Morgunblaðið - 15.03.1998, Qupperneq 10
10 E SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Miogarour
Fjölskylduþjónustan í Grafarvogshverfi
Verkefnisstjórar
óskast
til að taka þátt í spennandi mótunarstarfi í Mið-
garði. Við auglýsum eftir:
★ Verkefnisstjóra á sviði fjölskylduþjónustu.
Æskileg menntun erfélagsráðgjöf eða sálfræði
en önnur háskólamenntun á sviði ráðgjafar
kemurvel til greina. Um er að ræða þróunar-
starf þar sem áhersla er lögð á að leiðbeina
fjölslc/ldum í vanda, koma á fót stuðningshóp-
um, samvinnuverkefnum og annast fræðslu
til almennings, félagasamtaka og stofnana.
★ Verkefnisstjóra til að annast umsjón með
heimaþjónustu og liðveislu.
Æskileg menntun er félagsráðgjöf, hjúkrunar-
fræði eða iðjuþjálfun. Um er að ræða afleysinga-
stöðu í 6 mánuði vegna barnsburðarleyfis.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess
að fara óhefðbundnar leiðir í starfi og taka virk-
an þátt í uppbyggingu á nútímalegri ráð-
gjafaþjónustu. Þær kröfur eru gerðartil um-
sækjenda um stöðu verkefnisstjóra fjöl-
skylduþjónustu að þeir hafi góða hæfileika
til þess að setja fram upplýsingar í ræðu og
riti. Auk þess leggjum við ríka áherslu á pers-
ónulega eiginleika eins og frumkvæði, jákvætt
viðhorf, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til sam-
vinnu.
Ráðið verður í báðar stöðurnar frá 1. júlí nk.
Nánari upplýsingar veitir Regína Ásvaldsdóttir,
framkvæmdastjóri, í síma 587 9400. Hægt er
að fá upplýsingar um Miðgarð á netinu og er
veffangið http://www.rvk.is/midgardur.
Umsóknarfresturertil 1. apríl nk. og skulu um-
sóknir sendast til
Miðgarðs,
Langarima 21,
112 Reykjavík,
bréfsími 587 9401,
netfang midgard@rvk.is.
Miðgarður, fjölskylduþjónustan í Grafarvogi, hóf starfsemi í septem-
ber 1997. Rekstur miðstöðvarinnar er hluti af tilraunaverkefni Reykjav-
íkurborgar í Grafarvogi. Miðgarður veitir íbúum, stofnunum og félaga-
samtökum í G/afarvogi fjölþætta þjónustu. Meðal nokkurra verkefna
má nefna ráðgjafaþjónustu við leik- og grunnskóla, félagslega ráðgjöf
við íbúa, heimaþjónustu fyrir alla aldurshópa, barnavernd, umsjón
með daggæslu í heimahúsum og verkefnisstjórn með samvinnuverk-
efninu Grafarvogur í góðum málum. Á miðstöðinni starfa saman
iðjuþjálfi, tómstundaráðgjafi, sálfræðingar, kennari, félagsráðgjafar
og leikskólakennarar auk þjónustufulltrúa. Einnig hefur forvarnarfull-
trúi lögreglunnar aðsetur í Miðgaröi.
Eitt af markmiðum með stofnun Miðgarðs er að stuðla að eflingu
íbúalýðræðis í Grafarvogi. Fulltrúar íbúasamtaka Grafarvogs eiga
sæti í stjórnarnefnd Miðgarðs, stofnuð hafa verið Grafarvogsráð
og ungmennaráð og fleiri verkefni eru í undirbúningi.
Læknablaðið
óskar eftir starfsmanni. Um er að ræða 50%
starf sem gæti aukist.
Starfið felst meðal annars í yfirlestri og frá-
gangi greina.
Krafist er mjög góðrar íslenskukunnáttu, góðr-
ar kunnáttu í að minnsta kosti einu Norður-
landamáli og ensku, tölvukunnáttu (ritvinnslu/
Word, Tok), sjálfstæðis í vinnubrögðum og
þægilegs viðmóts.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
útgáfumálum og umbroti (Quark), þekki til
starfa á heilbrigðissviðinu, hafi þekkingu á net-
inu og Excel.
Vinnutími og laun eru samkomulagsatriði.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf
strax. Reynslutími er þrír mánuðir.
Umsóknir sendist Læknablaðinu, Hlíðasmára
8,200 Kópavogi. Öllum umsóknum verður
svarað.
Nánari upplýsingar veitir Birna Þórðardóttir,
ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins, í síma
564 4104, netfang: birna@icemed.is
Stefnumótun og
rekstrarráðgjöf
Forskot auglýsir eftir ráðgjöfum á sviði stefnumótunar
og almennrar rekstrarráðgjafar.
Nauðsynlegt er að umsækjandi:
V Hafi framhaldsmenntun á háskólastigi í viðskiptum,
rekstrarhagfræði eða verkfræði
V Búi yfir góðri islenskukunnáttu
ý Hafi reynslu af verkefnastjórnun
'l Eigi auðvelt með að tjá sig í ræðu og riti
Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu og reynslu
af a.m.k. einu eftirfarandi sviða:
ý Fjármál
V Vörustjórnun
ý Framleiðslustjórn
V Gæðamál
Umsóknir berist til Mbl., merktar: „F - 4444", fyrir 24. mars.
