 1860
sagði að það sem hann vildi segja um
lið sitt væri ekki prenthæft en
Christoph Daum, þjálfari Leverku-
sen, hrósaði sínum mönnum í há-
stert. „Þetta var sterkt fyrir liðsand-
ann og við sýndum að menn mega
aldrei gefast upp.“ Miðherjinn Erik
Meijer hjá Leverkusen meiddist á
hné og verður væntanlega frá í sex
vikur.
Bochum vann Gladbach 3:1 og fór
úr fallsæti en Rostock vann Bielefeld
2:1 og er áfram í baráttu um Evr-
ópusæti.
Manchester United, af stalli er ljóst
að stoppa verður í götin.
Eftir að Owen hafði jafnað, 1-1,
var sem heimamenn ætluðu að
hanga á jafnteflinu. Ron Atkinson
tefldi fram þremur miðvörðum eftir
hlé í þeirri von að stöðva Owen og
herbragðið bar árangur - lið hans
gerði tvö mörk á sjö mínútum um
miðjan seinni hálfleik.
Eftir að Evans hafði skipt Karl-
heinz Riedle og Patrik Berger inná
fyrir varnarmennina Rob Jones og
Björn Tore Kvarme fóru hjólin að
snúast hjá gestunum og undrabam-
ið gerði tvö mörk.
Derby gerði góða ferð til Liver-
pool, vann Everton 2:1 og fór í
fimmta sætið. Þetta var fyrsta tap
Everton á Goodison Park á árinu og
auk þess missti liðið Duncan Fergu-
son út af með rautt spjald fyrir
háskaleik eftir stundarfjórðungs-
leik.
Franski miðherjinn Michael
Madar hjá Everton fór meiddur af
velli eftir 10 mínútur og Tony Grant
fór sömu leið skömmu fyrir hlé. Lið-
ið mátti ekki við þessu og á brattan
var að sækja í stöðunni 2:0 en því
tókst að klóra í bakkann áður en yf-
ir lauk.
Tottenham fékk Leicester í heim-
sókn og gerðu liðin 1:1 jafntefli á
White Hart Lane. David Ginola fór
á kostum hjá Spurs en Pegguy Arp-
hexad var líka frábær í marki
Leicester og hirti fyrirgjafir landa
síns hvað eftir annað.
■ Urslit /B14
■ Staðan / B14
LIÐIN vika var merkileg í
sögu Michaels Owens hjá
Liverpool. Hann lék fyrsta
landsleik sinn, var í byijun-
arliði Englands á móti
Cliile og er yngsti lands-
liðsmaður Englands á öld-
inni. Þessi rúmlega 18 ára
piltur var svo aftur í sviðs-
Ijósinu um helgina þegar
hann gerði þrennu í fyrsta
sinn á atvinnumannsferlin-
um og er yngsti leikmaður-
inn sem gerir þrennu í
efstu deild á Englandi.
Hann var maður fyrmefnds
landsleiks að mati Sky-
sjónvarpsstöðvarinnar og
var maður leiksins í Sheffí-
eld um helgina. Karlheinz
Riedle, samherji lians frá
Þýskalandi, var heldur ekki
að skafa utan af því. „Ég
hef aldrei kynnst miðheija
eins og honum,“ sagði
Þjóðveijinn sem hefur
lengstum þurft að verma
varamannabekkinn vegna
frammistöðu Owens og
Robbies Fowlers frammi.
„Hann er sá besti sem ég
hef leikið með.“
Riedle hefur leikið með
mörgum góðum leikmönn-
um eins og Rudi Völler og
Jörgen Klinsmann. „Sign-
ori var mjög góður en
Owen er sá besti“ sagði
hann, en Giuseppe Signori
var samheiji hans hjá
Lazio á Ítalíu. „Michael
stendur upp úr.“
Ron Atkinson, knatt-
spyrnusfjóri Sheffield Wed-
nesday, hrósaði Owen líka.
„Ég gerði breytingar í hálf-
leik til að reyna að stöðva
Owen sem hafði sýnt leik-
mönnum mínum hæla sína
hvað eftir annað. Þær skil-
uðu sínu - hann gerði að-
eins tvö mörk eftir þær.“
Glenn Hoddle var ánægð-
ur með strákinn í lands-
leiknum. „Þetta var frábær
frammistaða með það f
huga að um fyrsta lands-
leik var að ræða. Fram-
ganga hans hefur hjálpað
honum á leiðinni til Frakk-
lands og skemmdi svo sann-
arlega ekki fyrir honum.
Hann á ýmislegt ólært en
hann verður æ betri.“
Roy Evans, sljóri Liver-
pool, hefur gætt þess að of-
bjóða honum ekki. „Ef
álagið er of mikið verður
hann lengur frá. Sýni hann
þreytumerki tek ég hann
úr liðinu.“
Evans sagðist hafa verið
ánægður með piltinn í
landsleiknum. „Ég sagði
honum að snúa sér að viður-
eign okkar á Hillsborough,"
sagði Evans og Owen gerði
það heldur betur.