Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.04.1998, Blaðsíða 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Arsenal er sigurstranglegast í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn á tímabilinu en knattspyrnustjórinn Arsene Wenger blæs á spádóma Staðan góð en spá- dómar breyta engu Ferguson treystir á Owen ALEX Ferguson, stjóri Manchester United, var allt annað en ánægður með „tæklingu“ Michaels Owens á Ronny Johnsen, en sagði samt að atvikið gæti hjálpað United. „Micliael Owen er frábær leikmaður en hann þarf ekki að gera svona lagað. Hann átti að fá rautt spjald fyrir þetta sem hefði þýtt að hann hefði misst af leik Liverpool og Arsenal en þar sem hann fór af velli með tvö gul spjöld á bakinu getur hann spilað í umræddum leik. Hins vegar er ekki víst að Ronny leiki meira á tímabil- inu.“ Pele sér stórstjörnu í Owen HINN eini og sanni Pele var á Old Trafford þegar Manchester United og Liver- pool áttust við. Hann var sérstaklega hrifinn af Mich- ael Owen; sagði að hann gæti orðið helsta stjarna heimsmeistarakeppninnar í Frakklandi í sumar. Mikið eftir, að mati Guðna LANDSLIÐSMAÐURINN Guðni Bergsson telur að staðan á botni og toppi geti hæglega breyst því mikið sé eftir. Colin Todd, knatt- spyrnustjóri Bolton, vildi ekki breyta sigurliði laugar- dagsins en setti Guðna inn á í vonlausri stöðu í fyrradag. „Við erum áfram í urrandi fallbaráttu en stutt er í Tottenham og með sigri í næstu leikjum getur staðan hæglega breyst," sagði fyrir- Iiðinn. Bolton á eftir Leeds og Crystal Palace heima en Aston Villa og Chelsea úti. „Þetta eru allt erfíðir leikir en við þurfum að hugsa um það að fá sem flest stig. Hugsanlega verðum við að sigra í öllum Ieikjunum en ef til vill nægja tveir sigrar - úrslit svo margra leikja hafa áhrif." Guðni sagði líka að Ar- senal yrði ekki meistari nema liðið sigraði í sem flestum leikjum og það væri hægara sagt en gert. „Þótt United hafi dalað virðist lið- ið eiga mun auðveldari leiki eftir en Arsenal. Því má segja að allt sé opið á botni sem toppi.“ Skjótt skipast veður á lofti í ensku knatt- þegar hann vísaði mér útaf en ekki var um viljandi brot að ræða hjá mér.“ Roy Evans, knattspyrnu- stjóri Liverpool, hrósaði liði sínu en sagði að Owen hefði verið of kappsamur og hann yrði að læra af mistökunum. „Eg er hreykinn af því hvernig við lékum og ég held að ég verði að vera það eftir að hafa verið marki undir og síðan misst Michael af velli. Það var þungt högg fyrir okkur en keppnisskap leikmanna minna eftir það var frá- bært.“ Ferguson hefur verið þekktur fyrir að sigra mótherja sína á sál- fræðinni og hann reyndi að taka Wenger og Arsenal á taugum. „Ur- slitin auka álagið á Arsenal, sem er með titilinn í höndum sér en við verðum að vona að liðið tapi stig- um.“ Franska sambandið traust Arsenal vissi hvað var í húfi og Newcastle fékk fyrst að finna fyrir því. Frakkinn Nicolas Anelka, sem er aðeins 19 ára, gerði tvö mörk og landi hans, Patrick Vieira, glæsi- legt mark af 30 metra færi í 3:1 sigri. Franski stjórinn leyndi held- ur ekki gleði sinni. „Eg er sérstak- lega ánægður fyrir hönd Anelkas, vegna þess að byrjun hans hjá Ar- senal var ekki auðveld en hann hef- ur bætt sig með hverjum leik og þetta eykur sjálfstraust hans.