Morgunblaðið - 13.03.1998, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1998 B 7 *
DAGLEGT LÍF
HÓPUR stúlkna frá Skautafélagi Reykjavíkur æfir nú af kappi fyrir Íslandsmót í listdansi. Rósa Ásgeirsdóttir, Linda Viðarsdóttir,
Snædís Ingadóttir, Sigurlaug Árnadóttir og Ólöf Ólafsdóttir.
Morgunblaðið/Golli
Draumurinn
að keppa erlendis og læra í Englandi
SKAUTADROTTNINGIN unga
Michelle Kwan heillaði marga upp úr
skónum á nýliðnum vetrarólympíu-
leikum^ í Nagano, ekki síst Sigur-
laugu Ámadóttur 13 ára nemanda í 8.
bekk LJ í Hlíðaskóla.
Fjórir flokkar æfa listdans hjá
Skautafélagi Reykjavíkur og er Sig-
urlaug ein fimm stúlkna sem lengst
eru komnar. Þessa dagana eru þær
að æfa fyrir íslandsmót í listdansi 21.
mars næstkomandi og væntanlega
opnunarhátíð skautasvellsins í Laug-
ardal þar sem þær munu meðal ann-
ars sýna hópdans sem á ensku nefn-
ist „precision skating", nýja keppnis-
grein þar sem nokkrir dansarar eru á
svellinu í einu og hreyfa sig samtímis sem einn maður.
Sigurlaug byrjaði að æfa skautaíþróttina sjö ára göm-
ul á nýju svelli í Laugardal og á glænýjum skautum.
Ekki spillti fyrir að Steinvör stóra systir var nýbyrjuð
að æfa listdans. „Ég hafði rennt mér á skautum á Tjöm-
inni og ósinum við Höfn í Hornafirði þegar ég átti heima
þar. Við krakkarnir renndum okkur líka stundum á polli
fyrir framan íþróttahúsið. Ég hafði verið í ballett en
hætti og fannst gaman að byrja á íþrótt §
sem enginn annar var að æfa. Listdans-
ins virtist ágætis framhald af ballettinum
og er líka spennandi íþróttagrein," segir
hún.
Stúlkumar æfa þrisvar til fjórum sinnum í
viku en æfingatíminn hefur verið nokkuð á reiki
fyrir Islandsmótið og tímar meðal annars fallið
niður vegna framkvæmda við yfirbygginguna. „Að-
staðan hefur að vísu batnað mikið síðan þakið var
byggt því það var erfitt að æfa í rigningu eða þegar
snjórinn festist á ísnum. Gallinn er hins vegar sá að
okkur vantar
þjálfara,“
segir Sigurlaug.
Stelpurnar í hópn-
um eru flestar 16-19 ára og sú
elsta, sem er tvítug, hefur tekið kenn-
arapróf ytra. Pær eldri hafa tekið að sér að
leiðbeina krökkunum í yngsta hópnum sem
er einna blandaðastur því þar eru bæði stelpur
og strákar og áhuginn er slíkur hjá yngri kyn-
slóðinni að til stendur að koma fimmta flokkinum
á fót. Hópur Sigurlaugar fær síðan leiðsögn í þrjá
daga um næstu helgi en þá kemur kennari frá
Englandi til þess að hjálpa stelpunum fyrir ís-
landsmótið.
Erfitt en ótrúlega
skemmtilegt
Hún segir erfitt að læra listdans en ótrúlega
skemmtilegt sé áhuginn fyrir hendi. Nauðsyn-
legir eiginleikar eru gott úthald og líkamlegur
styrkur og ekki spillir fyrir að vera liðugur því
þá eru hreyfingarnar fallegri að hennar sögn.
Að mörgu er að hyggja þegar ætlunin er að
nema listdans til fullnustu. Fyrsta skrefið er að M;
kunna vel að skauta afturábak og áfram, '
krossa, halda jafnvægi og stjórna brúnum
skautanna svo hægt sé að gera ytri og innri boga.
