Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 B 5
BANDARISKA MEISTARAKEPPNIN í GOLFI
O’Meara skaut Couples og Duval ref fyrir rass á síðustu holu með glæsilegu pútti
Nafn
hans er
’Meara
MARK O’Meara sigraði í
bandarísku meistarakeppninni
í golfi [The Masters] á Augusta
National-vellinum í Georgíu-
ríki, en mótinu lauk á sunnu-
dag. O’Meara setti niður um
sex metra langt pútt á síðustu
flötinni og sigraði með eins
höggs mun - skaut þeim Fred
Couples og David Duval ref
fyrir rass. Þetta er fyrsti sigur
Bandaríkjamannsins á risa-
móti, en hann er 42 ára.
Bráðabani þriggja manna um
græna jakkann virtist yfirvof-
andi er O’Meara lauk glæsilegum
endaspretti sínum
Edwin með. Sóðu Pútti ÍV™
Rögnvaldsson ftigli á 18. flöt. Banda-
skrifar ríkjamennimir Fred
Couples og David Du-
val skiptust á um forystuhlutverkið á
síðustu sex holunum, luku báðir leik
á átta höggum undir pari og allt
stefndi í að þeir færu í bráðabana
ásamt O’Meara. Sá síðastnefndi náði
þremur fuglum á síðustu fjórum
brautunum og tryggði sér sætan sig-
ur, öllum að óvörum, en O’Meara
hafði lengi verið þekktur sem einn sá
allra besti sem hafði aldrei hrósað
sigri á risamóti.
„Eg var staddur á veitingastað
hér í grenndinni í vikunni og einhver
náungi kom til mín og sagði: „Hei,
Mark McCumber, Mark McCumber
[bandarískur kylfingur í fremstu röð
fyrir nokkrum árum]!“ Eg varð að
segja honum að ég væri ekki Mark
McCumber, heldur Mark O’Meara,"
sagði sigurvegarinn. „Par sem ég hef
nú unnið bandarísku meistarakeppn-
ina 1998, þekkir fólkið mig vonandi,"
bætti hann við skömmu eftir að hafa
klæðst græna jakkanum með aðstoð
Tigers Woods, vinar síns og æfinga-
félaga sem sigraði svo eftirminnlega
með tólf högga mun í fyrra.
Mark O’Meara hefur aldrei þótt
litríkur kylfingur, en hann er vinsæll
á meðal keppinauta sinna og áhorf-
enda. „Eg hef enga þörf fyrir að vera
stórstjarna, en ég er vitaskuld upp
með mér þegar fólk ber kennsl á
mig. Eg vona bara að það viti hvað
ég heiti.“
O’Meara þakkaði þjálfara sínum,
Hank Haney, sigurinn, en hann
benti honum á að gera lítilfjörlega
breytingu í púttaðferð sinni skömmu
fyrir mótið. Hún gerði gæfumuninn
og gerði O’Meara kleift að leika vel á
erfiðum flötum Augusta National, en
meistarinn nýbakaði þrípúttaði að-
eins einu sinni í öllu mótinu.
O’Meara segist hafa tekið
nokkrum framförum eftir að hafa
æft með Tiger Woods. „Þegar ég
keppi við hann, reyni ég að nýta
reynslu mína til að saxa á forskotið
sem hann hefur vegna högglengdar-
innar. Það hefur gert mig að betri
kylfingi að leika gegn og æfa með
svo snjöllum kylfingi.“
Afdrifarík mistök Couples
Fred Couples hafði tveggja högga
forskot fyrir síðasta keppnisdag. Da-
vid Duval náði honum er hann fékk
þrjá fugla í röð um miðjan síðasta
hringinn og þeir skiptust á um for-
ystuhlutverkið síðustu sex holurnar.
Couples, lék með O’Meara í síðasta
ráshópnum, hafði forystu þar til
hann lék 13. brautina á sjö höggum,
tveimur höggum yfir pari. Duval var
í næst síðasta ráshópnum. Hann
komst mest níu högg undir parið og
um tíma virtist sem fátt gæti komið í
„Það er smá-
pláss neðst“
veg fyrir sigur hans. Hann þrípútt-
aði þvi næst á 16. flöt, fékk skolla og
lauk því leik á átta höggum undir
pari. Couples virtist miður sín eftir
afdrifarík mistökin á 13. braut, en
bætti upp fyrir þau með glæsilegum
erni á fimmtándu holu. Hann var þá
kominn átta högg undir par og átti
skyndilega aftur möguleika á sigri,
en hann sigraði í mótinu árið 1992.
Ekki tókst honum þó að endurtaka
þann leik í þetta sinn.
„Gamli“ bjöminn
stal senunni
Jack Nicklaus virðist ekki ganga
lengur undir nafninu „gullni björn-
inn“ - heldur „gamli björninn".