“ Frakkinn Emmanuel Petit kom líka mikið við sögu en hann hefur oft fallið í skugga Vieiras. „Ég er mjög ánægður með að leika með honum á miðjunni," sagði Vieira. „Við leikum í mikilvægum stöðum og tölum stöðugt saman.“ Vieira var líka kátur með annað mark sitt fyrir Arsenal. „Allir köiluðu skjóttu, skjóttu, skjóttu og ég lét vaða. Stundum vil ég ekki skjóta því ég er óheppinn í skotum en að þessu sinni var lánið með mér.“ Að þessu sinni var Ray Parlour besti maður Arsenal en vörnin var líka traust. Wright, Bergkamp, Martin Keown og Lee Dixon léku ekki með vegna meiðsla en breidd- in er mikil. Liðið hefur ekki tapað síðan 13. desember og mark Bartons fyrir Newcastle var fyrsta markið sem Arsenal hafði fengið á sig í 13 stundir og 43 mínútur. Snemma á tímabilinu var mikil umræða um ósamstilltan hóp hjá Arsenal, ríg á milli innlendra og er- lendra leikmanna, en hópurinn hef- ur verið samstiga undanfama mán- uði og elcki látið meiðsl og bönn slá sig út af laginu. „Hugarfarið er mjög gott vegna þess að við höfum reynslubolta eins og Adams sem aðstoða okkur yngiá leikmennina. Við verðum stöðugt að læra og samræðurnar eru mjög góðar fyrir liðsandann,“ sagði Vieira. Miklir yfirburðir Hafi einhver efast um ágæti Ar- senal sýndi liðið á móti Blackbum svo ekki verður um villst að það hefur alla burði til að verða meist- ari í fyrsta sinn í sjö ár. Wenger sló samt á allar væntingar. „Við vitum að för okkar byggist á því að standa okkur út tímabilið á heima: velli og krækja í sigra á útivelli. I lokin sjáum við hvar við stöndum." íslendi Crystal Palace virðist dæmt til að falla í 1. deild. Miðherjinn Paul Warhurst, sem fótbrotnaði í byi’jun janúar, lék með í 3:0 tapi á móti Leicester um helgina og sagði að andrúmsloftið í búningsherberginu eftir leikinn hefði verið eins og í kirkjugarði. Palace sigraði síðast heima 23. apríl í fyrra. „Astandið var óþægilegt og þögnin yfirþyrmandi. Attilio Lombardo sagði ekki neitt og leikmennirnir þögðu enda ekkert að segja eftir svona frammistöðu." Warhurst sagði að þó staðan væri slæm þýddi ekki að gefast upp og liðið var aðeins fimm mínútum frá því að krækja í stig á móti Liverpool á Anfield í fyrradag. Varamaðurinn David Thomas gerði fyrsta mark sitt fyrir Liverpool og innsiglaði 2:1 sig- ur. 0yvind Leonhardsen skoraði um miðjan fyrri hálfleik en eftir markið slökuðu heimamenn á, sem bauð hættunni heim og Marcus Bent jafn- aði 20 mínútum fyrir leikslok. Þá skiptu leikmenn Liverpool um gír, léku eins og á Old Trafford á föstu- spyrnunni. Manchester United hefur verið sigurstranglegast allt tímabilið en um helgina urðu kaflaskipti. United mátti sætta sig við jafntefli við Liverpool en í kjölfarið sigraði Arsenal í tveimur leikjum PATRICK Vieira war frábær með Ar og er nú með pálmann í höndunum. Arsenal er talið sigurstrangleg- ast í ensku úrvalsdeildinni eft- ir frábæran leik og 4:1 sigur á Blackbum í fyrradag. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Lund- únaliðsins, gaf samt lítið fyrir spá- dómana og sagði þá ekki skipta neinu fyrir liðið. Arsenal er stigi á eftir Manchester United en á tvo leiki til góða. Veðbankar segja möguleika Arsenal á titlinum vera 2-7 og 10- 11 á að liðið verði jafnframt bikar- meistari. „Það að vera talinn sigur- stranglegastur skiptir mig ekki miklu máli,“ sagði Wenger. „Það þýðir aðeins að staðan er betri en fyrir tveimur mánuðum. Þá sagði fólk að við ættum ekki möguleika. Nú erum við sigurstranglegastir. Við veltum okkur ekki upp úr skoð- unum fólksins fyrir tveimur mán- uðum og gerum það ekki heldur nú. Fólk segir að við séum eins og meistarar en meistarar verða krýndir í lok tímabilsins og fram að því getum við leikið eins og meist- arar einn daginn en eins og byrj- endur annan dag.