Morgunblaðið - 15.03.1998, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.03.1998, Qupperneq 2
2 E SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUAUGLYSINGA Norræna ráðherranefndin Norræna ráðherranefndin er samstarfsvettvangur ríkisstjórna norrænu ríkjanna. Skrifstofa nefndarinnar, sem er staðsett í Kaupmannahöfn, auglýsir nú eftirfarandi stöður lausar til umsóknar. Deildarsérfræðingar í mennta-, menningar- og rannsóknarmálum Deildarsérfræðingur fer með skólasamstarf og leggur mál þess fyrir ráðherranefnd og aðrar opinberar samstarfsnefndir á vett- vangi mennta- og rannsóknamála. í starf- inu felst undirbúningur funda og önnur þjónusta við stjórnarnefndir á sínu sviði svo og samskipti við sérfræðinga og ýmsa samstarfsaðila á norrænum og alþjóðleg- um vettvangi. Starfið krefst þess að geta séð hluti í heild sinni og reynslu af þverfag- legu starfi. í því felst kynningarstarf og fyr- irlestrar auk annarra verka í samstarfi við annað starfsfólk skrifstofu ráðherranefnd- arinnar. Ráðningartími hefst haustið 1998. Deildarsérfræðingur í velferdar- og atvinnumálum Krafist er góðrar þekkingar á atvinnumálum í einstökum ríkjum sem og á alþjóðavett- vangi með aðaláherslu á stefnu í atvinnu- og innflytjendamálum. Starfið felst í að framfylgja samstarfsáætlunum og hrinda ýmsum þróunar- og samræmingarverkefn- um i framkvæmd. Deildarsérfræðingurinn undirbýr ákvarðanatökur ráðherranefndar, embættismannanefnda og annarra starfs- hópa og sér um að þeim sé framfylgt. Þá annast hann/hún tengsl við yfirvöld og sam- starfsaðila í hverju ríki og hefur umsjón með því samstarfi sem fram fer. Starfið krefst þess að geta séð hluti í heild sinni og reynslu af þverfaglegu starfi. Deildarsér- fræðingurinn er ábyrgðarmaður á tímaritinu Arbetsliv i Norden. Ráðningártími hefst eftir nánara samkomulagi. Yfirmaður þjónustueiningar Um er að ræða nýja stöðu þar sem óskað er eftir reyndum „rekstrarstjóra" til að veita þjónustueiningunni forstöðu. Einingin sér um störf húsvarðar, afgreiðslu og skifti- borðs. ( starfinu felst ábyrgð á almennum rekstri og viðhaldi hússins, innkaup, gerð leigusamninga og önnur kaup á utanað- komandi þjónustu. Þjónustueiningin er hluti Heilsugæslustöð Djúpavogslæknishéraðs Heilsugæslulæknir Hjúkrunarfræðingur Stjórn heilsugæslustöðvarinnar auglýsir lausa til umsóknar stöðu heilsugæslulæknis. Læknis- héraðið næryfir Djúpavogshrepp og Breiðdals- hrepp. Stöðunni fylgir gott íbúðarhúsnæði á Djúpavogi og bifreið til afnota. Staðan er laus strax. Heilsugæslustöðin er nýleg og vel tækj- um búin. Læknisbústaðurinn er nýlega upp- gerður, 4 svefnherbergi ásamt herbergjum í kjallara, stór stofa og vel búið eldhús. Einnig vantar hjúkrunarfræðing til starfa til lengri eða skemmri tíma. Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Valtýsson rekstrarstjóri í símum 478 8855 og 478 8866 á kvöldin og um helgar. af starfsmannadeildinni og heyrir rekstrar- stjórinn beint undir starfsmannastjóra. Ráð- ningartími hefst eftir samkomulagi. Starfsmaður í bókhald Krafist er góðrar þekkingar og haldgóðrar reynslu af bókhaldi. Fyrri störf við gerð fjár- laga, ársreikninga og þróun á bókhaldskerfi (notað er Formula) eru skilyrði fyrir ráðn- ingu. Þá er krafist samstarfshæfileika bæði innanhúss og við aðila utan skrifstofunnar. Gert er ráð fyrir að umsækjandi taki þátt í öðrum verkum í samstarfi við annað starfs- fólk skrifstofunnar. Þá er krafist sveigjan- leika, samstarfshæfileika, sjálfstæðra vinnu- bragða og hæfileika til að vinna undir álagi. Ráðningartími hefst eftir nánara samkomu- lagi. Upplýsingadeild -túl kur/þýðand i Verksvið túlksins er samhliða og eftirstæð túlkun á fundum, ráðstefnum og málþing- um og þýðingar á opinberum textum, frétta- og kynningarefni ýmist úr dönsku, norsku eða sænsku á finnsku eða úr finnsku á dönsku, norsku eða sænsku. Þá telst til tekna að geta þýtt úr ensku á finnsku. Um- sækjandi þarf að hafa alhliða starfsreynslu af túlkun og þýðingum. Ráðningartími hefst efitr nánara samkomulagi. Deildarritari með reynslu frá fjölmiðlum. Ritarinn sér um fjármál upplýsingardeildar, innkaup, sam- skipti við fjölmiðla, almenning, norrænar upplýsingaskrifstofur og aðra samstarfs- aðila, fréttatilkynningar og upplýsingaefni. Kynningarefni er samið á skandinavísku málunum en er síðan þýtt á frnnsku og ensku. Ritarinn þarf að geta tjáð sig auð- veldlega bæði munnlega og skriflega bæði innanhúss og við aðila utan skrifstofunnar. Deildarritarinn er einnig aðstoðarmanneskja yfirmanns upplýsingadeildar. Góð tungu- málakunnátt telst til tekna. Ráðingartími hefst eigi síðar en í ágúst. Leikskólakennarar Leikskólakennarar eða annað uppeldis- menntað starfsfólk óskast í eftirtalda leikskóla: Hvammur Upplýsningar gefur leikskólastjóri, Kristín Ellertsdóttir, í síma 565 0499. Hörðuvellir Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Rebekka Árnadóttir, í síma 555 0721. Hlíðarberg Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Sigurborg Kristjánsdóttir, í síma 565 0556. Ennfremurveitir leikskólafulltrúi upplýsingar um störfin í síma 555 2340. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. LANDSPÍTALINN .../ þágu mannúðar og vísinda... Hjúkrunarfræðingar óskast á eftirtaldar deildir: 1) Blóðskilunardeild. Unnið er á mislöngum vöktum á tímabilinu kl. 8.00 — 18.00, alla virka daga vikunnar nema sunnudaga og á bakvökt- um eftir að vinnu lýkur um helgar og aðra frí- daga. Boðið er upp á 3ja mánaða aðlögun, þar af 8 vikur skipulagðar, og fræðslu með reynd- um hjúkrunarfræðingi. Upplýsingar veitirGuð- rún Ingadóttir, deildarstjóri, sími 560 1281/ 1285. 2) Lyflækningadeild 11B. Sem er 5 daga deild. Fastar næturvaktir koma til greina. Upplýsingar veitir Bergdís Kristjánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 560 1300/ 1303. 3) Göngudeild fyrir krabbameinsveik böm. Oskað er eftir deildarstjóra til afleysinga í 4 — 5 mánuði frá 15. maí nk. í 80 — 100% stöðu. Upplýsingar veitir Hertha W. Jónsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 560 1033. 4) Vökudeild, gjörgæsludeild fyrir nýbura. Starfshlutfall eftir samkomulagi, ýmist 12 tíma vaktir þriðju hverja helgi eða 8 tíma vaktir aðra hvora helgi. Einstaklingsbundin aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Upplýsingar veitir Ragnheiður Sigurðardóttir, deildarstjóri, sími 560 1040. 