Morgunblaðið - 15.03.1998, Page 4

Morgunblaðið - 15.03.1998, Page 4
4 B SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ smíða í anda frönsku 18. aldar org- elanna á sjöunda og áttunda ára- tugnum. Stefna mín hefur alltaf verið sú að taka fullt tillit til hefð- anna en fylgja ekki einni ákveðinni stefnu í blindni." - Pú nefndir áðan ameríska 19. aldar orgelið sem fyrirmynd að ein- hverju leyti, er sterk hefð fyrir org- elsmíði 1 Bandaríkjunum? „Já, og það kom mér algjörlega í opna skjöldu. Ég hafði ekki hug- mynd um það. Þegar ég kom til Boston í fyrsta skipti var farið með mig í kynnisferð og mér sýnd amer- ísk pípuorgel á Bostonsvæðinu frá 19. öld. Ég var alveg gáttaður á fjölda þeirra og hversu vönduð smíðin var og hvað þau höfðu mót- aðan stíl. En nú er ég að tala um orgel smíðuð á tímabihnu 1840-1890 því eftir það var aðaláherslan lögð á stærð og hljómstyrk. Þetta gekk svo langt að amerísk orgel smíðuð á fyrri hluta þessarar aldar eru hálf- gerð skrímsli í mínum huga. Það er líka rétt að hafa í huga að ameríska Nýja-Englands orgelið frá 19. öld byggir á enskri hefð en ekki þýskri. En orgelsmiðimir í Boston fóru sín- ar eigin leiðir strax í byrjun 19. ald- arinnar og mér finnst það dálítið merkilegt að út frá því þróaðist al- veg sérstakt hljóðfæri; rómantíska 19. aldar orgelið frá Boston sem byggir á enska síð-barokkorgelinu. Mér fannst - og finnst reyndar enn - að þama hafi ég fundið týnda hlekkinn í þeirri viðleitni að móta orgel sem þjónaði jafii vel allri þeirri ólíku tónlist sem samin hefur verið fyrir kirkjuorgel í gegnum aldimar og uppfyllti jafnfram þær fjölmörgu þarfir sem nútímakirkjur og söfnuð- ir þeirra hafa. Við skulum hafa í huga að ameríska orgelinu var ætlað annað hlutverk í kirkjunni en því evrópska. Hinu ameríska var ætlað að lyfta undir og styðja almennan söng safnaðarins mun meira en tíðk- aðist á meginlandi Evrópu eða í Englandi á þeim tíma.“ - Er orgelsmíði ekki alveg jafnt listgrein sem handverk? „Það finnst mér. En námið geng- ur alveg út frá því að þetta sé hand- verk. í Þýskalandi þar sem ég lærði mitt fag er námið byggt upp á ná- kvæmlega sama hátt og húsgagna- smíði og rafvirkjun, þetta er kennt eins og hver önnur iðngrein. En það er algjörlega út í hött, þar sem handverkið, smíðin sjálf, er ekki nema hluti af verkinu. Til þess að verða góður orgelsmiður þarf að sökkva sér í sögulegan, menningar- legan og listrænan bakgrunn ldrkjuorgelsins og kunna skil á tón- listinni sem samin hefur verið fyrir hljóðfærið í gegnum aldimar. Saga kirkjubyggingarlistar er einnig ómissandi þóttur. Þetta er afskap- lega fullnægjandi starf vegna þess hversu marga þræði það fléttar saman. Sjálfur hef ég haft óslökkvandi áhuga á kirkjuorgelum síðan ég var þrettán ára og fyrir mér er orgelsmíði hrein ástríða, árátta sem maður getur ekki sporn- að við. Ólæknandi baktería." - Hvar kemur þú að verkinu? Ertu hönnuður fyrst og fremst eða smíðar þú hljóðfærið sjálfur? „Ég lærði upphaflega húsgagna- smíði og fór síðan á samning sem nemi í orgelsmíði hjá einum virtasta orgelsmiði í Þýskalandi á þeim tíma, Von Beckerath í Hamborg. Þetta var 1954, og ég gerði allt sem gera þurfti, smíðaði belgi og pípur og ef sú staða kæmi upp í dag þá gæti ég smíðað pípuorgel af eigin rammleik. í dag er starf mitt fólgið í hönnun hljóðfæranna, sölu- mennsku og ég sé einnig um tón- stillingu (tonal finishing) hljóðfæris- ins eftir að smíði þess er lokið. Hafi ég tíma aflögu þá tek ég að mér að hljómstilla (intónera) pípurnar." Noack segir starfsmenn fyrir- tækisins ekki marga, aðeins sjö vinna við framleiðsluna, orgelsmíð- ina sjálfa, og svo auk hans sjálfs tæknilegur hönnuður og skrifstofu- fólk. Noack hefur sjálfur þjálfað alla orgelsmiðina sína og kennt þeim handbragðið sem gefur Noack-kirkjuorgelunum sinn sér- staka blæ. „Þetta er afskaplega góður hópur og samhentur, meðal- starfsaldurinn er 15 ár í fyrirtæk- inu og smiðirnir mínir eru framúr- skarandi góðir fagmenn. Það er „UM LE^^og smíðinni er lokið breytist tilgangur orgelsins,“ segir Fritz Noack orgelsmiður. SMIÐAR ORGEL AF ÁSTRÍÐU Á dögunum var staddur hér á landi þýsk- bandaríski orgelsmiðurinn Fritz Noack sem smíðar ný pípuorgel