Hann er nú orðinn 58 ára, hefur
dregið sig í hlé að mestu leyti hvað
keppni varðar og æfir mjög lítið, en
hann vann hug og hjörtu áhorfenda
með leik sínum í meistarakeppninni í
ár. Hann lauk þriðja hringnum með
glæsibrag og var á einu höggi undir
pari fyrir lokadaginn. Hann var því í
mjög áþekkri stöðu og fyrir tólf ár-
um, þegar hann sigraði óvænt með
_
Reuters
MARK O’Meara fagnar sigri eftir að hafa náð fugli á sfðustu holunni með góðu pútti af um sex metra
færi. Hann er aðeins þriðji maðurinn sem tryggir sér sigur með fugli á síðustu brautinni. Hinir eru
þeir Arnold Palmer og Skotinn Sandy Lyle. Á litlu myndinni er Jack Nicklaus, sem er orðinn 58 ára
en skákaði þó mörgum bestu kylfingum heims um liðna helgi.
,OíOTA
Reuters
TIGER Woods, sem átti titil að verja, klæðir vin sinn og æfinga-
félaga, Mark O’Meara, f græna jakkann sem sigurvegarinn fær
að launum auk rúmlega 40 milljóna króna og silfursleginnar eft-
irlíkingar af klúbbhúsi Augusta National.
• Jack Nicklaus sagðist hafa
fengið innblástur þegar honum
var tileinkaður skjöldur, sera
komið var fyrir aftan við 16. flöt-
ina tveimur dögum áður en mótið
hófst. Á honum má lesa um helstu
afrek „gullna bjarnarins" í banda-
risku meistarakeppninni, en Jack
Stephens, eimi stjórnarmanna
Augusta National, sagði: „Það er
smápláss ueðst á skildinum.”
# David Toms, lítt þekktur at-
vinnumaður, jafnaði met Marks
Calcawecchia frá 1992 - besta
lokahring f sögu mótsins. Toms
lék á 64 höggum á sunnudag.
Báðir léku þeir seinni níu holurn-
ar 29 liöggum og náðu sex fugl-
uin í röð, en parið á sfðari níu
brautunum er 36 högg. Vallar-
metið á Augusta er 63 högg, en
það eiga þeir Nick Price frá
Zimbabwe og Greg Norman frá
Ástralíu. Toms hafnaði í sjötta
sæti ásamt Jack Nicklaus á fimm
höggum undir pari.
• Matt Kuchar, 19 ára nemi við
Stanford-háskóla, keppti sem
áhugamaður og hafnaði í 21. sæti
á pari. Þaimig vann haim sér rétt
til að leika í mótinu að ári. Annar
áhugamaður, Joel Kribel, komst
einnig í gegnum fækkun kepp-
enda að tveimur dögum loknum.
Hann lék á 301 höggi.
• Suður-Afríkubúinn Gary Play-
er, sem er orðinn 62 ára, er elsti
kylfingurinn sem kemst í gegnum
fækkun eftir 36 holur. Þreytan
sagði þó til sín á lokasprettinum
og lék hann á 302 höggum, fjórt-
án högguni yfir pari.
• Emie EIs komst í efsta sæti
heimslistans eftir bandarfsku
meistarakeppnina, fór þannig
frain fyrir Tiger Woods, sem
tókst ekki að verja titil siim. Með
sigri sfnum f mótinu komst Mark
O’Meara f nfunda sæti og Jack
Nicklaus er kominn aftur inn á
lista yfir 200 bestu kylfinga
heims, er nú í 189. sæti.
því að leika síðasta hringinn á 65
höggum.
„Eg hafði engu að tapa og lét því
vaða,“ sagði hann. Nicklaus byrjaði
mjög vel og það fór um mannskapinn
á Augusta. Hann fékk næstum örn á
2. braut, lék þar á fugli, og vippaði í á
þeirri þriðju. Eftir að hafa fengið
skolla á fjórðu holu lék hann sjöttu
og sjöundu brautina á fugli og var
tveimur höggum á eftir Couples.
Hávaðinn í áhangendum Nicldaus
vai- slíkur að aðrh- kylfingar áttu
erfitt með að einbeita sér. „Þetta var
svolítið erfitt því fagnaðarópin hófust
nær alltaf þegar við vorum að slá,“
sagði Tiger Woods, sem lauk leik
tveimur höggum á eftir Nicklaus.
Púttin rötuðu ekki rétta leið hjá
hetjunni gömlu á síðari níu holunum
og hann varð að gera sér sjötta sætið
að góðu, en fagnaðaróp áhorfenda
voru sannarlega kunnugleg. „Þetta
var mjög gaman. Ég held að meii’i-
hluti áhorfendanna, sem hér voru,
hafi átt miða á mótið í um fjörutíu ár.
Þeir hafa því líklega þekkt mig,“
sagði Nicklaus og glotti.
„Ég væri ái-eiðanlega talinn
heimskur ef ég segðist ekki hafa orð-
ið himinlifandi. Að sama skapi væri
ég óheiðarlegur ef ég segði að ég
væri vonsvikinn. En ég er vonsvik-
inn með að vera aðeins fjórum högg-
um á eftir efsta manni eftir að hafa
misnotað þann fjölda stuttra pútta
sem ég gerði,“ sagði Nicklaus og gaf
í skyn að þetta hefði líklega verið
síðasta meistarakeppnin sem hann
tekur þátt í.