Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 8
>8 B MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Spennunni viðhaldið
BESTI knattspyrnumaður heims, Brasilíumaðurinn Ronaldo,
gerði bæði mörk Inter er liðið vann Roma 2:1 á útivelli og heldur
þannig Juventus við efnið því Inter er aðeins einu stigi á eftir
meisturunum, sem unnu Piacenza 2:0. Það er því Ijóst að barátt-
an um ítalska meistaratitilinn verður hörð þegar fimm umferðir
eru eftir, en Juve og Inter mætast í Tórínó 26. apríl.
Brasilíumaðurinn snjalli gerði
síðara mark sitt, sem reyndist
sigurmarkið, á 75. mínútu. Ronaldo
var ekki eini Brasilíumaðurinn sem
_ kom við sögu í leiknum því eftir að
hann hafði komið Inter í 1:0 á 50.
mínútu jafnaði landi hans Cafu fyrir
heimamenn. Þetta var fimmti sigur
Inter í röð og í fyrsta sinn í sjö ár
sem Inter tekst að sigra Roma á
heimavelli síðarnefnda liðsins.
Luigi Simoni, þjálfari Inter, var
nokkuð ánægður og þvertók fyrir
að lið hans byggði nær eingöngu á
einum manni. „Inter er ekki bara
Ronaldo. Það erum við sem komum
honum í þá stöðu að hann geti skor-
að,“ sagði þjálfarinn. Ronaldo var í
strangri gæslu í fyrri hálfleik en
snemma í þeim síðari slapp hann
augnablik úr gæslunni og skoraði
Ajax
meistari í
Hollandi
AJAX er þegar orðið meistari í
Hollandi þó fímm umferðir séu
eftir. Liðið burstaði Heeren-
veen á laugardag, 7:2, og eini
keppinauturinn, PSV Eind-
hoven tapaði á sunnudag, 1:3,
fyrir Sparta. Ajax hefur 80 stig,
18 meira en PSV, og markatala
meistaranna nýkrýndu er hag-
stæð um 79 mörk.
Shota Arveladze gerði
þrennu fyrir Ajax á laugardag -
og hefur þar með gert 19 mörk í
deildinni í vetur, - Ronald de
Boer gerði fyrsta markið og
Sunday Oliseh skoraði einnig,
áður en Arveladze komst á blað.
Daninn Michaei Laudrup og
fínnski miðherjinn .Jari Lit-
manen gerði einnig sitt markið
hvor.
Grikkinn Nikos Machlas
skoraði tvlvegis fyrir Vitesse
j Arnhem í 4:1 sigri á Graafschap
Doetinchem. Mörk Grikkjans
eru nú orðin 31 í deildinni í vet-
ur og hann hefur þar með bætt
29 ára gamalt met; hefur skorað
flest mörk útlendinga í deildinni
á einu keppnistímabili. Metið
átti Svíinn Ove Kindval frá því
keppnistímabilið 1968-69 en
Brasilíumaðurinn Ronaldo jafn-
aði það 1994-95.
eftir fyrirgjöf Frakkans Benoit
Cauet. Cafu jafnaði stundarfjórð-
ungi síðar en Ronaldo gerði sigur-
markið, stakk vörnina af og skaut
að marki en Michael Konsel, mark-
vörður Roma, varði en Ronaldo
náði frákastinu og gerði sitt 21.
mark í deildinni. Hann er nú
markahæstur ásamt Oliver Bier-
hoff, sem gerði tvö mörk fyrir Udi-
nese.
Líkt og Inter tókst meisturum
Juventus ekki að sýna mátt sinn og
megin í fyrri hálfleik gegn Piacenza,
en í þeim síðari skoruðu Frakkinn
Zinedine Zidane og Alessandro Del
Piero hvor sitt markið. Það sem
kom leikmönnum Juve í gang virtist
vera þulur vallarins sem tilkynnti
að Ronaldo hefði komið Inter yfír í
Rómarborg. Zidane svaraði með
marki og Del Piero skömmu síðar,
hans 20. mark í deildinni í vetur.
Marco Rossi, varnarmaður Pi-
acenza, taldi Del Piero hafa notað
höndina og mótmælti kröftuglega,
en uppskar ekkert nema rautt
spjald.
Lazio, sem er í þriðja sæti deild-
arinnar, lenti í vandræðum á útivelli
er liðið mætti Brescia. Gestirnir
komust yfir snemma leiks með
marki Roberto Rambaudi og virtust
komnir á sigurbraut eftir að Juve
hafði stöðvað sigurgöngu þeirra
helgina áður. Þrátt fyrir mýmörg
marktækifæri tókst gestunum ekki
að skora á ný en það gerðu heima-
menn hins vegar og Lazio varð að
sætta sig við að sjá af tveimur mik-
ilvægum stigum og er nú sex stig-
um á eftir Inter. Brescia komst af
fallsvæðinu með stiginu.
