Morgunblaðið - 15.04.1998, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 B 3
HANDKNATTLEIKUR
Leikið í kvöld
NÆSTI leikur í úrslitakeppni
karla í handboltanum er á dag-
skrá í kvöld. Fram og Valur mæt-
ast í íþróttahúsi Fram kl. 20.30.
Kvennalið Hauka og Stjörnunnar
mætast næst í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði á
morgun kl. 20.30
JÓN Kristjánsson, þjálfari og leikmaður Vals, hefur fagnað mörg-
um meistaratitlum á glæstum ferli. Hann virðist á góðri leið með
að bæta íslandsmeistaratitlinum 1998 í safnið.
Afar mikil-
vægt skref
„OKKUR tókst að koma einbeittir
til leiks því við áttum að sjálfsögðu
von á Frömurum mjög ákveðnum í
ljósi úrslitanna í fyrsta leiknum,“
sagði Jón Kristjánsson, þjálfari
Vals, að loknum öðrum sigurleikn-
um á mánudaginn. „Eftir jafnar
upphafsmínútur snerist leikurinn
okkur í hag, vörnin var sterk með
Guðmund markvörð vel á verði fyrir
aftan og sóknarleikurinn gekk vel.
Þetta kom okkur í þægilega stöðu,
vorum fjórum mörkum yfir í hálf-
leik og náðum mest sjö marka mun
upp úr miðjum hálfleik. Vörnin gaf
síðan venilega eftir hjá okkur, hvað
svo sem olli því en það kom ekki að
sök.“
Jón segir að ekki verði hjá því
komist að þegar lið hafi mæst eins
oft og Valur og Fram hafa gert á
tímabilinu að þau þekki vel hvort
inn á annað og fátt komi í raun á
óvart. Því skipti einbeitingin í
hverjum einasta leik miklu máli.
„Við lögðum upp með það að sigra í
þessum leik enda er þessi sigur afar
mikilvægt skref í átt að titilinum
eftir sigurinn í fyrsta leiknum.
Jón sagði að sínir menn myndu
leggja sig fram við að vinna Islands-
meistaratitlinn í þriðju viðureign-
inni á miðvikudaginn í Safamýri, en
það yrði erfítt. „Leikmenn Fram
verða að selja sig dýrt í þeim leik,
ákveðnir í að láta ekki þar við sitja.
Þá er bara spurningin sú hvort
hungrið verður nógu mikið hjá mín-
um mönnum til þess að koma jafn-
vel stemmdir til leiks þá og nú og
innsigla sigurinn. Ég á alténd ekki
von á því að við munum gefa eftir,
en það er erfitt að segja. Fram
verður nú að vinna þá þrjá leiki sem
eftir era til þess að hampa titlinum
og víst að þeir munu leggja sig alla í
verkefnið. Við viljum heldur ekki
tapa því sem hefur áunnist í síðustu
tveimur leikjum."
Guðmundur Þ. Guðmundsson,
þjálfari Fram, vildi ekki veita viðtal
að leikslokum.
Sljaman byrjaði
lokaslaginn betur
BIKAR- OG DEILDARMEISTARAR Stjörnustúlkna hófu
baráttu fyrir þriðja titli sínum í vetur með 23:19 sigri á
Haukum í Garðabænum á mánudaginn þegar liðin léku
fyrsta úrslitaleikinn um íslandsmeistaratitilinn. Hafn-
firðingar, sem misstu bikarinn í hendur Garðbæinga í
ár, unnu Stjörnuna eftir fimm spennuþrungna úrslita-
leiki í fyrra og berjast nú fyrir að halda eftir íslands-
meistaratitlinum. Haukastúlkur voru allan leikinn að
reyna að vinna upp forskot heimastúlkna en tókst það
ekki því það vantaði nokkuð upp á baráttuna en mest
nauðsynlega græðgi í að vinna.
Fram undir miðjan íyrri hálfleik
munaði ekki miklu á liðunum
en þó nógu til að Garðbæingar
hefðu forystuna. Þá
Stefán dró í sundur því
Stefánsson sóknarleikur Hauka
skrifar Varð bitlítill - reynd-
ar litlu betri hjá
Stjörnunni en þar tókst þó Hrand
Grétarsdóttur og Nínu K. Björns-
dóttur að láta til sín taka þegar
ýmist Ragnheiður Stephensen eða
Herdís Sigurbergsdóttir voru
teknar úr umferð.