Forskot er ungt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem sinnir ráðgjöf
á sviði stefnumótunar, markaðsmála, starfsmannamála, þjónustu og
upplýsingatækni. Hjá Forskoti starfar samhentur hópur ráðgjafa með
víðtæka menntun og reynslu. Hlutverk Forskots er að vinna að
bættum árangri fyrirtækja og stofnana í nánu samstarfi við Forskot.
Meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru Tryggingastofnun ríkisins,
Reykjavíkurborg - Dagvist barna, Fjármálaráðuneytið, Isfugl,
AKOplast, Eimskip og Búnaðarbanki Islands.
Forskot er í samstarfi við KPMG og er um leið samstarfsaðili KPMG
Management Consulting.
Forskot ■ Laugavegi 44 • 101 Reykjavik
Sími: 511-1950 - Bréfasími: 511-1955
Netfang: forskot@mmedia.is
Markaðsstjóri
Við leitum að markaðsstjóra fyrir einn af viðskiptavinum okkar. Um
er að ræða útgáfufyrirtæki sem gefur út barna- og unglingablöð og
bækur.
Flelstu verkefni markaðsstjóra:
'l Stýra beinni markaðssetningu
V Sjá um auglýsingar og kynningarmál
V Bera ábyrgð á samningagerð og samskiptum við samstarfsaðila,
svo sem prentsmiðjur, auglýsingasafnara, dreifingafyrirtæki,
fjölmiðla og samstarfsfyrirtæki i markaðsmálum
V Bera ábyrgð á umsjón áskrifendaskrár og stýra innheimtu
Nauðsynlegt er að umsækjandi:
V Hafi góða þekkingu og reynslu af markaðsmálum
V Sé töluglöggur
V Búi yfir góðri íslenskukunnáttu
Frumkvæði, hugmyndariki, samskiptahæfni og skipulagshæfileikar
eru mikilvægir eiginleikar í starfinu.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merktar: „S-1897",
fyrir 23. mars.
Forskot • Laugavegi 44 • 101 Reykjavík
Sími: 511-1950 • Bréfasími: 511-1955
Netfang: forskot@mmedia.is
SJÚKRAHÚS
REYKJ AVÍ K U R
Lyflækninga- og endurhæfingasvið
Hjúkrunarfræðingar —
aðstoðardeildarstjóri
Staða aðstoðardeildarstjóra á barnadeild
B-5 Sjúkrahúss Reykjavíicur er laus til umsókn-
ar. Staðan veitist frá 1. júní 1998 eða eftir sam-
komulagi.
Umsóknarfrestur ertil 15. apríl 1998.
Nánari upplýsingar veitir Auður Ragnars-
dóttir, deildarstjóri bamadeildar, í síma
525 1566 og Margrét Bjömsdóttir, hjúkr-
unarframkvæmdastjóri lyflækninga- og
endurhæfingasviðs, í síma 525 1555.
Myndgreininga- og rannsóknarsvið
Röntgentæknar
Röntgentæknar óskast til sumarafleysinga á
röntgendeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í Foss-
vogi.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1998.
Nánari upplýsingar gefur Jóhanna
Boeskov, deildarstjóri röntgendeildar, í
síma 525 1452 eða 525 1445.
Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist
ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja það kynið, sem er
í minnihluta í viðkomandi starfsgrein, til að sækja um.
Sumarafleysingar
Strætisvagnar Reykjavíkur er þjónustufyrirtæki
á sviði fólksflutninga.
Fyrirtækið vill ráða 55 vagnstjóra til afleysinga
á tímabilinu 1. júní til 26. ágúst.
Leitað er að fólki sem hefur vilja til að vinna hjá
fyrirtæki sem leggur megináherslu á að uppfylla þarfir
og væntingar viðskiptavina.
Ákjósanlegir eiginleikar eru:
Lipurð í mannlegum samskiptum, snyrtimennska,
stundvísi og áreiðanleiki.
Viðkomandi þarf að hafa meiraprófsökuréttindi
(rútupróf) og nokkratungumálakunnáttu.
Nýliðar sitja námskeið.
Vaktavinna, heilsdags- og hlutastörf
Jafnt konur sem karlar eru hvattar til
að sækja um starfið
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá
farþegaþjónustu í skiptistöð á Hlemmi.
Þeim skal skilað þangað eða í þjónustustöð
SVR, Hverfisgötu 115 fyrir 17. apríl 1998.
Athugið að staðfesta þarf eldri umsóknir.
VIÐSKIPTAFRÆÐINGAR/
HAGFRÆÐINGAR
Við höfum verið beðin um að finna starfsfólk í tvö störf
hjá stóru fyrirtæki í Reykjavík.
Fyrra starfið felur m.a. í sér skoðun og afstemmingar
á sjóðum, umsjón með eignaskráningu, endurskoðun
og innra eftirlit og tengsl við endurskoðendur.
Síðara starfið felur í sér umsjón rekstraráætlana
og eftirlit með því hvernig þær standast, innri
taxtamál, miilifærslur vegna launa, ráðgjöf vegna
bókhaldskerfa o.fl.
Við leitum að viðskipta- eða hagfræðingum með
góða tölvufærni, samstarfshæfni og skipulags-
hæfileika.
Nánari upplýsingar veita Magnús Haraldsson og
Auður Bjarnadóttir hjá Ráðgarði hf.
frá kl. 9 -12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
{ Ráðgarðs fyrir 22. mars n.k. merktar:
> „Fyrra starfið" og/eða „síðara starfið".
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR- OG REKSTRARRÁÐGJÖF
Furugerði5 108Reykjavík Sími 5331800
Fax: 5331808 Netfang: rgmidlun@radgard.is
Heimasíða: http://www.radgard.is