Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 12
Ronaldo
Bröndby vill
Þorbjörn Atla
ÞORBJÖRN Atli Sveinsson,
miðlierji í Frara, er ineð tilboð
frá danska úrvalsdeildarfélag-
inu Brondby sem vill gera
samning við hann tii þriggja
ára. Miðlierjinn æfði með
danska liðinu í tíu daga f liðn-
um mánuði og leist Döuum
greinilega vel á pilt. Þýska fé-
lagið Duisburg hefur líka boðið
Þorbirui Atla til sfn, en lianu
er samningsbundinn Fram til
haustsins.
með tvö
í Moskvu
ÞAÐ verða tvö ítölsk lið sem
mætast í úrslitaleiknum í Evr-
ópukeppni félagsliða á Parc
des Princes leikvanginum í
Frakklandi miðvikudaginn 6.
maí. Lazio og Atletico Madrid
gerðu markalaust jafntefli í
gær og 1:0 sigur Lazio fyrir
hálfum mánuði dugði liðinu til
að komast fyrsta sinni í úrslit
keppninnar. Þá sigraði Inter lið
Spartak í Moskvu, 2:1, þökk sé
tveimur mörkum Brasilíu-
mannsins Ronaldos.
Lazio mun mæta Inter í úrslitum
og er þetta í fjórða sinn á níu ár-
um sem tvö ítölsk lið leika til úrslita
í Evrópukeppni félagsliða. Juve
vann Fiorentina samanlagt 3:1 árið
1990, Inter vann Roma samanlagt
2:1 ári síðar og 1995 vann Parma lið
Juventus með sömu markatölu. í ár
verður aðeins einn úrslitaleikur,
ekki verður leikið heima og að heim-
an eins og verið hefur. Keppninni í
ár getur því lokið með því að Inter
sigri þriðja sinni á þessum áratug
eða þá með því að Lazio sigri í fyrsta
sinn og það yrði þá í fyrsta sinn síð-
an 1974 að leikmenn félagsins lyftu
bikar, en þá varð liðið Ítalíumeistari.
Lazio og Inter hafa mæst tvívegis
á þessu keppnistímabili, liðin gerðu
-1:1 jafntefli í Mílanó en Lazio vann
3:0 í Róm. Hvað gerist 6. maí þegar
leikið verður á hlutlausum velli
verður að koma í ljós.
Leikurinn í gær þótti ekki merki-
legur. Leikmenn Atletico fengu
hættulegri færi, en hægar og kerfís-
bundnar sóknartilraunir þeirra
brotnuðu flestar á traustri vörn
Lazio. Leikmenn Lazio hafa aðeins
gert eitt mark í síðustu fjórum leikj-
um, en þeir voru nærri því að skora í
upphafi leiks í gær, en Jose Molina
markvörður varði gott langskot frá
Giuseppe Favalli og Christian Diaz
bjargaði í kjölfarið á marklínu.
Spánverjar fengu nokkur ágæt
marktækifæri, það besta í fyrri hálf-
.leik kom á 13. mínútu en Radek
Bejbl skaut framhjá fyrir opnu
marki. Spánverjai- bættu í sóknina í
upphafí síðari hálfleiks og Romero
Jose Mari, sem kom inná sem vara-
maður, fékk gullið tækifæri strax
eftir hlé, komst einn inn fyrir vörn
Lazio en skaut í hliðarnetið.
„Ronaldo hefur sýnt og sannað að
hann er besti leikmaður heims,“
sagði Luigi Simoni, þjálfari Inter,
eftir leikinn gegn Spartak í Moslmi
í gær og varpaði öndinni léttar. Út-
litið var ekki gott í Moskvu því níst-
ingskuldi var og kom það leikmönn-
um ítalska liðsins ekki til góða. And-
rei Tikhonov kom heimamönnum yf-
ir með glæsilegu marki á 12. mínútu
og hefðu þau orðið úrslit leiksins
hefði Spartak komist áfram á marki
skoruðu á útivelli.