Argentínumaðurinn Hernan
Crespo gerði tvö af þremur mörk-
um Parma er liðið vann Napolí 3:1
og sendi hið fornfræga félag niður í
aðra deild. Þetta er í fyrsta sinn í 33
ár sem Napolí fellur í aðra deild.
Giuseppe Tagliatela, markvörður
Napolí, gat ekki leynt tilfínningum
sínum þegar flautað var til leiksloka
og yfírgaf leikvanginn grátandi.
Udinese hafði tapað tveimur
leikjum í röð fyrir leiki helgarinnar
og það líkaði Alberto Zaccheroni
þjálfara illa og gerði miklar breyt-
ingar á liðinu. Fimm leikmenn voru
teknir úr byrjunarliðinu en þó ekki
Þjóðverjinn Oliver Bierhoff, sem
skoraði tvívegis sem fyrr segir og
tryggði öll þrjú stigin.
Líberíumaðurinn George Weah
gerði öll þrjú mörk AC Milan er lið-
ið vann Atalanta.
Reuters
FRANSKI landsliðsmaðurinn snjalli Didier Deschamps hjá Ju-
ventus leikur á Giuseppe Scienza, leikmann Piacenza.
Yfirburðir Porfo
PORTO hefur sem fyrr mikla yfirburði í portúgölsku 1. deildinni. Liðið
sigraði Chaves 3:1 á heimavelli og hefur tíu stiga forskot á Benfíca sem
lagði Salgueiros 2:0 á útivelli. Fimm umferðir eru eftir af deildarkeppninni.
Brasilíski framherjinn Mario Jardel gerði síðasta mark Porto gegn Chaves
á næstsíðustu mínútu og var það langþráð; hann hafði ekki skorað í sjö síð-
ustu leikjum. Jardel er samt sem áður markahæsti leikmaður deildarinnar
með 18 mörk. Joao Pinto og Englendingurinn Brian Deane gerðu mörk
Benfica, sem er níu stigum á eftir liðinu í þriðja sæti.
Rivaldo óvenju spenntur
vegna afmælis síns
Brasilíski miðherjinn Rivaldo verð-
ur 26 ára á sunnudag og er óvenju
spenntur. Það kemur kannski ekki á
óvart þegar haft er í huga að
Barcelona getur tryggt sér
spænska meistaratitilinn í knatt-
spymu á afmælisdaginn og hann á
sér ekki heitari ósk en að halda upp
á afmælið með því að fagna titlinum
á Camp Nou með 120.000 áhan-
- gendum. „Það yrði frábær afmælis-
gjöf, sennilega sú besta á ævinni,"
sagði miðherjinn sem hefur gert 18
mörk í deildinni á tímabilinu.
Barcelona hefur beðið í fjögur ár
eftir titlinum en liðið varð áður
spænskur meistari í fjögur ár í röð
undir stjórn Johans Cruyffs. Þegar
fímm umferðir eru eftir er liðið með
• 14 stiga forystu á Real Madrid og
sigur á Real Zaragoza á sunnudag
fullkomnar verkið. „Við eigum
möguleika á þremur titlum á fyrsta
ári mínu hjá félaginu," sagði Ri-
valdo. „Við höfum þegar sigrað í
Meistarakeppni Evrópu, sigur í
deildinni er 99% öruggur og við er-
um í bikarúrslitum á móti Mall-
orca.“
Rivaldo sagði að kaflaskipti hefðu
orðið í liðnum mánuði þegar
Barcelona vann Real Madrid 3:0.
„Þá lékum við eins vel í einum leik
eins og á öliu tímabilinu."
Hollenski þjálfarinn Louis van
Gaal hefur verið gagnrýndur allt
tímabilið fyrir leikkerfí, kaup á
mönnum og uppstillingu. Liðinu
gekk illa í janúar og þá virtist
þjálfarinn vera í mjög „heitu“ sæti
en Rivaldo varði stjórann. „Hann
er frábær þjálfari og ég sagði það
þegar hann var gagnrýndur sem
mest fyrir vinnubrögðin. Mest af
því sem sagt var var ósanngjarnt.
