Morgunblaðið - 15.03.1998, Page 18

Morgunblaðið - 15.03.1998, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ ^8 B SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998 DÆGURTÓNLIST íslensku listar- verðlaunin ÍSLENSKU tónlistarverðlaunin voru afhent fyrir skemmstu á Hótel Sögu, en að verðlaununum stendur Rokkdeild FÍH í sam- starfi við ýmsa aðila. Högun keppninnar er þannig að faghópur tilnefnir tónlist- armenn í sextán flokka, en síðan er kosið á milli þeirra sem flestar tilnefningar hljóta. Atkvæðisrétt hafa lesendur DV og faghópur á vegum verðlaunanefndarinnar. Söngkona ársins 1997 var kjörin Björk Guðmundsdóttir, sem reyndar hlaut fleiri viðurkenning- ar, en annars skipuðust verðlaun- in svo: Söngvari ársins, Daníel Ágúst Haraldsson, hljómplata árs- ins, Björk - Homogenic, lagahöf- undur ársins, Björk, flytjandi árs- ins, Björk, gítarleikari ársins, Friðrik Karlsson, bassaleikari árs- ins, Jakob Smári Magnússon, blásturshljóðfæraleikari ársins, Óskar Guðjónsson, bjartasta von- in, Subterranean, trommuleikari ársins, Gunnlaugur Briem, hljóm- borðsleikari ársins, Jón Ólafsson, jazzleikari ársins, Óskar Guðjóns- son, lag ársins, Bachelorette - Björk, textahöfundur ársins, Meg- as, hljómsveit ársins, Maus og klassísk hljómplata ársins, Bryn- dís Halla Gylfadóttir og Steinunn B. Ragnarsdóttir: Ljóð án orða. Nýjar plata mín, en síðan þegar mig langaði að fara að lenga, fara nýj- ar leiðir í lagasmíðum og stofna eiginlega hljómsveit, gekk það ekki upp, við vorum ekki sammála um hvaða leið við ættum að fara. Um svipað leyti var ég byrjaður að vinna með Snorra og það var því eðlileg þróun að halda áfram með honum.“ Gunnar Bjarni segir að þeir Snorri hafi náð vel saman frá fyrsta degi, bæði hvað varðaði tón- list og hvernig lögin sem hann var að semja féllu að rödd Snorra. Hann segir að það sé næstum því nóg að vera bara tveir í Mary leiðlr Poppins, en þótt þeir geti leikið á flest hljóðfæri sem þarf til séu þeir báðir glataðir trommuleikar- ar og því séu þeir með trymbil. „Við fáum síðan til liðs við okkur þá sem þarf á hverjum tíma og höfum líka áhuga á að vinna með öðrum eftir því sem tilefni er til.“ Gunnar segir að þeir Snorri hafi unnið skipulega undanfarið og gangi vel að vera bara tveir, komið sé efni á eina plötu eða þar um bil og því ekki mikil ástæða til að breyta því. Mary Poppins hefur verið að minna á sig undanfarið og eins og áður er getið er komið lagasafn sem dugir á breiðskífu. Gunnar Bjarni segir þó að ekki sé sveitin komin með plötusamning, en það sé ekki vegna áhugaskorts útgef- enda. „Við höfum fengið nóg af tiboðum og það er frekar að við eigum eftir að ákveða okkur, við eigum eftir að meta þau tilboð sem við höfum fengið og gera upp við okkur hvort eitthvert þeirra sé nógu hagstætt.“ Gunnar Bjami segir að í bland við nýju lögin sé hann að vinna með ýmis lög frá Jet Black Joe- tímanum, enda eigi hann megnið af þeim lögum hvort eð er. „Þessi lög eru kannski ekki ný -|yrir áheyrendum hér heima, en! þau eru ný fyrir fólki ií útlöndum og því er ég að spá í þau, en í tnjög breyttum útsetningpm.“ jmiiiiiirni 'iÉjliid'iMi i iiiililiiiiil 11 Blur -Bustin' and Dronin' Tvöföld plata meö endurútsettum lögum af síðustu plötu Blur. Fyrri platan er mixuð af ekki óþekktari mönnum en Moby, Thurston Moore (Sonic Youth), Adrian Sherwood, John McEntire og William Orbit (Madonna). Seinni platan hefur að geyma tónleikaupptökur m.a. annars af laginu "Popscene" sem nú er fáanlegt á plötu í fyrsta skipti. MÚSÍKTILRAUNIR Tónabæjar hefjast í vikunni, þær sextándu í röð- inni. Frá því Danshljómsveit Reykjavíkur og nágrennis sigraði í fyrstu tilraununum 1982 hafa nærfellt sex hundruð sveitir tekist á um hljóðvers- tíma og leikið allar hugsanlegar gerðir tónlistar. Sem vonlegt er hefur hljómsveitunum