Ronaldo var greinilega kalt því
hann var með eyrnaband svipað því
sem skíðamenn nota, enda þurfti að
ryðja völlinn fyrir leikinn en á hon-
um var um 30 sentimetra jafnfallinn
snjór. Landsliðsmaðurinn Dmitry
Khlestov fékk það hlutverk að gæta
Ronaldos og fórst það ágætlega úr
hendi - í fyrstu.
Inter fékk hornspymu á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks og varnar-
manni Rússa mistókst að spyrna frá
marki þannig að boltinn barst til
Ronaldos sem lúrði á vitapunktinum
og var snöggur að senda knöttinn í
netið, enda tíminn stuttur og dómar-
inn flautaði til leikhlés í sama mund.
„Þetta var líklega markið sem fór
með okkur,“ sagði Oleg Romantsev,
þjálfari Spartak eftir leikinn.
Heimamenn réðu miðjunni í fyrri
hálfleik og héldu uppteknum hætti
eftir hlé. Þeir fengu fjölmargar
hornspymur, vom á stundum níu í
sókninni en tókst þrátt fyrir það
ekki að fínna smugu á þéttri vörn
Itala. A 76. mínútu komust gestirnir
í sókn, en það var ekki algengt í
gær, og Ronaldo skoraði annað
mark sitt, nánast uppúr engu. Hann
lék skemmtilega á þrjá varnarmenn
og sendi knöttinn í netið. „Spartak
byrjaði vel, en við enduðum vel,“
sagði Simoni alsæll með sigurinn.
Romantsev kenndi reynsluleysi
leikmanna um að ekki skyldi takast
að skora mark þrátt fyrir stans-
lausa sókn. „Inter átti skilið að
komast áfram í keppninni, en við
áttum ekki skilið að tapa í dag. Eftir
að við komumst yfir var eins og
sumir leikmenn liðsins fylltust
skelfingu yfir því að vera að vinna
jafnt gott og frægt lið og Inter,“
sagði þjálfarinn.
HANDKNATTLEIKUR
Reuters
PAOLO Negri, leikmaður Lazio, heldur á félaga sínum Alessandro
Nesta, eftir jafnteflið við Atletico Madrid í Róm.
FOLK
■ RIKHARÐUR Daðason skoraði
þriðja og síðasta mark Vikings frá
Stavangri á 69. mínútu er liðið lagði
Válerenga í fyrstu umferð norsku
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu
sem hófst um páskahelgina. Rík-
harður lék allan tímann eins og fé-
lagi og landi hjá sama liði, Auðun
Helgason.
■ BRYNJAR Björn Gunnarsson lék
fyrri hálfleikinn með nýliðum Váler-
enga.
■ ÓSKAR Hrafn Þorvaldsson lék
allan tímann í vörn Strömsgodset
sem tapaði á heimavelli fyrir meist-
urum Rosenborg, 2:0. Árni Gautur
Arason lék ekki í marki meistaranna
að þessu sinni.
■ BJARKI Gunnlaugsson kom inn á
sem varamaður á 22. mínútu fyrir
Molde er liðið lagði liðsmenn Hauga-
sunds 3:2 í Haugasundi. Bjarki skor-
aði ekki að þessu sinni.
■ TRYGGVI Guðmundsson komst
ekki á blað þó hann væri í fremstu
víglínu Tromsö gegn Sogndal er lið-
in skildu við skiptan hlut, 0:0.
■ HEIÐAR Helgason varð að fara af
leikvelli á 15. mínútu í fyrsta heima-
leik sínum með Lilleström, sem tap-
aði 3:0 fyrir Kongsvinger. Rúnar
Kristinsson er enn á sjúkralista hjá
Lilleström og kom því ekki við sögu í
fyrsta leiknum á leiktíðinni.
■ HELGI Sigurðsson lék fyrstu 60
mínúturnar fyrir Stabæk í 3:2 sigri á
Bodö/Glimt. Helgi var ekki á meðal
markaskorara Stabæk.
■ ÁGÚST Gylfason var ekki á meðal
leikmanna Brann sem fengu Moss í
heimsókn. Gestirnh' sigruðu 1:0 að
viðstöddum 11.500 áhorfendum.