Eftir hlé bragðu Hafnfírðingar á
það ráð að spila vamarleikinn með
einn leikmann framarlega, helst til
að loka fyrir sendingar á Herdísi
leikstjórnanda Stjömunnar. Það
tók tíma að skila árangri en á með-
an hélt Harpa Melsteð Haukum
inni í leiknum með þvi að skora öll
þrjú mörkin í rámar 17 mínútur.
Loks tóku Haukar við sér og
minnkuðu muninn í þrjú mörk,
19:16, en þá gekk lukkan til liðs við
Stjörnuna - í stað þess að minnka
muninn í tvö mörk þegar tíu mínút-
ur vora til leiksloka, var dæmdur
raðningur á Hauka og Anna Blön-
dal geystist upp í hraðaupphlaup
en skaut í stöng. Boltinn hrökk
beint út á Nínu, sem fyigdist með
og hún átti ekki í vandræðum með
að skora. Munurinn varð því fjögur
mörk og þrátt fyrir að Stjörnu-
stúlkum væra mislagðar hendur í
sókninni eftir það sá Lijana Sadzon
markvörður til þess að hleypa gest-
unum ekki nær.
Lijana mjög góð
Lijana markvörður á mestan
heiður af sigi-inum. Hún varði 25
skot, oft úr góðum færam þegar
mest á reið. Herdís, Ragnheiður og
Inga Fríða Tryggvadóttir léku að
venju lykilhlutverk en Nína og
Hrund stóðu sína vakt þegar á
þurfti. Stjömuliðið hefur spilað
jafnast allra liða í vetur og það var
ekki að sjá að liðið ætli að hægja á
- hefur að vísu stundum leikið bet-
ur í vetur en í mikilvægum leik eins
og fyrsta úrslitaleik er ekki sann-
gjamt að fara fram á toppleik.
Haukastúlkur verða að taka til í
sínum herbúðum ef þær ætla ekki
SÓKNARNÝTING
Fyrsti úrslitaleikur kvennaliðanna,
leikinn í Garðabæ 13. apríl 1998
Stjarnan I Haukar
Mðrk Sóknlr % I Mörk Séknir %
15 31 48 F.h 10 31 32
8 26 31 S.h 9 26 35
23 57 40 Alls 19 57 33
5 Langskol 6
3 Gegnumbr ot 4
6 Hraðaupphlaup 3
1 Horn 2
6 Lína 2
2 Víti 2
að láta íslandsmeistarabikarinn af
hendi. Markvai’slan mætti vera
betri en þar spilar inn í að vörnin
mætti einnig halda betur. Sóknar-
leikurinn var ágætur í byrjun en
síðan var lítið um frjóa hugsun í
honum. Stelpurnar geta þó betur
og hafa oft sýnt það og sannað en
gegn Stjörnunni komast þær lítt
áleiðis með leik eins og á mánudag-
inn. Harpa var langbest og tók af
skarið þegar þurfti, Hulda Bjarna-
dóttir byrjaði vel og Judit
Esztergal er að koma til.
Þannig
vörðu þær
I sviga eru skot, sem fóra
aftur til mótherja.
Lijana Sadzon, Stjörnunni
25(11). 13(5) langskot, 3(2)
eftir gegnumbrot, 5(3) af
línu, 2(1) úr horni og 2 eftir
hraðaupphlaup.
Guðíiý Agla Jónsdóttir,
Haukum 5(1). 3 langskot,
1(1) eftir gegnumbrot og 1
eftir hraðaupphlaup.
Alma Hallgrímsdóttir,
Haukum 7(4). 5(4) langskot
og 2 úr horni.
Eins og við vær-
um ekki tilbúnar
„ÉG ER alveg brjáluð því það var
eins og við kæmum alls ekki tilbún-
ar í þennan leik,“ sagði Harpa Mel-
steð, fyrirliði Hauka, eftir leikinn.
„Stemmningin var góð dagana fyr-
ir leikinn en þegar hann hófst var
eins og vantaði neistann og við spil-
uðum ekki eins vel og við getum.