í tvær kirkjur í Reykjavík, Langholtskirkju og Neskirkju. Hávar Sigurjónsson fann Noack á vett- vangi í Langholtskirkju og forvitnaðist um orgelin og orgelsmíðarnar. SAMHLIÐA orgelkaupunum verða gerðar umtalsverðar breytingar í Langholtskirkj- unni en nýja orgelið verður staðsett innst fyrir miðjum kór og mun að sjálfsögðu setja mikinn svip á kirkjuna. Þá verður sett upp gler- listaverk eftir Sigríði Asgeirsdóttur í gluggagaflinn kórmegin og gengið frá lofti kirkjunnar þannig að hljómburður haldist sem bestur. Samt sem áður eru allar breytingar sem lúta að hljómburðinum til þess gerðar að hann haldist sá sami og verið hefur, að teknu tilliti til nýja orgelsins. „Til þess að halda hljóm- burðinum óbreyttum verður að gera ýmsar breytingar," segir Fritz Noack og bendir á að orgelið sé svo umfangsmikið að það hefði talsverð áhrif á hljómburðinn í kirkjunni ef ekkert væri gert til aðlögunar. Stærð hijóðfæranna tveggja er að sögn Noacks í meðallagi eftir því sem gerist um pípuorgel. „Þau eru nokkum veginn helmingi minni en orgelið í Hallgrímskirkju enda eru kirkjubyggingarnar minni. Stærðin segir þó alls ekki allt,“ segir Noack með áherslu. Fyrirtækið Noack Organ inc. er í Georgetown, litlu þorpi utan við Boston, og húsnæðið í anda starf- seminnar, gömul skólabygging frá fyrri hluta 19. aldar, þjónar þessu virðulega hlutverki. „Þama er nægt rými til að setja upp orgelin og prófa þau, við grófstillum pípumar og göngum úr skugga um allt sé í lagi áður en hljóðfærið er sent burt og sett upp á endanlegum áfanga- stað. Með þessu móti teljum við okkur tryggja bestu gæðin og við látum ekkert orgel fara frá okkur íyrr en við erum sannfærðir um að það sé og verði eins og til er ætl- ast.“ Gert er ráð fyrir að orgelin verði sett upp í kirkjunum eftir rúmt ár og mun stefnt að því að taka þau í notkun haustið 1999. En hvers kon- ar orgel ætlar Noack að smíða fyrir kirkjumar tvær? „Orgelinu í Langholtskirkju verð- ur kannski best lýst með því að segja það h'kjast norður-þýska síð- barokkorgelinu, en lykilorðið í þess- ari setningu er „líkjast". Þetta er ekki eftirlíking, heldur er þetta skil- getinn afkomandi barokkorgelsins, en um leið er gert ráð fyrir að seinni tíma orgeltónsmíðar njóti sín fullkomlega á hljóðfærinu. En það má líka segja að annar ekki fjar- skyldur forfaðir komi úr allt annarri ætt, þ.e. ameríska orgelið frá miðri 19. öld. Það hljóðfæri nær bestum tökum á rómantískri orgeltónlist án þess að takinu sé alveg sleppt af klassíska orgelinu. Ef við berum saman orgelin tvö myndi ég segja að Neskirkjuorgelið verði líkara því ameríska en Langholtskirkjuorgelið líkist barokkorgelinu." - Hvað ræður því að orgelin verða svona ólík? Era það organistamir eða orgelsmiðurinn sem ráða því? „Bestu hjónaböndin era þau þar sem báðir aðilar hafa sömu mark- mið og svo reyndist vera í báðum þessum tilfellum. En ef við ímynd- um okkur að hvorki Jón Stefánsson né Reynir Jónasson væra organist- ar við kirkjumar er ég viss um að niðurstaðan hefði orðið sú sama. Þar ræður kirkjubyggingin sjálf mestu; Langholtskirkjan kallar á formfastara hljóðfæri en Neskirkj- an á mýkra hljóðfæri, þótt alltaf sé erfitt að fara út í svona samanburð og skilgreiningar. En ég er sann- færður um eftir að hafa hlýtt á messur í báðum kirkjunum að þeim er best þjónað með þeim hljóðfær- um sem í smíðum era. Ég vil samt taka það fram að munurinn á orgel- unum tveimur er sennilega miklu minni en orð mín gefa til kynna. En munurinn er engu að síður til staðar og okkur sem smíðum hljóðfærin finnst það ólíkt skemmtilegra held- ur en gera tvö eins.“ - Stafar munurinn af því að tónlist- arstefnur organistanna era ólíkar? „Nei, hann stafar ekki af því. Hljóðfærin era ekki smíðuð sem leikföng fyrir starfandi organista kirknanna enda koma þeir og fara á meðan hljóðfærið stendur í kirkj- unni kynslóð fram af kynslóð. Ég leyfí mér að taka dálítið stórt upp í mig í þessu sambandi og segja að aldrei hafi komið upp óánægja með eitt einasta af þeim 135 kirkjuorg- elum sem ég og samstarfsmenn mínir höfum smíðað. Við höfum kannski ekki alltaf verið í tísku, eins og t.d. þegar vinsælt var að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.