gengið misjafnlega að moða úr sigrinum, sumar komist í fremstu röð íslenskra rokksveita, en þótt aðrar hafi gleymst nánast um leið og tilraununum var lokið hafa liðsmenn þeirra margir iðjað að tónlist meira og minna upp frá því. raunum bar þó nokkuð á nýrri gerð tónlistar, rapp kom við sögu og drum ‘n bass. Samkvæmt skrán- ingu sveita að þessu sinni verður talsvert um tölvutónlist og rapp, sem er vel, því það rennir stoðum undir þá staðhæfingu að Músíktil- raunir Tónabæjar séu spegill tón- SIGURSVEITIR FYRSTU Músfktilraiinlr vom haldnar 1982 og sigraði þá Danshljómsveit Reykjavíkur og nágrennis, DRON. 1983 sigraði kvennasveitin Dúkkulísur. Tilraunimar féllu niður 1984 vegna verkfalls kennara, en 1985 sigraði þungarokkssveitin Gipsy. 1986 sigraði sumarpoppið með Greifunum, 1987 enn sumarpopp með Stuðkompanfinu, og lokaskammtur suniai-popps var sigur skagstrendsku sveitarinnar Jójó 1988. Laglausir úr Hafnarfirði sigi'ðu 1989 og önnur Hafnarfjarðarsveit árið eftir, Nabblastrengir. Dauðarokkið komst á kortið þegar Infusoria sigraði 1991, kvennasveitin Kolrassa krókríðandi 1992, Yukatan 1993, Maus 1994, enn Ilafnarfjarðarsveit 1195, Botnleðja, Sljömukisi 1996 og loks sigraði Soðin fiðla á síðasta ári. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Músíktilraunir hafa þann til- gang helstan að smala á svið öllum þeim hljómsveitum sem eiga eitthvað frumsamið í pokahominu; að fá efniðviðinn úr bílskúmum og á svið. Eftir einhverju er að slægj- ast, því þótt yfirleitt þurfi fleiri tíma í hljóðveri til að taka upp breiðskífu en vinnst í tilraununum, era líka dæmi um sveitir sem hafa tekið upp breiðskífu fyrir sigur- launin og þær era líklega margar sem hefðu ef til vill aldrei tekið upp ef ekki hefði verið fyrir sigurtíma í tiltraununum. Framan af voru úrslit Músíktil- rauna nokkuð á skjön við það sem eftir Árno Matthíosson helst var að gerast í bílskúrunum. Ekki síst fyrir betri undirbúning þátttökusveita hafa þær smám saman orðið betri spegill þess sem er á seyði í skúranum og náðu hámarki í tilraununum 1991 þegar dauðarokkið var alls- ráðandi á tilraununum líkt og í æf- ingaplássum um allt land, en heyrðust aldrei í útvarpi eða á al- mannafæri. Sagði sitt þegar út- varpsstöðin sem tekið hafði að sér að útvarpa úrslitakvöldinu skrúfaði niður í „hávaðanum“. Rokksveitum hefur gengið allt í haginn í tilraununum síðustu ár og þannig hafa sveitir sem leika hæfi- lega hrátt og grípandi rokk sigrað síðustu fimm skipti. I síðustu til- listar samtímans, og ekki væri verra ef þar á meðal leyndust sveitir sem væra þess megnugar að veita nýjum straumum inn í ís- lenskt tónlistarlíf. Músíktilraunir Tónabæjar hefj- ast næstkomandi fimmtudag, en þá etja kappi saman átta hljóm- sveitir úr ýmsum áttum. Gesta- sveitir verða tvær, Spírandi baun- ir og Soðin fiðla, sigursveit síðustu Músíktilrauna. Annað tilrauna- kvöldið verður viku síðar, fímmtu- daginn 26. mars, og þá era gesta- sveitir einnig tvær, Subterranean og Stjörnukisi. Þriðja tilrauna- kvöldið verður daginn eftir, föstu- daginn 27. mars, með Maus sem gestasveit. Loka undanúrslita- kvöldið verður síðan fimmtudag- inn 2. apríl þegar Quarashi er gestasveit, en Botnleðja leikur úr- slitakvöldið, föstudaginn 3. apríl. GUNNAR Bjarni Ragnarsson er tónlistarannendum að góðu kunn- ur, enda hefur hann verið áberandi í ýmsum sveitum, til að mynda Bootlegs, Boneyard, Jet Black Joe, Jetz og stýrir nú nýrri hljómsveit, Mary Poppins. Sú er í raun dúett því fastir liðsmenn era aðeins tveir, Gunnar Bjarni og Snorri Snorrason söngvari. Gunnar Bjarni segir að upphaf Mary Poppins megi rekja til Jetz, en sú sveit var í raun ekki hljómsveit að hans sögn, frekar „músíkþreifingar“. „Platan sem við gerðum var upphaflega sóló-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.