“ Wenger sagðist vita að sjálfs- traustið væri gott hjá leikmönnum sínum en hann þyrfti að láta þá einbeita sér að því sem væri framundan. Hann sagðist hafa átt von á erfiðum leik í Blackburn en annað hefði komið á daginn. Liðið hefði byrjað vel og því hefði eftir- leikurinn verið auðveldur. „Við vorum ákveðnir, snöggir og nýtt- um færin. Fyrir leikinn gátu menn látið sig dreyma um að vera fjórum mörkum yfir en það var frábært að sjá það gerast í raun.“ Arsenal hefur sigrað í níu af síð- ustu 10 leikjum í deildinni og að- eins fengið á sig tvö mörk. Wenger sagði erfitt að skýra ástæðu vel- gengninnar. „Knattspyman er leyndardómsfull. Stundum gengur vel og stundum illa og ástæðan er ekki ávallt kunn. Nýju leikmenn- irnir hafa fallið vel inn í hópinn. Við höfum haldið enska andanum en bætt við erlendum leikmönnum.“ Blackburn hefur tapað fyrir tveimur efstu liðunum með skömmu millibili. Fyrir liðlega viku tók Manchester United sig á og vann 3:1 eftir að hafa verið marki undir í hléi en Arsenal var komið í 3:0 áður en 14 mínútur voru liðnar af viðureigninni annan í páskum. „Við vorum ekkert nema góð- mennskan við United og Arsenal og heldur betri við Arsenal,“ sagði Roy Hodgson, knattspymustjóri Blackburn, en liðið hefur tapað sjö af síðustu níu leikjum. „Annað liðið fékk stigin á þægilegan hátt en hitt varð að hafa mun meira fyrir hlut- unum. Bæði liðin em góð,“ bætti Reuters FRAKKINN Nicolas Anelka stóð sig vel með Arsenal í báðum leikjum helgarinnar. hann við og sagði ennfremur að United hefði haldið að Arsenal fengi ekki öll stigin á móti Black- burn. „En Arsenal sigraði." Tónninn á Old Trafford Gífurleg spenna var fyi-ir leik Manchester United og Liverpool á Old Trafford föstudaginn langa. Bæði lið þurftu á stigunum að halda með toppbaráttuna í huga en þau urðu að sætta sig við skiptan hlut, 1:1. Ronny Johnsen skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá David Beckham en Michael Owen jafnaði skömmu síðar. Hins vegar braut hann illa á Johnsen rétt fyrir hlé, fékk gult spjald í annað sinn og þar með rautt. 10 samherjar hans héldu merkinu á lofti og þó United væri mun meira með boltann og leikurinn færi nær alfarið fram á vallarhelmingi Liverpool héldu gestimir fengnum hlut. Reyndar fengu bæði lið góð marktækifæri en ekki tókst að nýta fleiri að þessu sinni. Urslitin voru viss vonbrigði fyrir United. „Þetta voru vonbrigði,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri meistaranna, sem hafa oft leikið betur. Ryan Giggs meiddist snemma og sagði Ferguson það hafa ráðið úrslitum. „Við voram að endurskipuleggja leik okkar á miðjunni þegar þeir skoraðu eftir vamarmistök og hik. Eins og svo oft var erfitt að leika á móti 10 mönnum. Við réðum ferðinni en í sannleika sagt voram við aldrei lík- legir til að sigra.“ Owen bað samherja sína afsök- unar. „Ég ^eyðilagði fyrir þeim,“ sagði hann. „Dómarinn gerði rétt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.