5) Sumarafleysingar á almennar bama- deildir og vökudeild - gjörgæslu nýbura. Um er að ræða afleysingar frá 15. maí til 15. september 1998. Starfshlutfall samkomu- lagsatriði. Upplýsingar veita Ragnheiður Sig- urðardóttir, sími 560 1040 og Svana Pálsdóttir, sími 560 1020. 6) Geðdeild, deild 32C sem er 15 riíma bráðamóttökudeild á Landspítalalóð og deild 12, sem er 12 rúma bráðamóttöku- deild á Kleppi. Um er að ræða morgun- og kvöldvaktir, starfshlutfall eftir samkomulagi. Upplýsingar veita hjúkrunarframkvæmdastjór- ar í síma 560 2600. Deildarmeinatæknir óskast á ónæmisfræðideild Landspítalans sem allra fyrst. Um er að ræða 100% starf við fjöl- breyttar þjónusturannsóknir, þróun og stöðlun nýrra rannsókna og gæðaeftirlit með þeim þjónusturannsóknum sem deildin annast. Við- komandi þarf að gegna gæsluvöktum. Um- sóknarfresturertil 1. apríl nk. Upplýsingar veita Ólöf Guðmundsdóttir, yfirmeinatæknir, eða Helgi Valdimarsson, forstöðulæknir, í síma 560 1960. Félagsráðgjafi óskast á endurhæfingaskor geðdeildar á Kleppi í stöðu yfirfélagsráðgjafa frá 15. apríl nk. Um- sóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf beristtil Guðlaugar Magnúsdóttur, yfirfélagsráðgjafa, sem jafnframt veitir upplýs- ingar í síma 560 2600. Umsóknarfrestur er til 30. mars nk. (------------------------------------ Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjérmélaráðherra. Umsóknareyðublöð fést hjé starfsmannahaldi Ríkisspítala, Þverholti 18 og f upplýsingum é Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ékvörðun um réðningu hefur verið tekin. / Pípulagnir Vatnsveita Reykjavíkur óskar eftir starfskrafti með sveinspróf í pípulögnum til starfa. Starfssvið almenn pípulagningarvinna. Tekið skal fram að starfið hentar jafnt konum sem körlum. Umsóknirsendisttil Vatnsveitu Reykjavíkur, Eirhöfða 11,112 Reykjavík, með upplýsingum um menntun og fyrri störf. Umsóknarfrestur er til 24. mars nk. Upplýsingar um allar stödur: Ráðning er tímabundin til fjögurra ára. Umsækjendur þurfa að hafa góða fræðilega menntun og margra ára starfsreynslu hjá hinu opinbera eða í einkageiranum, auk þess að hafa áhuga á þverfaglegu sam- starfi. Starf á skrifstofunni krefst samstarfshæfileika og að geta unnið undir álagi. Skrifleg og munnleg færni í dönsku, norsku eða sænsku auk ensku er forsenda fyrir ráðningu. Kunnátta í fleiri tungumálum telst til tekna. Krafist er að umsækjandi kunni á tölvu. Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar vill stuðla að jafnri kynjaskiptingu og hvetur því bæði karla og konur til að sækja um störfin. Opinberir starfsmenn eiga rétt á leyfi frá störfum sem ráðningartímabilinu nemur. Nánari upplýsingar um ofannefndar stöður og umsóknareyðublöð er einqönqu hæot að panta skrifleqa. Taka skal skýrt fram hvaða stöðu er sótt um. Þá verður vísað til þeirra sem geta veitt nánari upplýsingar um einstök störf. Umsóknarfrestur rennur út 3. apríl 1998. Nordisk Ministerrád, Postbox 3035, DK-1021 Köbenhavn K. Bréfsími 00 45 33 11 78 50 eða 00 45 33 96 02 02.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.