Sigurlaug Árnadóttir
er ein þeirra stúlkna
sem nú æfa af kappi
fyrir Islandsmót í list-
dansi á skautum. Helga
Kristín Einarsdóttir
spjallaði við þrettán ára
skautadrottninffli með
eldrautt hár.
Þegar að stökkunum kemur er svo
byrjað á valshoppi, sem er hálfhring-
ur.
Skautasnillingar eru ekki á hverju
strái á íslandi segir Sigurlaug, sem
ásamt stöllum sínum fjórum er
lengst komin í íþróttinni og getur
lent úr tvöföldu stökki. Ein þrautin
er hringsnúningur á öðrum fæti eða
pirouette líkt og í ballett og stökkin
heita cherry-flip, toe-loop, salchow,
loop, flip, lutz og axel útskýrir hún.
Dansarinn snýr sér einn hring í loft-
inu í þeim öllum nema axel þar sem
farið er hálfan hring til viðbótar og
þegar meiri færni er náð verður
hringurinn tvöfaldur eða þrefaldur.
Kúnstin er síðan að lenda bæði standandi og fallega.
Sigurlaug segir að verið sé að reyna að koma skipu-
lagi á íþróttina og að Islandsmót í listdansi hafi nú verið
haldið tvö ár í röð. Stúlkumar hafa hins vegar farið í
æfingabúðir til Englands tvö síðastliðin sumur vegna
skorts á viðeigandi þjálfun hér. Ekki er heldur víst að
þær komist allar út í sumar því kostnaður við skauta-
tíma, leiðsögn, fæði, húsnæði, flugfar og uppihald er
talsvert mikill segir Sigurlaug.
„Mig langar mikið til þess að halda áfram að æfa, til
dæmis í Bretlandi, því þar eru góðir kennarar,“ segir
hún aðspurð um framtíðina.
Hver stúlknanna um sig hefur samið æfingar fyrir Is-
landsmótið að þessu sinni og byggt á kennslu sem þær
fengu á námskeiðinu ytra í fyrrasumar. „Draumur-
inn er að komast út og keppa, ekki á einhverju
stórmóti heldur bara
alþjóðlegu móti og
öðlast reynslu.
Ekki það að ég
geri mér vonir
um fyrsta sæt-
ið. Ég vil bara fá að
vera með,“ segir hún.
Mamma saumar
En keppni á íslands-
móti felur í sér ýmislegt
fleira en líkamlega áreynslu, svo sem
klæðnað við hæfi. „Mamma saumaði á mig búning
í fyrra en hann er orðinn dálítið lítill. Eg er að
hugsa um að hafa þann nýja annað hvort rauðan eða
grænan. Rauður passar við lagið en grænn á senni-
lega betur við hárið á mér,“ segir Sigurlaug.
Tónlistin er auðvitað úr stórmyndinni Titanic.
„Lagið sem ég valdi er úr myndinni en samt ekki
það sem er vinsælast núna. Myndin var æðislega
skemmtileg. Ég var alveg eftir mig þegar hún var bú-
in,“ segir Sigurlaug loks og í ljós kemur að fleiri heilla
en Michelle Kwan.
Kannski Leonardo Di Caprio?
„Jú, ætli hann sé ekki aðal sjarmörinn," viðurkennir
Sigurlaug Árnadóttir skautadrottning að síðustu.
SIGURLAUG Árnadóttir er ein fárra sem
getur lent úr tvöfóldu stökki.
SYSTURNAR Sigurlaug, þá 8 ára, Ragnhildur Eik og Steinvör Þöll á
skautum. Steinvör er hætt æfingum en öðru máli gegnir um þær yngri.
1ÖKÖ Z±oð
Kæliskápar/ísskápar/Frystar
VERSLUN FYRIR ALLA
RAOGREIDSLUR
Vi& Fellsmúla • Sími 588 7332
OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-1
EUROCARD
raðgreiðslur