Hann er ótrúlega vinnusamur og
smitar út frá sér. Hann hefur
byggt upp mikið sjálfstraust hjá
okkur og það eru ekki margir þjálf-
arar sem hafa fagnað meistaratitli
á fyrsta ári.“
Van Gaal hefur væntanlega unnið
sér inn virðingu leikmannanna,
jafnvel Sonnys Andersons, sem
kvartaði í vetur, sagðist ekki vera
notaður rétt, en hugarfar áhan-
genda liðsins til þjálfarans er ekki
eins og það á að vera. Van Gaal tal-
ar ekki spænsku og allir frétta-
mannafundir fara fram á ensku.
Þótt titillinn sé nánast í höfn er
stöðug rimma um gildi hollensku
varnarmannanna Michaels Reizi-
gers og Winstons Bogardes, sem
van Gaal samdi við. Þjálfarinn hefur
auk þess undirbúið komu tveggja
Hollendinga til viðbótar en komi
Philip Cocu og Frank de Boer til fé-
lagsins má gera ráð fyrir að óá-
nægjuraddirnar verði enn hávær-
ari. En þrátt fyrir óánægjuna hefur
ríkt sigurgleði í kringum Camp Nou
síðan um helgina. Jafnvel varnar-
maðurinn Miguel Angel Nadal, einn
margra spænskra landsliðsmanna
sem ekki hefur verið pláss fyrir í
byrjunarliðinu eftir að Reiziger og
Bogarde voru keyptir, brosti. „Nú
erum við með báðar hendur á bik-
anium.“
Sálfræði-
stríð í
Skotlandi
GÍFURLEG spenna er í
skosku úrvalsdeildinni eftir að
Hibernian vann Hearts óvænt
2:1 og Rangers tók Celtic 2:0.
Rangers er efst með betri
markatölu en Celtic en Hearts
er fjórum stigum á eftir. Celtic
á eftir Motherwell, Hibs og St.
Johnstone heima en Dunferm-
line úti. Rangers á eftir Aber-
deen, Hearts og Dundee
United úti en Kilmamoek
heima.
Walter Smith, stjóri Ran-
gers, sagði að þó Rangers væri
í efsta sæti væri Celtic sigur-
stranglegast. „Liðið á þrjá
heimaleiki eftir og einn útileik
og lið sem nær ekki árangri úr
slíkri dagskrá á ekki skilið að
verða meistari. Celtic er sigur-
stranglegast en leikmennimir
verða að horfast í augu við þá
staðreynd að þeir hafa misst
niður mikla forystu.“
Alan Stubbs og Paul Lam-
bert, helstu stjörnur Celtic,
sögðu að Smith væri í leik sem
allir sæju í gegnum. „Við vitum
hvað hann er að gera með þess-
um orðum sínum,“ sagði
Stubbs. „Hann er að reyna að
varpa allri spennu yfir á okkur.
Svo virðist sem við eigum auð-
veldari leiki eftir en á þessu
stigi eru allir leikir erfiðir.“
Hann bætti við að aðalatriðið
væri að taka einn leik fyrir í
einu og einbeita sér að sigri.
Lambert tók í sama streng og
gerði lítið úr orðum Smiths.
„Þetta er hans skoðun og hún
truflar mig ekki.“
Stubbs sagði að helstu hindr-
anir væra úr vegi. „Ef við höld-
um okkar stiáki í leikjunum
sem eftir eru fáum við þau úr-
slit sem við viljum."
Lens og
PSG í úrslit
LENS og París St Germain
leika til úrslita í frönsku bikar-
keppninni á Stade de France 2.
maí. Undanúrslitin vora á dag-
skrá um helgina og fengu flestir
franskir knattspymuunnendur
ósk sína uppfyllta. Lens, sem
hefur leikið frábærlega í vetur
og er efst í deildinni og stefnir á
tvöfaldan sigur - í deild og bik-
ar - sigraði Lyon 2:0 með
tveimur mörkum Stephanez Zi-
anis á laugardag og á sunnudag
sigraði PSG lið En Avant
Guingamp 1:0. Florian Marice
gerði eina mark þess leiks strax
á 4. mín.
Lens leikur nú til úrslita um
franska bikarinn í fyrsta skipti
síðan 1975.
Sturm Graz
meistari í
fýrsta sinn
STURM Graz fagnaði meist-
aratitlinum í Austurríki í fyrsta
sinn þegar liðið vann Austria
Vín 5:0 í fyrradag. Sturm Graz,
sem varð bikarmeistari í fyrra,
er með 22 stigum meira en Graz
AK, sem er í öðru sæti, en sjö
umferðir eru eftir.
Stui-m hefur sigrað í 21 af 29
leikjum, gert sjö jafntefli og að-
eins tapað einum leik.