Morgunblaðið - 15.03.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. MARZ 1998 E 11
Laust starf við
Raunvísindastofnun
Háskólans
Starfsmanninum er ætlað að hafa umsjón með
rekstri sérstakra rannsóknarverkefna á efna-
fræðistofu.
Starfið hæfir nýútskrifuðum efnafræðingi eða
lífefnafræðingi. Ráðningartími ertil eins árs,
en framlenging kemurtil greina.
Nánari upplýsingar gefur dr. Christopher
Evans í síma 525 4800 og í tölvupósti
chris@raunvis.hi.is
Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags
háskólakennara.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist til framkvæmdastjóra
Raunvísindastofnunar Háskólans, Dunhaga
3,107 Reykjvík, fyrir 25. mars nk.
Raunvísindastofnun Háskólans
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Þúsundþjalasmiður
Reykjavíkurborg óskar eftir að ráða starfsmann
til að sjá um viðhald á búnaði, tækjum og
áhöldum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja
iðnaðarmenntun eða sambærilega starfs-
reynslu. Þarf að geta hafið störf fljótlega. Laun
eru skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar.
Umsóknum skal skilað til starfsmannastjóra
ÍTR, Fríkirkjuvegi 11, á eyðublöðum sem þar
fást fyrir miðvikudaginn 25. mars 1998.
Nánari upplýsingar gefur Snorri Jóelsson,
starfsmannastjóri ÍTR, í síma 562 2215 eða
Tómas Guðjónsson, forstöðumaður Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins, í síma 553 7700.
Starfsmaður
í móttöku
ísland 2000 er sameiginleg skrifstofa Reykjavík-
ur, menningarborgar Evrópu árið 2000, Kristni-
hátíðarnefndar og Landafundanefndar og mun
starfa þartil í byrjun ársins 2001.
Leitað er að starfsmanni með góða framkomu,
mjög góða enskukunnáttu og færni í einhverju
Norðurlandamálanna, reynslu af almennum
skrifstofustörfum og ritvinnslu.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi, vinsamleg-
ast sendið upplýsingar um menntun og fyrri
störf í pósthólf 1430, merkt ísland 2000, fyrir
31. mars n.k.
Öllum umsóknum verður svarað.
ísland 2000
Aðalstræti 6, Reykjavík.
Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum óskar
að ráða svæfingalækni sem fyrst.
Um er að ræða 100% stöðu ásamt bakvöktum.
Umsóknarfrestur er til 30. mars 1998.
Nánari upplýsingar gefa yfirlæknir handlæknis-
deildar og framkvæmdastjóri í síma 481 1955.
Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum.
Rekstrarhagfræðingur
(Dipl. Betriebswirt FH)
óskareftirfjölbreyttu, lifandi og ábyrgðarmiklu
starfi. Áralöng starfsreynsla erlendis frá. Mjög
góð tungumálakunnátta (þýska og enska).
Kunnátta á flest algeng tölvuforrit.
Áhugasamir hafi samband í síma 588 2290.
Laus staða
þjónustufulltrúa
Laus ertil umsóknar staða þjónustufulltrúa
á fyrirtækjasviði í sparisjóði á Reykjavíkur-
svæðinu. Laun samkvæmt kjarasamningi SÍB
við banka og sparisjóði.
í starfi þjónustufulltrúa á fyrirtækjasviðinu felst
m.a. umsjón með þjónustu sparisjóðsins við
fyrirtæki og markaðssókn.
Áhersla er lögð á árangur í starfi, öguð vinnu-
brögð, leiðtogahæfileika, þjónustulund og lip-
urð í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að
viðkomandi sé viðskiptafræðingurað mennt
eða með sambærilega menntun.
Umsóknarfresturertil 20. mars nk. Umsóknir
sendist afgreiðslu Mbl. merkt „ S — 3841".
Margmiðlun
Forritari í Macromedia
Director
Margmiðlunarfyrirtækið Gagarín ehf. óskar
eftir að ráða tímabundið eða til lengri tíma for-
ritara með kunnáttu og reynslu í forritun og
vinnslu í Macromedia Director.
Þarf að geta unnið sjálfstætt. Grunnþekking
í gagnagrunnavinnslu og forritun í Java eða
C++ æskileg, en þó ekki nauðsynleg.
Upplýsingum ekki svarað í síma. Allar umsókn-
ir meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri
störf sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 20. mars
merkt Director 6.
Suilurlamlsbraul 46
(bláu húsin)
Simi 588 9999
Fax 568 2422
odal@odal.is
opiö lau sun: 13-15
miMsim
... til að annast öll almenn störf og
sendíferðir. Tölvukunnátta nauðsynleg.
Þarf að geta hafið störf sem allra fýrst.
