Morgunblaðið - 29.03.1998, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 29.03.1998, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARZ 1998 E 7 EJS er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni. Þjónusta EJS nær til flestra hliða nútíma upplýsinga- og samskiptatækni, alltfrá sölu og þjónustu á heimsþekktum vél- og hugbúnaði, til nýsmíða og þróunar á hugbúnaði og lausnum fyrir atvinnulífið, hér á landi sem erlendis. EJS leggur metnað sinn í að bjóða starfsöryggi, jafnrétti, sanngjörn laun og jákvætt, gefandi starfsumhverfi. Áhersla er lögð á fræðslu og þjálfun starfsfólks, sjálfstæði og hópvinnu. Fjöldi starfsmanna EJS er um 130 og vex jafnt og þétt. Vegna skipulagsbreytinga er starf Gæðastjóra EJS lausttil umsóknar. Hér er á ferð tækifæri fyrir einstakling með háskólamenntun og sérmenntun í gæðastjórnun, endurgerð vinnuferla, viðhaldi gæðakerfa o.s.frv. Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með að starfa í og stýra hópum, halda kynningar og geta tjáð sig í ræðu og riti á góðri íslensku og ensku. Umsækjendur þurfa að hafa óbilandi trú á árangri gæðastjórnunar og einurð til að framfylgja staðfastri stefnu EJS í gæðamálum. Starfsemi EJS fer fram á fjórum sviðum, en gæðastjóri heyrir beint undir forstjóra. Hugbúnaðarsvið EJS starfar skv. vottuðu ISO 9001 gæðakerfi. Um er að ræða s.k. Tick-lt vottun sem auk almennrar gæðastjórnunar lýtur sérstaklega að vinnuferlum við hugbúnaðargerð. Þjónustusvið vinnur um þessar mundir að gæðakerfi samkvæmt ISO 9001. Stefnt er að vottun kerfisins í vor. Einnig er unnið að gæðamálum á Fjármálasviði og Sölu- og markaðssviði. Upplýsingar um starfið veitir Auðunn Hjaltason, gæðastjóri EJS (audunn@ejs.is) Umsóknir berist EJS fyrir 18. apríl merktar Starfsumsókn - Gæðastjóri. Sími 563 3000 • Fax 568 8487 EINAR J. SKÚLASON HF http://www.ejs.is -ZlT Crensásvegi 10 [ Fjölmiðlafyrirtæki Sölu- og þjónustufulltrúi STARFSSVIÐ ► Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini ► Umsjón með fjölbreyttum ► Sala á þjónustu ► Koma að markaðsmálum ► Ýmis sérverkefni Stór fjöimiðill ieitar að kröftugum einstakiingi í söludeild sérauglýsinga Fjölmiðillinn státar af framúrskarandi auglýsingadeild, þar sem þjónusta við viðskiptavini er ífyrímími. HÆFNISKRÖFUR ► Menntun á háskólastigi ► Þekking á markaðsmálum ► Reynsla af sölu- og þjónustustarfi ► Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð ► Góð þekking á Word, Excel og Netinu nauðsynleg ► Hæfni í mannlegum samskiptum ► Þjónustulund Nánari upplýsingar veitirAgla Sigr. Bjömsdóttir hjá Gallup. Umsókn ásamt mynd þarfað berast til Ráðningarþjónustu Gailupfyrir föstudaginn 3. apríl - merkt - „Fjölmiðill 222“ GALLUP RAÐNINGARÞJONUSTA Smlðjuvegl 72, 200 Kópavogi Slml: 540 1000 Fax: 564 4166 Netfang: radnIngar@ga11 up . I s LANDSPÍTALINN .../' þágu mannúðar og vísinda... Deildarlæknar/ reyndir aðstoðarlæknar óskast á geðdeild Landspítalans. Nokkrarstöð- ur eru lausar til umsóknar, sumar nú þegar en aðrar síðar á árinu eða eftir samkomulagi. Virk kennsla er í boði, fjölbreytt vinna og mögu- leikartil rannsóknarstarfa. Stöðurnar henta þeim, sem hyggja á nám í geðlækningum eða sem hluti af öðru sérfræðinámi. Stöðurnareru einnig áhugaverðarfyrir þá, sem starfa í öðrum greinum læknisfræði og vilja kýnna sér nýjung- ar í geðlæknisfræði. Umsóknir berist til Tómasar Zoéga, sviðsstjóra geðlækningasviðs, sem jafnframt veitir upplýs- ingar í síma 560 1000. Hjúkrunardeildarstjóri óskast á nýja móttökudeild á kvennadeild Landspítalans sem verður opnuð í júní nk. Á deildinni verður bráðamóttaka vegna kven- sjúkdóma, eftirskoðanir, innskriftir vegna ferliaðgerða, ráðgjöf um getnaðarvarnir og ýmis sérhæfð þjónusta vegna kvensjúkdóma. Æskilegt er að viðkomandi hafi viðbótarmennt- un á sviði kvensjúkdóma og reynslu í stjórnun. UpplýsingarveitirGuðrún B. Sigurbjörnsdóttir, ýfirljósmóðir/hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 560 1000. Umsóknarfrestur er til 14. apríl nk. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast á deild 33-A, móttökudeild fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga. Starfshlutfall fer eftir samkomulagi. Aðlögun og starfsmannafræðsla eftir þörfum. Mögulegt að sækja um húsnæði. Upplýsingarveitir Jóhanna Stefánsdóttir, hjúkr- unarframkvæmdastjóri, í síma 560 1750/2600. ' Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármélarádherra. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala, Þverholti ’8ogí upplýsingum ó Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. V_______________________________________________________/ Kennarastöður á Raufarhöfn Grunnskólinn á Raufarhöfn er einsetinn skóli og verða í honum nær 80 nemendur í 1. — 10. bekk á næsta skólaári. Kennara vantar í nokkrar stöður fyrir næsta skólaár. Kennslugeinar: Raungreinar, almenn kennsla, tölvukennsla, íþróttir og kennsla yngri barna. Flutningskostaður verður greiddur og ódýrt húsnæði ertil staðar á vegum sveitarfélagsins. Kennurum verður gefinn kostur á að sækja námskeið innanlands. Raufarhöfn er sjávarþorp í Norður-Þingeyjarsýslu og búa þar rúmlega 400 manns. Þorpið er á austanverðri Melrakkasléttu og er nyrsti þétt- býlisstaður á íslandi. Vinna við sjávarútveg er burðarás atvinnulífsins auk ýmisskonar þjónustu. Mjög góð aðstaða er til íþróttaiðkana svo sem nýtt íþróttahús, sund- laug, tækjasalur og fleira. Leikskólinn er rúmgóður og vel búinn. Á staðnum er t.d. starfandi leikfélag, kór, íþróttafélag og tónlistar- skóli. Skólaþjónusta Eyþings hefur unnið að sérstöku þróunarverkefni við grunnskólann í samvinnu við Raufarhafnarhrepp. Markmiðið er að stuðla að öflugu skólastarfi á staðnum sem gerir skólann að eftirsóknarverðum vinnustað fyrir nemendur og kennara og foreldra virka i skólastarfinu. Okkur vantartil starfa metnaðarfulla kennara, sem vilja starfa við kennslu í litlu en öflugu sjávarþorpi úti á landi, þar sem markmið heimamanna er góður skóli sem stenst kröfur tímans. Nánari upplýsingar veita: Sveitarstjóri í símum465 1151 og 465 1251, skólastjóri í símum 465 1241 og 465 1225 og formaður skólanefndar í síma 465 1339.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.