Munurinn var aldrei svo mikill að
ekki væri hægt að vinna hann upp
en vendipunktar urðu þegar við
klúðrum dauðafæram og þær
skora í staðinn
Harpa var þó ekki af baki dottin.
„Við höfum svo sem áður verið með
tvö töp á bakinu en unnið titilinn
samt - samt ætlum við að breyta út
af venjunni og vinna næsta leik í
stað þess að tapa. Sumh- segja að
okkur skorti hungur til að vinna en
það ætlum við að afsanna, við eram
ósáttar við leik okkar og ýmislegt
má bæta fyrir fimmtudaginn en við
spiluðum langt undir getu í dag.
Við getum miklu betur, ætlum að
sanna það í næstu leikjum og þetta
er ekki búið - það er alveg á
hreinu," bætti Harpa vígreif við.
Sækjumst
eftir vand-
ræðum
„ÉG ER auðvitað ánægð með
sigurinn en bendi um leið á að
við höfum átta sinnum leikið til
úrslita og ávallt unnið fyrsta
leik svo að það er best fyrir
okkur að hugsa um einn leik í
einu,“ sagði Herdís Sigur-
bergsdóttir fyrirliði Stjörnu-
stúlkna eftir leikinn og sagði
hafa komið sér vel að ná for-
skotinu í upphafi. „Það var
erfitt fyrir þær að vera allan
leikinn að vinna upp forystu
okkar en engu að síður sást
strax í byrjun hvort liðið var
ákveðnara í að vinna. Ég bjóst
við jafnari leik en það skipti
sköpum að við voram ákveðn-
ari í að vinna.“
Um kafla í síðari hálfleik
þegar Stjörnustúlkur misstu
dampinn svo að minnstu mun-
aði að Hafnfirðingum tækist
að jafna sagði Herdís: „Þó við
komust tveimur til fjóram
mörkum yfir í leik kemur það
fyrir Ktið því við virðumst
alltaf þurfa að koma okkur
sjálfum í klípu með því að tapa
því niður og það verðum við að
laga snarlega - það er eins og
sækjumst eftir vandræðum."
■ GUÐMUNDUR Helgi Pálsson
leikstjórnandi Fram meiddist á
mjöð í síðari hluta fyi’sta leiksins og
var af þeim sökum ekkert með í
öðrum leiknum á mánudaginn.
Hans sæti í liðinu tók Guðjón
Drengsson, en Guðjón kom ekkert
við sögu. Páll Beck leysti leik-
stjórnanda hlutverkið lengst af fyr-
ir Fram í leiknum á Hlíðarenda.
■ RÖGNVALD Erlingsson dómari
og félagi hans Stefán Arnaldsson
dæmdu leikinn á mánudaginn en
þetta er í fyrsta sinn síðan í árslok
1996 sem fremsta dómararapar
landsins dæmir leik hjá Fram. Þá
dæmdu þeir bikarleik á milli Fram
og Gróttu.
■ RÖGNVALD hefur síður viljað
dæma leiki hjá Fram þar sem hann
lék með liðinu á árum áður þó hann
dæmi nú ekki fyrir það. Hins vegar
var það ósk beggja liða að þeir fé-
lagar dæmdu leikinn og tóku þeir
áskoruranni og leysti starf sitt með
sóma.
■ ÞULURINN á leik Stjörnunnar
og Hauka á mánudaginn bað áhorf-
endur tvívegis að hvetja lið sín í
stað þess að atast út í dómara leiks-
ins, sem sinntu sínum störfum eftir
bestu getu. Sú bón átti rétt á sér
því nokkrir af annars ágætum rúm-
lega 300 áhorfendum vora meira
fyrir að kalla persónulegar athuga-
semdir til dómara og þjálfara liða í
stað þess að hvetja sitt lið.
■ HARPA Melsteð fyrirliði Hauka
var valin best í liði sínu í leiknum,
af meistaraflokksráði Stjörnunnar,
og fékk gjöf að launum.
■ LIJANA Sadzon markvörður
Stjörnunnar, var af sama ráði valin
best í sínu liði og fékk einnig
snyrtivörur af gjöf.