ClTITOTVai.:»
Við leitum að dugmiklum einstaklingi
sem hefur ríka þjónustulund, frumkvæði,
metnað og getur starfað sjálfstætt. Þarf
að geta hafið störf sem fyrst en þó er
hægt að bíða eftir réttum aðila.
er framsækin
fasteignasala sem
leggur áherslu á
örugga og persónu-
lega þjónustu við
einstaklinga og
fyrirtæki. Vegna
aukinna umsvifa
óskum við eftir
starfsfólki til starfa.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl.fyrir 20. mars n.k. merkt:
„Metnaður" Fullum trúnaði heitið. ÖUum umsóknum verður svarað.
Gjaldkerar—
þjónustufulltrúi
Framsækið fjármálafyrirtæki í tækni og þjón-
ustu staðsett á höfuðborgarsvæðinu auglýsir
eftir tveimur gjaldkerum og einum þjónustu-
fulltrúa.
Umsækjendur þurfa að hafa stúdentspróf eða
sambærilega menntun og reynslu í bankastörf-
um.
Leitað er að aðilum sem hafa áhuga á sölu-
og markaðsmálum og hafa góð tök á mannleg-
um samskiptum og eru þjónustulundaðir.
Laun samkvæmt kjarasamningum SÍB og ban-
kanna.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
25. mars 1998 merktar „ þjónusta 123 ".
Blómaskreytingafólk
Blómaskreytingafólk með mikla reynslu eða
nám að baki óskast í Blómaval í Reykjavík og
á Akureyri.
Upplýsingar í Reykjavík, Trausti Gunnarsson,
sími 568 9070. Upplýsingar á Akureyri, Stefán
Jeppesen, sími 461 3200.
Framtíðarstarf
Röskir og samviskusamirstarfsmenn óskast
til starfa við vörumóttöku og afgreiðslu, út-
keyrslu, ásamt almennum störfum sem til falla
hjá vaxandi innflutningsfyrirtæki.
Æskilegt er að hafa nokkra reynslu í vörumeð-
ferð og greiningu.
Nauðsynlegt er að menn hafi lyftarapróf eða
meirapróf og geti unnið sjálfstætt.
Ef þú ert reglusamur og vandvirkur og hefur
áhuga á framtíðarstarfi á þessu sviði, sendu
inn umsókn á afgreiðslu Mbl. með persónuleg-
um upplýsingum um heimilisfang og síma,
kennitölu og upplýsingum um fyrri störf.
Umsókn merkt: „Vörudreifing — Trúnaðar-
mál".
Grafískur hönnuður
— „freelance"
Alþjóðlegt fyrirtæki sem er leiðandi á sínu sviði
í heimunum og stærst á sínu sviði á íslandi,
óskar eftir að fá til samstarfs grafískan
hönnuð.
Samstarfið felur í sér hönnun og framkvæmd
sérverkefna fyrir fyrirtækið og gerð auglýsinga.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af auglýsing-
agerð og hafa góða reynslu og þekkingu á
öllum forritum sem henni tengist.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
23. mars 1998, merktar: „Sjónarhóll — 3831."
Arkitekt—
innanhússarkitekt
Óskum eftir að ráða arkitekt og innanhússarki-
tekt til starfa. Vinsamlegast sendið skriflegar
umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf til Glámu/Kíms arkitekta ehf. Lauga-
vegi 164, 105 Reykjavík, fyrir 20 mars nk.
GLÁMA / KÍM
ARKITEKTAR
LAUGAVEGI 164
105 REYKJAVÍK
SfMI 551 7010/561 8112
FAX552 1431
NETFANG kimskak@mmedla.is
Skiltagerð
Óska eftir starfsmanni við tölvuvinnslu, fram-
leiðslu á límstöfum, tölvuprentun og upplím-
ingar á skiltum.
Þarf að hafa undirstöðukunnáttu á eftirfarandi
forrit, Freehand, lllostrator, Photoshop ofl. Þarf
að geta unnið sjálfstætt, tekið við verkefnum
og verið í sambandi við viðskiptavini.
Um er að ræða framtíðarstarf hjá ört vaxandi
fyritæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á skilt-
um og merkingum.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist
afgreiðslu Mbl. merkt „Tölvuvinnsla og skilta-
gerð" fyrir 18. mars nk.
FLUGMÁLASTJÓRN
Laust starf
Starf flugvallareftirlitsmanns hjá Flugmálastjórn
á Egilsstaðaflugvelli er laus til umsóknar.
Krafist er réttinda meiraprófs bifreiðastjóra
og réttinda í stjórnun þungavinnuvéla. Æski-
legt er að umsækjendur hafi nokkra reynslu
í meðhöndlun slíkra tækja.
Um er að ræða vaktavinnustarf. Laun eru sam-
kvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist Flugmálastjórn
fyrir 1. apríl 1998. Öllum umsóknum verður
svarað.
Nánari upplýsingar veita starfsmannahald
Flugmálastjórnar, sími 569 4100 og flugvallar-
stjóri Egilsstaðaflugvelli, sími 471 1557. £