Morgunblaðið - 21.04.1998, Síða 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
t
BLAÐ
HANDKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR: DAGUR í „LÍFI“ ÍSLANDSBIKARS / B11
SA varð
meistari
SKAUTAFÉLAG Akureyrar
vaim Reykjavíkurúrval IBR
11:3 í gærkvöldi og tryggði sér
þar með íslandsmeistara-
titilinn í ísliokkí. Þetta var
þriðji leikur liðanna í
úrslitunum og sigraði SA 3-0.
Pétur var
bestur hjá
Hammarby
PÉTUR Marteinsson hefur
staðið sig mjög vel í fyrstu
leikjum sænsku deildarinnar í
knattspyrnu. Um helgina skor-
aði hann jöfnunarmarkið í 1:1-
jafhtefli við Gautaborg. Þótti
markið, sem gert var með
þrumuskoti rétt utan vítateigs,
sérlega glæsilegt og kóróna
góðan leiks Pétur. Markið
gerði Pétur með síðustu
spyrnu leiksins að sögn Afton-
bladet. Þetta er annað markið
sem Pétur gerir á stuttum tíma
því liann skoraði líka í 3:l-sigri
Hammarby á Öster í bikar-
keppniimi á dögunum.
Vegna frammistöðu sinnar
um helgina var Pétur m.a. val-
iim í lið umferðarinnar í dag-
blaðinu Dagens Nyheter.
Hammarby-menu, sem eru ný-
liðar í úrvalsdeildinni, eru í
þriðja sæti deildarinnar eftir
þrjár umferðir með 5 stig.
Boldon
nærri
heimsmeti
ATO Boldou, spretthlaupari
frá Trínidad, jafnaði á sunnu-
daginn þriðja besta tíma sem
náðst hefur f 100 m hlaupi er
hann sigraði á 9,86 sekúndum
á móti í Kaliforniú. Betri tíma
eiga heimsmethafinn Donovan
Bailey frá Kanada, 9,84 sek.,
og Bandaríkjamaðurimi Leroy
BurreU, 9,85. Carl Lewis frá
Bandarfkjúttum hljöp 100 m á
9,86 sek. í sigurhlaupi sínu á
HM í Tókýó fyrir sjö árum.
Síðar hafa Frankie Fredericks
frá Namibíu og æfingafélagi
Boldons, Marice Green, hlaup-
ið á sama tima.
„Ég er fjarri því að hafa náð
að útfæra hlaupið fullkom-
lega,“ sagði Boldon, sem varð
heimsmeistari í 200 m hlaupi
sl. sumar. „Viðbragðið hefur
batnað, en mig vantar enn
meiri styrk í fæturna, sem fara
að þreytast eftir 80 til 85
metra."
Morgunblaðið/Golli
OLEG Titov, rússneski línumaðurinn frábæri, í einum úrsiitaleikjanna við Val um íslandsmeistara-
titilinn. Sigfús Sigurðsson og Ingi Rafn Jónsson horfa á eftir honum; töpuðu þessari tilteknu orr-
ustu en þeir fögnuðu þegar upp var staðið; sigruðu í stríðinu um íslandsbikarinn.
THov á óskalista
hjá Wuppertal
Viggó Sigurðsson, þjálfari þýska
handknattleiksliðsins Wupper-
tal, hefur áhuga á að fá rússneska
línumanninn Oleg Titov, sem leikið
hefur með Fram, til liðs við þýska
félagið. Viggó staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að hann
hefði rætt við Titov og sagði áhug-
ann vera gagnkvæman. Hins vegar
vantar Wuppertal skyttu í staðinn
íyrir Ólaf Stefánsson sem er á för-
um til Magdeburg og hefur Viggó
verið í viðræðum við Króata. Þýsk
lið mega aðeins vera með tvo er-
lenda leikmenn frá löndum utan
evrópska efnahagssvæðisins og þar
sem Rússinn Dmitri Filippov, fyrr-
verandi leikmaður Stjörnunnar, er
fyrir getur Viggó aðeins fengið
Titov eða Króatann til viðbótar.
„Það er rétt, ég hef rætt við Titov
og ég veit að hann hefur áhuga á að
koma,“ sagði Viggó við Morgun-
blaðið en undir hans stjórn hefur
Wuppertal komið mjög á óvart í
þýsku 1. deildinni í handknattleik á
líðandi tímabili. „Ég vildi fá hann en
náist samningar við króatísku
skyttuna get ég ekki líka fengið
Rússann. Málið með Króatann á að
skýrast fyrir mánaðamót og ég hef
sagt Titov það.“
Geir Sveinsson, sem fótbrotnaði í
æfíngamóti landsliða í Reykjavík í
liðnum mánuði, lék á ný með Wupp-
ertal um helgina og gerði eitt mark
í 30:26 sigri á Hameln. Geir gekk
nýlega frá nýjum samningi við
Wuppertal og verður hann með lið-
inu næsta tímabil en getur líka
framlengt um eitt ár kjósi hann það.
Geir lék ekki í sjö vikur en stjórnaði
liðinu í sigurleik á móti Kiel á dög-
unum þegar Viggó var í banni en
aðstoðarþjálfarinn tók stöðu Geirs í
vöminni.
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í
Hameln eru í neðsta sæti þegar
tvær umferðir eru eftir í þýsku
deildinni. Hameln á eftir að mæta
TV Niederwúrzbach og Minden en
til að halda sætinu verður liðið að fá
fleiri stig en Dormagen sem á eftir
að leika við Niederwúrzbach úti og
Kiel heima.
Valsmenn
meistarar
Valsmenn urðu íslandsmeistarar
í handknattleik á laugardag, sigr-
uðu þá Fram auðveldlega í fjórða
úrslitaleik liðanna, 27:23. Þetta er
20. íslandsmeistaratitill Vals í
handknattleik.
■ Valur / B2-B6
Fjöldi
vinninga
Vinnings-
upphæð
Vinningar
íslénsk*
^GeíspáJ
VINNINGSTOLUR LAUGARDAGINN
18.04.1998
H Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
. 5 af 5 0 2.027.260
2. X5 G 152.150
3.4aI5 44 10.750
4. 3af5 1.587 690
Samtals: 1.633 3.899.590
HEILC IARVINNING 3.899.5 SUPPHÆÐ: 90
TVOFALDUR
1. VINNINGUR Á
LAUGARDAGINN
LtT,T«:
| VINNINGSTOLUR MIÐVIKUDAGINN
15.04.1998
AÐALTOLUR
BONUSTOLUR
38.621.000
2.763.764
3. 58,6
96.130
2.300
360
Samtals:
42.300.414
HEILDARVINNINGSUPPHÆÐ:
42.300.414
A ÍSLANDI:
3.679.414
TVÖFALDUR
1, VINNIKGUR k
lMIUVIKU&AUINN
| e Lottómiðarnir með bónus-
vinningunum voru keyptir
söluturninum í JL-húsinu við
Hringbraut í Reykjavík og
Við Voginn á Djúpavogi.
1 Athugið að nú er kominn nýr
og glæsilegur bæklingur á
sölustaði lottósins með
öllum upplýsingum um leiki
íslenskrar getspár, þar
meðal nýjan leik sem hefst
27. apríl. Fylgist með!
SÍMAR:
UPPLÝSINGAR í SÍMA: 568-1511
GRÆNT NÚMER: 800-6511
TEXTAVARP: 451 OG 453
í
I
t