■ SVERRIR Sverrisson var ekkert
að hika er Malmö tók á móti
Hammarby á heimavelli í sænsku
deildinni á mánudaginn. Sverrir kom
Malmö á bragðið eftir hálfa þriðju
mínútu en það dugði ekki til því
leiknum lyktaði með jafntefli, 2:2.
Wuppertal lagði Lemgo
WUPPERTAL setti strik í reikn-
inginn hjá meisturum Lemgo um
páskahelgina með því að leggja þá
26:22 að viðstöddum 3.100 áhorf-
endum á heimavelli sínum. Þetta er
í annað sinn á skömmum tíma sem
Wuppertal leggur stórlið á heima-
velli því á dögunum hlaut efsta liðið,
Kiel, sömu örlög. Dagur Sigurðsson
og Olafur Stefánsson gerðu 3 mörk
hvor fyrir Wuppertal sem er undir
stjórn Viggós Sigurðssonar. Þessi
ósigur setur verulegt strik í reikn-
ing Lemgo sem er í öðru sæti deild-
arinnar með 36 stig, einu stigi
minna en Kiel sem hefur leikið ein-
um leik minna. Wuppertal er í 8.
sæti með 24 stig.
Leikurinn var í járnum í fyrri
hálfleik og í leikhlé var staðan
13:13. Wuppertal náði frumkvæðinu
í síðari hálfleik og hélt því til loka
vel stutt af fullri höll áhorfenda.
Julian Róbert Duranona var rek-
inn af leikvelli undir leikslok í viður-
eign Eisenach og Wallau-Massen-
heim sem lyktaði með jafntefli 23:23
á heimavelli Massenheim í leik sem
þótti fast leikinn. Rússinn Dímítrí
Torgovanov hafði haft gætur á
Duranona allan leikinn og átt í
mesta basli með að ráða við hann og
ekki beitt vönduðum meðulum við
gæsluna. Undir lokin sauð upp úr
og Duranona sló Togovanov í andlit-
ið með þeim afleiðingum að dómar-
ar leiksins áttu einskis annars úr-
kosta en að sýna Duranona rauða
spjaldið. Duranona var markahæst-
ur leikmanna Eisenach með 8 mörk.
Frederic Volle var atkvæðamestur
heimamanna með 11 mörk.
Patrekur Jóhannesson skoraði 2
mörk fyrir Essen í 23:23 jafntefli
við Niederwiirzbach á útivelli, eftir
að hafa verið marki undir í hálfleik,
15:14. Konráð Olavson gerði tvö
mörk fyrir heimamenn.
Enn tapaði Bayer Dormagen
með þá Róbert Sighvatsson og
Héðin Gilsson innanborðs. Að
þessu sinni sótti liðið Magdeborg
heim og unnu heimamenn, 25:21, en
jafnt var í hálfleik, 12:12. Róbert
skoraði 3 mörk fyrir Dormagen og
Héðinn 2. Situr liðið nú sem fyrr i
neðsta sæti með 13 stig og á þrjá
leiki eftir.
Næsta lið fyrir ofan Dormagen er
Hameln sem Alfreð Gíslason þjálf-
ar, en Hameln tapaði 24:22 á heima-
velli fyrir Flensborg og hefur nú 14
stig. „Þetta var jafnt fram í síðari
hálfleik er landsliðsmarkvörðurinn
Jan Holpert lokaði markinu hjá
þeim,“ sagði Alfreð í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Annars var
þetta verðskuldað hjá þeim.“
St. Otmar steinlá
Júlíus Jónasson skoraði tvö mörk
fyrir St. Otmar er félagið tapaði
30:20 fyrir Pafdi Winterthur í fyrsta
leik liðanna í undanúrslitum um
svissneska meistararatitilinn á
heimavelli Winterthur. Annai- leik-
ur liðanna fer fram í kvöld á heima-
velli Júlíusar og félaga og verða
þeir að vinna til þess að ná fram
oddaleik.
KNATTSPYRNA / UEFA-KEPPNIN